Dagblaðið - 16.10.1978, Page 32
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1978.
UM NÆSTU
MÁNAÐAMÓT
ÞURSAFLOKKURINN á fleygiferð. Karl Sighvatsson hefur nýlega bætzt i hópinn og leikur i ferðinni i staðinn fyrir
Rúnar Vilbergsson, sem ekki á heimangengt. DB-mynd: Ragnar Th.
Þursaflokkurínn fer í
hríngferð um landið
Hringferð Þursaflokksins um fagottleikari á ekki heimangengt sök- 1. nóvember ísafjörður
landið er nú að mestu leyti skipu-
lögð. Flokkurinn leggur af stað eftir
tvo daga og hefur fyrstu viðdvöl á
Laugarvatni. Síðan verður farið sem
leið liggur austur á land og norður
fyrir. Plata Þursaflokksins er
væntanleg á markaðinn eftir nokkra
daga.
Flokkurinn boðaði blaðamenn á
sinn fund fyrir nokkrum dögum, þar
sem ferðaáætlunin var kunngerð.
Sömuleiðis var blaðamönnum gefinn
kostur á að hlusta á nýju plötuna. Á
henni eru átta lög, fimm úr þjóðlaga-
safni séra Bjarna Þorsteinssonar og
þrjú eftir Þursana sjálfa. Óhætt er að
lofa mjög sérstæðri plötu eftir fyrstu
hlustun.
Ein mannabreyting er orðin á
Þursaflokknum. Rúnar Vilbergsson
um námsanna. í hans stað hefur
gamalreyndur orgelleikari, Karl Sig-
hvatsson að nafni, verið ráðinn. Á
blaðamannafundinum kvaðst Egill
Ólafsson söngvari flokksins vonast
til þess að í framtiðinni ættu þeir
báðir eftir að vera með.
• Viðkomustaðir Þursaflokksins ’á
yfirreiðinni um landið eru eftirtaldir:
18. október Laugarvatn
19. október Skógaskóli
20. október Höfn í Hornafirði
21. október Eiðar
22. október Húsavík
23. október Akureyri
24. október Akureyri
25. október Sauðárkrókur
26. október Stykkishólmur
27. október Keflavík
28. október Bifröst
Þá er einnig fyrirhugað að leika á
Kleppjárnsreykjum, i Reykholti, á
Akranesi og Selfossi. Ákveðnar dag-
setningar liggja enn ekki fyrir á þeim
stöðum. Það er athyglisvert að á
flestum framangreindum stöðum
mun Þursaflokkurinn skemmta i
skólum. Það er nýbreytni í skemmt-
analifinu að hljómsveit taki sér langa
ferð á hendur til að skemmta skóla-
nemendum.
Um miðjan nóvember hefjast sýn-
ingar á ballett þeim sem Þursaflokk-
urinn tók þátt i á Listahátíð i sumar.
Flokkurinn verður þar með. Þá er
einnig á athugunarstigi að heim-
sækja hin Norðurlöndin, en ekkert
ákveðið er komið fram í því ennþá.
- ÁT
„Ég er reyndar ekki búinn að
finna nafn á plöturnar. Það pompar
upp einhvern tíma á næstu dögum,”
sagði Gunnar Þórðarson tónlistar-
maður í samtali við Dagblaðið á
föstudag. — Gunnar kom til
landsins fyrir stuttu frá Bandaríkjun-
um með nýja, tvöfalda sólóplötu
sína i farangrinum.
Mestöll tónlistin á plötunum
tveim er ný af nálinni. Gunnar kvað
aðeins tvö áður útkomin lög hafa
verið valin á plöturnar lögin Lít ég
börn að leika sér, sem var á fyrstu
Trúbrotsplötunni, og Today, af plöt-
unni Mandala. Það lag er nú komið
með íslenzkan texta.
„Ég tók lögin mestmegnis upp í
þremur stúdíóum í Los Angeles,”
sagði Gunnar. „Einnig hljóð-
blandaði ég þrjú lög í New York og
hljóðritaði dálitið í Hljóðrita i
Hafnarfirði. Ég notaði þvi samtals
fimm stúdíó við gerð platnanna.”
Fjöldi hljóðfæraleikara kemur við
sögu á plötum Gunnars, flestir
bandarískir. Alls voru fjórir
trommuleikarar notaðir og fjórir
bassaleikarar. Átta manna blásara-
sveit leikur með og átján fiðluleik-
arar, hornleikari og fagottleikari. Þá
lék slagverksleikarinn Steve Forman
með i nokkrum lögum. Að sögn
Gunnars er Steve þekktur maður á
sínu sviði ytra.
Gunnar syngur flest lögin á plöt-
urium. í einu nýtur hann aðstoðar
þeldökkrar sessionsöngkonu. Einnig
syngja Björgvin Halldórsson og
Ragnhildur Gisladóttir baksöng í
nokkrum lögum.
„Það má skipta sólóplötunum í
þrjá hluta,” sagði Gunnar. „Ein
plötusíða er alveg instrúmental, það
er ekki sungin. Önnur hlið er með
lögum við íslenzka texta og loks eru
tvær plötuhliðar með enskum
textum.
íslenzku textana sömdu þeir
Þorsteinn Eggertsson og Hrafn
Gunnlaugsson en þá ensku orti hálf-
islenzk kona, Toby Sigrún Herman,
sem er búsett í New York.” —
Leikna tónverkið er að megni til
Brimþeyr við ströndina sem Gunnar
flutti á Stjörnumessunni í fyrra.
Einnig bregður þar fyrir stefi úr
tónlistinni við kvikmyndina
Blóðrautt sólarlag. — Bergþeyr við'
ströndina hefur reyndar komið út á
plötu með Árna Johnsen biáða-
manni.
Gunnar Þórðarson kvað allt
óákveðið um hve lengi hann yrði á
landinu að þessu sinni.Hann hyggur
nú á gerð nýrrar hljómplötu sem
verður tekin upp í Hljóðrita. Ekkert
vildi Gunnar segja um efni þessarar
nýju plötu, kvað það ekki ákveðið
ennþá. Hún kemur ekki út fyrr en á
næsta ári. Sólóplatan er aftur á móti
væntanleg í búðir um næstu
mánaðamót.
ÁT.
Cirkus svararskitkasti hljómsveitarstjóra
EFÞAÐ ER GAMALDAGS AÐ KREFJAST
SÓMASAMLEGRAR GREIÐSLU FYRIR VINNU...
Mánudaginn 2. október birtist i
DB viðtal við hljómsveitarstjóra
nokkurn. Tilefni þess munu vera
ummæli eins af meðlimum hljóm-
sveitarinnar Cirkus i sama blaði
nokkrum dögum áður. Þar sagði
hann að ein hljómsveit virtist sjá sér
hag í því að undirbjóða aðrar á
skóladansleikjamarkaðinum. Þarna
voru engin nöfn nefnd en sagt að
þeir skyldu taka til sín sem ættu. —
Hljómsveitarstjóri þessi hefur greini-
Hljómsveitin CIRKUS leiöréttir hér nokkrar missagnir sem hafðar voru eftir Ólafi Helgasyni hljómsveitarstjóra Tívolis
í Dagbiaðinu þann 2. október. Ljósm. Kristinn Ólafsson
lega gripið ummælin á lofti og svarar
þeim með mörgum og stórum
orðum.
Við ætlum hins vegar að leiðrétta
nokkur villandi ummæli sem koma
fram í viðtalinu við hljómsveitar-
stjórann.
1. Hljómsveitarstjórinn segir að
hljómsveit hans hafi aðeins einu
sinni leikið fyrir tvö hundruð þús-
und króna greiðslu á skóladans-
leik. Við vitum eftir áreiðanlegum
heimildum að svo er ekki.
2. Hljómsveitarstjórinn fullyrðir að
FÍH hafi veitt honum upplýsing-
ar um verðtilboð okkar á ákveðn-
um skóladansleik. Starfsmaður
félagsins segir hins vegar að þar sé
rangt með farið. Hljómsveitar-
stjórinn hlýtur að hafa fengið
upplýsingar sinar annars staðar
frá.
★
3. Hljómsveitarstjórinn tekur fram í
viðtalinu að aldrei hafi verið farið
fram á samræmingu verðlags
hljómsveitar hans og Cirkuss á
skóladansleikjum. Rétt mun vera
að aldrei hefur verið rætt við
hann um verðlagsmál en Sævar
Sverrisson, söngvari Cirkuss,
talaði hins vegar við tvo af liðs-
mönnum hljómsveitar hans um
verðlagningu skóladansleikja og
voru þeir mjög svo jákvæðir.
Þessi ummæli falla þvi um sjálf
sig.
★
4. Hljómsveitarstjórinn fullyrðir að
hljómsveit hans standist fremur
kröfur hlustenda en Cirkus. Þetta
eru stór orð og lýsa mjög hinu
annálaða hugrekki stjórans. Ekk-
ert er fjær okkur, sem skipum
Cirkus, en að telja okkur yfir
aðrar hljómsveitir hafna á neinn
hátt — allra sízt í fjölmiðlum.
Hljómsveitarstjórinn vegur ein-
ungis að sjálfum sér með þessum
ummælum og er þeim vísað bein-
ustu leið heim til föðurhúsanna.
★
5. Ef það telst gamaldags að fara
fram á sómasamlega greiðslu fyrir
vinnu sina, á meðan holskefla
verðhækkana skellur á hljóðfær-
um og öðrum tækjum sem notuð
eru til tónlistarflutnings, eru liðs-
menn Cirkuss, allir með tölu,
hreyknir yfir því hversu gamal-
dags þeir eru.
★
Okkur Cirkusmönnum þykir
málið í heild harla undarlegt. Við
teljum að allt skítkast sé frá öðrum
en okkur komið. Að endingu viljum
við lýsa okkur fúsa til viðræðna —
hvort sem þær fara fram i blöðum
eða annars staðar — um hagsmuna-
mál stéttar okkar.
12. október 1978,
Cirkus.
SÓLÓPLATA
GUNNARS
VÆNTANLEG