Dagblaðið - 20.09.1978, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIQ. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978.
13
Enskur sigur í
Kaupmannahöfn
Englendingar sigruðu Dani 2—1 i landsleik u-21 árs
sem fram fór i Kaupmannahöfn i gærkvöld. Danir
höfðu yfir, 1—0, í leikhléi, Knud Sörensen skoraði úr
viti á 44. minótu eftir að Bob Hazell, Wolves, felldi
Klaus Bergren.
En tvö mörk á jafnmörgum minútum i upphafi siðari
hálfleiks nægðu Englendingum. Glenn Hoddles, Tott-
enham, jafnaði 1—1 og Bob Hazell skoraði síðan
sigurmark Englendinga aðeins minútu siðar.
Uppselt á Idræts-
parken íKhöfn
Gifurlegur áhugi er nú i Danmörku á landsleik
Dana og Englendinga i Evrópukeppni landsliða. Upp-
selt er á Idrætsparken i kvöld — 48 þúsund miðar þeg-
ar seldir en slikt hefur ekki gerzt i 10 ár i Danmörku.
Danska liðið er gifurlega sterkt — Allan Simonsen,
Nielsen, Borussia Mönchengladbach, Benny Nielsen
og Birger Jensen, Anderlecht, Frank Arnesen og
Sören Lerby, báðir Ajax, eru meðal leikmanna en liðið
er skipað: Birger Jensen, Flemming Nielsen, Henning
Munk Jensen, Per Rontved, Sören Lerby, Flemming
Lund, Carsten Nielsen, Frank Arnesen, Allan Simon-
sen, Benny Nielsen, Jörgen Kristensen.
Enska liðið er skipað: Ray Clemece, Phil Neal,
Dave Watson, Emlyn Hughes, Mick Mills, Ray
Wilkins, Trevor Brooking, Steve Coppell, Kevin
Keegan, Bob Latchford, Peter Barnes.
íþróttir
Belgar unnu
Norðmenn
Belgar sigruðu Norðmenn 4—0 í Malines I Belgíu
er þjóðirnar mættust i landsleik u-21 árs, liður í
Evrópukeppni landsliða. Belgar höfðu yfirburði i
Malines, sóttu látlaust en skoruðu sitt fyrsta mark
ekki fyrr en á 40. minútu, Erwin van den Bergh skor-
aði. Norðmenn sóttu nokkuð I upphafi síðari hálfleiks
en tókst ekki að nýta tækifæri og Belgar náðu yfir-
höndinni. Ronny Matens, Andre Binet og Bernard
Berheecke sökktu Norðmönnum, sem í raun áttu
aldrei möguleika gegn sterku belgísku liði. Belgar
mæta Norðmönnum i kvöld I landsleik i Evrópukeppni
landsliðs — A-landsleik.
Tarantini til
Birmingham
Birmingham festi i gærkvöldi kaup á argentinska
HM-leikmanninum Alberto Tarantini. Barcelona
hafði hug á að fá Tarantini, en hann gat ekki fellt sig
við dvöl á Spáni — æfði með leikmönnum Birmingham
i gær og ákvað siðan að skrifa undir samning. Tarant-
ini lék með Boca Juniors og kaupvcrð fcans er 250 þús-
und pund. Það er þó bundið i samninginn að Tarantini
íái atvinnuleyfi á Bretlandi en það hefur ekki fengizt
þó lið eins og Tottenham, Sheff. Utd. og Southampton
hafi þegar erlenda leikmenn — utan EBE.
Höness til
Hamborgar
Uli Höness, Bayern Miinchen var i gær seldur til
Hamburger SV en kaupverð hans er um 150 milljónir
króna. Höness hefur átt við meiðsli að striða tvö síð-
astliðin ár en hann var fastamaður i v-þýzka landslið-
inu áður, einn snjallasti leikmaður V-Þýzkalands.
Sterkasta liði Islands
stillt upp í Nijmegen
— Sterkasta lið íslands í dag mætir silfurliði Hollands
íNijmegeníkvöld
Frá Halli Simonarsyni, Nijmegen, i
morgun:
„Við förum í alla leiki með því hugar-
fari að sigra. Það gerum við einnig er við
mætum Hollendingum í Evrópukeppni
landsliða. Við höfum valið liöið, sem
byrjar gegn Hollendingum, og það er að
okkar áliti sterkasta landslið sem við
eigum í dag. Landsliðsmenn fá ekki að
vita valið fyrr en á morgun og þetta er
því trúnaðarmál ykkar gagnvart leik-
mönnum,” sagði Árni Þorgrímsson, for-
maður landsliðsnefndar, á blaðamanna-
fundi hér i Nijmegen i gær er hann til-
kynnti íslenzka landsliðið.
„Við gefum upp liðið við ykkur svo
fréttir geti borizt heim, íslenzka lands-
liðið er þannig skipað: Þorsteinn Bjarna-
son, Janus Guðlaugsson, Jóhannes
Eðvaldsson, Jón Pétursson, Árni Sveins-
son. Tengiliðir: Atli Eðvaldsson, Karl
Þórðarson, Ásgeir Sigurvinsson.
Framherjar: Guðmundur Þorbjörnsson,
Ingi Björn Albertsson, Pétur Pétursson.
Þetta er sama lið og gefið var upp í
DB nema Ingi byrjar — ekki Dýri. Á
blaðamannafundinum sagði Youri
Ilitschev, þjálfari íslenzka liðsins, að
Dýri væri sér mjög í huga og farið hefði
verið yfir sérstaka leikaðferð, þar sem
Dýri er með.
Þorsteinn Bjarnason var valinn i stað
Árna Stefánssonar. Hann lék sinn fyrsta
landsleik gegn USA á dögunum. Þor-
steinn er aðeins 21 árs en hefur vakið at-
hygli fyrir snilldar markvörzlu. Árni
Stefánsson lék í islenzka markinu gegn
Pólverjum, eftir þann leik voru menn
ekki á eitt sáttir um frammistöðu hans.
„Miðherji Hollendinga, Dick Nanninga,
er leikur með Roda, er hávaxinn leik-
maður. Ég reikna með að Hollendingar
muni mikið nota háar sendingar inn i
vítateig íslenzka liðsins og Þorsteinn er
hærri en Árni og ætti betur að geta
gripið inní i teignum. Úthlaup eru ein
sterkasta hlið Þorsteins auk þess að vera
snjall milli stanganna,” sagði Youri Ilit-
schev, eftir valið.
Liðið kemur engan veginn á óvart.
Stórstígar f ramfarir
hjá íslenzka liðinu
— sagði Jan Zwartkruis þjálfari
hollenzka liðsins í viðtali við DBb
Frá Halli Slmonarsyni, I Nijmegen I
morgun:
„íslenzka liðið hefur tekið stórstígum
framförum. Ég sá þá leika gegn USA og
Póllandi og bilið milli íslenzka liðsins og
liða hér á meginlandinu minnkar stöð-
ugt. Auðvitað er ég ekki hræddur fyrir
leikinn en knattspyrnan er óútreiknan-
leg og stundum tapar sterkara liðið —
við munum þvi ekki slaka á, heldur
keyra á fullu,” sagði Jan Zwartkruis
þegar blaðamaður DB náði tali af hon-
um i Nijmegen i gær.
Landsleikur íslendinga og Hollend-
inga var mjög i fréttum hér í gær. Blöð
eyddu miklu plássi í að skýra frá leikn-
um, svo og útvarp og sjónvarp. Hol-
lenzkir blaðamenn hafa haft viðtöl við
Ellert B. Schram, formann KSÍ og Youri
Ilitschev, þjálfara og á æfingum íslenzka
liðsins voru Ijósmyndarar frá öllum
stærstu blöðum Hollands.
Skiljanlega er mestu púðri eytt á hol-
lenzku leikmennina. Þetta er fyrsti leik-
ur silfurliðsins frá Argentínu og Jan
Zwartkruis bætti við, að þetta væri í
fyrsta sinn, sem hann hefði séð leikmenn
sína frá Argentínu — á þriðjudag hér í
Nijmegen. Hollenzka liðið er sterkt, 9
leikmenn frá úrslitaleiknum við Argent-
inu. Piet Schrjivers, aðalmarkvörður
liðsins í HM, gat ekki leikið úrslitaleik-
inn við Argentínumenn en hann leikur
með gegn íslandi. Þeir eru nýir, Wild-
schut og La Ling, en báðir þekktir hér í
Hollandi. La Ling, ákaflega leikinn, og
fljótur er nú með markhæstu leikmönn-
um í Hollandi. Það er Ijóst að Hollend-
ingar slaka hvergi á — taka enga áhættu
gegn Íslandi.
eiginlega gefur sig sjálft. Það var aðeins
spurning hvort Ingi Björn eða Dýri byrj-
uðu leikinn. Dýri hafði greinilega vinn-
inginn framan af hér í Hollandi. En
síðan náði það yfirhöndinni að láta
Pétur Pétursson og Inga Björn leika í
fremstu víglinu og að vissu leyti Ásgeir
Sigurvinsson.
1 gær rigndi talsvert hér 1 Nijmegen
og í morgun var þungbúið. Spáð
rigningu, en vonandi gerir hún ekki is-
lenzku leikmönnunum erfitt fyrir I kvöld
á NEC-leikvanginum í Nijmegen.
„Ég hef oröið var við að það er tals-
verð þreyta í strákunum eftir æfingarnar
í gær, svo og hafa erfið ferðalög bætzt
þar ofan á. Svo það verður aðeins létt
æfing i dag,” sagði Youri Ilitschev, þjálf-
ari islenzka liðsins í Nijmegen. Lands-
liðsmenn æfðu fyrst i gærmorgun —
allir saman, á æfingasvæði við NEC-
leikvanginn. 1 gærkvöld var æft á vellin-
um þar sem leikurinn fer fram i kvöld, á
sama tíma og leikið verður í kvöld. Þar
gafst tækifæri til að kynnast aðstæðum.
Flóðljósin voru sett á og sömu aðstæöur
fyrir hendi og i kvöld. Flestir leikmanna
íslenzka liðsins hafa leikið hér i Nij-
megen og þekkja því völlinn eftir HM-
leikinnviðHolland.
Þetta var þó nýtt fyrir Þorstein
Bjarnason markvörð en hann leikur i
kvöld I fyrsta sinn við flóðljós. Ekki ættu
aðstæður að hafa áhrif á Þorstein, flóð-
Ijósin hér eru góð og verða ekki sett á
strax í byrjun.
Þeir Jóhannes Eðvaldsson og Jón
Pétursson léku ekki hér i HM, en báðir
létu þeir vel af vellinum. Svipað og þeir
eru vanir að leika við, þó völlurinn sé ef
til vill í breiðasta lagi.
„Við munum i dag fara yfir þrjú plön,
um leikaðferðir, sem ég hef í' huga,”
sagði Youri. „Tvö byggð upp við þá leik-
menn, sem ég ætla að láta byrja. Hið
þriðja er Dýri í myndinni,” sagði Youri
ennfremur. Þegar ég ræddi við Youri
Ásgeir Sigurvinsson, mikiö mæðir á
honum i Nijmegen.
Ilitschev, var á honum að heyra að hann
myndi ekki láta Inga Björn byrja. Eftir
æfingu i gærmorgun var Ingi Björn hins
vegar með í byrjun á æfingum hans.
„Það verður erfitt að leika við Hol-
lendinga. Við munum gera okkar bezta,
og það er mikilvægt hvernig Ásgeiri og
Pétri tekst að ná saman. Ég færði Guð-
mund Þorbjörnsson aftur á leikjunum
við USA og Pólland og mun einnig gera
það gegn Hollandi, sagði Youri Ilit-
schev. Guðmundur var ekki á æfingu í
gær — kom hingað í gærkvöld.
HallurSímonarson
íNijmegen
Blikur á lofti fyrir
leikinn í A-Þýzkalandi
Hallur Simonarson I Nijmegen í morg-
un:
„Við hugsum aðeins um einn leik i
einu. Evrópuleikur okkar í A-Þýzka-
Ut ilif
9
GERÐIR
GLÆSIBÆ
SÍMI30350
Leikfimiskór úr striga, teygjuefm
og leöri. — Stærðir frá 27—42.
Verð frá kr. 990.- til 4120.-
Postsendum
landi, 4 október í Halle, er því ekki til
umræðu hér,” sagði Árni Þorgrímsson
þegar blaðamenn reyndu að beina talinu
að leik íslands og A-Þýzkalands. „Við
höfum nóg að hugsa um, þó ekki sé farið
að dreifa huganum með öðrum leikjum.
í landsleik gegn Hollendingum er það
eitt í huga íslenzku leikmannanna að
gera sitt bezta. Raddir hafa verið uppi
um að erfitt verði að velja gegn A-
Þýzkalandi. Þeir Ásgeir Sigurvinsson og
Jóhannes Eðvaldsson geta ekki leikið i
Halle. Auðvitað verður reynt að fá þá en
litlar líkur til að það takist. Ásgeir er
tómt mál að tala um,” sagði Árni enn-
fremur.
„Við ætlum i sumarfri til Spánar eftir
siðari leik lA gegn Köln, 27. september,”
sögðu þeir Karl Þórðarson og Pétur Pét-
ursson í viðtali við DB. Hvort tekst að
breyta því, skal ósagt látið. Valsmenn
leika siðari leik sinn við Magdeburg 27.
september — siðan halda flestir leik-
manna Vals í sumarfri til Ibiza.
„Það verður aö taka í einhverja
tauma í sambandi við leikinn í A-Þýzka-
landi, svo við getum stillt upp frambæri-
legu liði,” sagði Árni Þorgrimsson við
blaðamann DB á mánudag.
Joe Hooley í deilum við dómara
— í Noregi. Sigurjón Jóhannsson skrifar frá Noregi
Fyrir skömmu var enski þjálfarinn Joe
Hooley, sem þjálfar norska toppliöið
Lilleström, mjög til umræðu á iþrótta-
síðum norsku blaðanna, þar sem hann
hafði sagt á prenti að norskir dómarar
væru yfirleitt lélegir. Þessu reiddust
norskir dómarar og hafa tekið mátið upp
innan norska knattspyrnusambandsins,
enda þótt talsmaður þeirra hafi sagt að
þeir tækju ekkert mark á manni eins og
Joe Hooley. Þetta hefur vakið furðu
norska íþróttafréttamanna, sem yfirleitt
taka undir málstað Joe Hooleys. Isdal í
Dagbladet segir m.a. „að það sé
heimskulegt af norskum dómurum að
taka ekki gagnrýni Joe Hooleys alvar-
lega þar sem hann sé þjálfari bezta liðs
Noregs f fyrra, og sennilega lika í ár.
Liðsmenn Lilleström taki a.m.k. Joe
Hooley alvarlega og hann eins og aðrir
hljóti að mega gagnrýna norska dómara.
Ég legg til að dómarafélagið f Osló bjóði
Hooley að ræða málið nánar á félags-
■
Joe Hooley — ávallt umdeildur.
fundi, þvi allir hljóti að græða á slikum
umræðum, og kannski geti dómararnir
sýnt Hooley fram á að þeir séu ekki svo
lélegir þegar allt kemur til alls.”
Erlendir þjálfarar eru annars umræðu-
efni dagsins. Magnus Breili f Aftenpost-
en heldur þvi fram að affarasælast sé að
hafa norska þjálfara og bendir á að
Bodö/Glimt hafi haft siæma reynslu af
erlendum þjálfara. „F/n sannleikurinn er
sá, heldur Isdal áfram, að það fékkst
enginn norskur þjálfari til að flytja með
fjölskyldu til Bodö. Svo gerði liðið Ifka
þá skyssu að kaupa þjáifarann án þess að
hafa nokkuð kannað hæfni hans eða
starfsferil. Enginn vafi leikur á þvf að er-
lendir þjálfarar hafa lyft undir framfarir I
norskri knattspyrnu, en erlendir þjálfar-
ar f Noregi eru að sjálfsögðu ekki þeir
beztu, þvf þá þyrftu norsku liðin að
borga miklu hærri upphæðir.
Erlendum leikmönnum i norskum
liðum fjölgar Ifka stöðugt og leikur vafi á
hvort hér sé um rétta stefnu að ræða.
Knattspyrnusambandið hyggst a.m.k.
gera sitt til að hafa taumhald á þessari
þróun og leggur til að hámarkið skuli
vera tveir erlendir leikmenn í liði, og styð
ég þá tillögu.”
Tony Knapp, sem þjálfar liðið Viking,
sagði nýlega í blaðaviðtaU, að hann gerði
sér góðar vonir um að fá einn ónefndan
íslending i Vikingsliðið, þá væntanlega
Janus Guðlaugsson, og kæmi sá senni-
lega til Noregs i haust til skrafs og ráða-
gerða. Viking er nú i 3. sæti i I. deild,
vann síðast Brann frá Bergen 4.-0. Viking
á að leika aftur gegn Brann I undanúr-
sUtum bikarkeppninnar og spáir Aften-
posten Brann sigri, þrátt fyrir 4:0 tapið.
Brann er það lið, sem hefur eftir 17
umferðir i deildakeppninni dregið til sin
flesta áhorfendur er liðið leikur á heima-
veUi, eða i tölum: 99 þúsund á heimaveUi
og 47.500 á útivelli i 17 leikjum. Lille-
ström hefur aftur á móti dregið til sin
flesta áhorfendur á útivelli, eða 81.800,
en 55.500 á heimavelli. Þrátt fyrir þessar
háu tölur á okkar mæUkvarða, er aðsókn
Liðin, sem mœtast I Nijmegen í kvöld:
HÖLLAND:
Piet Schrjivers
(Ajax)
Jan Poortvliet Ernie Brandts RuudKrol Piet WUdschut
(PSV) (PSV) (Ajax) (Twente)
WimJansen WillyKerkhof Arie Haan
(Feyenoord) (PSV) (AnderL)
Tscheu La Ling Dick Nanninga Rob Rensenbrink
(Ajax) (Roda) (Anderlecht)
Pétur Pétursson
(lA)
Karl Þórðarson
(lAI
ISLAND:
Guðmundur Þorbjörnsson
(Val)
Ásgeir Sigurvinsson
(Standard Liegc)
Á mi Sveinsson Jóhannes F.ð valdsson Jón Pétursson
(lA) (Celtic) (Jönköping)
Þorsteinn Bjarnason
flBK)
Ingi Bjöm
(Val)
Atli Eðvaldsson
(Val)
Janus Guðlaugsson
(FH)
þó verulega minni í heild en i fýrra.
Frammámenn í norskri knattspyrnu
kenna aðaUega tvennu um:
1) Norsku liðin spila ekki nógu
skemmtilega eða góða knattspyrnu sem
stendur. Setja verður markið hærra og
þá munu fleiri áhorfendur koma þvf fólk
hefur almennt mikinn áhuga á knatt-
spyrnu.
2) Eftir HM í knattspyrnu og aUa
HM sjónvarpsleikina hefur almenningur
I Noregi lagt nýtt mat á knattspyrnu, en
blaðamenn verða að vara sig á að skrifa
of neikvætt um norska knattspyrnu, þvi
þrátt fyrir allt er að finna þar marga
ijósa punkta.
Tom Lund, sem leikuf með Lille-
ström, 28 ára, er markahæstur eftir 17
umferðir með 12 mörk, þar af gerði hann
4 mörk er Lilleström lék síðast I deilda-
keppninni. Þetta vakti að sjálfsögðu at-
hygU, en meiri athygU vakti þó, er Tom
fór með liði sfnu að keppa við Linfield I
Belfast i Evrópubikarkeppninni sl.
þriðjudag (Leiknum lauk með jafntefli
0:0). Ástæðan er sú að Tom hefur verið
svo flughræddur að sl. þrjú ár hefur hann
ekki keppt með Uði sinu eða landsliðinu
nema hann hafi komizt á áfangastað I
öðrum farartækjum en flugvél. Nú kom
upp sú staða að hann varð að fara vegna
meiðsla og annarra frátafa I liðinu. Von-
ast menn nú eftir þvi að Tom hafi unnið
bug á flughræðslunni, þvi maðurinn er
slyngur knattspyrnumaður.
OlslóarUðið Skeid keppti hér á
UUevál á miðvikudaginn við pólska
liðið Szombierki, gott 1. deildarlið. Pól-
verjarnir sigruðu 6:2 og er það I sjálfu
sér ekki i frásögur færandi heldur hitt að
það mætti 281 áhorfandi! Þetta var
óskaplegur fjárhagslegur skellur fyrir
Skeid, sem hefði sloppið ef „aðeins”
1200 hefðu mætt til að horfa á leikinn.
Þetta sýnir kannski bezt hvaða vanda
norsk knattspyrnuUð eiga við að gUma f
dag.
Tom Lund,
Lilleström.
1
l
I I
38. tbl. 40. arg. 21. sept. 1978
Verð kr. 530.
„Leiklist er ekkert fyrir
fáaútvalda, húnerfyrir
þá, sem vilja”
Viðtal við
Árna Pétur
Guðjónsson leikara