Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 6

Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978. Ef þú ert að hugsa um eldhúsinnréttinguna, þá er Formica svolítið dýrara en það er svo lítið dýrara, að þú hefur bókstaflega ekki efni á því að hafa konuna óánægða allt lífið með það næstbezta. Sparaðu eitthvað annað, og veldu Formica, þú sérð aldrei eftir því. Alltaf nóg úrval lita og mynztra. G. Þorsteinsson og Johnson h/f Ármúla 1. Sími 85533. Lausar stöður Á skattstofu Norðurlandsumdæmis eystra, Akureyri, eru eftirtaldar stöður lausar til um- sóknar: Staða fuHtrúa með próf í viðskiptajrœði eða endurskoð- un. Staða skattendurskoðanda I. Æskilegt er að viðkom- andi hafi verslunarskólapróf eða hliðstœða menntun. Staða skrifstofumanns. Góð vélritunarkunnátta nauð- synleg. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar skattstjóra Norðurlands- umdæmis eystrá, Hafnarstræti 95, Akureyri, fyrir 5. desember nk. ,, Fjarmalaraðuneytið, 2. nóvember 1978. Fasteignir Opið alla daga og öll kvöld vikunnar Skólagerði, Kópavogi 4ra herbergja, sérlega vönduð íbúð á I. hæð i fjórbýlishúsi. Verð 17.000.000, útborgun 13.000.000. Melgerði, Kópavogi 3ja herb. efri hæð í tvibýlishúsi ásamt bílskúr. Verð 15.500.000, út- borgun 12.000.000. ölduslóð 3ja herb. neðri hæð i tvíbýlishúsi, sérinngangur, sérhiti, bilskúrs- réttur. Verð 13.000.000, útborgun 9.000.000. Rauðilækur 4ra herb. góð ibúð á efstu hæð í þríbýlishúsi. Verð 16.500.000, út- borgun 11.000.000. Ystíbær Neðri hæð i tvibýlishúsi, ca 90 ferm, ásamt bílskúrsrétti. Verð 12.000.000, útborgun 8.000.000. Efstasund 3ja herb. 100 ferm íbúð, öll nýyfirfarin, á efri hæð í tvíbýlishúsi, ásamt bílskúr. Verð 17.000.000, útborgun ]0— 12.000.000. Fagrakinn 4ra herb. rúmgóð 115 ferm neðri hæð i tvíbýlishúsi.Verð 16.000.000, útborgun 12.000.000. Látraströnd Einbýlishús, 170 ferm, einstaklega vandað og gott hús með bílskúr. Bræðraborgarstígur Gamalt en mjög gott og vel viðhaldið einbýlishús ásami bílskúr. H úsið er mjög sérstakt og skemmtilegt. Höfum ávallt fjölda góðra eigna á söluskrá. m FASTEIGN AS ALA N Skálafell Sölum. Valur Magnússon. Hcimaslmi 85974. Viöskiptafiræöingur: Brynjólfur Bjarkan. 27 ára gamall maður f 40 daga gæzluvarðhald: Grunaður um að hafa nauðgað mál- og heyrnar- lausri konu Rannsóknarlögregla ríkisins hefur verið með kæru til meðferðar frá því á sunnudaginn var frá mállausri og heyrnarlausri konu um að henni hefði verið nauðgað. Arnar Guðmundsson hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins sagði í samtali við Dagblaðið i gær, að sl. föstudag hefði verið handtekinn 27 ára gamall maður og færður í Saka-' dóm Reykjavíkur þar sem hann hefði verið úrskurðaður í allt að fjörutíudaga gæzluvarðhald. Arnar sagði að leitað hefði verið til almennings með viss at- riði og hefðu fengizt mikilvægar upplýsingar á þann hátt. Bilstjóri grænu Skodabifreiðarinnr scm lög- reglan lýsti eftir hefði gefið sig fram og veitt mikilvægar upplýsingar. Arnar sagði að á þessu stigi væri ekki hægt að segja hvar atburðurinn hefði átt aö eiga sér stað eða veita frekari upplýsingar um málið. -GAJ Meira um grafík vatni breytt í vín? Sýningu Dalis að Kjarvalsstöðum er nú lokið, en e.t.v. er umræðum og skrifum um hana ekki lokið. I kjallara- grein minni í Dagblaðinu þann 3l.l0. skrifaði ég og útskýrði, að vafasamt sé að kalla margar af myndunum á sýn- ingunni orginal grafík. Einstaka myndir og tréstunguserí- una kallaði ég eftirprentanir, og setti einnig út á villandi merkingar mynd- Við það sem ég skrifaði get ég staðið. og geri það. Krafan um að i grafík verði listamaðurinn sjálfur að undirbúa mót fyrir þrykk er ekki nein sérviska grafíklistamanna. Ef listamaður vinnur út frá t.d. vatnslitamynd, þá verður hann að aðlaga sig þeirri grafísku tækni, sem hann hefur valið til þess að vinna myndina i. Á meðan hann vinnur við myndmótið koma oft nýjar hug- myndir fram og efnið krefst einnig visstra breytinga, þannig að útkoman verður stundum mjög frábrugðin fyrirmyndinni. Ekkert gerist Þessi prósess, með öllum sínum sigrum og ósigrum, er forsenda fyrir sköpun listaverka. Hvað gerist aftur á móti hjá Dali þegar hann ákveður að gera grafíkmynd eftir vatnslitamynd? Það gerist ekkert! í stað þess að vinna hana i einhverja grafiska tækni, er hún Ijósmynduð, litgreind og prentuð. Það er það sem ég kalla eftirprentun. Ef vatnslitamyndir eftir Ásgrím Jóns- son væru stungnar i tré af öðrum og prentaðar, hver myndi kalla það grafikmyndir eftir Ásgrím Jónsson? Ef það væri svona auðvelt að búa til orginal grafik, myndi ég ráðleggja nemendum mínum að hætta sínu grafiknámi. Ég vil taka það alveg skýrt fram, að tilgangur grafíkur er ekki að marg falda eina mynd, heldur fyrst og fremst að glíma við grafíska tækni hverju sinni. Graflk er sjálfstæð list grein og ekki aðferð til margföldunar! Kraftaverk? Það er alrangt að tölusetning og áritun af listamanninum skilji á milli grafíkmyndar og eftirprentunar, eins og Björn Th. Björnsson listfræðingur heldur fram. Verður offseteftirprent un af málverki allt í einu að grafik við það að Dali áritar hana og tölsetur? Þetta minnir mig svolitið á krafta- verkið þegar vatni var breytt í vín. Að ákæra Dali fyrir fölsun, hittir ekki beint i mark — ég held að hann geri ekki greinarmun á þvi hvort það sé grafik eða eftirprentun, eins lengi og hann fær vel borgað fyrir. Björn Th. Björnsson segist kannast við þetta Gallerí i Gautaborg sem fái myndir beint frá Dali sjálfum. Það er mjög óvenjulegt að listamenn eins og Dali annist dreifingu sjálfir. En ef svo er þá hefur Dali líka sent Góbelinteppið fræga og sagt að það væri ofið í Paris 1931 undir hansstjórn. Grafið undan grafík Þetta teppi reyndist gróf fölsun. Ef Dali á engan hlut í þessu, þá hefur orðið einhver breyting á leiðinni: Ofið góbelinteppi hefur breyst í tauþrykk eða öfugt. Varðandi stytturnar tvær úr bronsi og silfri, þá er ekkert gefið upp um það i hvað stóru upplagi þær eru. Á síðastliðnum árum hefur félagið íslensk grafik unnið ötullega að því að kynna þessa listgrein og gefa almenn- ingi innsýn í þær aðferðir sem notaðar eru. Það er hlálegt að þegar þeirra brautryðjendastarf er komið á leið þá skuli vera grafið undan þvi, af aðilum sem ættu að vita betur. Ríkharöur Valtingojer Jöhannsson Hin frábæra söngkona ANNiE BRIGHT SKEMMT/R í KVÖLD Matur framreiddur frá kl. 15.00. Borðapantanir í síma23333 VócsMcafc Staóur hinna vandiitu • Annto Bright I Þörscafö I kvöld

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.