Dagblaðið - 07.09.1978, Side 28
„Þið gætuð orðið
íeiðandi afl í Evrópu”
t™
— dr. Pirro
íheimsókn
og með
fyrirlestra
/
„Á aðeins fjórum árum hefur orðið
gifurleg breyting á afstöðu íslendinga
til áfengismála. Ég held að þetta sé
einsdæmi um heila þjóð og þið gætuð
vel orðið leiðandi afl i Evrópu í
þessum málum,” sagði dr. Pirro. Varla
er þörf á að kynna þann mann. Hann
er forstöðumaður ráðgjafardeildar
Freeport sjúkrahússins í New York og
þegar hann kom hérna fyrir 3 árum
tók íslenzka sjónvarpið upp þrjá
fræðsluþætti um áfengismál með dr.
Pirro. Þeir þættir hafa verið sýndir
tvisvar siðan.
„Allir sem ég hef hitt á lslandi segja
við mig, „ég sá þig í sjónvarpinu". Og
allir virðast hafa tekið tillit til þess sem
ég sagði þar. Ég get auðvitað ekki
dæmt um viðbrögð ykkar af öðru en
þvi sem ég heyri.
Áður en fyrstu Islendingarnir fóru
til Freeport fyrir fjórum árum síðan
voru aðeins 5 AA deildir starfandi á
Islandi. Núna eru þær 21. Og 13
þúsund manns gengu 1 SAA á einum
degi. Það hefðum við í New York sagt
að væri ekki hægt að fá eftir aðeins 6
mánaða vinnu. Þetta er sannkölluð
hugarfarsbylting," sagði Pirro. Nánar
verður greint síðar frá ýmsu sem sá
góði maður hafði til málanna að
leggja.
Pirro heldur fyrirlestra hér á landi
um og eftir helgina. Á laugardaginn
kl. 10 og 14 og á sunnudaginn kl.
10.30 og 14 í Súlnasal Hótels Sögu. Á
mánudaginn fer hann norður á
Akureyri og flytur fyrirlestur i Sjálf-
stæðishúsinu kl. 20.30 um kvöldið.
-DS.
Brúnin lyftist á fólkinu í Eyjum:
Fiskvinnsla af stað aftur
„á vilyrdum”
Búizt við að atvinnuleysisskráin tæmist í dag
Aftur hefur birt yfir atvinnu-
ástandinu i Eyjum. I gær hóf
Vinnslustöðin aftur starfsemi sína og i
morgun hófst vinna i Fiskiðjunni.
Innan skamms mun svo Eyjabergið
hefja frystingu og saltfiskverkun og
verður þá allt komið á fullan kraft i
fiskvinnslunni i þessari stóru verstöð
eftir margra vikna stopp alls staðar
nema hjá ísfélaginu.
„Við hefjum reksturinn eiginlega á
vilyrðum,” sagði Guðmundur Karls-
son forstjóri Fiskiðjunnar i viðtali við
DB. „Það er óskað eftir þvi að rekstur-
inn hefjist og við höfum vilyrði bank-
ans fyrir að geta greitt vinnulaun og
að fá eðlilega fyrirgreiðslu varðandi
hráefni. Fyrir dyrum stendur svo
skoðun á fiskvinnslufyrirtækjunum á
vegum sjávarútvegsráðuneytisins.
Við upphaf reksturins nú að nýju
liggur þvi ekki fyrir ákveðinn rekstrar-
grundvöllur umfrarn það sem felst i
15% gengisfellingunni. Það er hins
vegar ekki um annað að ræða en
halda þessu i gangi hér og i von um
betri framtið er byrjað." sagði
Guðmundur.
1 Vinnslustöðinni hófu i gær vinnu
tæplega 30 konur í fiskverkun og 12
karlmenn bættust i hóp þeirra sem
fyrir voru. Þegar allt er „á fullu” i
Fiskiðjunni vinna þar um 200 manns.
karlar og konur. Fiskvinnslan og
Vinnslustöðin fengu í gær rúmlega
100 tonna afla úr togaranum Sindra.
Var það blandaður afli.
Þess er þvi að vænta að skráin yfir
atvinnulausa í Eyjum tæmist i dag að
kalla, en á henni voru um 130 manns
þegar mest var.
ASt.
Tekjuöfl-
unin var
aðalmálið
á þingi sveitarféiaganna
Jón G. Tómasson, skrifstofustjóri
borgarstjórnar var einróma kjörinn for-
maður Sambands isl. sveitarfélaga, á 11.
landsþingi sambandsins sem lauk í gær.
Á þinginu var samþykkt að fjölga full-
trúum i stjórn sambandsins úr 7 i 9.
Aðrir í stjórn voru kosnir Sigurjón
Pétursson. borgarfulltrúi. Reykjavik;
Sigurgeir Sigurðsson. bæjarsljóri
Seltjarnarnesi; Alexander Stefánsson.
oddviti. Ólafsvík; Guðmundur B. Jóns-
son. bæjarfulltrúi. Bolungarvik; Jóhann
G. Möller. bæjarfulltrúi. Siglufirði;
Helgi M. Bergs.bæjarstjóri, Akureyri;
Logi Kristjánsson, bæjarstjóri. Neskaup-
stað og Ölvir Karlsson. oddviti.
Ásahrcppi.
Magnús E. Guðjónsson, frarn-
kvæmdastjóri Sambands isl. sveitar-
félaga sagði i samtali við DB í morgun.
að auk stjórnarskiptanna liafi tvö megin-
mál borið langhæst á þessu þingi.
Annars vegar var það umfjöllun um
frumvarpið um staðgreiðslukerfi opin-
berra skatla. sem skiptir sveitarfélögin
miklu máli þvi að i því er gert ráð fyrir.
að tveir helztu tekjustofnar sveitarfélag-
anna þ.e. útsvör og aðstöðugjöld verði
innheimt með staðgreiðslukerfi.
Hitl meginmálið á þinginu var
umfjöllun unt verkaskiptingu rikis og
sveitarfélaga. Magnús sagði. að auk
þess hefðu verið rædd ýmis smærri mál
cn þessi tvö hafi borið langhæst. GAJ.
Sigurður RE
aflahæstur
Siðasta sólarhriii!' lilkynntu fimm
skip loðnunefnd uin afla. samtals 2200
lonn. Flotinn er nú að veiðum við Jan
Mayen.
Heildaraflinn er nú orðinn 160
þúsund tonn. en var á sama tima i tyrra
100 þúsund tonn.
Aflahæsta skipið er Sigurður RE með
7338 tonn. Pétur Jónsson RE er með
5777 tonn og Gisli Árni RF. með 5322
tonn.
Kynlegt fley dregið að landi
Á tíunda timanum i gærkvöldi Náðist fljótlega til flekans og hann sem upp úr stóð. svo vonlegt var að
brugðu lögreglumenn hart við er kall vardreginn til lands. fólki brygði.
kom úr Ánanaustum um fleka á sjó Fleyið var einkennilega útbúið og
úti og virtist barn vera á honum. Enginn farþegi reyndist á fleyinu. kynlega merkt. Er nú hugað að hver sé
Gripið var i skyndi til gúmbálsins en það var þann veg útbúið að stöðug smiður þess.
góða og hann mannaður hið snarasta. hreyfing var á einhverjum hluta þess -ASt.
FIMMTUDAGUR 7. SEPT.
Frystihúsaeigendur
á Suðumesjum:
Bíða eftir
aðgerð-
stjórn
valda
„Það liggur ekkert fyrir um hvort
frystihúsin á Suðurnesjum opna,”
sagði forstjóri eins frystihússins í
Keflavik I samtali við DB í morgun.
Hann sagði að um helgina mundu
frystihúsamenn hittast og ræða málin
og þá fyrst væri að vænta fregna.
„Mér sýnist að þeir menn sem
stjórna landinu hafi skilning á vanda
frystihúsanna,” sagði Baldvin Njáls-
son í Gerðum í morgun. „Þaðstendur
ekki á okkur að opna ef við sjáum
nokkra möguleika á því,” sagði hann.
Allar likur benda til þess að eig
endur frystihúsa á Suðurnesjum ætli
að biða enn um sinn eftir frekari
aðgerðum stjórnvalda til lausnar
vanda frystihúsanna áður en þeir
hefja rekstur á ný. -GM.
Morðmálið:
90daga
varðhald
— oggeðrannsókn
Rannsókn morðmálsins er
haldið áfram á Flateyri og eru
nienn RLR þar enn við yfir
heyrslur og athuganir. Pilturinn
sem játaði að hafa orðið stúlkunni
að bana var fluttur til Reykjavikur
i gær. Var hann dæmdur i 90 daga
gæzluvarðhald og gerl að sæta
geðrannsókn. Hann heitir
Þórarinn Einarsson, Gyðufelli 12
en hin látna hét Sigurbjörg Katrín
Ingvadóttir.
Pilturinn hefur ekki verið ylir-
heyrður að ráði ennþá. Að sögn
bæjarfógetans á Ísafiröi var
pilturinn mjög miður sín og illa
hæfur til yfirheyrslu er hann var
fyrir vestan. Engar nýjar
upplýsingar varðandi rnálið liggja
l'yrir hjá rannsóknarlögreglunni.
-A.St.
BANKASTRÆTI8
Kaupið'Vx
TÖLVUR, £1
G TÖLVUUR