Dagblaðið - 16.10.1978, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16.0KTÓBER 1978.
Grípið simann
oerið 9Óð
kaup
LJÓSMYNDIR:
BJARNLEIFUR
BJARNLEIFSSON
mörgum öryrkjum? Nýlega var vakin
athygli á vandamálum lamaðra með
jafnréttisgöngunni. Ég er þeirrar skoð-
unar að ekki eigi að byggja sérstakar
íbúðir fyrir sjálfbjarga öryrkja. Þetta
fólk á að búa innan um okkur hin. Ef
mögulegt er á þetta fólk að búa þar
sem það hefur búið áður. Það getur
bezt sinnt sínum daglegu þörfum þar
sem það þekkir sig.
Langur vinnudagur
Umferðin hér á landi einkennist
mjög af þvi að við erum alltaf að flýta
okkur og hinn langi vinnudagur segir
þar mjög til sín. Það er svo mikil
spenna í umferðinni hér. Þú veizt
aldrei hvort stöðvunarskyldumerkið er
virt. Einnig einkennist umferðin af til-
litsleysi. Fólk er alltaf að taka „séns-
inn”. Þá má benda á það, hve gatna-
mót eru mörg hér. Innanbæjargöturn-
ar eru ekki gerðar fyrir hraðakstur.
1 umferðinni er mikið af fullorðnu
fólki sem hefur ekki sama viðbragðs-
flýti og þeir sem yngri eru. Einnig er i
umferðinni margt fólk sem er á lyfj-
um, eins og t.d. hjartasjúklingar. Það
þarf að taka tillit til þess að viðbragðs-
flýtir þessa fólks er ekki mikill.
En fyrst og fremst einkennist um-
ferðin af þessari miklu spennu og til-
litsleysi gagnvart öllu og öllum.
Þetta hendir
mig aldrei!
Þá má lika benda á að þessar endur-
hæfingarstofnanir kosta mikla pen-
inga, samt held ég að endurhæfingin
verði aldrei of dýru verði keypt.
Enginn biður um að liggja lamaður
inni á spítala, en auðvitað kostar það
peninga.
Flestir hugsa þannig: þetta hendir
mig aldrei. Fólki sem kemur hingað I
fyrsta sinn bregður við að sjá hvernig
umferðarslysin geta farið með fólk. Ég
þori ekki að segja hve margir eru hér
varanlega lamaðir eftir umferðarslys,
sennilega eru hér um tiu manns sem
eru lamaðir eftir umferðarslys og önn-
ur slys. Hér er t.d. ungur piltur
lamaður fyrir neðan háls eftir um-
ferðarslys og fimm ára gömul telpa
lömuð fyrir neðan mitti, einnig eftir
umferðarslys.
Starfið hér byggist mikið á
samvinnu milli lækna, sjúkraþjálfa,
hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa, félags-
ráðgjafa og talkennara. Við erum
alltaf með vikulega fundi að viðbætt-
um fræðslufundum og aukafundum.
Á þessa fundi kemur allt starfsfólkið
og við reynum að ræða saman á máli
sem allir skilja. Við förum alltaf
tvisvar í viku með sjúklingana í sund-
laug á Háaleitisbraut hjá lömuðum og
fötluðum, en það er okkar draumur að
fá sundlaug hér við deildina. Fötluðu
fólki liður oft andlega betur i vatni
vegna þess hve það á miklu auðveld-
ara með að hreyfa sig þar. Jafnvel lam-
aðir geta synt með þvi bara að hreyfa
höfuðið.”
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
ÞverholtiU sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Tillitssemi
og aðgát
Í spjalli okkar við Jóhann Gunnar
kom einnig fram að Grensásdeildin er
raunverulega tvær deildir með alls 60
rúmum. Grensásdeildin er hjúkrunar-
og endurhæfingardeild. Snar þáttur í
starfinu þarna er svokölluð A.D.L.-
meðferð (Acticity of Daily Livingl. Þá
er leitazt við að þjálfa sjúklinginn i at-
höfnum sem hann þarf að beita fyrir
sig daglega, s.s. að klæða sig i sokka,
fara á salerni, borða o.m.fl. Oft er
sjúklingnum kennt að nota ýmis áhöld
sér til hjálpar og honum eru kenndar
réttar vinnustellingar. Svo dæmi sé
tekið af handahófi má benda á að
miklu auðveldara er að halda á sver-
um penna en mjóum. Sjúklingarnir
vinna mikið með alls kyns föndur
þarna. Það er ekki fyrst og fremst
þeim til skemmtunar heldur er þarna
um mikilvæga þjálfun að ræða, sam-
hæfing hugar og handar. Sjúklingun-
um eru sýndar litskyggnur þar sem
þeir sjá hvernig auðveldast er að beita
likamanum við daglega vinnu.
Starfið þarna á Grensásdeildinni er
Hafliði Helgason.
endurhæfa m.a. fórnarlömb umferðar
slysanna hér á landi en þau eru orðin
óhugnanlega tíð upp á síðkastið.
Þýðingarmest hlýtur þó að vera að
bæta umferðarmenninguna og fækka
þannig slysunum. Tillitssemi og aðgát
i umferðinni er bezta leiðin til þess.
- GAJ
þó miklu viðtækara en svo að því verði
gerð nokkur grein í stuttu spjalli sem
þessu. Vist er um það að þarna er
unnið þýðingarmikið starf við að
Jóhann Gunnar Þorbergsson.
DB-myndir Bjarnleifur.