Dagblaðið - 07.09.1978, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1978
Iþróttir
þróttir
mm
„Gerðum nóg
til að sigra
—ekki meir”
— sagði Gmoch,
þjátfari pólska liðsins
„Viö gerðum nóg til að sigra, ekkert
meir,v sagði Gmoch, þjálfari pólska
landsliðsins eftir 2—0 sigur Pólverja i
Laugardal i gærkvöld. Hinn geðugi
þjálfari lék á als oddi eftir leikinn,
klæddur kakíjakka. „íslenzka liðið er
gott, leikur hraða nótimaknattspyrnu —
en inargt vantar vissulega. Ég er
ánægður með sigurinn — það er langt
siðan ísland hefur verið sigrað með
tveimur mörkum hér i Reykjavik, ekki
satt?
Við erum nú að byggja nýtt lið eftir
HM, ýmsir af leikmönnum er voru í HM
eru ekki lengur með og við höfum b.vrjað
vel. Sigraði i tveim fyrstu leikjum okkar
— fyrst i Helsinki, 1—0, og nú hér í
Reykjavik 2—0. Við munum bygg.ia upp
nýtt, frægt lið — rétt eins og hið fyrra,”
sagði Gmoch og brosti. F.n Pólverjar
hafa risið hátt i hcimi knattspyrnunnar
undanfarin ár. Urðu ólympiumeistarar
1972, hrepptu brons í HM í Munrhen
’74, silfur á ólympiuleikunum i Montreal
og voru með eitt sterkasta liðið i
Argentinu. En hverjir sigra í 2. riðli
Evrópukeppni landsliða? „Polierjar aö
sjálfsögðu, get ég sagt annað?” sagói
Gmoch, þjálfari pólska liðsins að lokuir.
„Egmungera
breytingar”
— sagði Youri llitschev
eftirósigurinn
„Eg er vonsvikinn, óánægður með
fyrri háifleik, þá var haráttan i lágmarki,
fjöldi mistaka í vörninni og leikmenn
voru ávallt of seinir í tæklingu,” sagði
Youri llitschev, þjálfari íslenzka
landsliðsins eftir ósigurinn i Laugardal í
gærkvöld.
„Ég þarf að gera breytingar, við
verðum að ná upp meiri hraða, lékum
hægt eins og raunar öll islenzk lið. Hins
vegar var ég ánægður með síðari hálf-
leikinn, breytingar er gerðar voru á
liðinu og taktik hjálpuðu til. Bæði
mörkin voru slæm mistök, og við hefðum
sjálflr átt að skora. Það sem fyrst og
fremst þarf að gera er að styrkja
miðjuna, þaðan ræðst leikurinn,” sagði
Youri llitschev.
„Sterkt
pólskt
landslið”
sagði Jóhannes
Eðvaldsson
„Það var ákaflega erfitt að lcika gegn
Pólverjum. Hreyfanleikinn í liði þeirra
var mikill, ákaflega sterkir lcikmenn.
Hins vegar var enginn hreyfanleiki i
okkar liði i fyrri hálfleik og það virtist
eitthvað svo vonlaust að sparka bara
fram — knötturinn kom jafnharðan
aftur,” sagði Jóhannes Eðvaldsson,
fyrirliði islenzka liðsins eftir leikinn I
gærkvöld.
„Við bárum allt of mikla virðingu
fyrir Pólverjunum og það varð okkur
dýrkeypt. Hinu má ekki gleyma, að
Pólverjar hafa á að skipa einu sterkasta
landsliði hcims. Þeir hafa leikið saman
30 sinnum fleiri leiki en við — og svo
| crum við bara liðlega 200 þúsund.
Við áttum „downleik” í fyrri hálfleik
en náðum betur saman í scinni hálfleik
— en mörkin voru ódýr,” sagði
Jóhannes Eðvaldsson.
Tap Standard
í Antwerpen
— Antwerpen sigraði Standard 1-0,
sjálfsmark Standard
Standard Liege tapaði í Antwerpcn i
1. dcildinni í Belgiu í gærkvöld, 1—0.
Fyrsti ósigur Standard í haust. Eina
mark leiksins var sjáifsmark varnar-
manns Standard en framlina liðsins er nú
dauf. Helzti markaskorarinn i fvrra,
Austurríkismaðurinn Riedl, var nýlega
skorinn upp og Standard er nú á höttun-
um eftir leikmönnum.
Standard leitaði hófanna hjá Roger
Davies, fyrrum Brugge er nú leikur með
Leicester í 2. deild, en Davies vildi ekki
fara frá Englandi. Anderlecht vann stór-
sigur í gærkvöld á Charleroi, gamla
liðinu hans Guðgeirs Leifssonar, 7—1.
Þá sigruðu meistarar FC Brugge
Beveren, er hefur leitað hófanna hjá
Pétri Péturssyni. 2—1. Beringen náði
aðeins jöfnu gegn Berchem, 0—0 á
heimavelli og missti þar sitt fyrsta stig.
Beringen og Waregem, er sigraði
Courtrai 3—1, eru nú efst með 5 stig.
Standard Liege hefur hlotið 3 stig en
neðst er nú Molenbeek — hefur ekki
hlotið stig, tapaði i gærkvöld fyrir
Waterschei, 0—2.
Swansea lagði
Tottenham!
—3. deildarlið Swansea sigraði Totten-
ham 3-1 íLundúnum ídeildabikarnum
Tottenham mátti í gærkvöld lúta
! lægra haldi gegn 3. deildarliði Swansea
j undir stjórn John Toshack, fyrrum
leikmanns Liverpool, 1—3 I Lundúnum.
j Þessi ósigur fylgir í kjölfar 0—7 ósigurs
ITottenham á Anfleld, gegn Liverpool —
] salti núið í sár Tottenham.
John Toshack skoraði fyrsta mark
leiksins og kom Swansea yfir. Jeremy
| Charles bætti við öðru marki fyrir
leikhlé en Tottenham náði að minnka
muninn á 56. mínútu. Snjall leikur
þeirra GlenHoddle ogOsvaldo Ardiles
Ardiles sendi knöttinn til landa sins.
I Ricardo Villa sem skoraði með góðu
skoti. En Adam var ekki lengi i Paradis.
Tottenham náði ekki neiitni pressu og
Alan Curtis tryggði Swansea öruggan
sigur. 1 —3 með góðu ntarki. Tottenham
j er enn án sigurs í deild og bikar.
Úrslit i deildabikarnum i gærkvöld
| urðu annars:
I Leeds-WBA
Hereford-Northampton
Nottingham Forest—Oldhant
Tottenham-Swansea
0-0
0-1
4-2
1-3
Leeds og WBA léku markalaust jafn-
liefli á Elland Road, þrátt fyrir fram-
lengingu náðust úrslit ekki fram. Loks
skoraði Nottingham Forest, en það var
ekki fyrr en í síðari hálfleik að leikmenn
meistára Forest fóru af stað — David
Necham náði forustu fyrir Forest á 49.
minútu, sex mínútum siðar bætti Kenny
Burns við öðru marki. Tony Woodcock
skoraði þriðja markið á 61. mínútu og
loks skoraði John Robertsson fjórða
mark Forest á 64. minútu. Oldhant
skoraði tvívegis í lokin. Alan Young og
Vic Halxon skoruðu.
A-Þjóðverjar
sigruðu Tékka
A-Þjóðverjar sigruðu Evrópumeistara
Tékka 2—1 i vináttulandsieik þjóðanna í
Leipzig. A-Þjóðverjar náðu forustu á 20.
min. er Pommerenke skoraði upp úr
hornspyrnu. Tékkar sóttu meir í síðari
hálfleik en þrátt fvrir það náði Eigendorf
að auka forustu A-Þjóðverja á 66.
minútu. Miðvörðurinn Ondrus náði að
minnka muninn sjö minútum fyrir leiks-
lok með góðu skoti af löngu færi.
* *ttre»
nm mmirnmnpsi
Janus Guðlaugsson hefur betur i skallaeinvfgi við pólska varnarmenn, gnæflr yflr en
POLSKUR SIGUI
Pólver jar sigruðu íslendinga 2-0 í Evrópi
ísland varð i gærkvöld að lúta i lægra
haldi fyrir sterku pólsku landsliði i
Evrópukeppni landsliða í Laugardal, 0—
2. Það fór aldrei á milli ntála hvort liðið
væri sterkara. Pólverjarnir voru lengst
af með undirtökin — þaulæfðir atvinnu-
menn í baráttu við áhugamcnn islenzka
liðsins. En ágætur leikur islenzka liðsins
á köflum í síðari hálfleik setti póisku
vömina i vanda og ísland hefði átt að
skora en leikmenn voru ekki á skot-
skónum, frekar en i fyrri landsleikjum
Isiands undir stjórn Youri llitschev.
íslenzka liðið hefur nú leikið þrjá leiki
undir stjórn Youri llitschev — tvö jafn-
tefli. eitt tap. Ekkert niark skorað . 1
sjálfu sér ekki afleitt en islenzka liðið
skorti ncista. baráttuneista i gærkvöld.
sér í lagi i fyrri hálfleik. i siðari hálfleik
var islenzka liðið mun ákveðnara
nánast sem annað lið væri á vellinum.
en í raun var það um seinan. Pólska
Knötturinn á leið yfir Áma Stefánsson markvörð og I
mctra færi.
netinu hafnaði hann, fyrra mark Pólverja var staöreynd, skorað af 30
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
liðið hafði náð að skora i fyrri hálfleik,
— og hinir reyndu pólsku leikmenn gátu
þvi leikið upp á að halda fengnu
forskoti.
Ef við lítum á leikinn þá fóru bæði lið
sér hægt i byrjun. rétt eins og þau væru
að þreifa fyrir sér. Leikmenn islenzka
liðsins áttu i erfiðleikum með að halda
kneltinum. eldfljótir Pólverjar voru
umsvifalaust komnir á þá. og undir
pressu misstu Ieikmenn knöttinn, eða
röng sending. Greinilegt að dagskipun
Pólverjanna var. — leikið fast og gefið
ekki þumlung eftir.
Fyrsta hættulega tækifæri leiksins
kom á 16. mínútu er hinn eldfljóti
miðherji pólska liðsins. Lata. kom
knettinum franthjá Árna Stefánssyni en
Gisli Torfason var á réttunt stað.
bjargaði er tveir pólskir framherjar sótlu
að honunt. Á 23. minútu náðu Pólvcrjar
forustu. alveg óvænt. Marek Kusto átti i
höggi við tvo varnarntenn íslcnzka
liðsins út við vinstri hliðarlinu. þá íiisla
Torfason og Hörð Hilmarsson. Hann
komst frarn hjá þeim og lék upp að vita-
teigshorninu. þrentur metrum utan vita-
teigs skaut hann þruntuskoti aö marki.
Árni Stefánsson átti i erfiðleikum frá
upphafi — knötturinn fór i sveig yfir
hann. þrátt fyrir örvæntingarfulla til-
raun náði hann ekki til knattarins og i
netinu hafnaði hann. Pólsku leik-
mennirnir fögnuðu innilega. áhorfendur
setti hljóða, óvænt mark. Skot Kusto var
firnafast og vel heppnað en engu að
siður verður að skrifa nrarkið á reikning
Árna Stefánssonar markvarðar.
íslenzku leikmennirnir virtust missa
nokkuð nióðinn, deyfð var yfir íslenzka
liðinu. Á 30. minútu niunaði litlu að
Pólverjar ykju forustu sína. Hinn ávallt
hættulegi Lato átti sendingu á Blancho í
eyðu. en Árni Stefánsson bjargaði vel af
'fótum hans. Á 34. minútu fengu íslend
ingar sitt eina tækifæri i fyrri hálfleik.
Karl Þórðarson tók hornspymu frá
hægri. sendi vel fyrir. Jóhannes Eðvalds-
son hafði betur I skallaeinvígi við
pólskan varnarmann, skallaði að marki
fyrir fætur Guðmundar Þorbjörnssonar,
sem sneri frá marki. Guðmundur spyrnti
áfram en vippaði yfir. Á 43. minútu átti
Boniek skalla yfir og á siðustu minútu
fyrri hálfleiks skallaði Blancho framhjá
— 0—1 i leikhléi.
Youri Uitschev setti Inga Björn
Albertsson inn fyrir Hörð Hilmarsson i
leikhléi og það var greinilegt að Youri
hafði lesið yfir sínum mönnum í leik-