Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.10.1978, Qupperneq 21

Dagblaðið - 16.10.1978, Qupperneq 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16.0KTÓBER 1978. I Bþróttir Iþróttir 21 Iþróttir Iþróttir I AílftbSTWETI a REYKdftVÍK SIMl12234 Njarðvík sigraði ÍR í hörkuspennandi leik — í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á laugardag Körfuknatttcikur, fJMFN—ÍR 97—94 <46—39) Njarðvikingar sigruðu lR-inga i ítr- valsdeildinni i kurfuknattleik með 97 stigum gegn 94 suður í Njarðvík á laug- ardaginn. Var leikurinn hörku- spennandi allan tímann, því fá stig skildu liðin vfirleitt að. Njarðvikingar hafa nú útlending i fyrsta sinn i liði sínu, Bandarikjamanninn Ted Bee, og skoraði hann 29 stig en hann var inn á allan leikinn. Annars orkaði liðið ekki sannfærandi i leiknum, — hefur yfir að ráða sterkum einstaklingum, en sem heild féll liðið ekki vel saman, gerði fumkenndar villur, sérstaklega í hraðupphlaupum. Njarðvikingar skoruðu fyrstu körfuna. Léku öflugan varnarleik framan af og náðu 7 stiga forskoti, sérstaklega fyrir atbeina Stefáns Bjarkasonar, sem var mjög harður bæði i vörn og sókn og skoraði alls 17 stig, en á milli hans og Ted Bee var Gunnar Þorvarðarson, — sem ávallt stendur fyrir sínu. með 18 stig. ÍR-ingar með Paul Stewart og Jón Jörundsson í fararbroddi, höfðu forustuna um stund i fyrri hálfleik, 22— 20, en heimamönnum tókst að snúa leiknum sér i hag fyrir hlé og höfðu þá 7 stig yfir, 46—39. ÍR-ingar voru samt ekki af baki dottnir. í byrjun seinni hálfleiks tóku þeir á sig rögg, aðallega Paul, og bræðurnir Kristinn og Jón og minnkuðu muninn í eitt stig. Fór þá heldur að fara um áhorfendur sem gera sér vonir um árangursrikt tímabil hjá UMFN—En þegar ÍR, meðsitt hægaspil gegn hraða UMFN, virtist ætla að svæfa heima- menn. tók Ted Bee til sinna ráða, eftir fremur daufan fyrri hálfleik og „stal” knettinum nokkrum sinnum og skoraði, þannig að innan stundar var munurinn orðinn 10 stig, sem dugði þeim til sigurs, þótt naumur yrði, því ÍR-ingum tókst að saxa á forskotið undir lokin, en þá hljóp allt i baklás hjá UMFN, eins og oft vill við brenna hjá liðinu. -ÁHM. Ungu strákarnir fóru létt með Færeyingana — í landsleiknum á Akranesi í gær íslenzka landsliðið sigraði Færeyinga á Akranesi í siðari landsleik þjúðanna 32—25 í gær. Júhann Ingi Gunnarsson landsliðseinvaldur valdi einungis leik- Kveðjuleikur Johans Crijuff — verður 7. nóvember. Þá leikur Ajax við Bayem Miínchen í Amsterdam Johan Crijuff, hollenzki leik- maðurinn, sem hefur verið skærasta stjama knattspyrnunnar siðustu árin, mun leika sinn siðasta opinbera knatt- spyrnuleik 7. núvember i Amsterdam. Þá leikur hann með Ajax Amsterdam, liðinu, sem hann hóf feril sinn með, gegn Bayern Múnchen. Ágúðinn af kveðjuleik Crijuff rennur til gúðgerðarstarfsemi. Hann var í liði Ajax, sem varð Evrúpumeistari þrjú ár í röð. Frá 1971 — 1973 en varð atvinnumaður hjá félaginu 16 ára gamall — 1963. Síðar gerðist hann leikmaður hjá Barcelona á Spáni. Samningur hans við spánska félagið rann út í vor og Crijuff, sem aðeins er 31 árs aö aldri vildi ekki endur- uýja samninginn eða ráðast til annars félags. Mörg hafa þú reynt að fá hann til sín. menn u-23 ára, heldur áfram með tilraunir sínar, sem eðlilegt er á meðan hann er að þreifa fyrir sér. Nú hefur tsland leikið fjúra landsleiki undir stjúrn Júhanns Inga — alla gegn Færeyjum og í þessum leikjum hefur Júhann notað 28 leikmenn. Nú hins vegar er hátíö úti, erfiðari verkefni bíða. Fyrst „túrnering” i Frakk- landi og siðan landsleikir gegn Dönum hér í Reykjavík í desember. Islenzka liðið byrjaði vel á Akranesi en leikurinn fór fram klukkan hálfellefu í gærmorgun og. um 300 áhorfendur á Skaga. Þrjú fyrstu mörk leiksins voru tslands, og eftir 20. mínútna leik var staðan 13—6 tslandi í vil. En kæruleysi virtist hlaupa í leik liðsins og Færeyingar náðu að minnka muninn fyrir leikhléi i þrjú mörk, 15—12. Rétt eins og i fyrri hálf- leik byrjaði íslenzka liðið af krafti, komst yfir i 10 mörk eftir 20. mínúturen undir lokin gáfu leikmenn eftir, staðan breyttist úr 28—18 i 32—25 — sjö marka sigur. islenzka liðið reyndi mjög að beita hraða fyrir sig, hraðaupphlaup tókust mjög vel, gáfu liðlega 10 mörk. En það var eins og leikmenn misstu einbeitingu er á leið, og Færeyingar. sem aldrei gáfust upp. náðu að minnka muninn. Mörk íslands gegn Færeyjum skoruðu, Pétur Ingólfson 7, Símon' Unndórsson, Sigurður Gunnarsson. Efstu liðin á Skot- landi töpuðu öll Öll efstu liðin þrjú í skozku úrvals- deildinni töpuðu á laugardag. Celtic i Dundee fyrir United, Hibernian í Glasgow fyrir Partick Thistie og Aberdeen i Paisley fyrir St. Mirren. Spenna á toppnum er nú mikil — og Celtic heldur efsta sætinu á betri marka- mun en Dundee Utd. og Hibernian. Bakvörðurinn Frank Kopel skoraði fyrir Dundee Utd. gegn Celtic eftir 60 sek. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum þrátt fyrir miklar tilraunir Celtic. Jóhannes Eðvaldsson var tekinn í þeirra stað komu Peter Mackie og Staðanernú þannig: George McClusky. Það breytti engu. Celtic 9 6 0 3 20-12 12 Celtic-liðið var þannig skipað upphaf- Dundee Utd. 9 4 4 1 12—7 12 lega. Latchford, Filippi, Burns, Hibernian 9 4 4 1 10-7 12 MacDonald, Jóhannes, Provan, Aitken, Aberdeen 9 4 3 2 20-10 11 Conn, Conroy, McAdam og Lennox. Partick 9 3 3 3 10-10 9 Úrslit urðu þessi. St. Mirren 9 4 14 10—11 9 Dundee Utd.-Celtic 1—0 Rangers 9 16 2 9-9 8 Hearts-Rangers 0-0 Morton 9 2 3 4 11—15 7 Morton-Motherwell 1-2 Hearts 9 14 4 8-17 6 Partick-Hibernian 2-1 Motherwell 9 2 0 7 7-20 4 St. Mirren-Aberdeen 2-1 Hibernian tapaði sinum fyrsta leik í úrvalsdeildinni á keppnistímabilinu. Alex O’Hara skoraði bæði mörk Partick. Jimmy Bone og Frank McGarvey skoruðu mörk St. Mirren en Aberdeen gat aðeins svarað með vitaspyrnu Joe Harper. Rangers var heppið að ná jafn- tefli í Edinborg gegn Hearts. Eamonn Bannon hjá Hearts misnotaði viti. Skaut hátt yfir mark Rangers á 75 min. Þá kom mjög á óvart að neðsta liðið, Motherwell, sigraði á útivelli — Morton í áCappielow Park i Greenock. Konráð Jónsson og Birgir Jóhannsson 5 mörk hver. Atli Hilmarsson, Jóhannes Stefánsson 2 mörk hvor og Erlendur Hermannsson eitt mark. y/ruc/crm ■jfnhmath’naC

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.