Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.10.1978, Qupperneq 6

Dagblaðið - 16.10.1978, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16.0KTÓBER 1978. DB á ne ytendamarkaði Lundi og hörpudiskur frá Stykkishólmi Skemmtilegir sérréttir á hótelinu í 12 st. lundabringa 28311 28311 Eignavör fasteignasala Hverfisgötu 16 A Makaskipti Við erum meö 140 ferm., einbýlishús vesturbæ Kópavogi, fokhelt, 1 skiptum fyrir 4ra herb. ibúð í Kópavogi. Til sölu 196 ferm verzlunarhúsnæði í steinhúsi í Hafnarfirði. Mjög gott verð, laust strax. 3ja herb. ibúð við Kópavogsbraut i þribýli. Gott verð og útborgun. 2ja herb. ibúð i Gaukshólum, laus strax. Kvöldsímar: 41736 og 74035. Höfum Jyrirliggjandi hinar þekktu Frantz Filuma bílskúrshurðir úr trefja- plasti stœrðir 8’x7’og 9’x 7’ Léttar og þœgilegar í notkun og end- ingargóðar. Getum einnig útvegdð eftir múli hurðir fyrir verkstœði, vöru- geymslur og iðnaðarhúsnœði. Af sérstökum ústœðum höfum við til sölu tvœr hurðir úr úli, í stærðinni 2.74 m. ú breiddog 2.50 m ú hœð. Allar upplýsingar hjú G. Þorsteinsson og Johnson h/f. Ármúla 1. Sími 85533. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli þeirra sem selja í smásölu bæði söluskatts- frjálsar og söluskattsskyldar vörur er hér með vakin á því að þeir skulu skila tveim söluskattsskýrslum fyrir septembermánuð 1978. Skal önnur skýrslan varða sölu tímabilið frá 1. — 14. september en hin tímabilin frá 15. — 30. september. Póstlagðar hafa verið 2 september-skýrslur til flestra þeirra sem hér um ræðir. Berist umræddum aðilum ekki 2 s! ýrslur eru þeir beðnir að afla sér þeirra hjá skatt- stjórum og umboðsmönnum þeirra eða innheimtu- r.iönnum ríkissjóðs. Rlkisskattstjóri 13. október 1978. Stykkishólmi: Á hótelinu í Stykkishólmi eru fram- reiddir sérréttir sem eru áreiðanlega ekki svo algengir á matseðlum hótela annars staðar á landinu, jafnvel ekki í Reykjavik. Við fengum því yfirkokk- inn, Hafstein Sigurðsson, til að gefa okkur uppskriftina að tveimur þeirra, aðalrétti og forrétti. Uppskriftin er miðuð við 6 manns. Lundi Lundinn er lagður í mjólk yfir nótt. Færður upp og steiktur í ofni við 250 gr. Kryddaður salti, pipar, lárviðar- laufum og negulnöglum. Vatni hellt í ofnskúffuna og soðinn í ca 2 tíma. Sósan löguð af soðinu (brún). Bætt með vínberjahlaupi, ediki og rjóma. 10 lárviðarlauf 6—8 negulnaglar 100 g vinbcrjahlaup í 1 litraafsósu 1 msk edik 2 dl rjómi Hafsteinn Sigurðsson. Uppskrift dagsins Lundabringur með sósu og soðnum kartöflum. Hörpudiskur sem snöggsoðinn hefur verið i hvitvini. Framreitt með soðnum kartöflum, belgbaunum, gulrótum og salati. Þessi aðalréttur er seldur á hótelinu á kr. 2200ásamtsúpu. Hörpudiskur Hörpudiskurinn er snöggsoðinn i hvitvini ásamt fínsöxuðum lauk.estra- gon, salti, pipar og sitrónu. Rjóminn er soðinn niður; um 2/3 af fisksoðinu hellt saman við, bætt með 1 eggja- rauðu. 30stk. skelfiskur 3 dl. hvítvín 1/2 litri af rjóma 1 tsk. estragon 1/2 sítróna 1 eggjarauða, salt og pipar eftir smekk. Borið fram með ristuðu brauði, sitrónuoggrænmeti. Hörpudiskurinn er seldur sem forrétturogkostarkr. 1100.- J.Þ. Á þessum síöustu og verstu tímum KARTÖFLUBOLLUR Á 40 KRÓNUR Á MANN Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út fyrstu fjórar bækurnar í mat- reiðslubókaflokknum, Litla matreiðslubókin og fjalla þær um kartöflur, pottrétti, grillrétti og ábætis- rétti. Bækurnar eru eftir Lotte Haveman og þýddar af Ib Wessman. 1 hverri þeirra er dálítill formáli um þá matartegund sem bókin fjallar um. Og eru allar upplýsingar um réttina mjög skýrar og þægilegar. 1 dag skulum við borða einn af réttunum sem gefin er uppskrift af í bókinni um kartöflur. Þaðeru kartöflubollur. 3/4 kg ntjölmiklar kartöflur (ca 100 krónur) vatn ca 4 msk, brauðmylsna ca 1 msk. hveiti 2egg 1—2 msk. riflnn laukur salt og hvítur pipar múskat framan á hnífsoddi ca 50 g smjör/smjörliki Kartöflurnar eru flysjaðar og skornar i litla bita. og soðnar í ósöltu vatni i ca 10—15 mínútur. Vatninu er hellt af kartöflunum og potturinn látinn standa við hita svo allt vatn gufi upp úr kartöflunum. Hristið pottinn öðru hverju. Kartöflumar eru stappaðar með kartöfluþjöppu eða þeytara, brauð- mylsnunni, hveitinu og eggjunum hrært saman við og stappan bragðbætt með kryddi og rifnum lauk. Brúnið smjörlíkið á pönnu. Dýfið skeið í feitina og mótið bollur úr stöppunni meðskeiðog lófa. Bollurnar eru látnar á pönnuna og steiktar á báðum hliðum þangað til þær eru stökkar á yfirborðinu. Þessi réttur er borinn fram með smjörsoðnum mais og hrásalati. Feitin sem bollurnar eru steiktar úr er borin með. Þessi réttur kostar varla mikið meira en 150 krónur og er ætlaður fyrir 4. Skammturinn kostar því aðeins um 40 krónur og er varla hægt að hugsa sér ódýrari mat. DS. Sviðin fylgdu ekki með slátrinu „Höfum ekki undan aðsvíða” Fullorðinn maður sem ræddi við neytendasíðuna var óánægður með slátursölu Sláturfélags Suðurlands að einu leyti. 1 fyrri viku, þegar maðurinn sendi annan fyrir sig til sláturkaupa, voru engir sviðahausar til og jveim sém sendiförina fór boðið að kaupa slátrið án þeirra á um 400 krónum lægra verði. Fannst viðmælenda síð- unnar það ekki hagstæð viðskipti þar, sem kilóið af sviðum kostar 663 krónur út úr búð og reikna má með að einn haus vegi ekki undir kílói. Fannst manninum það einnig lágmarkskrafa að auglýst hefði verið að sviðin fylgdu ekki með 1 kaupunum. Maðurinn sagði að lokum að sér fyndist þetta ekki fjárhagslegt mál nema að óveru- legu leyti en sér sviði óréttlætið. Haft var samband við Vigfús Tómasson sölulstjóra sláturafurða hjá Sláturfélaginu. Vigfús sagði að Slátur- félagið ætti í miklum erfiðleikum með sviðin um þessar mundir. Erfitt væri að fá menn til þess að svíða og hefðist því ekki undan. Einnig væru orðnar miklar takmarkanir á leyfum til flutninga á ósviðnum hausum vegna sauðfjársjúkdóma. Vigfús sagði að hverjum og einum væri í sjálfsvald sett hvort hann keypti slátrið sviðalaust og fengi það 440 ■krónum ódýrara eða kæmi næsta dag og fengi þá kannski hausinn með. Hausar kæmu á hverjum degi og væru það þeir sem fyrstir kæmu sem fengju þá. Því væri ekki hægt að auglýsa fyrirfram hvort hausar fylgdu meðeða ekki. Fyrir nokkrum árum var reynt í svipuðu tilfelli að láta menn hafa ávísanir á hausa sem þeir máttu siðan leysa út seinna. En það gafst mjög illa. Menn voru fram undir jól að leysa út þetta einn og einn haus. Og þar sem Sláturfélagið selur svið ekki beint til kaupenda lengur heldur í gegnum verzlanir vandast málið enn. Vigfús sagði að ekki gæti verið rétt að slá af sláturverðinu það sem svið kostuðu út úr búð þvi að slátur sem heild er mun ódýrara en hver eining þess. Ákveðið væri af verðlagsyfir- völdum hvað hver eining kostaði og einnig væri ákveðið hvað slátur án hauss kostaði því til væru þeir sem ekki vildu hausinn. DS.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.