Dagblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð
1978, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viðurlög-
in 3% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mán-
uð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar
eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
18. september 1978
Hjúkrunarfræðingur
óskast á Heilsugæzlustöðina Kópaskeri, frítt
húsnæði, ljós og hiti. Stór og góð íbúð búin
húsgögnum.
Nánari uppl. veitir Kristján Ármannsson í
síma 96-52128.
Heilsugæzlustöðin Kópaskeri.
Ráðskona
óskast á stóra skrifstofu í austurborginni. Þarf
helzt að hafa bíl. Verksvið: Létt þrif, kaffi-
þjónusta og hádegismatur — Góð laun.
Uppl. hjá auglþj. Dagblaðsins, sími 27022.
R. 96344
ÓDÝRASTA KENNSLAN
ER SÚ SEM SPARAR ÞÉR TlMA
Frábærir kennarar sem æfa þig i tahnáli.
Kvöldnámskeið — Siðdegisnámskeið — Pitmanspróf
Enskuskóli barnanna — Skrifstofuþjálfunin.
Sími 10004og 11109 (kl. 1—7 e.h.)
MÁLASKÓLINN MÍMIR, Brau.a,hohi 4
Bílasala
Guðf inns
Hallarmúla 2
Höfum til sölu nýjan Lada sport. Mikið úrval
af nýlegum bifreiðum í sýningarsal okkar.
Bílasala Guðfinns
^=MH)BORO
fasteignasalan i Nýja-bióhúsinu Reykjavik
Símar 25590,2*1682
Endaraðhús
við Miðvang i Hafnarfirði. Húsið er á 2 hæðum, samtals ca 150 ferm.
Á efri hæð eru 4 svefnherbergi, fataherbergi og bað. Niðri er hol,
stofur, eldhús, þvottahús, búr og snyrtiherbergi. Bilskúr fylgir sem að-
skilur húsið frá næsta húsi. Verð kr. 26 millj. Útb. 16 millj.
2ja—3ja herbergja ibúð við Njálsgötu
íbúðin er I timburhúsi og skiptist I stofu, svefnherbergi, eldhús og
snyrtiherbergi. Ris yfir ibúðinni. Sérínngangur, sérhiti. Verð 9 millj.
Útb. 5.5 millj.
Seljendurl Nú er rétti tíminn til að láta skrá íbúðina.
Hringið strax í dag. Vantar allar stœrðir íbúða og húsa.
Jón Rafnar aöluatjóri,
heimasfmi 52844. MÍMORO
Guðmundur Þprðarson hc
„Þjöðfélag okkar er þannig uppbyggt að ekki er reiknað með fötluðu fólki, sem er þó 15% af þjóðinni.” DB-myndir Arí.
Jafnréttið verði að ríkjandi hugsjón:
„Þá getum við lyft
grettistökum”
— sagði Magnús Kjartansson í lok vel heppnaðrar jafnréttisgöngu
„Alþjóðlegir staðlar þera með sér að
i Reykjavíkurborg eru 250 einstakling-
ar sem eingöngu geta hreyft sig i hjóla-
stól. Hér í höfuðborginni eru átta
þúsundir manna sem ekki geta gengið
upp og ofan tröppur nema með erfiðis-
munum. Átta þúsund og fimm
hundruð Reykvíkingar hafa mjög
skerta hreyfigetu. Og það eru hvorki
meira né minna en fimmtán þúsund
höfuðborgarbúar sem eiga við
einhverja fötlun að stríða.”
Þessar tölulegu upplýsingar koniu
fram i ræðu Magnúsar Kjartanssonar
fyrrverandi ráðherra á Kjarvals-
stöðum í gær en Magnús var
aðalhvatamaðurinn að jafnréttis-
göngu fatlaðra sem-fór fram i gær.
Gifurlegur mannfjöldi tók þátt i
göngunni, bæði fatlað fólk og
Fólk á öllum aldri tók þátt I göngunni.
Hér sjáum við tvo af yngstu þátt-
takendunum.
heilbrigt. þrátt fyrir að veður væri
heldur leiðinlegt. Gangan hófst kl.
3.10 og var gengið frá Sjómanna-
skólanum að Kjarvalsstöðum þar sem
haldinn var fundur með borgar-
stjórninni.
Fyrstir fóru fánaberar, þeir Arnór
Pétursson, formaður íþróttafélags
Ungur maóur I hjólastól leggur upp I
jafnréttisgönguna sem vonandi á eftir
aö marka tlmamót I lífi fatlaðra. Sem
stendur er ekki ein einasta króna I fjár-
hagsáætlun Reykjavikurborgar til þess
að auðvelda fötluðum að komast leiðar
sinnar.
fatlaðra. og Hreinn Halldórsson.
Næstir á eftir þeim komu fatlaðir í
hjólastólum en siðan annað fólk sem
getur stuðzt við stafi eða hækjur. Þar
næst komu foreldrar fatlaðra bama
sem enn eru í barnavögnum og þá
Þessi ungi piltur vakti athygli okkar
DB-manna fyrir það hversu
hressilega hann gekk, þrátt fyrir það
að hann yrði að styðjast við hækjur.
fatlaðir frá Reykjalundi sem komu á
hestum. Þeir sem ekki komust sjálfir
voru fluttir með strætisvögnum en á
eftir þeim kom fatlað fóik i einka-
bilum.
Einnig tók þátt í göngunni mikill
fjöldi fólks er ekki býr við neina fötlun
og sýndi þannig stuðning sinn við
kjörorð dagsins: Jafnrétti.
Magnús Kjartansson lauk ræðu
sinni með þessum orðum: „Fötlun
bitnar á fólki úr öllum þjóðfélags-
hópum, án tillits til skoðana, stétta og
annarra skiptinga. Við erum hingað
komin til þess að biðja ykkur, borgar-
fulltrúa, að sanna í verki að þið getið
ekki aðeins deilt um mikilvæg atriði
heldur kunnið þið einnig að vinna
saman að stórmálum. Gerum jafnrétt-
ið svo rikjandi hugsjón innra með
okkur að hún sameini þjóðina alla. Þá
getum við lyft grettistökum.”
-GAJ-
Almenningur
fær að öllum
líkindum kjötið sitt
Sannleikurinn
um
kjarabótakjötið:
„Mér þykir sennilegt að til hafi
verið í landinu um 500 tonn," sagði
Guðjón Guðjónsson, deildarstjóri i
Afurðasölu SÍS á Kirkjusandi, í viðtali
við DB. „Þetta er auðvitað ekki nein
nákvæm tala,” sagði Guðjón. „Meðal
annars er þess að gæta að öll rýrnum
kemur fram þegar allar geymslur eru
tæmdar.
Ég get ímyndað mér að hér í
Reykjavík verði seld um 300 tonn þeg-
ar upp er staðið. Langleiðin í 200
tonn verða seld úti á landi,” sagði
Guðjón.
„Sannleikurinn er sá, að svo miklar
annir eru hjá okkur og öðrum, sem
selja kjöt, að við höfum ekki undan.
Þetta er ein aðalástæðan fyrir þvi að
fólk kemur að lokuðum dyrum, þegar
það leitar eftir kjöti á gamla verðinu.
Ég er viss um að allt það kjöt sem til
var verður selt þessa dagana,” sagði
Guðjón Guðjónsson. Hann benti á að
þrátt fyrir allt högnuðust kjötsalar lika
á því að selja á lága verðinu.
Að öllu athuguðu virðist frásögn
Guðjóns Guðjónssonar deildarstjóra
og skoðanir hans svara flestum
spurningum um „kjarabótakjötið”
þannig að viðhlítandi sé. Teljum við
þær réttar þar til annað sannast.
—BS.