Dagblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKURAGUR 20. SEPTEMBER 1978. II farandi atriði mætti e.t.v. hafa að leiðarljósi: 1. Að aðlaga húsin breyttum kröfum timans með endurbótum innanhúss og utan og viðbyggingum sem sam- ræmast umhverfinu. 2. Heildarmynd hverfanna er mikil- væg. Það á ekki aðeins að vernda eitt og eitt gamalt hús sem byggða- Kjallarinn Páll Bjarnason safn og láta standa eins og nátttröll mitt í steinsteypueyðimörkinni, heldur skipta hverfin og götu- myndir miklu meira máli, því þau skapa það mannlega umhverfi og fjölbreytileika sem flesta fýsir að búa i. » 3. Ef rífa þarf hús vegna skemmda, þá ætti að byggja ný sem aðlagast byggðinni hvað viðkemur bygg- ingastíl, staðsetningu og nýtingar- hlutfalli. 4. Endurskoða þarf nýtingu, skiptingu húsnæðis í verslanir, skrifstofur, opinberar byggingar og íbúðarhús- næði og hlutfallið þar á milli. Með tilkomu hins nýja iðnaðar- hverfis á hrauninu austan Reykja- víkurvegar, sem stjórnlaust virðist vera að breytast i verslunarhverfi, hafa forsendur miðbæjarskipulags- ins breyst í þá átt að létta álagið á gamla miðbænum. Þess vegna þarf að endurskoða verslunar-, skrif- stofu- og bílastæðaþörf svæðisins. 5. Skipa þarf húsfriðunamefnd á sama grundvelli og þær starfa hjá nágrannaþjóðum okkar. Fyrir hana verði öll mál lögð er varða breyting- ar á gömlum hverfum, niðurrif, við- byggingar, nýbyggingar og fleira slikt. Hún yrði að hafa ákvörðunar- vald á borð við bygginganefnd. Af framanrituðu virðist mér augljós nauðsyn þess að stofnuð séu áhuga- mannasamtök í Hafnarfirði til verndar gamalla húsa og hverfa, þar sem í þeim bæ eru mikil menningarverð- mæti og arfleifð að fara forgörðum, ef ekkerter að hafst. Páll V. Bjarnason, arkitekt F.A.Í. . NKHJRRIF í HAFNARFIRÐI Árið 1967 var samþykkt skipulag fyrir miðbæinn í Hafnarfirði, að undangenginni skipulagssamkeppni. Svæðið, sem um er að ræða, afmark- ast af Reykjavíkurvegi og Lækjargötu annars vegar, og Hverfisgötu og sjón- um hins vegar. Skipulag þetta gerir ráð fyrir algjöru niðurrifi á miðbænum eins og við þekkjum hann i dag, og eyðileggingu á landslaginu. öll hús á svæðinu eiga að víkja, að undanskil- inni Frikirkjunni, tveimur íbúðarhús- um og nokkrum nýrri verslunar- og skrifstofubyggingum. í staðinn eiga að rísa stórhýsi undir verslun og viðskipti á þrem til fjórum hæðum. Alla hraun- hóla og lautir á að jafna út og leggja undir 620 bílastæði fyrir téð stórhýsi, að undanskilinni auðri lóð að Strand- götu 23. Það mun eiga að vera opið svæði, líklega til minningar um hraunið, sem fórnað var á altari reglu- stikunnar. Sagt er að það sé gert til að draga sérkenni náttúrunnar inn í mið- bæjarkjarnann, en hætt er við að það verði likt og nátttröll innan um öll beinu strikin. Strandgata verður rétt af og þar með eyðilögð hin eðlilega, bogadregna götumynd hennar, sem mótaðist af sjávarlínunni og fjöru- kambinum gamla. Hún verður einnig gerð að hellulagðri göngugötu. Austurgata verður klippt í sundur og gerð að innkeyrslu fyrir bílastæðin. Óheillaþróun Síðan þetta skipulag var samþykkt, fyrir ellefu árum, hefur verið unnið að framkvæmd þess hægt og sígandi. Gömlu húsin falla í valinn eitt af öðru og i staðinn risa stórhýsin samkvæmt nýja skipulaginu. Tíminn vinnur með skipulaginu á svipaðan hátt og í Grjótaþorpinu. Húsin eru dauða- dæmd. Eigendum er bannað að byggja við þau og aðlaga kröfum tímans. Þau verða illseljanleg og lækka því i verði. Fólki finnst ekki taka því að halda þeim við. Að lokum er ástand þeirra orðið svo bágborðið að ekkert liggur fyrir þeim nema niðurrif. Eitt sterk- asta vopnið gegn þessari þróun er, fyrir húseigendur, að halda húsum sínum vel við. Sú skylda ætti reyndar að vera okkur ljúf, að sýna þannig Allt á að hverfa — nema kirkjan. virðingu okkar fyrir handaverkum for- feðra okkar, því ekki var þá tjaldað til einnar nætur, frekaren nú. Nú þegar hefur töluverð eyðilegg- ing átt sér stað á miðbæjarsvæðinu. Strándgatan hefur þegar misst tölu- vert af sinum upphaflega „sjarma”, hluti af henni verið réttur af og nokkur stórhýsi reist, sem stinga í stúf við þann mannlega mælikvarða sem einkennt hefur götuna til þessa. Þaðer þó ekki um seinan aö stöðva þessa óheillaþróun, og enn um hríð munum við geta státað af fegurð og sérkenni- leika miðbæjarins ef við tökum höndum saman og gerum eitthvað i málinu. Forsendurnar fyrir þessu skipulagi eru byggðar á stöðlum frá nágrönnum okkar á Norðurlöndum um byggingu miðbæjarkjarna. Nú hafa skipulags- sérfræðingar viðurkennt að endur- Framtíðarþróun mála — jarðarför miðbæjarins tóm 9 mánuði ársins), beinar og lárétt- ar götu- og húsalinur, bílastæði I hundraðatali og kannski grastorfa hér og þar ef við erum heppin. Núverandi útsýni frá Strandgötu út yfir fjörðinn mun hverfa að mestu, þar sem byggð er fyrirhuguð á svokölluðu Thors- plani, en það er nú opið grænt svæði. Á siðustu 11 árum hefur afstaða al- Skipulagið. Séð suður yfir aðaltorg Strandgötu. skipulagning gamalla miðbæjarkjarna, þar sem notaðar voru sömu forsendur og staðlar, hafa mistekist. Þess konar aðgerðir hafa undantekningalítið stuðlað að því að drepa niður bæjar- lifið frekar en að lífga það við. Við ættum þess vegna að geta lært af þeirra mistökum og breytt stefnunni. Hafnarfjörður er einn af elstu bæj- um landsins og hefur af að státa einu fegursta bæjarstæði þess. í hjarta þess byggðist miðbærinn. Sú byggð sem þar er í dag, er að mestu frá árunum 1900—1940. Þama er um að ræða eina stærstu og heillegustu byggð frá aldamótum, sem fyrirfinnst á tslandi. Húsin eru sniðin að hrauninu og brekkunni, og hefur þvi lítið verið hróflað við náttúrufegurð bæjar- stæðisins.' Hæfilega óreglulegt skipu- lag og byggingarlag húsanna gefur auganu þann fjölbreytileika, sem gerir umhverfi aðlaðandi. Hið nýja skipulag gerir sem sé ráð fyrir að allt þetta hverfi og í staðinn komi stórhýsi, steinlagðar göngugötur með steyptum blómakerjum (sem era Nýja skipulagið að verki við Strandgötu. Hin bögadregna götulina og meðal annars Sjálfstæðishásið i forgrunni á að hverfa. Engum dylst að brýnt er að skipu- leggja miðbæ Hafnarfjarðar, og að nauðsynlegt er að marka einhverja stefnu um í hvaða átt á að stýra þróun miðbæjarkjarnans. Hins vegar greinir menn á um þá stefnumörkun. Að mínu áliti er orðið mjög timabært að endurskoða þetta skipulag, bæði með tilliti til breyttrar afstöðu samfélagsins til húsverndunar almennt og með til- komu hins nýja verslunar- og iðnaðar- svæðis á hrauninu austan Reykja- víkurvegar. Hér æpir nútiðin á fortiðina. mennings til gamalla húsa breyst mjög mikið í þá átt að vernda þau frekar en rífa. Það hefur orðið sífellt fleirum Ijóst, að mun hagkvæmara er að endurnýja eldra húsnæði en byggja nýtt. Það er einnig þjóðhagslega hag- kvæmara að endurlífga gömul hverfi en að reka fólkið í ný og ný svefn- hverfi, sem öll þurfa nýjar malbikaðar götur og dýrar þjónustustofnanir, lagnakerfi og annað. Sem dæmi um hugarfarsbreytingu má nefna afstöðu Húsnæðismálastofnunar ríkisins með stórhækkuðum lánum til kaupa á eldra húsnæði. Einnig veitir sama stofnun mjög hagstæð lán til viðbygg- inga. Það er að mínu áliti mjög æskilegt að nýta það húsnæði sem fyrir hendi er og einnig að sú nýting sé rétt. Eftir-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.