Dagblaðið - 06.11.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978.
„MIG LANGAR í OZOU
—get ég fengið það?
— lesandi spyr hvar hægt sé að fá þjóðardrykk Grikkja
Grikklandsfari spyr:
Ég og nokkrir kunningjar minir sem
farið hafa til Grikklands á undanförn-
um árum sakna þess að við höfum
ekki fengið ozou, þjóðardrykk
Grikkja, sem er anisbrennivín, í verzl-
unum ÁTVR. Er von til þess að úr
þessu rætist á næstunni?
Svan
DB snéri sér til Jóns Kjartanssonar
forstjóra ÁTVR og innti hann eftir
þessu: „Því miður getum við ekki haft
alla heimsins þjóöardrykki, þetta er
gífurlegur fjöldi. En spyrjandi getur
snúið sér til okkar og sérpantað hvaða
vín sem er.
Sem sagt, kæru vínunnendur, þið
getið sérpantað hvaða vín sem er sem
ekki er selt I verzlunum ÁTVR,
síminn er 24280 (Jón Kjartansson for-
stjóri).
Ekki er hægt að kvarta ytlr þjónustu
ÁTVR manna. Langi þig í vín sem
ekki er á boðstólum hér á landi þá
gerðu svo vel, ÁTVR sérpantar.
Hvernig get ég orðið lögga?
Ásta hringdi:
Ég sá i þættinum um daginn að
spurt var um lögregluna, því datt mér í
hug að spyrja dálítið meira um hana:
Hvaða námi þarf maður að vera
búinn að ljúka til aö fá inntöku i lög-
regluna?
Hver er lágmarksaldur í lögregluna?
Þarf maður að ganga í einhvern sér-
stakan skóla til að verða lögreglu-
þjónn?
Ef svo er hvað kostar það nám?
Þarf maður að vera eitthvað sér-
staklega stór til að fá aögang að lög-
reglustörfum?
Svar:
Eftirtalin skilyrði þarftu að uppfylla
til þess að geta hafið nám í Lögreglu-
skóla ríkisins: Þú þarft að vera ráðin
(starfandi) lögregluþjónn, vera á aldr-
inum 20—30 ára og líkamlega hraust
og heilbrigð. Þú þarft að hafa hreint að geta fengið hjá viðkomandi lög-
sakavottorð og auk þess gagnfræða- reglustjóraogþegarþúertráðin.ferðu
próf eða hliðstæða menntun, þ.e. ein- sjálfkrafa inn í Lögregluskóla ríkisins.
hverja framhaldsmenntun. Þú byrjar Skólinn byrjar yfirleitt í októbér og er
á að sækja um starf sem lögreglu- þá í sex vikur. Eftir eins árs starfsþjálf-
þjónn, sérstök umsóknareyðublöð áttu un eru siðan 18 vikur á skólabekk.
Úrvalssveit lögreglunnar I Reykjavík á heiðursvakt við Alþingishúsið.
Kr. 20.340.-
Litir
Beige
og
svert
21.410.-
Litir Gulbrúnt
ogsvart
Kr. 20.340.
Póstsendum
Litur
Brúnn
N
PILLIHÉR OG
PILLIÞAR
— pilsnerunnandi kvartar undan mismunandi
verði í verzlunum
Viðskiptavinur skrifar:
Ég er einn af þeim sem þykir góður
pilsner og þar sem gosdrykkjastríð um
verðálagningu hefur verið háð, þá
langar mig að vita hvort pilsnerinn sé
ekki eins og aðrir drykkir undir ákveð-
inni álagningu. Ég keypti í október sl.
pilsner sem kostaði 110 kr. innihaldið í
Torfufelli sf., verzlun einni í Banka-
stræti. Ég læt hér fylgja kvittun um að
ég hafi borgað þá upphæð. En er ég
verzla I öðrum verzlunum er ég látinn
borga kr. 95.-96 sem er vist rétt verð
á honum?? Hvers vegna er pilsnerinn
dýrari hjá Torfufelli. Hvað á hann að
kosta? Hvað kostar pilsnerinn úti á
landi.
Svar:
DB hafði samband við fulltrúa verð-
lagsstjóra, Friðbjörn Berg, og tjáði
hann okkur að þarna væri um brot á
lögum að ræða. Á þessum tíma, nánar
tiltekið 26.10. sl., kostaði pilsnerinn
kr. 96.
Pilsnerinn kostar í dag, 6. nóv.
1978, 120 kr. innihaldið. Á allar vörur
Hér er nótan sem einn viðskiptavinur
Torfufelis s.f. fékk er hann keypti
pilsner á 110.00 krónur, en hann átti
að kosta 96.00 krónur.
sem fara út á land er lagt vörugjald og
er það mismunandi eftir því hvert var-
an fer. Því er ekki hægt að telja upp
hvað pilsnerinn kostar úti á landi.
Hvernig get ég eignazt
pennavin íKína?
Elinborg S. Jónsdóttir spyn
Hvert á að skrifa til að eignast kín-
verska pennavini.
Svan
DB hafði samband við Arnþór
Helgason, formann Kinversk-íslenzka
menningarfélagsins, og spurði hann
hvort hann gæti svarað spurningu
Elínborgar. Arnþór sagðist telja væn-
legast til árangurs að skrifa til:
The Chinese Peoples Associ-
ation for Friendship With
Foreign Countries, Peking.
V