Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 11

Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1978. 11 Erlendar fréttir REUTER Kyrrahaf: Tveirsterkir jarðskjálftar Mikill jarðskjálfti varð á Kyrrahafi í gær, suður af San Cristobal eyju. Skjálft- inn mældist 7.5 stig á Richter kvarða. Skjálfti þessi fylgdi í kjölfar annars stór- skjálfta, sem varð tæpum sólarhring fyrr, á svipuðum slóðum. Sá skjálfti mældist 7.0 stig á Richter kvarða. San Cristobel eyja er ein af Salomons- eyjum, en ekki er vitað hvort tjón varð afskjálftum þessum. Kanslari Austurríkis íhugar að segja af sér þar sem nýting kjarnorkuvers til orkuf ramleiðslu var felld í þjóðaratkvæðagreiðslu Vera kann að Bruno Kreisky kansl- ari Austurríkis segi af sér í dag vegna úrslita í þjóðaratkvæðagreiðslu um notkun kjarnorkuvers til rafmagns- framleiðslu í landinu. Notkun Kjarnorkuversins var hanað með örlitlum meirihluta, innan við eitt prósent munur. Leiðtogar sósíalistaflokksins leggja þó hart að Kreisky að halda áfram starfi sínu. Bruno Kreisky er nú 67 ára að aldri. Munurinn i þjóðaratkvæða- greiðslunni var aðeins örlítill. Þeir sem höfnuðu kjarnorkuverinu vorur bara 29.469 fleiri en hinir, sem vildu það. Þeir sem sögðu nei voru 50.47 á móti 49.53%. Kreisky hefur verið kanslari Austurríkis í átta ár og lýsti hann því yfir að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunn ar væru sér persónulegt áfall og einnig áfall fyrir sósíalistaflokk landsins, sem er i stjórn. Kanslarinn sagðist ætla að ræða við leiðtoga sósíalistaflokksins 1 dag og ákveða þar næsta skrefið. Hann mun og halda blaðamannafund. Búizt var við því að kanslarinn segði af sér, en talið að afsögn hans mætti sterkri andstöðu sósíalista- flokksins, sem hefur aðeins þriggja sæta meirihluta á þingi. Andstæðingar kjarnorkuversins ótt- ast mengun frá þvi, en orkuverið, sem er nær fullbúið, getur annað allri raforkuþörf Vínarborgar og sparað mikiðfé. WNCORDIA Bruno Kreisky kanslari Austurrikis fyrir miðju. Vísindanefnd í Bandaríkjunum hefur komizt að þeirri niðurstöðu að sakkarín sem margir nota í stað sykurs leiði’ sannanlega til krabbameins, einkum þö ef ungt fólk neyti þess mikið. Sakkarínið sannanlega krabbameinsvaldur —sérstaklega hjá ungu f ólki Vel miðar í gerð friðar- samninga Israels og Egypta Hernaðarviðræðurnar munu að mestu snúast um heimköllun herliðs ísraelsmanna frá herteknu svæðunum og afhendingu Sinaisvæðisins til Egypta. Stefnt er að því að Ijúka gerð friðar- samninga þjóðanna fyrir 9. desember Kappsamlega hefur verið unnið i Washington að friðarsamningum Ísraelsmanna og Egypta. Eftir viðræður nú um helgina er flestum samningum sem ekki snerta hernaðar- mál, lokið. í dag verður síðan tekið til við aö ræða hernaðarmálefni á milli þjóðanna. Cyrus Vance utanrfkisráðherra Bandarikjanna tók þátt f viðræðunum með utanrikisráðherra Ísraels og varnarmálaráðherra Egyptalands Kamal Hassan Ali. nk. Þá munu þeir Sadat og Begin desember. Ef allt fer samkvæmt hittast i Osló en þeir taka við friðar- áætlun munu þeir undirríta verðlaunum Nóbels daginn eftir 10. samningana 9. desember. Norður-Jemen: Tólf teknir af lífi Tólf menn voru I gær teknir af lífi í Norður Jemen fyrir byltingartilraun sem þeir gerðu. Einn af þeim var fyrrverandi ráðherra í landinu. Tólfmenningarnir voru fundnir sekir um að hafa ætlað að velta úr sessi forseta Iandsins, Abdullah Saleh að því er útvarpið í Sanaa sagði. Indland: 125 manns létust íjarðskriði 1 það minnsta 125 manns hafa látið lífið í skriðum og flóðum í Madras héraði á Indlandi. Verstu urðu svæðin Tamil, Nadu og Kerala úti. Flóðin fylgja í kjölfar mjög mikilla monsúnrigninga. Leyniskyttur á knatt- spyrnuvelli Leyniskyttur skutu í gær á þjóðvarð- liða á spænskum fótboltaleik og felldu einn. Annar var særður og einnig tólf ára drengur. Fótboltaleikurinn átti sér stað í borginni Tolosa í Baska- héruðunum. GÆÐI SEMST4IVDA löngu eftirað veröið er gleymt og grafið Berir þú saman verð, gœði og endingu, sérðu fljótt að samanburðurinn við aðrar innréttingar er hagstœður fyrir Haga eldhús- innréttingar. Það er nú einu sinni svo að vandaður hlutur er dýrari en óvandaður og það er skoðun okkar að „vel beri að vanda það sem lengi á að standa“. Það er vissulega freistandi að láta lœgsta fáanlegt verð ráða kaupunum en reynslan sýnir að það getur verið dýru verði keypt. Við sýnum mörg mismunandi uppsett eldhús í sýningarsölum okkar að Suðurlandshraut 6, Reykjavík og Glerárgötu 26, Akureyri. Komið og kynnið ykkur möguleikana sem bjóðast. IíAGIf Suðurlandsbraut 6, Verslunin Glerárgötu 26, Reykjavík. Akureyri. Sími: (91) 84585. Sími: (96) 21507.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.