Dagblaðið - 20.09.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978.
5
Ovenjulegur
fengur
Snorra
Sturlusonar:
FÁNIBREZKA SJÓHERSINS
HEKK í SPORDIÞORSKSINS
Skipverjar á skuttogaranum Snorra
Sturlusyni fengu óvenjulegan feng í
vörpuna er togarinn var á veiðum á
Halamiðum á dögunum. Fengurinn var
fáni, greinilega brezkur, en jró voru
skipverjar ekki vissir um það hverjum
fáninn tilheyrði því ekki var um brezka
þjóðfánann að ræða.
Fáninn var hvítur með rauðum krossi
og í efra horninu var brezki fáninn. Að
sögn Valdimars Sigþórssonar bátsmanns
á Snorra Sturlusyni hékk fáninn í sporði
þorsks og hafði borizt þannig inn i
vörpuna. Nokkuð ljóst var að
þorskurinn hafði synt nokkurn tíma
með fánann því fiskurinn var nokkuð
skorinn og illa farinn. Fáninn hefur
legið nokkurn tíma í sjó þvi sjávargóður
var tekinn að festast á honum.
DB hafði samband við Brian Holt,
ræðismann Breta hérlendis og lýsti fyrir
honum fánanum. Hann þekkti þessa
gerð óðar, hér var kominn fáni brezka
sjóhersins. Brian sagði að stærð fánans
benti til þess að hann væri af freigátu og
því væru allar líkur á því að fáninn hefði
prýtt einhverja freigátu hennar
hátignar i undangengnum þorska-
striðum Breta og tslendinga.
-JH.
Fáni brezka sjóhersins sem upp kom á
Halamiðum. Valdimar Sigþórsson báts-
maður heldur á fánanum til hægri og
félagi hans, Kárí Sigurðsson, til vinstri.
DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.
Aðstoð bæjarins nauðsynleg
— við að ná hinu strandaða færeyska skipi út f rá Ólafsfirði
— Ólafur Jónsson sem keypti skipið á strandstað
Bæjarstjórinn á Ólafsfirði lét hafa
eftir sér í DB í gær að Ólafur Jónsson,
sem keypti hið strandaða flutninga-
skip á Ólafsfiröi, hefði litið reynt til
þess að ná skipinu af strandstað.
Ólafur hafði samband við DB vegna
þessa og sagði hann að nú væru
froskmenn að kanna skemmdirnar á
skipinu. Það væru forsendur þess að
hægt væri að draga skipið ofar til þess
að gera við skemmdirnar.
Ólafur sagði að nauðsynlegt væri að
ná samkomulagi við bæjaryfirvöld til
þess að möguleiki væri að koma
skipinu burt af strandstað. Fram að
þessu hefur bærinn aðeins gert kröfur
um það að skipið yrði fjarlægt, eins og
það sé möguleiki að skipinu sé stungið
í vasann og það flutt á brott. „Ég hef
ekki strandað þessu skipi hér,” sagði
Ólafur, „og get ekki lagt i viðamikinn
kostnað við að fjarlægja skipið með
þvi að hluta það í sundur. Slikt myndi
kosta um 12 milljónir króna.
Ef bærinn virkilega vill losna við
skipið, verð ég að fá góða aðstoð
bæjarins og annarra, sem ráða yfir
vinnuvélum. Finna verður hentuga
lausn á málinu þar sem menn leggjast
á eitt um að leysa vandann.
Þá hafa veriö unnar skemmdir sem
tefja björgunaraðgerðir, m.a. mokað
ofan af ankerum sem tengd voru við
skipið og fest uppi í land. Ýmsar
skemmdir hafa einnig verið unnar á
skipinu sjálfu og er augljóst mál að þar
hafa engin börn verið að verki.
Ólafur lét þess að lokum getið að
samkomulag hefði náðst við
björgunarsveitina á Ólafsfirði um
greiðslur frá þvi að sveitin vann við
björgun er skipið strandaði. .jh.
Greinargerð BSRB um kjaramáh
Nýja launataflan
byggir á niður-
greiðslu vöruverðs
— rétt mynd af launabreytingum fæst ekki nema
samanburður sé gerður á sama grundvelli
Mikil skrif hafa að undanförnu orðið í
blöðum vegna launataxta opinberra
starfsmanna og hafa breytingarnar
vegna bráðabirgðalaga rikis-
stjórnarinnar frá 8. sept. sl. ýmist verið
kynntar sem veruleg kjarabót eða bein
kauplækkun í neðstu og efstu launa-
flokkum.
DB hefur nú borizt greinargerð um
þessi efni frá skrifstofu BSRB. Kveðst
bandalagið vilja sýna i tölum hvað
raunverulega hafi gerzt en leggi ekki að
sinni dóm á réttmæti einstakra ákvæða
bráðabirgðalaganna né svari
brigzlyrðum i garð forustu stéttarfélaga.
„Samningana
í gildil"
„Kjarasamningur ríkisstarfsmanna
var gerður 25. okt. sl. og var hann
staðfestur í allsherjaratkvæðagreiðslu
þar sem 67,7% atkvæðisbærra rikis-
starfsmanna greiddu atkvæði og 4600
eða 75,5% þeirra samþykktu hana, en
fjármálaráðherra undirritaði f.h. ríkis-
sjóðs.
Þremur máhuðum síðar var svo
þessum samningum rift meó lögum, þar
sem fyrir er mælt að 1. mars 1978, 1.
júní 1978, 1. september 1978 og 1.
desember 1978 skuli kaup aðeins hækka
um helming þeirra verðbóta sem
vísitalan mæli.
Samkvæmt þessu voru siðan birtar
launatöflur fjármálaráðuneytis sem
sýndu t.d. í júní-ágúst að tæplega 12%
skorti á að staðið væri við samningana.
Skömmu fyrir borgarstjórnarkosning-'
amar, eða 24. mai sl. gaf ríkisstjórnin út
bráðabirgðalög þar sem dregið er úr
kjaraskerðingu I lægri launaflokkum
með sérstökum verðbótaviðauka sem
bætti að fullu upp I neðsta launaflokki
en síðan hélzt sama krónutala upp I 22.
launaflokk.
Fyrsta verk nýju ríkisstjórnarinnar
var að gefa út bráðabirgðalög 8. sept. sl,
þar sem numin eru úr gildi frá 1.
september lögin frá því í febrúar og maí,
þó með þeirri undantekningu að fullar
verðbætur séu einungis greiddar upp i
15. launaflokk en þar fyrir ofan gildi
vísitöluþak, þ.e. greidd skuli þar sama
krónutala og í 15. launaflokki.
Ný launatafla hefur verið reiknuð út
samkvæmt nýju lögunum og gildir hún
frá 11. september 1978 hjá þeim sem fá
fyrirframgreiðslu, en frá þeim tíma var
farið að framkvæma niðurgreiðslu
vöruverðs þannig að niður félli þá 8,1%
vísitöluhækkun, sem koma átti á laun
um siðustu mánaðamót.
Ruglingur sá sem fram hefur komið i
blöðum varðandi þá breytingu sem leiðir
af nýju lögunum stafar sennilega af því
að ekki hefur neins staðar verið birt
launatafla sem miðuð er við niður-
greiðslur vöruverðs á sama hátt og nýja
launataflan frá 11. sept. Rétt mynd fæst
ekki nema samanburður sé gerður á
sama grundvelli,” segir i skýrslu BSRB.
-GM.
Verðiagsstjóri: pp|ýsingarnar að mestu rangar”
—Georg Ólafsson verðlagsstjóri hyggst birta greinargerð
• vegna deilna um samnorrænu verðkönnunina
„Upplýsingarnar sem DB hefur
fengið um samnorrænu verðkönnun-
ina eru að mestu leyti rangar,” sagði
Georg Ólafsson verðlagsstjóri í viðtali
i gær. í frétt blaðsins var það haft eftir
áreiðanlegum heimildum að verð-
könnunin hefði náð til tvöfalt fleiri
vörutegunda en verðlagsstjóri greindi
frá á blaðamannafundi sínum síðla í
ágúst.
„Fjöldi þeirra vörutegunda, sem
ákveðið var að kanna í upphafi var
45,” sagði Georg. „Síðan duttu út
ýmsar vörur vegna þess að vörurnar
voru ekki til i öllum löndunum og því
ekki hægt að gera samanburð. Það
voru þvi rúmlega 30 vörutegundir sem
voru kannaðar. Það er alrangt að þær
hafi verið tvöfalt fleiri.
Það er einnig rangt að magnafslátt-
ur hafi mikið að segja í þessari könn-
un,” sagði verðlagsstjóri.
Á þessu stigi málsins get ég ekki
sagt meira um þetta mál enda er ég ný-
kominn frá útlöndum,” sagði Georg.
„Ég er í frii þessa viku, en ég mun
birta greinargerð vegna þessa máls.”