Dagblaðið - 06.11.1978, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 06.11.1978, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978. Iþróttir róttir DB-mynd Bjarnleifur. írvals- í gátt 86-81 Val, Tim Dwyer 19, Kristján Ágústsson 16, Ríkharður Hrafnkelsson 11, Lárus Hólm 4, Torfi Magnússon og Hafsteinn 2 stig. Hjá KR skoraði Hudson 30, Jón Sigurðsson 15, Einar Bollason 10, Gunnar Jóakimsson 9, Birgir Guðbjörnson 6, Ámi Gunnarsson og Garðar Jóhannsson 4, Kristinn Stefánson 3 og Kolbeinn Pálsson 2. Það vakti athygli, og kátinu að áhorf- endum gafst tækifæri til að spreyta sig á að hitta körfuna í leikhléi, af 6 metra færi. — Sá er hitti fengi heilan kjötskrokk frá Kjötmiðstöðinni. En áhorfendum tókst ekki að hitta — og kjötskrokkurinn gekk þeim þvi úr greipum. -H.Halls. Enn vinnur Björn Borg Björn Borg, Svíþjóð, sigraði á stór- móti í Japan í gær — fjórða tennismótið, sem hann sigrar i undanfarnar vikur. Hann lék til úrslita við Brian Teacher, USA, sem kom mjög á óvart i keppninni, og vann 6—4 og 6—3. Verðlaun námu alls 200 þúsund dollurum og hlaut Björn 30 þúsund dollara fyrstu verðlaun. Margir beztu tennisleikarar heims tóku þátt i keppninni m.a. Jimmv Connors, USA. VALUR SK0RAÐI4 SÍDUSTU MÖRKIN OG SIGRAÐIHAUKA — 21-20 er liðin mættust í Höllinni í gærkvöld Haukar beinUnis köstuðu frá sér sigri i viðureign sinni við íslandsmeistara Vals i Laugardalshöll i gærkvöld. Þegar sex minútur voru til leiksloka höfðu Haukar þriggja marka forustu, 20—17, en það dugði ekki til — Valur skoraði fjögur siðustu mörk leiksins og sigruðu 21—20 — á þessum sex mínútum urðu Haukum á mikil mistök, misnotuðu meðal annars hraðaupphlaup, sem Vals- menn náðu að stoppa, bruna upp og jafna, 20—20. Þá misnotuðu Haukar viti — já, Haukar beinlinis köstuðu frá sér sigri og von um meistaratign dvinaði verulega — fjögur stig töpuð, úr þremur leikjum. Viðureign Hauka og Vals í Laugar- dalshöll bar öll merki viðureignar topp- liða. Greinilegt að mikið var í húfi og hinir fimm hundruð áhorfendur í Höll- inni voru með á nótunum, frá fyrstu minútu til hinnar síðustu. Valsmenn voru mun sterkari í fyrri hálfleik, komust í fjögurra marka forustu, 10—6. En Haukar lögðu ekki árar i bát og náðu að minnka muninn i eitt mark fyrir leikhlé — 10—9. Þegar á upphafsmlnútum siðari hálf- leiks náðu Haukar forustu, Hörður Harðarson úr víti 13—12. Þessari forustu héldu Haukarnir fram á síðustu mínútumar, Hörkuviðureign og Haukar náðu mest fjögurra marka forustu, 18— 14, á 18. minútu. En Valsmenn eru þekktir fyrir annað en að gefast upp, og með þá Jón Pétur og Þorbjörn Guðmundsson i broddi fylkingar. söxuðu Valsmenn á forskot Hauka. Á 20. mínútu skildu tvö mörk 18—16, Hörður Sigmarsson skoraði þá 19. mark Hauka, en Jón Pétur Jónsson svaraði með víti, á 22.mínútu. Andrés Kristjáns- son kom Haukum í 20—17 á 24. mínútu og Valsmenn virtust á leið að tapa fyrsta leik sínum í íslandsmótinu. Valsmenn reyndu engin brögð, þeir þéttu vörnina sem varð mjög sterk loka- mínúturnar og Ólafur Benediktsson í markinu. Þorbjörn Guðmundsson minnkaði muninn á 20—18 og þegar fjórar mínútur voru til loka skoraði Jón Pétur, 20—19, baráttan í algleymingi. Haukum urðu enn einu sinni á mistök í sókninni, og Valsmenn með knöttinn er aðeins rúmar tvær mínútur voru eftir. En Haukar náðu knettinum, brunuðu upp, þrír Haukar á móti Þorbirni Guðmundssyni. Árni Sverrisson með knöttinn, ætlaði að bruna framhjá Þorbirni sem gerði sér lítið fyrir og náði knettinum frá honum, sendi þegar fram og Jón Pétur jafnaði, 20—20. Tvær mínútur eftir — og Haukar með knöttinn. En þeim tókst ekki að nýta það, Árni Hermannsson skaut framhjá, og Þorbjörn Guðmundsson átti siðasta orðið, skoraði úr horninu, 21—20. Þá var rúm mínúta eftir en Haukum tókst ekki að brjóta niður sterkan varnarvegg Vals það sem eftir var. Því sigur Vals — og sigurinn geta Valsmenn þakkað Þor- birni Guðmundssyni. Vafalitið hefði sigurinn orðið Hauka hefði Árni náð að skora, er Þorbjörn fiskaði knöttinn af honum, og ekki nóg með það — hann tryggði síðan liði sínu sigur með góðu marki í lokin, já, Þorbjörn var sannar- lega hetja Valsmanna í gærkvöld. Valsmenn sigruðu því og hafa nú hlotið 5 stig úr þremur fyrstu leikjum sinum, þar af þrjú úr toppuppgjörum sínum við Viking og Hauka. Vissulega góð byrjun, og liðið getur aöeins orðið sterkara er á veturinn líður. Þar munar ef til vill mestu að Jón Karlsson er enn ekki kominn i toppform. En sterka einstaklinga hefur Valur, og þegar bezt lætur er vörnin gífurlega sterk. Haukar geta engum nema sjálfum sér um kennt að hafa glatað stigunum í Höllinni. Einmitt þegar sigurinn var í sjónmáli brugðust leikmenn, þoldu ekki spennuna. Þrátt fyrir ósigur eru margir ljósir punktar. Markvarzla Gunnlaugs Gunnlaugssonar nýliða var snjöll. Hann varði tvö víti, auk fjölda erfiðra skota, bæði fyrir utan og eins af línu. Þá var vamarleikur liðsins sterkur á köflum, — en aðeins á köflum, vantaði meiri einbeitingu. Þá er Hörður Sigmarsson loks að ná sér á strik eftir heidur dapra leiki framan af, eftir því sem á leikinn leið varð hann meira ógnandi, og skoraði dýrmæt mörk í síðari hálfleik. Árni Hermannsson, ungur leikmaður en heldur spilinu vel gangandi, og maðurinn á bak við snjallar línusend- ingar. Nái Haukar að þétta vörnina enn betur, og koma festu á markvörzluna þá er ekki öll nótt úti enn — þrátt fyrir fjögur töpuð stig og það heldur klaufla- lega. Mörk Vals skoruðu: Jón Pétur 8—1 víti, Þorbjöm Guðmundsson 7, 1 víti, Jón Karlsson 2, Steindór Gunnarsson 2 Bjarni Guðmundsson og Stefán Gunnarsson 1 hvor. Mörk Hauka, Hörður Harðarson 6, 2 víti. Hörður Sigmarsson 5, 1 víti. Árni Hermannsson 4, Þórir Gíslason 3, Ingimar Haraldsson og Andrés Kristjánsson 1 mark hvor. Dómarar Ólafur Steingrímsson og Gunnar Kjartansson. Víti á Val 4, á Hauka 4. Einn Valsmaður rekinn út af, enginn úr liði Hauka. -H.HaUs. Hörður Sigmarsson skorar eitt af mörkum sinum i gærkvöld gegn Val. DB-mynd Bjarnleifur. IR vann sinn fyrsta sigur í 1. deildinni - sigraði HK í Mosf ellssveit 21-18 Eftir sigur HK úr Kópavogi á Haukum á dögunum bjuggust flestir við sigri Uðsins, þegar það lék við ÍR i iþróttahúsinu að Varmá á laugardag i 1. deildinni i handknattleiknum. En það fór áð aðra leið. Sigurður Svavarsson lék með ÍR á ný og það hressti ÍR-liðið mikið. Þá var þáttur Vilhjálms Sigur- geirssonar og góður. Hann lék sinn fyrsta leik i haust og ÍR vann nokkuð öruggan sigur, 21—18. Það var jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar — upp í 2—2 en síðan komst ÍR í 5—2. Lagði þar með grunn að sigri sínum. Þennan mun tókst HK aldrei að brúa og í lokin skildu mörkin þrjú. Smásveiflur af og til í hálfleiknum og staðan í leikhléi 13—9 fyrir ÍR. Fljótt i síðari hálfleiknum náði ÍR fimm marka forustu, 15—10, og eftir það var sigur liðsins i húsi. HK tókst aðeins að minnka muninn en aldrei að ógna sigri ÍR. Leikmenn Kópavogs- liðsins voru óvenjudaufir að þessu sinni og hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sinum á heimavelli. Fyrst gegn Viking — nú ÍR — en flestir töldu, að þeir myndu einmitt hala inn stig í iþrótta- húsinu í Mosfellssveit. Jens Einarsson var að venju snjall i liði ÍR en endur- koma Vilhjálms og Sigurðar hafði þó mest að segja. Mörk HK skoruðu Hilmar Sigurgísla son 4, Stefán Halldórsson 3, Björn Blöndal 2, Friðjón Jónsson 2, Karl Jóhannsson 1 og Bergsveinn Þorarins- son 1 en mark hæsti leikmaður liðsins var Ragnar golfmaður Ólafsson með fimm mörk — þrjú víti. Guðjón Marteinsson skoraði flest mörk ÍR 7/1. Vilhjálmur 5/3, Ársæll Hafsteinsson 3, Brynjólfur Markússon 2, Sigurður Svavarsson 2, Jóhann Ingi Gunnarsson 1 og Guðmundur Þórðar- son 1. Þremur lR-ingum var vísað af leikvelli — einum HK-manni. -HJ. Jafnteflihjá Real Madrid Úrslit i 1. deild á Spáni i gær urðu þessi. Sociadad-Vallencano 2—0 Zaragosa-Sevilla 3—2 Espanol-Racing 2—3 At. Madrid-Valencia 2--1 Sporting-Salamanca 1—0 Celta-Real Madrid 2—2 Recreativo-Barcelona 0—0 Burgos-Las Palmas 1—1 Hercules-Bilbao 0—1 Stórliðin íkjölfarinu AC Milano tapaði i fyrsta skipti i keppninni fyrir Juventus i lorino. Áhorfendur voru 55 þúsund og hinn frægi leikmaður Juventus, Roberto Bettega, talinn af mörgum bezti fram- herjinn á HM i sumar, skoraði eina mark leiksins. Perugia er i efsta sæti og það tók liðið aðeins þrjár min. að skora gegn Atlanta á útivelli. Walter Speggiorin skoraði — og aftur á sjöttu min. Fleiri mörk voru ekki skoruð i leiknum. Atlanta er f neðsta sæti f 1. deild. Úrslit i sjöttu umferð f 1. deild á ttalfu urðu þessi. Ascoli-Lazio 0—0 Atlanta-Perugia 0-2 Avellino-Catanzaro 0—0 Fiorentina-Bologna 1—0 Inter-Napoli 2—0 Juventus-AC Milano 1—0 Vicenza-Verona 0—0 Roma-Torino 0-2 Staða efstu liða Perugia 6 4 2 0 8-2 10 AC Milano 6 4 11 11—3 9 Inter 6 2 4 0 7-4 8 Torino 6 3 2 1 8—7 8 Juventus 6 2 3 1 10—6 7 Ascoli 6 2 3 1 9—6 7 Strassborg í efsta sætinu Strassborg hefur þriggja stiga forustu eftir leiki helgarinnar f Frakklandi. Úrslit. 1. deild i Nantes-Nizza 5-0 Strassborg-Nancy 3-0 Rheims-Valenciennes 2-1 Marseilles-Nimes 2—1 Lille-Bastia 2-2 Metz-Sochaux 0-0 Paris FC-Angers 3-0 Bordeauz-St. Etienne 3—1 Monaco-Paris SG 2—1 Strassborg hefur 27 stig. íöðru sæti er Monaco með 24 stig og St. Etienne f þriðja sæti með 22 stig. Brezkur sigur í Bandaríkjunum Bretland sigraði Bandaríkin 4—3 f Wightmanbikarnum — tenniskeppni kvenna um helgina. Mjög óvænt úrslit og aðeins f 10. sinn, sem brezkar konur sigra f 50 ára sögu þessarar keppni. Á laugardag kom Chris Evert Banda- rikjunum i 3—2, þegar hún vann Virginíu Wadc 6—0 og 6—1. Þá voru tveir leikir eftir og Bretland sigraði f báðum. Fyrst vann Sue Barker, Bretlandi, hina 15 ára Terry Austin, eina efnilegustu tenniskonu heims, með 6—3, 3—6 og 6—0, og i tvfliðaleik i lokin unnu þær Sue Barker og Virginia Wade Chris Evert og Pam Shriver með 6—0, 5—7 og 6—4.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.