Dagblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978. DB á ne ytendamarkaði Mjólkin komin i nýjan „búning” — Hvert er næringargildi 100 gr af nýmjólk? Mjólkin okkar er nú komin í nýjan „búning”, mjög smekklegan með mikl- um og góðum upplýsingum. Utan á nýju tveggja lítra fernunum má lesa hvert er næringargildið í 100 gr af gerilsneyddri nýmjólk. Þar eru leið- beiningar um hvað hollur morgun- matur eigi að innihalda og á einni hlið fernunnar segir að hollur matur og hreyfing sé leiðin til betra lifs. Næringartaflan: 1 100 gr af gerilsneyddri, fitu- sprengdri nýmjólk eru: Hitaeiningar Prótein Fita Kolvetni Kalk Fosfór Járn A-vitamín Bi-vitamín D-vítamin B2-vítamín C-vitamin 63 3.4 g 3.5 g 4.6 g 0,12 g 0.09 g 0,2 mg 80 alþj.ein. 15 alþj.ein. 3 alþj.ein. 0,2 mg 1,5 mg Hitaeiningar hinna ýmsu drykkja Á nýju mjólkurumbúðunum er vörurog hitaeiningainnihald þeirra: tafla yfir næringargildi i 100 gr af Nýmjólk gerilsneyddri nýmjólk. — Þar segir Undanrenna m.a. að I 100 gr af nýmjólk séu 63 Rjómi hitaeiningar. — Hér skulu til fróðleiks Appelsinusafi taldar upp nokkrar algengar drykkjar- Tómatsafi 63 35 300 50 20 & ÞINGHOLTSSTRÆTI 24. Kaupum, seljum nýjar og notaðar hljómplötur OPIDKL. 1-6 LAUGARDAGA KL 9-12 Flutningshús til sölu 130 ferm timburhús til sölu. Húsið er á opnu svæði við Krummahóla í Breiðholti (áður í eigu Breiðholts hf.) Sérstaklega byggt til flutn- ings, með stálramma undir gólfi. Húsið er hentugt fyrir ýmiss konar starfsemi, t.d. sem skíðaskáli, fyrir vinnuflokka og fleira. í húsinu er eldhús, stór borðstofa, 3 herbergi og snyrt- ing. Uppl. hjá auglþjónustu DB í síma 27022. H—169 28311 28311 Eignavör, fasteignasala Hverfisgötu 16A Til sölu: Fokhelt einbýlishús i vesturbæ í Kópavogi í skiptum fyrir 4—5 herbergja íbúð í Kópavogi. Jarðhæð, ca 100 fm, við Kópavogsbraut í 10 ára gömlu húsi. Allt sér. Erum með til sölu fasteignir á Selfossi, Eyrar- bakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn, Keflavík og Grindavík. Kvöldsímar 41736 og 74035. Coca cola Maltöl Appelsín o.fl. gos Rauðvin Hvítvín Madeira. portvin og^crrí Koniak, gin, vodka og viskí Likjörar 40 84 35 80 70 I40 275 350 Kjúklingur með hvítvíni Ester Sigurðardóttir, sem sendi okkur uppskriftina af ragúinu, sem við birtum í gær, gaf okkur einnig upp- skrift þá sem hér fylgir með af kjúkl- ingarétti með appelsinusafa eða hvit- vini: Einn vel stór kjúklingur Ca lOOgrsmjörl. I laukur, meðalstór 200 gr sveppir l lárviðarlauf, persille (ef til er) l I/2 dl af hvitvíni eða safi úr tveimur appelsinum I matsk. hveiti út í l dl af rjóma. Kjúklingurinn er bitaður niður og brúnaður í smjörlikinu. Laukurinn er brytjaður og brúnaður, sveppirnir eru brúnaðir og geymdir, siðan er allt látið i pott, kryddað með salti og hvítum pipar og lárviðarlaufið látið út í, því næst hvitvinið eða safi úr tveimur appelsínum. Þetta er látið malla við hægan hita i um það bil 35 mín. Þá er einni matsk. af hveiti hrært saman við einn dl af rjóma, kjúklingabitarnir veiddir upp úr og rjómanum hrært út i, kjúklingabitamir látnir út í á nýjan leik. Borið fram með hrísgrjónum og grænu salati. VERÐ: Sennilega er heppilegt að nota unghænu i þennan rétt en kg af þeim kostar 1166 kr. (í Kjötbúð Suðurvers). Getur þá verið gott að sjóða hænuna í ca hálftima áður en hún er hlutuð i sundur og síðan matreidd eins og segir að framan. Þá skiptir nokkru máli hvað verðið varðar hvort notaöur er safi úr appelsínum eða hvitvín, sömu- leiðis hvort notaður er venjulegur rjómi eða kaffirjómi, sem gerir nákvæmlega sama gagn. Ef notað er hvitvin og rjómi kostar rétturinn um 2312 kr. eða 585 kr, á mann. ci notaður er appelsínusafi og kaffirjómi kostar rétturinn hins vegar um I984 kr., eða um 496 kr. á mann. • A.Bj. Hefurðu borðað kapúna? Kjúklingar og svinakjöt er ekki með í niðurgreiðslum rikissjóðs á kjöti. Slikur munaðarvarningur lækkaði þó I verði eins og aðrar vörur vegna þess að söluskatturinn var afnuminn. Kjúklingar kosta nú kr. I750 kg (í Kjötb. Suðurvers). Til eru holdakjúkl- ingar, sem eru yfirleitt rétt rúmlega eitt kg á þyngd og grillkjúklingar, sem eru oftast um 800 gr. Þá eru til ung- hænur, sem kosta 1166 kr., en þæreru yfirleitt l ,2 eða l ,5 kg á þyngd. Loks eru til suðuhænur, sem kosta 1070 kr. kg, en þær þarf að sjóða ekki skemur enitvoklt. Siðan eru til kapúnar, sem eru ung- hanar, og samkvæmt upplýsingum frá Birni kaupmanni í Suðurveri eru þeir nánast eins góðir og holdakjúklingar. Kapúnarnir eru upp undir 2 kg á þyngd og kosta 1616 kr. kg. A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.