Dagblaðið - 27.09.1978, Qupperneq 23
23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978.
lltvarp
Útvarp kl. 20.00: Á níunda tímanum
Sjónvarp
i
AF HVERJU ER EKKIMEIRA
POPP í ÚTVARPINU?
Á níunda timanum veröur á dagskrá
útvarpsins í kvöld kl. 20.00. Þar sem
Guðmundur Árni Stefánsson, annar
stjórnandi þáttarins, er staddur i Noregi
um þessar mundir verður þátturinn
einþáttungur að sögn Hjálmars Árna-
sonar. Hann nýtur samt sem áður
aðstoðar og er það Jónatan Garðarsson
sem ætlar að taka að sér hlutverk
Guðmundar að einhverju leyti.
Fyrst í dagskrá hjá þeim félögum
verður viðtal við tónlistarstjóra ríkisút-
varpsins, Þorstein Hannesson, verður
hann spurður um ýmis atriði sem spurt
hefur verið um í bréfum til þáttarins.
Eru það spurningar eins og hvað honum
finnist um popp og af hverju ekki sé
spiluð meiri popptónlist í útvarpinu o. fl.
Þorsteinn Hannesson fær síðan að
velja sér óskalag sem að sjálfsögðu er
popplag. Einnig verður í þættinum rætt
við borgarstjóra um áform hins nýja
meirihluta um stað unglinga. Jónatan
Garðarsson mun síðan fjalla um stór-
nafn í Hollywood, Robert Stigwood,
sem meðal annars hefur gert frægustu
myndir siðari ára s.s. Saturday night
fever og Grease. Einnig gerði Stigwood
Hárið á sínum tíma. Fastir liðir eins og
top 5 og leynigestur verða að sjálfsögðu
á dagskrá en í síðasta þætti var það út-
varpsþulurinn Róbert T. Árnason sem
vargesturinn.
Það var blaðamaður DB sem fékk að
draga um rétt nafn í getrauninni um
leynigestinn i síðasta þætti eins og
reyndar kom fram í þættinum. Að
síðustu munu þeir félagar lesa úr
nokkrum bréfum, það er að segja ef
tíminn leyfir. Rætt hefur verið um að í
vetur verði tveir þættir fyrir ungt fólk
með blönduðu efni í viku hverri. Ekki
hefur enn verið um það rætt hvort Á
níunda tímanum haldi áfram eða nýr
þáttur komi með nýjum stjórnendum. Á
níunda tímanum er fjörutíu min. langur.
-ELA.
Popp kl. 16.20: Popp
Guðmundur Árni Stefánsson og Hjibnar Árnason, I „búrinu” á bak við mi greina Gulla tæknimann.
P0PPIÐ
FÆRISTTIL
Sú breyting hefur orðið á dagskrá út-
varpsins að Popphorn Halldórs
Gunnarssonar sem verið hefur á
miðvikudögum, hefur nú færzt yfir á
þriðjudaga. Eftirleiðis á miðvikudögum
verður því popp án Halldórs. t dag kl.
16.20 veröur popp, en þaö eru þulirnir
sem kynna. Ekki er enn ákveðið hvort
Popp á miðvikudögum fái stjómanda.
Ekki gátum við fengið upplýsingar um
lagaval í poppi i dag en án efa verður
það eitthvað hressilegt.
-ELA.
Sjónvarp kl. 21.50:
Land elds og eims
Land elds og eims, nefnist brezk
heimildarmynd um ísbreiður Patagóníu
í Suður-Ameríku. Svæði þétta hefur
verið einna minnst kannað af öllum
stöðum á jörðinni. Myndin er tæplega
klukkustundar löng og í lit. Þýðandi og
þulurerGylfi Pálsson.
-ELA.
Útvarp
Miðvikudagur
27. september
12.25 Vcðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
15.00 Miðdegissagan „Föðurást” eftir Selmu
Lagerlöf. Hulda Runólfsdóttir les (6).
15.30 Miðdegistónleikan Hljómsveitin Filhar-
monla leikur „örlagavaldinn”, forleik eftir
Weber; Wolfgang Sawallisch stj./G^orges
Miquelle og Eastman-Rochester sinfóníu-
hljómsveitin leika Sellókonsert nr. 2 op. 30
eftir Victor Herbert; Howard Hanson stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popp.
17.00 Krakkar út kátir hoppa: Unnur Stefáns
dóttir sér um bamatlma fyrir yngstu hlustend-
uma.
17.20 Sagan: Erfingi Patricks” eftir K.M.
Peyton. Silja Aðalsteinsdóttir les þýðingu slna
(2).
17.50 Eins og þér sáið. Endurtekinn þáttur frá
morgninum.
18.05 Tónlcikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Einsöngur i útvarpssal: Eiður Á. Gunnars-
son syngur lög eftir Áma Thorsteinson, Inga
T. Lárusson, Áma Bjömsson, Karl O.
Runólfsson, Pál ísólfsson og Knút R. Magnús:
son; ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó.
20.00 Á nlunda tímanum. Guðmundur Ámi
I Stefánsson og Hjálmar Ámason sjá um þátt,
| meðblönduðuefni fyrir ungt fólk.
20.40 tþróttir. Hermann Gunnarsson segir frá.
21.00 Þjóðleg tónlist frá Finnlandi. Finnskir
listamenn syngja og leika. (Hljóðritun frá út-
varpinu I Helsinki).
21.25 „Einkennilegur blómi”. Silja Aðalsteins-
dóttir (jallar um fyrstu bækiir nokkurra Ijóð-
• skálda, sem fram komu um 1960. Fimmti þátt-
ur: „Laufiö á trjánum" eftir Vilborgu Dag-
bjartsdóttur. Lesari: Björg Ámadóttir.
21.45 Kjell Bækkelund leikur á pianó tónlist
eftir Christian Sinding.
22.00 Kvöldsagan: „Llf 1 listum” eftir Kon- .
stantín Stanislavski. Kári Halldór les (15).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Svört tónlist. Umsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
28. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb. (7.20 Morgun-
leikfimi).
7.55 Morgunbsn.
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá. 8,15 Veðurfr.
Miðvikudagur
27. september
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Fræg tónskáld (L). Breskur myndaflokk-
ur. Fimmti þáttur. Frédéric Chopin (1810—
1849). Þýðandi og þulur Dóra Hafsteinsdóttir.
21.00 Dýrin min stór og smá (L). Níundi þáttur.
Siðasti spretturinn. Efni áttunda þáttar: James
hefur ekki haft kjark i sér til að biðja Helenar,
en Siegfried ýtir á eftir honum, því að hann
telur mikla hættu á að annar nái stúlkunni frá
honum. Það er Ijóst, hvað Helen ætlar sér, og
þegar James lætur loks verða af bónorðinu,
svarar hún strax játandi. Alderson gamli, faðir
stúlkunnar, fær meira álit á unga dýralæknin-
um þegar hann hjálpar eftirlætiskúnni hans
viðerfiðan burð. Þýðandi Óskar Ingimarsson.
21.50 Land elds og eims (L). Bresk heimilda-
mynd um isbreiður Patagóníu I Suöur-
Ameriku, en þetta svæði hefur verið kannað
einna minnst allra staða á jörðinni. Þýöandi og
þulurGylfi Pálsson.
22.40 Dagskrárlok.
Sérhæfum okkur í
Seljum í dag:
Saab 96 árg. 1972
ekinn 88 þ. km.
Saab 96 árg. 1973,
ekinn 74 þ. km., góð dekk og felguð
snjódekk.
Saab 99 árg. 1974#
ekinn 64 þ. km.
Höfum kaupanda að:
Saab 99 árg. '75/76
Látið skrá bíla, höfum kaupendur
að ýmsum árgerðum.
BJÖRNSSON Aco
BiLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAVÍK