Dagblaðið - 09.09.1978, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978.
19
Síðan breytist ég aftur í krónprins..
og síðast en ekki sízt geng ég að eiga
. stúlkuna, sem kyssti mig!
Land Rover disil árg. ’71
til sölu, nýskoðaður 78. Þungaskattur
fylgir. Uppl. hjá bílasölunni Ársalir
Ártúnshöfða.
Chevrolet Nova árg. 1967,
6 cyl., sjálfskiptur, þarfnast smálagfær-
ingar. Uppl. i hádeginu og eftir kl. 7 á
kvöldin i síma 99-3647.
Varahlutir til sölu.
Höfum til sölu notaða varahluti í eftir-
taldar bifreiðir: Transit ’67, Vauxhall
Viva 70, Victor 70, Fiat 125 71 og
fleiri. Moskvitch, Hillman, Singer, Sun-
beam, Land Rover, Chevrolet ’65,
Willys ’47, Mini, VW, Cortina ’68, Ply-
mouth Belvedere ’67 og fleiri bíla.
Kaupum einnig bíla til niðurrifs. Uppl.
að Rauðahvammi við Rauðavatn í síma
81442.
Húsnæði í boði
4ra herb. íbúð
til leigu frá 1. okt. Fyrirframgreiðsla
Tilboð ásamt uppl. um fjölskyldustærð
sendist DB fyrir 14. sept. merkt „Selja
hverFi—014”.
Ertu i húsnæðisvandræðum?
Ef svo er, þá láttu skrá þig strax.
Skráning gildir þar til húsnæði er
útvegað. Leigumiðlunin Hafnarstræti
16, I. hæð. Uppl. í síma 10933. Opið alla
daga nema sunnudaga frá kl. 12 til 18.
Húseigendur—leigjendur.
Sýnið fyrirhyggju og gangið tryggilega
frá leigusamningum strax í öndverðu.
!Með þvi má komast hjá margvislegum
misskilningi og leiðindum á síðara stigi.
Eyðublöð fyrir húsaleigusamninga fást
hjá Húseigendafélagi Reykjavíkur.
Skrifstofa félagsins á Bergstaðastræti 11
er opin alla virka daga kl. 5—6, sími
15659. Þar fást einnig lög og reglugerðir
um fjölbýlishús.
Leiguþjónustan,
Njálsgötu 86, sími 29440. Leigutakar
ath. Skráning gildir þar til húsnæði fæst,
auglýsing innifalin í gjaldinú. Þjónusta
allt samningstiniabihð. Skráið
viðskiptin með góðum fyrirvara.
Leigusalar ath. Leigjum út fyrir yður
ibúðir, fyrirtæki, báta og fl. Ókeypis
þjónusta. Erum í yðar þjónustu allt
samningstímabilið. Reynið viðskiptin.
Leiguþ.jónustan Njálsgötu 86 sími
29440.
2 samliggjandi
herbergi með húsgögnum og eldunar-
aðstöðu til leigu nú þegar. Tilboð sendist
, blaðinu fyrir 15. sept. merkt. „056”.
Leigumiðlun Svölu Nielsen
hefur opnað að Hamraborg 10, Kóp..
sími 43689. Daglegur viðtalstími frá kl.
1—6 e.h., en á fimmtudögum frá kl. 3—
7. Lokaðum helgar.
Húsaskjól, Húsaskjól.
Leigumiðlunin Húsaskjól kappkostar að
veita jafnt leigusölum sem leigutökum
örugga og góða þjónustu. Meðal annars
með því að ganga frá leigusamningum,
yður að kostnaðarlausu og útvega með-
mæli sé þess óskað. Ef yður vantar hús-
næði, eða ef þér ætlið að leigja húsnæði.,
væri hægasta leiðin að hafa samband við
okkur. Við erum ávallt reiðubúin til
þjónustu. Kjörorðið er örugg leiga og
aukin þægindi. Leigumiðlunin Húsa-
skjólHverfisgötu82, sími 12850. i
Húsnæði óskast
i
Einhleypur karlmaður
í fastri atvinnu óskar eftir herbergi frá
og með 21/9 eða fyrr. Uppl. 1 síma
72349.
Ung og reglusöm stúlka
óskar eftir að taka á leigu í Hafnarfirði
herbergi með snyrtingu og sérinngangi,
ef mögulegt er. Getum veitt húshjálp.
Einhver fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022.
H-715
I _____________________________________
Barnlaust par á miöjum
aldri, bæði vinna úti, óskar eftir 2ja-3ja
herb. íbúð frá 1. nóv. Góð leiga fyrir
góða íbúð. Algjörri reglusemi og góðri
umgengni heitið. Fyrirframgreiðsla ef
þess er óskað. Uppl. sem fyrst næstu
kvöld í sima 26638 milli kl. 18 og 20.30.
Óska eftir 1 til
2ja herb. íbúð. Einhver fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Uppl. hjá auglþj.
DBísíma 27022.
H-006
4ra til 5 herb. íbúð,
raðhús eða einbýlishús, óskast á leigu
sem fyrst. Leigutími 7—9 mánuðir.
Uppl. í síma 38016 eftir kl. 5.
Ung reglusöm stúlka óskar
eftir einstaklings eða lítilli 2ja herbergja
ibúð. Uppl. í síma 27800, innanhússsími
253, eða 74015 heimasími.
Bílskúr eða geymsluhúsnæði
óskast. Ljós og hiti ekki nauðsynleg.
Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022.
H—992
Bílskúr óskast.
Óska eftir að taka lítinn bílskúr á leigu í
Hlíða- eða Háaleitishverfr. Uppl. í síma
15438.
Opinber starfsmaður
sem er einstæð móðir með 6 ára dreng á
framfæri sínu óskar eftir 2ja til 3ja her-
bergja íbúð strax. Er á götunni 1. okt.
Öruggar mánaðargreiðslur, meðmæli.
Tilboð leggist inn á blaðið fyrir 13. sept.
merkt „Húsnæði 4963”.
Unga konu
með eitt barn vantar 2—3ja herb. ibúð.
Ákjósanlegast í eða við miðbæinn. Uppl.
ísíma 24878 efti rkl. 19.
Höfum opnaðaftur
að loknu sumarleyfi. Húseigendur,
höfum leigjendur að 2ja, 3ja, 4ra og 5
herbergja íbúðum. Höfum einnig til sölu
4ra herbergja ibúð i austurbænum,
einnig höfum við kaupanda að 3ja til 4ra
herbergja íbúð í Laugarneshverfi. Opið
frá kl. 13—18 alla virka daga. Ibúða-
miðlunin.sími 34423.
Takið eftir.
Barnlaus hjón úr sveit norðan af landi
óska eftir að taka á leigu litla íbúð í
Reykjavík. Hann er við nám. Góðri um-
gengni heitið. Algjörreglusemi. Vinsam-
lega hringið í síma 18529, einnig á
kvöldin í síma 81114.
Leigumiðlunin
Hafnarstræti 16, 1. hæð. Vantar á skrá
fjöldann allan af 1—6 herb. íbúðum,
skrifstofuhúsnæði og verzlunarhúsnæði,
reglusemi og góðri umgengni heitið.
Opið alla daga nema Sunnudaga frá kl.
9—18. Uppl. í síma 10933.
Leigumiðlunin í Hafnarstræti 16,"
I. hæð. Vantar á skrá fjöldann allan af
1—6 herbergja íbúðum, skrifstofuhús-
næði og verzlunarhúsnæði, reglusemi og
góðri umgengni heitið. Opið alla dga
nema sunnudaga frá kl. 12—18. Uppl. í
sima 10933.
Barnlaust par
á miðjum aldri, bæði vinna úti, óskar
eftir 2ja—3ja herb. íbúð frá 15. okt.— I.
nóv. Góð leiga fyrir góða íbúð. Algjörri
reglusemi og góðri umgengni heitið.
Fyrirframgreiðsla ef þess er óskað. Uppl.
sem fyrst næstu kvöld í síma 26638 milli
kl. 18 og 20.30.
Halló, góðir Rcykvíkingar.
Vill einhver leigja okkur 2ja til 3ja
herbergja íbúð, erum 2 fullorðin i
heimili, mjög róleg og algjörlega
reglusöm. Mjög góð umgengni. Uppl. í
síma 18829.
Óskum eftir 2ja—3ja herb. íbúð.
Einhver fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Uppl. í síma 71794.
8
Atvinna í boði
8
Húsbyggjendur ath.
Trésmiðir geta bætt við sig verkefnum,
jafnt úti sem inni. Höfum góða aðstöðu
til að vélvinna .efni. Gerum föst
verðtilboð. Uppl. hjá auglþj. DB í síma
27022.
H-022
Ung kona óskar eftir
atvinnu allan daginn, er vön afgreiðslu-
störfum, en ýmislegt annað kæmi til
greina. Uppl. i síma 54307 eftir kl. 7
næstu 2 kvöld.
Gröfumaður.
Gröfumaður óskast, verður að hafa
próf. Uppl. í síma 34602.
I
Söngkona óskast
til starfa, í hljómsveit utan af landi
Uþpl. T sima 95-6394 í hádegi og á
kvöldin.
Maður vanur trésmíðum
óskast strax, ennfremur óskast geymslu
húsnæði má vera óupphitað. Uppl. hjá
auglþj. DB í síma 27022.
H-869
Vantar4 menn
í byggingarvinnu, bæði í Kópavogi og.
utan við bæinn. Uppl. í síma 41342 milli
kl. 12og 1 og7og8.
Kvöldstarf.
Viljum ráða til okkar nokkra unga menn
til kynningarstarfa í Reykjavík og ná-
grenni. Viðkomandi þarf að vera við-
ræðugóður og eiga auðvelt með að tjá
sig á skýran hátt, og geta unnið sjálf-
stætt. Afnot af síma og bifreið nauðsyn-
leg. Umsóknir ásamt uppl. um aldur,
menntun og' fyrri störf sendist blaðinu
fyrir 12. sept. merkt „Góðsölulaun”.
Sveit
Piltur helzt vanur óskast til sveitastarfa
á heimili á Suðurlandi. í 3 mán. Kaup
samkomulag. Uppl. hjá auglþj. DB í
síma 27022.
H-872
Garðabær.
Reglusöm og dugleg stúlka vön af-
greiðslu óskast. Vaktavinna. Uppl. í
síma 52464 og 40824.
Barngóð og dugleg stúlka
óskast til starfa við barnaheimili. Uppl. í
síma 40716, Kóp.
Starfsfólk vantar
í verksmiðju vora. einnig vantar vél-
gæzlumann. Sanitas.
;Verkamenn, gröfumaður.
Menn vana loftpressu og traktorsgröfu
vantar strax. Uppl. í síma 50997 og
50332.
Verkamenn óskast
til ýmissa framkvæmda. Hlaðbær hf.,
Skemmuvegi 65, Kópavogi, simí 75722.
Reglusamt eldra fólk
óskast í sveitavinnu, einnig kemur yngra
fólk til greina. Uppl. hjá auglþj. DB í
síma 27022.
H-729
8
Atvinna óskast
i
Fullorðinn ábyggilegur
maður með meirapróf óskar eftir starfi,
helzt á leigubíl (ekki skilyrði). Uppl. hjá
auglþj. DB í síma 27022. Geymið
auglýsinguna ef þið þurfið á mér að
halda seinna.
20 ára stúlka
óskar eftir vinnu við ræstingar eftir kl. 5
á daginn. Uppl. i síma 52833 eða 50984.
15 ára drengur
óskar eftir atvinnu allan daginn, margt
kemur til greina. Uppl. hjá auglþj. DB í
síma 27022.
H—962
8
Barnagæzla
8
Gæzla óskast fyrir
fimm ára dreng nálægt ísaksskóla. Við-
komandi þarf að geta komið honum í
skólann tvær vikur i mánuði og sótt
.hann 10 mín. yftr 5 og haft hann til kl. 6
eina viku í mán. Uppl. í síma 72069.
Flugfreyja
óskar eftir barngóðri konu til að annast
9 mán. gamla dóttur sína á daginn er
hún flýgur. 2 til 3 daga i viku. Æskilegt
sem næst Grænuhlíð. Uppl. í síma
36141.
Tapað-fundið
4 mán. kettlingur
(læða) tapaðist frá Hvammsgerði 1
síðastliðinn miðvikudag, er svartur á
bakinu og hvít- og gulbröndótt á
kinnunum, með hvítar hosur. Heitir
Pomba. Vinsamlegast hringið í síma
32722 eða 1 síma 14594. Fundarlaun.
8
Skemmtanir
■r 1
Diskótekið Disa — ferðadiskótek.
Höfum langa og góða reynslu af flutn-
ingi danstónlistar á skemmtunum, t.a.m.
lár'shátíðum, þorrablótum, skólaböllum,
útihátíðum og sveitaböllum. Tónlist við
allra hæfi. Notum Ijósasjó .og sam-
kvæmisleiki þar sem við á. Kynnum
lögin og höldum uppi fjörinu. Veljið það
hezta. Upplýsinga- og pantanasimar
52971 og 50513 (ásamt auglýsingaþjón-
ustu DB í síma 27022 á daginn).
H—94528
Diskótekið, Dollý, ferðadiskótek.
Mjög hentugt í dansleikjum og einka-
samkvæmum þar sem fólk kemur til að
skemmta sér og hlusta á góða dans-
tónlist. Höfum nýjustu plöturnar, gömlu
rokkarana og úrval af gömlu dansa
tónlist. Sem sagt: Tónlist við allra hæfi.
Höfum litskrúðugt Ijósasjóv við höndina
ef óskað er eftir: Kynnum tónlistina
sem spiluð er. Athugið: Þjónusta og stuð
framar öllu. Dollý, diskótekið ykkar.
Upplýsinga-ogpantanasími 51011.
8
Kennsla
8
Óska eftir aðstoð
við nám í íslenzkri málfræði og setninga-
fræði. Uppl. í síma 30215.
m