Dagblaðið - 07.09.1978, Síða 15
DAG BLAÐIÐ. FIMMTUDAG UR7. SEPTEMBER 1978.
?SR2SIS3jiÍ
13 íTSfeSííS
Eþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Wir*!**
ekki tókst að nýta það.
DB-mynd Bjarnleifur.
11LAUGARDAL
ukeppni landsliða í Laugardal ígærkvöld
hléinu — islenzka liðið sýndi niun meiri
baráttu, nieiri hraða i siðari hálfleik og
Ingi Björn kom vel frá sinu hlutverki,
kom hraði i kring um hann. Þegar á
fyrstu minútu siðari hálfleiks lék Atli
Eðvaldsson á varnarmann, inn i vitateig-
inn frá hægri og skaut föstu skoti er
hafnaði i hliðarnetinu. sennilega hefði
hann betur gefið fyrir i teiginn þá.
Þetla upphlaup gaf fyrirheit. og hinir
tryggu áhorfendur voru þegar með á
nótunum. studdu vel við bakið á
íslenzku leikmönnunum. Á 27. minútu
batt Janus Guðlaugsson enda á göða
sóknarlotu. Pétur Pélursson sendi út á
Janus, sem skaut úr vitateignum. en
Kukla. markvörður pólska liðsins varði.
Á 38. mínútu síðari hálfleiks gerðu
Pólverjar svo út urn leikinn. Pólverjar
náðu knettinum við miðlínu. Masztaler
brunaði upp að vitateig. Jóhannes
Eðvaldsson var til varnar. en hann rann
og féll — og vörnin opnaðist skyndilega.
Maztaler sendi góða sendingu i eyðu
innfyrir islenzku vörnina og Lato var
skyndilega á auðum sjó — hann átti ekki
i vandræðum með að konia knettinum
framhjá Árna Stefánssyni. úr þröngri
stöðu. 0—2.
Þar með slökktu Pólverjar siðustu
vonarncista islenzka liðsins en Ísland
fékk þó bezta marklækifæri leiksins. Atli
Eðvaldsson skaut föstu skoti af um 25
metra færi. góðu skoti, sem Kukla hálf-
varði. Ingi Björn Albertsson fylgdi vel
eftir og hann slóð skyndilega fyrir opnu
marki. aðeins Kukla markvörður fyrir
framan hann en skot hans var mis-
heppnað— Kukla varði.
Fyrsti ósigur íslands undir stjórn
Youri llitschev og greinilegt að enn er
Youri að þreifa fyrir sér — og á við
ntörg vandamál að striða. Þó eru Ijósir
punktar — Árni Sveinsson bakvörður
sýndi ntjög góðan leik. var bezli maður
liðsins. Finnur ávallt samherja. ávallt
rólegur undir pressu og gegn
Pólverjum sýndi Árni á sér nýjar hliðar
— hann var mjög (raustur i vörninni og
Pólverjar áttu i erfiðíeikum að komast
franthjá honuni. Þá var Karl Þórðarson
friskur á köflum. eini leikmaðurinn í
islenzka liðinu. sem getur einleikið — og
Karl á vissulega að gera það, hann hefur
hæfileikann til þess. Greinilegt að hon-
um eykst sjálfstraust nteð hverjum leik.
Guðmundur Þorbjörnsson — vaxandi
leikmaður og í siðari hálfleik var hann
drjúgur. Hlutverk Péturs Péturssonar er
ekki öfundsvert. átti iðulega i höggi við
fjóra vamarmenn, en þráll fyrir það
var greinilegt að Pólverjar máttu aldrei
lita af honum. Litlu munaði i siðari hálf-
léik að hann upp á eindæmi næði að
brjótast i gegn. en var óheppinn.
Vörnin var traust á köfluni en gerði
þess á milli mistök. Jóhannes Eðvalds-
son stjómaði sem fyrr öllu þar. en ein-
hvern veginn náði Búbbi ekki að
..dóminera" eins og oft áður. Miðvallar-
spiliðer helzti höfuðverkur Youri. —
Mikið er lagt á herðar J.u.usar
Guðlaugssonar. og þrátt fyrir mikla yfir-
ferð þá hefur hann ekkináðað stjórna
spili liðsins. Hörður Hilmarsson var og
daufur. — mun nteiri snerpa. hreyfan-
leiki á Inga Birni.
íslenzka liðið verður að ná upp meiri
hraða og hreyfanleik. iðulega, sér í lagi i
fyrri hálfleik. voru leikmenn sem áhorf-
endur, beinlinis stóðu og horfðu á.
En pólska liðið er sterkt. mjöþ sterkt.
Þjálfari liðsins, Grnoch er að byggja upp
nýtt liðeftir HM. Hann hefur þó kjarna
úr HM-liðinu. valinn maður á hverjum
stað. Leikmenn fundu ávallt samherja
með hárnákvæmum sendingum. hraði
og snerpa einkenndi leik liðsins.
Dómari leiksins var N -írinn T. Perry.
-H.Halls.
Knattspyrnudeild Skallagríms
Borgarnesi
óskar eftir þjálfara frá og með 1. jan
1979.
Uppl. gefur Garðar Halldórsson í síma
93-7200 frá kl. 9—18.
Slakur dagur
íslendinga!
íslenzka sveitin náði ekki að sýna sitt
rétta andlit á Norðurlandamótindu i
golfi sem háð er i Kalmar í Sviþjóð.
Sviar hafa örugga forystu á 385
höggum, næstir koma Norðmenn á 396
cg Danir eru i þriðja sæti á 397 höggum.
ísléndingar eru 1 fjórða sæti á 406, 15
höggum á undan Finnum.
Það er þvf nokkuð Ijóst að islenzku
strákarnir þurfa að leika mjög vel i dag
ÍSAL-KEPPNIN
— hjá GR um helgina
9. og 10. september fer fram hin
árlega ÍSAL keppni i golfi á Grafarholts-
velli. Keppt verður I m.fi. 1. fl. II. fl. (af
hvitum teigum) og 111. fl. karla (af
rauðum teigum) án forgjafar og einum
flokki kvenna m/forgjöf. Keppt er um
farandgripi gefnum af ISAL. Að þessu
sinni hefur ÍSAL iátið gera sérlega
glæsileg eignarverðlaun sem eru hand-
málað postulín sem Kolfinna Ketils-
dóttir, Reyðarfirði, hefur gert. Keppnin
er 36 holur, leiknar kverða 18 holur
hvorn dag. Ræst verður út kl. 10.00—
14.00 laugardaginn 9. sept. Þátttaka
tilkynnist i sima 84735.
Kappleikjanefnd G.R. hvetur sem
flesta til að taka þátt I þessu síðasta
stórmóti sumarsins á Grafarholtsvelli.
þó ekki væri nema til að halda fjórða
sætinu og svo einnig til að komast I
úrslitakeppni einstaklinga en i hana
komast 32 beztu en ekki 16 eins og sagt
var i blaðinu i gær.
Völlurinn var mjög blautur og rok
allan tfmann meðan leikið var og háði
það greinilega keppendum þvi bezta skor
var 74 sem er ekkert sérstakt, það átti
Svíinn Bjöm Svedin.
Óskar lék bezt Islendinganna á 78
höggum, lék rólega og yfirvegað og lenti
aldrei i neinum vandræðum. Björgvin
og Geir léku báðir á 80. Björgvin lék
mjög vel en fékk „sprengju” á tveim
holum eða þrjú högg yfir par hvora holu.
Ragnar lék á 82 sem er frekar lélegt
miðað við getu hans. Hannes var á 86 og
Sigurður á 90 höggum og geta þeir tveir
mikið betur.
íslendingar og Finnar nota tækifærið
og heyja landskeppni sin á milli,
punktakeppni, og hafa íslendingar betur,
13 punktar gegn 8.
I einstaklingskeppninni er Óskar I 14.
til 19. sæti, Björgvin og Geir í 27.—31.
og Ragnar í 35.-37. sæti.
Þó þetta sé ekki eins góður árangur
og búizt var við er þetta bezti árangur
íslands á Norðurlandamóti til þessa en i
dag er að duga eða drepast.
HBK
A myndinni sjást eignarverðlaunin ásamt einum af fimm af farandbikurum sem keppt
verður um f ísal-keppninni hjá GR um helgina.
Iþróttafatnaður
Merkjum og setjum auglýsingar á iþróttabúninga. Magnafsláttur til félaga, skóla o|
starfshópa.
PÓSt-
sendum
Dikoíiiifi /f.
Sportvöruverslun
Hafnarstræti 16 simi 24520
Öster sigraði
Örebro
Öster heldur sinu striki I Allsvenskan
— hefur tveggja stiga forustu eftir 3—1
sigur gegn Örebro i Vaxjö I gærkvöld.
Teitur Þórðarson skoraði ekki fyrir
Öster, sem sýndi góðan leik, og blöð f
Sviþjóð spá nú Öster meistaratitli en
Malmö hefur ekki vegnað vel eftir HM
en þar átti liðið marga leikmenn.
í vor var Öster ekki spáð þeirra vel-
gengni er félagið nú nýtur, ungir leik-
menn komu inn i liðið. Malmö er nú i
öðru sæti á eftir Öster.
Sviss sigraði
USA2-0
Sviss sigraði Bandarikin 2—0 i
vináttulandsleik þjóðanna i Lucerne i
gærkvöld. Svisslendingar höfðu mikla
yfirburði á glerhálum vellinum f Lucerne
eftir miklar rigningar. Aðeins stífur
varnarieikur og heppni komu f veg fyrir
mörg mörk Sviss. Ruidi Elsener skoraði
fyrir Sviss á 12. mfnútu og Marc
Schnyder bætti við öðru marki á 81.
mfnútu. Svisslendingar eru með íslend-
ingum i 4. riðli Evrópukeppni landsliða.
íþrótfir
HALLUR
HALLSSON
Forusta Ajax
íHollandi
Ajax hefur unnið fjóra fyrstu leiki sina
í 1. deiidinni i Hollandi, og markatalan
er 17-5. Ajax sigraði I gærkvöld nýliða
PEC Zwolle 3—0 á útivclli. Meistarar
PSV Eindhoven sigruðu Go Ahead frá
Deventer 1—0 f Eindhoven. Feyenoord
sigraði FC Haag 2—0, og AZ ’67
sigraði Arnhem 4—3. NEC frá Nijmeg-
en gerði jafntefli við Volendam, 0—0 á
útivelli.
Staða efstu liða er nú:
Ajax 4 4 0 0 17- -5 8
PSV 4 3 1 0 10- -2 7
Roda 4 3 I 0 8- -0 7
Twente 4 1 3 0 5- -2 5
NEC 4 1 3 0 4—1 5
Hreinn þriðji
íHelsinki
Hreinn Halldórsson varð þriðji á
Alþjóðlegu frjálsfþróttamóti i Helsinki i
gærkvöld. Hreinn varpaði kúlunni 19.66.
Sigurvegari varð Finninn Reijo Sthal-
berg. Hann varpaði kúlunni 20.41.
Annar varði heimsmethafinn I kringlu-
kasti A-Þjóðverjinn Wolfgang Schmidt,
varpaði 19.81.
A-Þjóðverjinn Wolfgang Hanisch
sigraði i spjótkasti, kastaði 88.70. Sigur-
vegari í 1500 m hlaupi varð norska
hlaupadrottningin Grete Weitz, hljóp á
4:11.2. í þrístökkinu sigraði Stefan von
Gerich, stökk 16.06. Martti Vainio
sigraði i 5000 metra hlaupi á 13:28.0. í
kringlukasti sigraði Wolfgang Schmidt,
heimsmethafinn, kastaði 67.36. Markku
Tuokko kastaði 64.92. Knut Hjeltnes
þriðji, 60.34. Rúmeninn Paul Copu
sigraði í 3000 metra hindrunarhlaupi á
8:31.0 og i stangarstökkinu sigraði Arto
Bryggare á 14.07.