Dagblaðið - 07.09.1978, Síða 26
26
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1978.
Urnttinn
Spennandi. djörf og athyglisverð ný cnsk
litmynd nteð Sarah Douglas og Julian
Glover. Leikstjóri: Gerry O’Hara.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýndkl. 3, 5, 7, 9 og 11.
.... salur i----------------
CHARROI
PRESLEY
Bönnuð börnum.
islenzkur texti.
Endursýnd kl. 3.05. 5.05, 7.05. 9.05 og
11.05
’Salur
Tígrishákarlinn
Afar spennandi og viðburðarik ný ensk
mexikönsk litmynd.
Susan George,
HugoStiglitz.
Leikstjóri: Rene Cardona.
Íslenzkur texti
Bönnuðinnan 14 á ra.
Sýndkl. 3.10,5.10.7.10.9.10og 11.10.
■ salur P—.............
Valkyrjurnar
litntynd.
íslenzkurtexti.
Bönnuðinnan I4ára.
Endursýnd kl. 3.15, 5.15. 7.15, 9.15 og
11.15.
ÞJÓDLEIKHÖSID
Sala aðgangskorta er hafin.
Frumsýningarkort eru tilbúin
til afhendingar. Miftasala
13.15-20 simi 11200.
Þjóöleikhúsift
Flótti Lógans
Slmi 11475,
Stórfengleg og spennandi ný bandarisk
framtiðarmynd.
íslenzkur texti.
Michael York
Peter Ustinov.
Bönnuðinnan I2ára.
Sýnd kl. 5, 7.l0og 9.I5.
<S
HAFNARBÍO
I
Sjálfsmorðs-
flugsveitin
Afar spennandi og viðburðahröð ný
japönsk Cinemascope litmynd um fífl-
djarfa flugkappa í síðasta stríði.
Aðalleikarar. Hiroshi Fujijoka, Tetsuro
Tamba.
Islenzkur texti.
Bönnuð börnum
Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11.
AUSTURBÆJARBÍÓ: Amerikurallið, sýnd kl. 5. 7
og 9.
BÆJARBÍÓ: í naulsmerkinu. kl. 9.
GAMI.A BÍÓ: Flóici Logans með Michael York og
Peter Ustinov. kl. 5.7.10og 9.15.
H AFNARBÍÓ: Sjálfsmorðsflugsveitin afar spennandi
og viðburðahröð ný japönsk litmynd um fífldjarfa
flugkappa í síðasta stríði. Sýnd kl. 3, 5. 7, 9 og II
Bönnuð börnum.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Kolbrjálaðir kórfélagar.,
kl.9.
HÁSKÓI.ABÍÓ: Lífvörðurinn. kl. 5. 7 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Spartacus. sýnd kl. 5 og 9.
NÝJA BÍÓ: Allt á fullu. sýnd kl. 5. 7 og 9. Bönnuð
innan I4ára.
REGNBOGINN: A: Hrottinn. kl. 3. 5. 7. 9 og 11. B:
Charro. kl. 3.05. 5.05. 7.05. 9.05 og 11.05. C:
Tigrishákarlinn, kl. 3.10, 5.10. 7.10. 9.10 og 11.10. D:
Valkyrjurnar. kl. 3.15.5.15.7.15.9.15 og 11.15.
STJÖRNUBÍÓ: Flóttinn úr fangelsinu með Charles
Bronsson. Robert Duvall og Jill Irland. sýnd kl. 5.7 og
9.
TÓNABÍÓ: Hrópað á kölska. sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
ENDURSKINS-!
MERKIERU '
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA !
UMFERÐARRÁÐ !
Útvarp
Sjónvarp
9
t. ....
MÍN
SKOÐUN
Gunnlaugur A. Jónsson
blaðamaður segir skoðun
sína á útvarpi og sjónvarpi
r r
IÞROTTIRNAR BEZTA EFNIÐ
\
Skoðun min á sjónvarpsdagskránni
er í sem allra stytztu máli sú að dag-
skráin er að því leyti ágæt að hún
hefur ekki tekið of mikið af tima
mínurn undanfarið. Er ég fletti yfir
dagskrána vikuna 28. ágúst — 3. sept.
kemur þó i Ijós að það er eitl og annað
sem ég hef horft á i sjónvarpinu en
minni timi hefur farið i útvarpið.
Ef nefna skal þá þætti sem ég horfi
eða hlýði á svona allajafnan þá verða
fyrst fyrir mér fréttirnar og er ekkert
nema gott um þær að segja. Þá reyni
ég yfirleitt að hlusta á Daglegt mál
Gísla Jónssonar. sem er ákaflega lær-
dómsríkur þáttur og hefur þann stóra
kost að vera það stuttur að ntaður
hefur alltaf tima fyrir hann. Aðrir
þættir sem ég læt helzt ekki framhjá
mér fara eru íþróttirnar, enska knatt-
spyrnan og sunnudagsguðsþjónustan.
íþróttaþættir Bjarna Felixsonar i sjón-
varpinu eru yfirleilt nokkuð góðir og
mér lízt vel á þá nýbreytni hans að
taka tíma í viðtöl við ýmsa iþrótta-
kappa og forystumenn iþróttahreyf-
ingarinnar. Þó má Bjarni gæta þess að
hafa þessi viðtöl ekki of löng en
honum hefur hætt nokkuð til þess.
Íþróttaþættir Hermanns Gunnars-
sonar í útvarpinu eru einnig góðir og
Hermann sjálfur mjög léttur og
'skemmtilegur í þessum þáttum sínum.
Um sunnudagsguðsþjónustuna er það
að segja. að mér finnst hún vera alveg
ómissandi hluti sunnudagsins og jafn-
vel eins og maturinn bragðist betur
Þessar upplýsingar komu frá leik-
listardeild Rikisútvarpsins um leikritið
i kvöld:
Fimmtudaginn 7. september kl. .
20.10 verður flutt leikritið Dagur er
liðinn eftir George Shiels. Leikstjóri cr
Þorsteinn Ö. Stephensen og er hann
einnig þýðandi leiksins. Flutningstimi
er röskar tvær klukkustundir. Aðal-
hlutverkið er leikið af Val Gíslasyni.
eftir að hafa hlýtt á hana. Þó getur
það brugðið til beggja vona og hin
andlega fæða getur verið misjöfn að
gæðum ekki síður en önnur fæða. En
þetta er þáttur sem kannanir sýna að
mikiðer hlustaðá.
Mánudaginn 28. ágúst fylgdist ég
með umræðuþætti i sjónvarpssal. Til
leiks voru mættir ritstjórar morgun-
blaðanna og ræddu um stjórnmála-
ástandið. Ég saknaði þess nokkuð að
sjá ekki ritstjóra síðdegisblaðanna með
i þessum þætti en á móti kom að þátt-
takendurnir voru ekki of niargir. Til
þess að slíkir þættir geti orðið
skemmtilegir mega þátttakendur helzt
ekki verða fleiri en fjórir. Mér fannst
Styrntir Gunnarsson, ritstjóri Mbl..
komast einna bezt frá þættinum og
sérstaklega tókst honum vel upp i
þeirri augljósu ætlan sinni að ala á
biturleika milli Árna Gunnarssonar og
Kjartans Ólafssonar. í heild var þetta
ninn skemmtilegasti þáttur og mætti
sjónvarpið bjóða upp á fleiri slika.
Á þriðjudag hefur ekkert freistað
min. hvorki i sjónvarpi eða útvarpi. Þó
kemur fyrir að ég horfi á Kojak sem er
að mínum dómi miðlungsgóður saka-
málaþáttur.
Á miðvikudaginn horfði ég á Dýrin
mín stór og smá. Þann þátt reyni ég
yfirleitt að horfa á enda er hann léttur
og mjög fyndinn á köflum. Bretar eru
hreinir snillingar í gerð slíkra þátta og
ekki vildi ég skipta á brezku þáttununt
ogskandinaviskum.
Aðrir sem fara með stór hlutverk i
leiknum eru: Ævar Kvaran, Helga
Stephensen, Sigurður Skúlason, Rúrik
Haraldsson og Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir. en auk þess koma þar fram i
minni hlutverkum þessir leikarar:
Flosi Ólafsson, Sigurður Karlsson.
Þórhallur Sigurðsson og Karl Guð-
mundsson.
Á fimmtudag heyrði ég útvarpið
annað slagið og þá með öðru eyranu.
Upplestur Ævars R. Kvaran á rnið-
degissögunni er með miklum ágætum
og gætu umsjónarmenn Áfanga mikið
lært af honum. Nýlega gagnrýndi
Þórarinn Þórarinsson skólastjóri þessa
sömu pilta fyrir lélegt málfar. Mér
finnst upplestur þeirra ekki siður
ámælisverður og einkennist hann af
þvi sérislenzka fyrirbæri sem lestónn
nefnist. Það væri ekki úr vegi að út-
varpið skyldaði alla þá er sjá um út-
varpsþætti til að fara í nám i framsögn
hjá Ævari Kvaran. Á þvi sýnist ærin
þörf jafn slæmur og upplestur í út-
varpi er oft á tiðunt. Ég hef annað
slagið hlýtt á þætti Jónasar Jónas-
sonar og bara haft gaman af. Jónas er
hreinasti snillingur i gerð slíkra sam-
talsþátta og tekst honum oft á tíðum
að gera litið áhugavert efni að hrein-
asta skemmtiefni.
Á föstudag var ekkert efni sem dró
mig að sjónvarpinu og á laugardag
voru það einungis íþróttirnar sem
heilluðu. Á sunnudag var svo Gæfa
eða gjörvileiki á dagskrá. Slikir fram-
haldsmyndaþættir eru mjög vinsælir
en þessi finnst mér heldur fyrir neðan
meðallag.
Þegar á heildina er litið er ég bara
ánægður með sjónvarps- og útvarps-
dagskrána þessa dagana og styrkleiki
hennar felst ekki livað sizt í því að hún
tekur ekki of mikinn tima frá manni.
- GAJ
*
Höfundurinn George Shiels er
irskur að ætterni og hefur skrifað all-
mörg leikrit og eru flest þeirra i léttum
stil. Írsk gamansemi virðist honum i
blóð borin og hann sér broslegu hlið-
ina i fari flestra persóna sem koma
fram í leikritum hans. Þetta leikrit ætti
því að verða góð kvöldskemmtun fyrir
þá sem á það hlýða.
Útvarp í kvöld kl. 20.10: Dagur er liðinn
Tveggja tíma langt leikrit
Þýðandinn og leikstjórinn Þorsteinn Ö. Stephensen með aðalleikaranum Val Gíslasyni.