Dagblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978.
9
Ungir f ramsóknarmenn:
Naf nbirting á skattsvikurum?
Stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna samþykkti í fyrradag að
skora á ríkisstjómina að standa við
fyrirheit um að vinna gegn skatta-
brotum og benti á nokkrar leiðir til
þess.
Skattrannsóknadeild rikisskatt-
stjóra þyrfti að efla, segir SUF, og
þyngja viðurlög við skattsvikum. Þar á
meðal kæmi til greina að birta nöfn
þeirra sem gerzt hafa sekir um alvarleg
skattabrot.
Þá ætti að herða eftirlit með
innheimtu söluskatts og kanna meðal
annars hvers vegna samvinnuverzlun
virðist skila ríkissjóði hlutfallslega
meiri söluskatti en einkaverzlun.
Einnig þyrfti að einfalda skattalög
og fækka frádráttarheimildum til þess
að koma í veg fyrir svonefnd „lögmæt
skattsvik”.
Stjórnin lýsir stuðningi við
nýgerðar ráðstafanir ríkis-
stjómarinnar í efnahagsmálum. Hún
segir að skattlagning aftur I tímann sé
óæskileg en hún hafi verið nauðsynleg
eins og á stóð. Þeir sem hneykslist á
afturvirkni skatta ættu fremur að
huga að þvi meini sem hefur grafið um
sig í islenzku þjóðlifi, skattsvikunum.
Ef allir hefðu talið samvizkusamlega
fram hefði ekki þurft að grlpa til
viðbótarskattlagningar í ár heldur
hefði verið unnt að lækka skatta
almenntá launamönnum. -HH.
ÍFjórða starfsár Fjalakattarins hafið:
MEÐALVERÐ A 1
SÝNINGU AÐEINS
162 KRÓNUR
— Chaplin, Borgari Kane, Amin hershöfðingi og
fjöldi annarra mynda á dagskrá
Valgarður Guðjónsson og Barði Valdimarsson, framkvæmdastjórar Fjalakattarins,
ásamt Guðmundi Þorbergssyni og Baldri Hjaltasyni sem sæti eiga I stjórn klúbbsins.
DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson. W .. ->
Fjalakötturinn, kvikmyndaklúbbur
framhaldsskólanna, hefur fjórða starfsár
sitt fimmtudaginn 21. september með
sýningu á kvikmyndinni Höfuð ætt-
arinnar (Padre Padrono) eftir Paoli og
Vottorio Taviani. Kvikmynd þessi fékk
verðlaun á hátíðinni í Cannes 1977.
Í lok september sýnir Fjalakötturinn
fjórar stuttar myndir eftir Chaplin. í
október verður nýjasta mynd Robert
Bresson, Ef til vill djöfullinn, sýnd.
Nóvembermánuður verður helgaður
spænskri kvikmyndagerð og verða þá
m.a. sýndar myndirnar Andinn í
býflugnabúinu eftir Victor Erice og
Böðullinn eftir G. Berlanga.
Kvikmyndagerð Indverja verður og
kynnt með sýningu þriggja indverskra
mynda. Af öðrum myndum sem Fjala-
kötturinn sýnir í vetur má nefna Borgari
Kane eftir Orson Welles, Karin
Ingimarsdóttir eftir Victor Sjöström,
™
Amin hershöfðingi eftir Barbet Schröder,
Sléttuúlfurinn eftir Fred Haines o. m. fl.
Þá verður sýnd tónlistarmyndin Popp-
hátiðin i Monterey.
Dagblaðið mun síðar í vetur gera
nánari grein fyrir kvikmyndum þeim
sem Fjalakötturinn sýnir. Sýningarskrá
er ekki enn komin út en væntanleg
einhvern næstu daga.
Sýningar Fjalakattarins eru í Tjarnar-
bíói. Sýnt er á fimmtudögum kl. 21,
laugardögum kl. 17, og sunnudögum
kl. 17. 19.30og22. Þarsem um klúbber
að ræða verða menn að kaupa sérstakt
félagsskirteini sem gildir á allar sýningar
vetrarins. Kostar það 5500 krónur.
Sýningar verða 34 þannig að meðalverð
á sýningu er aðeins 162 krónur.
Félagsskírteini eru seld í framhalds-
skólunum, Bóksölu stúdenta, Bókabúð
Máls og menningar og í Tjarnarbíói
sjálfu á sýningartima. -GM.
,
Innan skamms er þess að vænta að
lokið verði við annan áfanga Húss
verzlunarinnar I nýja miðbænum
svonefnda. Í öðrum áfanga felst
uppsteypa á bílastæðum og kjallara
hússins.
Nokkrar tafir hafa orðið á byggingu
hússins en hafizt verður handa við
þriðja og síðasta áfanga strax og
uppgjöri vegria annars áfanga er lokið.
Þorvarður Élíasson hjá Verzlunar-
ráðinu kvaðst ekki vHja fullyrða neitt
um hvenær byggingu hússins lyki en
taldi hugsanlegt að Ijúka framkvæmd-
um eftir tvö-þrjú ár.
•GM.
Hassyfirheyrslur á Seyðisfirði
Yfirheyrslur í hassmáli hafa farið
fram að undanförnu á Seyðisfirði.
Jónas Hallsson rannsóknarlögreglu-
maður i Reykjavík stjórnaði yfir-
heyrslum yfir nokkrum unglingum á
staðnum á aldrinum 17—20 ára.
Unglingarnir hafa haft hass umleikis
undanfarið en það virðist þó ekki hafa
verið mikið.
Að sögn Jónasar Hallssonar
upplýstist málið i þessum yfir-
heyrslum. -JH.
Fyrstu tveim áföngum Húss verzlunarinnar er nærri lokið. DB-mynd
Kristinsson.
TflFlR A BYGGINGU
INNAR
✓