Dagblaðið - 06.11.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978.
1
Jakob Hafstein — sýnir í Gyllta salnum
á Borginni.
„Engin
mótmæli
við
Kjarvals-
staði ”
— segir Jakob Hafstein,
sem sýnirnúí
Gyilta salnum
á Hótel Borg
„Þessi sýning á Borginni er engin
mótmæli við Kjarvalsstaði eða yfirleitt.
neitt. Það eru hins vegar meðmæli með
mér að Sigurður Gislason, hótelstjóri,
skuli hafa boðið mér að halda hér sýn-
ingu,” sagði Jakob Hafstein listmálari,
lögfræöingur og margt fleira í viðtali við
fréttamann DB í gær.
Sýningin er auðvitað i „Gyllta saln-
um” og er meðal margs konar nýbreytni
sem hinn nýi hótelstjóri ætlar að bjóða
gestum á næstunni.
„Hérr.a um daginn komu hjón og
settust við eina súluna. Þau settu upp
hringana þar árið 1943 og nú á ég von á
barnabarni þeirra á jólaball um hátið-
arnar,” sagði Sigurður Gíslason hótel-
stjóri.
„Já, það hefur komið til orða að dansa
hér á eftirmiðdögum eins og gert var i
gamla daga,” svaraði Sigurður þegar
fréttamaður innti hann eftir því hvort
þetta væri rétt hermt.
„Það er alveg áreiðanlegt að lífið er
aftur að leita hingað í miðbæinn,” sagði
Jakob. „Það hafa allar borgir sinn mið-
bæ og Borgin verður alltaf í miðbænum,
hvað sem skipulagsstjórar hverrar kyn-
slóðar segja.”
Jakob sýnir 44 myndir á Hótel Borg
og veggjaprýðina fá gestir Borgarinnar
að skoða ókeypis 1 boöi Jakobs og hótels-
ins. Þarna eru vatnslitir, pastel, túss og
olíulitir. Mótívin eru allt frá Spánar-
blómum og Porto Christo á Mallorca og
i Kaldbaksvík og Gæsir á beit.
Þótt Jakob sé trúr náttúrulegum og
oft kunnum mótívum er hann þó að
prófa ýmislegt nýtt. Það geta gestir sýn-
ingarinnar og hótelsins sannfærzt um á
sýningunni dagana 4. til 12. nóvember.
- BS
Mikil ölvun um helgina:
Allarfanga-
geymslur
fullar
Mikil ölvun var i höfuðborginni um
helgina og voru allar fangageymslur lög-
reglunnar fullar bæði aðfaranótt laugar-
dags og sunnudags. Að sögn lögreglunn-
ar var októbermánuður hins vegar mjög
rólegur og þessi aukning á ölvuninni
núna á trúlega rætur sinar að rekja til
mánaðamótanna.
„Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun ennþá, en við erum að
þreifa fyrir okkur um hvað skuli gera,”
sagði Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri í menntamálaráðuneytinu, þegar
DB spurðist fyrir um hugsanlega sölu
Víðishússins.
Það kom fram fyrir nokkrum vikum
að Karnabær hf. i Reykjavík sýndi
áhuga á að kaupa Víðishúsið af
menntamálaráðuneytinu, en nýr
menntamálaráðherra, Ragnar
Arnalds, lagðist mjög gegn kaupunum
sem þingmaður á sínum tíma.
Guðlaugur Bergmann, forstjóri
Karnabæjar, sagðist í samtali við DB
ekkert svar hafa fengið frá
ráðuneytinu, þó því hafi verið lofað
-fyrir mánaðamót október-nóvember. getum ekki beðið neitt eftir þessu,
„Okkur vantar húsnæði og erum að enda komin einhver pólitisk della í
leita að því,” sagði Guðlaugur. „Við málið.” -ÓV.
MENNT AM ALAR AÐHERRA
ENN ÓÁKVEÐ-
INN UM SOLU
VÍÐISHUSSINS
JAPANIHÖNDLAR VIÐ LÆKJARTORGIÐ
Undir dúndrandi tónlist útimark-
aðarins á Lækjartorgi á föstudag opnaði
japanskur framkvæmdastjóri verzlun
sína með Sony hljómtæki á horni
Lækjargötu og Lækjartorgs og heitir
hann Kenichi Takefusa.
Stjómar hann nýstofnuðu hlutafélagi
er nefnist Japansk-íslenzka verzlunar-
félagið og hefur starfsemi sína með
einkaumboði á áðurnefndum hljóm-
tækjum ogsjónvarpstækjum.
Sony fyrirtækið japanska var eitt
brautryðjendafyrirtækja japansks raf-
eindaiðnaðar, sem nú er orðinn stórveldi
í heiminum á þvi sviði.
Þegar forráðamenn fyrirtækisins
voru spurðir hvort þeir státuðu af ein-
‘hverju afgerandi fram yfir önnur hljóm-
tæki og sjónvörp svöruðu þeir af „lítil-
læti” með lítilli sögu af einum framleið-
anda Mercedes Benz: „Ef við framleidd-
um jafn góða bíla miðað við aðra og þið
hljóm- og sjónvarpstæki værum við
ánægðir.” - G.S.
LA PALMAS:
DON CARLOS ibúðirnar vinsælu með útsýn yfir baðströndina og borgina.
Sunna byöur allt það bezta sem til er á Kanaríeyjum
Kanaríeviar — Vetraráætlun
Sunna flýgur beint dagflug án
millilendingar til Kanarfeyja
allan ársins hring og hér kemur
vetraráætlunin. — Pantið
snemma þvi ferðirnar fyllast
fljótt.
ATHUGIÐ!
Beint dagflug án millilendinga
á föstudögum.
Brottfarar-
aagar:
17. nóvember
1., 8., 15., 22. og29. desembér
5., 12., 19. og 26. janúar
2., 9., 16. og23.febrúar
2., 9., 16., 23. og30. marz
6., 13., 20. og27. apríl.
Dvalarúmi em, tvær eða þrjar vikur.
Eftirsóttustu íbúöirnar og hótelin:
Pantið strax meðan enn er hægt að velja unpáhaldsgististaðina og þann tima sem hentar bezt.
íbúðahótelin vinsælu, KOKA, CORONA ROJA, ROCHAS VERDE, HÓTEL EUGENIA VICTORIA, LOS
SALMONIS OG SANTA FE SMÁHÝSAH VERFI.
Skrifstofa Sunnu með fslenzku starfsfólki á Playa del lngles.
APARTAMENTOS
iELLAVISTA
TENERiFE:
Við höfum i vetur einnig ferðir til l
blómaeyjunnar Tenerife. íslcnzkur \
fararstjóri á staðnum. / , :
Hægt er að velja um dvöl f ibúð og á
hótelum og smáhýsum f ferðamanna-
bænum PUERTO DE LA CRUZ og
fbúðum og smáhýsum á PLAYA DE
LAS AMERICAS á suðurströnd
Tenerife.
uebto oe
Svo öruggur sólskinsstaður að Sunna endurgreiðír hvern þann ferðadag sem sólin ekki skín
FerðaskrifstofanSUNNA Bankastræti 10
-GAJ.