Dagblaðið - 20.09.1978, Síða 22
22
Ð 19 000
Sundlaugarmorðið
gWlMMIMGPOOL
(La Piseine)
ALAIN DELON • ROMY SCHNEIDER
JANE BIRKIN
e
Spennandi og vel gerð frönsk litmynd,
gerð af Jaques Deray.
islenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýndkl. 3, 5.30, 8 og 10.40.
-------salur B--------------
Sjálfsmorðs-
flugsveitin
Hörkuspennandi japönsk flugmynd i
litum og Cinemascope.
íslenzkur texti.
Bönnuðinnan I2ára.
Sýndkl. 3.05,5.05,7.05,9.05,11.05.
Spennandi. djörf og athyglisverð ný ensk
litmynd með Sarah Douglas og Julian
Glover. Leikstjóri: Gerry O’Hara.
íslenzkur texti.
Bönnuðinnan 16 ára.
Sýndkl. 3.10,5.10,7.10, 9.10og 11.10
---------salur P
Maður til taks
Bráðskemmtileggamanmynd í litum.
íslenzkur texti.
Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og
11.15.
Stórfengleg og spennandi ný bandarisk
framtiðarmynd.
íslenzkur texti.
Michael York
Peter Lstinov.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýndkl. 5,7.10 og 9.15.
Flótti Lógans
LEE MARVIN
Brœður munu berjast
Hörkuspennandi og viðburðahröð
bandarísk litmynd. Vestri sem svolítið
fútt er í með úrvals hörkuleikurum.
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3,5,7,9og 11.
. Kvikmyndir ^
Kiiíiíí: ...
AUSTURBÆJARBÍÓ: Léttlynda Kata (Catherine &
Co.), aöalhlutverk: Jane Birkin og Patrick Dewaere.
kl.,5.7 og 9. Bönnuð innan 14 ára.
GAMLA BIO: Flótti Lógans (Logan’s Run), aðalhlut-
verk: Michael York, Jenny Agutter og Peter Ustinov,
kl. 5,7.10 og 9.15. Bönnuð innan 12 ára.
HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Hryllingsóperan (The
Rocky Horror Picture Show), kl. 9.
HÁSKÓLABÍÓ: Framhjáhald á fullu, kl. 5,7 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Þyrluránið (Birds of Prey),
aðalhlutverk: David Jansen, Ralph Metcher og
Elayne Heilviel, kl. 9. Bönnuð innan 12 ára. Eftirförin
cndursýnd kl. 5, 7 og II. Alls ekki við hæfi barna,
innan 16 ára. Nafnskirteini.
NÝJA BÍÓ: Allt á fullu, kl. 5, 7 og 9. Bönnuö innan
I4ára.
RFGNBOGINN: Sjá auglýsingu
STJÖRNUBÍÓ: Indíáninn Chata, aðalhlutverk:
Thomas Moore, Rod Chamerson, Patricia Viterbo, kl.
5. Bönnuð innan 12 ára. Síðasta sendiferðin, kl. 7 og
9. Bönnuð innan 12 ára.
TÓNABÍÓ: Hrópað á kölska (Shout At The Devil),
leikstjóri: Peter Hunt, aðalhlutverk: Lee Marvin,
Roger Moore, lan Holm, kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð
innan 16ára.
BÆJARBÍÓ: Billy Jack i eldlinunni kl. 5 og 9.
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARPÁÐ
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978.
Útvarp
Sjónvarp
i
Útvarp kl. 20.20: Á níunda tímanum
Heimsókn á Hallærisplanið
— á föstudagskvöldið
Á niunda timanum verður á dag-
skrá útvarpsins í kvöld kl. 20.20.
Stjórnendur þáttarins, þeir Guðmund-
ur Árni Stefánsson og Hjálmar Árna-
son, brugðu sér 1 heimsókn á Hallæris-
planið síðasta föstudagskvöld og könn-
uðu ástandið þar. Að sögn Guðmund-
ar Árna var á Planinu svokallaða tæp-
lega 2000 manns þetta kvöld. Þeir fé-
lagar gengu um með hljóðnemann án
þess að krakkarnir vissu af en þegar
fréttist að hljóðneminn færi um planið
gerðust unglingarnir heldur rólegri
en þeir höfðu verið. Lögreglan ætti
því að geta róað unglingana niður
með því að ganga um svæðið með
myndavél og hljóðncma. Guðmundur
og Hjálmar ætla í þættinum í kvöld að
lýsa þvi sem fyrir augu þeirra bar
þarna um kvöldið, auk þess sem þeir
ræða við lögregluþjóna sem við störf
voru á planinu og ennfremur ræða
þeir við nokkra unglinga sem urðu á
vegi þeirra. Krakkarnir voru sammála
um að ekkert vandræðaástand ríkti af
veru þeirra á planinu og bentu á að
ekki væru margir sem væru undir
áhrifum áfengis þarna. Ennfremur
fannst unglingunum það mjqg skrýtið
að fullorðið fólk væri að tala um
áfengi og vandræði á planinu, þegar
það sjálft sæti inni á finum ve.tinga-
húsum og hvolfdi í sig áfengi þangað
til það væri orðið útúrdrukkið og að-
eins til vandræða. Svo væri þetta full-
orðna fólk að tala um Unglingana sem
væru flestallir bláedrú úti á götu. því
þeir hefðu engan annan stað til að fara
á. Vildu unglingarnir kalla planið
skemmtistað þeirra þar sem þeir gætu
hitzt. Einnig sögðu krakkarnir að þeim
fyndist alls ekki rétt að vera að brjóta
rúður eða gler, enda væri það bara
einn og einn sem slikt gerði. Þó sáu
Guðmundur og Hjálmar dreng einn
kasta ölflösku i götuna og brjóta.
Gengu þeir strax til drengsins til að
spyrjast fyrir um af hverju hann væri
að brjóta gler úti á miðri götu. Dreng-
urinn svaraði því strax og það svar fá-
um við að heyra í þættinum í kvöld.
Guðmundur Árni sagði að mikið fjör
heföi verið hjá krökkunum, en ekki
urðu þeir félagar varir við mikla ölvun
né að vandræðaástand ríkti á planinu.
Aldurinn á planinu sagði Guðmundur
Árni að væri svona frá 13 ára og upp
til tvítugs. Skemmtilegt ætti að vera að
hlusta á þáttinn og heyra hvað fólk
hefur um Hallærisplanið að segja en
ekki hefur verið svo litið umtalað i allt
sumar það vandræðaástand sem þar
hefuráttað ríkja.
Að sjálfsögðu verða þeir Guð-
mundur og Hjálmar með föstu punkt-
ana sína eins og topp 5 og leynigest-
inn. í síðasta þætti var það Björgvin
Halldórsson sem var gesturinn en ekki
var ennþá búið að ákveða hver yrði
valinn í kvöld er DB hafði samband
við Guðmund Árna. Á milli atriða af
Hallærisplaninu ætlar Jóhann Briem,
eftirherman góða, að koma með
nokkrar góðareftirhermur. Þátturinn
Á níunda tímanum er fjörutíu min.
langur 1 kvöld, eins og reyndar alltaf.
Unglingarnir á „Planinu” svokallaða vilja ekki kannast við að vandræðaástand riki þar heldur á vínveitingahúsum borg-
arinnar, þar sem fullorðið fólk kemur saman og drekkur áfengi.
/
Sjónvarp kl. 20.30:
NYJASTA TÆKNI
r
0G VISINDI
Nýjasta tækni og vísindi er á dag-
skrá sjónvarpsins i kvöld kl. 20.30. Að
þessu sinni er það örnólfur Thorlacius
sem er umsjónarmaður þáttarins. í
þættinum I kvöld verða sýndar þrjár
ameriskar myndir og fjallar sú fyrsta
um kol. Myndin heitir Framtíð kola-
vinnslu og fjallar um hvemig hægt
verður að nýta kol þegar olían er þrot-
in. Litið er til af olíu en mikið af kolum
og þess vegna er nú reynt að finna út
hvemig nýta má kolin þegar olian er
búin. Ýmsar aðferðir eru notaðar
við tilraunirnar og má nefna að reynt
hefur verið að breyta kolum í bensín.
Var búið til mjög gott bensín en það er
ennþá of dýrt í framleiðslu. Ennþá eru
allar þessar rannsóknirá tilraunastigi
en visindamenn búast við að olian
verði búin á næstu öld og verði þá
e.t.v. farið að nota kolin meira. Önnur
myndin heitir Leikföng handa fötluð-
um og fjallar um þroskaleikföng fyrir
börn sem hafa fengið heilaskemmd við
fæðingu eða hafa fæðzt fyrir tímann
og hlotið einhverja hreyfilömun. Er
sýnt i þeirri mynd hvernig hægt er að
hjálpa bömum til að halda jafnvægi i
sambandi við leikföngin.
Þriðja myndin fjallar um lax. Hún
heitir Fiskirækt i sjó. Sýnt er hvernig
laxinn er ræktaður þar sem hann
hefur verið ofveiddur í Kyrrahafi. Er
úú reynt að bæta úr því með þvi að
rækta laxinn. Ekki er stöðin ólík þeirri
sem við höfum I Kollafirði en niiklu
stærri i sniðunt og meiri. Stöð þessi
sem sýnd er i myndinni er í Oregon
riki i Bandarikjunum. Mikil tækni er í
Örnólfur Thorlacius menntaskóla-
kennari, umsjónarmaður þáttarins
Nýjasta tækni og vísindi.
þessari frantleiðslu og eru fiskarnir
bæði merktir og bólusettir svo hægt sé
að fylgjast betur með þeim. Þátturinn
Nýjasta tækni og vísindi er tuttugu og
fimm mín. langur.
ELA.