Dagblaðið - 07.09.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7.SEPTEMBER 1978.
Skólarnirbyrjaðir:
Tugþúsundir setj-
ast á skólabekk
Þúsundir reykvískra barna og
unglinga mættu i skóla borgarinnar i
gær til að staðfesta innritun sína, en
kennsla hefst yfirleitt i dag. 1 Grunn-
skólum Reykjavíkureru nú um 12.100
nemendur og á landinu öllu munu um
40.000 nemendur stunda nárn á
grunnskólastigi.
1450 nemendur
í Fellaskóla
Blaðamenn DB hittu að máli
Finnboga Jóhannsson skólastjóra
Fellaskólans sem rnun vera fjölmenn
asti grunnskóli borgarinnar með 1450
nemendur. Hann sagði okkur að skól-
inn mundi starfa i vetur i 59 bekkjar-
deildum. Hefur þeim verið fækkað
nokkuð frá þvi í fyrra þrátt fyrir að
nemendum hafi ekki fækkað heldur er
nú fjölgað i bekkjardeildunum.
Kennsla hefst á morgun, föstudag. kl.
8.10. Fellaskólinn er þrísetinn í öllum
þeim stofum sem hægt er að koma þvi
við. Hinni almennu kennslu er þó
undantekningarlaust lokið kl. 4.45 en
sérgreinar, t.d. teikning og leikfimi,
geta staðið fram til kl. 6.30. Kennarar
við skólann eru alls 70, þar með taldir
stundakennarar.
„Samræming
fyrir aldamót"
í framhaldsskólum borgarinnar
mun kennsla ýmist vera hafin eða
u.þ.b. að hefjast. Kennsla i Kennara-
háskólanum er hafin og í Háskóla
Íslands er kennsla hafin í Verkfræði-
og raunvisindadeild en aðrar dcildir
hefjast siðar, en allar fyrir 25. sept. Dr.
Halldór Guðjónsson kennslustjóri
H.Í. sagði að stefnt væri að þvi að
samræma þetta þ.e. að allar deildir
H.i. hefjist 15. sept. Átti hann von á
að sú samræming væri orðin að veru-
leika „fyriraldamót.”
Öldungadeild við
Fjölbrautaskólann
Blaðamenn DB voru i gær
viðstaddir setningarathöfn Fjölbrauta-
skólans i Breiðholti sem haldin var í
Bústaðakirkju. í ræðu sem sr.
Guðmundur Sveinsson hélt við þá
athöfn kom frani, að skólinn er nú
settur i fjórða sinn og eru innrilaðir
nemendur skólans nú 1130 talsins en
voru 220 er hann hóf göngu sina.
Námssvið í skólanum eru nú 7 talsins
og skiptast i 26 námsbrautir. Flestir
i
«
Þessar þrjár yngismeyjar voru að hefja
nám i Fjölbrautaskólanum i Breið-
holti. Þær eru Helga Dðra Stefáns-
döttir, sem var að hefja nám á lista-
sviði, Nina Stefánsdóttir á viðskipta-
sviði og lngveldur Ólafsdóttir á heil-
brigðissviði.
DB-myndir Hörður.
Nemendur f 7. bekk Fellaskóla hlýða á skólastjóra sinn,
eru nemendur á viðskiptasviði eða
265. næst kemur almennt bókmennta-
svið með 256 nemendur. Á tæknisviði
eru 206, á heilbrigðissviði 167. á
uppeldissviði 100. Fæstir eru
nemendurnir á listasviði eða 73 og 70
á hússtjórnarsviði. I setningarræðu sr.
Guðmundar kom einnig fram að
miklar líkur væru á að öldungadeild
verði stofnuð við skólann frá árs-
byrjun 1979.
Yrði þar um að ræða fjögur náms-
svið: almennt bókmenntasvið, tækni
svið. listasvið og viðskiptasvið. Sr.
Guðmundur lauk ræðu sinni með%
þessum orðum: „Komið heil til starfa.
Verið heil í starfi.”
GAJ
Heitur matur brátt til aldraðra
20 Arum A eftir tímanum
„Nei við urðum ekki hissa á neinu
sem kom frá hinum Norðurlandabúun-
um. En þeir áttu ekki orð til þess að lýsa
undrun sinni yfir því hversu við erum
aftur úr í öldrunarþjónustu. Eins og ég
hef svo oft bent á erum við 20 árum á
eftir þcini i Sviþjóð og enn meira á eftir
Bretuni. sagði Þór Halldórsson yfir
læknir. Þór hélt ræðu um fyrirbyggjandi
aðgerðir í öldrunarþjónustu á fundi
höfuðborgardeilda Rauða krossins sem
haldinn var i Reykjavík um síðustu
helgi.
„Meðfyrirbyggjandi aðgerðum meina
ég að reynrt sé að konta í veg fyrir að
aldraðir fari inn á stofnanir of snemma.
að fólk geti verið heima hjá sér sem
lengst. Til þess þarf að tryggjáöldruðum
margvislega þjónustu. Almenningur
heldur oft að þegar verið er að ræða urn
öldrunarþjónustu sé eingöngu átt við
byggingu elli og hjúkrunarheimila.
Auðvitað er það mikill þáttur en skiptir
ekki öllu máli.. Einn liðurinn í þjónust-
unni við aldraða er að gera þeim kleift
að fá heitan mat heini. Siðan þurfa
þeir aðstoð við þrifnað og annað þess
háttarauk félagsráðgjafar.
Félagar okkar frá Norðurlöndum
höfðu engan sérstakan áhuga á að ræða
svona mál þvi þeir telja sig. að minnsta
kosti Svíar og Danir. vera búna að lcysa
öll svona vandamál. Norðmenn eru
aftur nær okkur og eiga töluvert í land.
Norðurlandamennirnir urðu alveg
hissa þegar þeir fréttu að yfir helmingur
allra stol'nana fyrir gamalt fólk á Íslandi
heyri ckki undir rikið. þrátt fyrir að
þessar stofnanir séu rcknar af almanna
fé. Einn fulltrúanna, sem er fyrrverandi
borgarstjóri i Kaupmannahöfn. átti ekki
orð til þess að lýsa furðu sinni á þessu. i
Danmörku og Svíþjóð er það þannig að
enginn aldraður fer inn á svona stofnun
án þess að metið sé áður hvort hann þarf
á þvi að halda. og það sem nteira er.
hvort hann á rétt á þvi. Ríkið hefur
þannig hönd i bagga með hverjir nota
þær stofnanir sent það leggur fé tii.”
Eitt af þeim fyrirbyggjandi atriðum
sem Þór nefndi var rætt sérlega itarlega
á fundi Rauða krossdeildanna. Það að
útvega öldruðu fólki heitan mat heint.
Byrjað var á slíku fyrir nokkrum árum
hér á landi en starfið lagðist fljótt niður
vegna fjárskorts. 1 haust á hins vegar að
reyna aðendurvekja þessa starfsemi. En
með hvaða sniði hún verður er ekki
ennþá ákveðið. Mestur áhugi er þó fyrir
að færa gamla fólkinu matinn heini.
hvar svo sem það býr i bænum. Að sögn
Ragnheiðar Guðmundsdóttur læknis
og formanns Reykjavikurdeilda Rauða
krossins ber oft á þvi að ganialt fólk sem
býr eitt þjáist af eggjahvítuskorti vegna
þess að það velur sér ekki rétta fæðu.
DS
... . . ...............................
Getraun Flugleiða:
33 ÞUSUND LAUSNIR
Flugleiðum bárust yfir 33 þúsund
lausnir i fjölskyldugetraun þeirri er
félagið efndi til í tilefni 5 ára afmælis
sins. Dregið var úr svörunum í gær að
viðstöddum borgarfógeta og þessir
unnu:
Þriggja vikna fjölskylduferð til
Miami hlaut Pálnti Ólafsson. Laugar
nesvegi 52. Reykjavik.
Tveggja vikna fjölskylduferð til
Alpafjalla hlaut Kristján B. Kristjáns
son. Melhúsum, Bessastaðahreppi.
Tveggja vikna fjölskylduferð til
Parisar hlaut Jóhanna Eggertsdóttir.
Framnesvegi 14. Keflavik.
Farseðlar fyrir tvo á millilanda-
leiðum Flugleiða hlutu: Jón
Guðmundsson. Bogaslóð 12. Höfn.
Hornafirði. Fjalar Sigurðarson, Bjarn-
hólastig 19. Kópavogi. Kristján
Einarsson. Enni. Viðvikurhreppi.
Skagafirði. Gisli Rúnar Ma.gnússon.
Syðra-Brekkukoti. Eyjafirði. Marteinn
Jónasson. Kjalarlandi 17. Reykjavik.
Hildur Hansen. Bárugötu 10. Dalvik.
Sigrún Óladóttir. Sveintúni. Grimsey.
Arnór Sveinsson. Hjaltabakka 10.
Reykjavík. Þóra K. Magnúsdóttir.
Hraunsmúla. Staðarsveit. Snæfells-
nesi. Jón Geir Ágústsson. Hantragerði
21. Akureyri.
Farseðla fyrir tvo á innanlands-
leiðum Flugleiða hlutu: Hildur Ruth
Gisladóttir. Sólvallagötu 6. Reykjavik.
Skúli Skúlason. Ennisbraut 35. Ólafs-
vik. Haukur Jónsson. Stekkjagerði 8.
Reykjavik. Hans Hafsteinsson.
Breiðvangi 32. Hafnarfirði. F.mhla
Dis Ásgeirsdóttir. Sæviðarsundi 56.
Reykjavik. Anna Steinunn
Guðmundsdóttir. Bræðratungu 14.
K'ópavogi. Sigriður Magnúsdóttir.
Þykkvabæ. Rangárvallarsýslu.
Hjördís Sigurðardóttir. Arnartanga
14. Mosfellssveit. Erlendur Magnús
son. Sævargörðum 7. Seltjarnarnesi.
Ólafur Va Idimarsson. Vorsabæ 19.
Reykjavík.
Ha
saumaðir
Leðurfoðraðir,
frá hæl, í tá,
Mjúkir leðurfóðraðir kantar
Léttir oq sterkir
Verð kr. 12.675.
Litur: INIatur leður
Stærðir: Nr. 35—46
Postsendum
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll Sími 14181