Dagblaðið - 06.11.1978, Page 20
20
þróttir
iþróttir
iþrótti
Valur opnaði u
deildina upp;
— sigraði meistara KR í gæi
Valsmenn opnuðu úrvalsdeildina upp
á gátt er þeir sigruðu íslandsmeistara
KR, I Hagaskðla I gær, 86—81. KR-
ingar töpuðu þar sínum fyrsta leik, og
baráttan í algleymingi. ÍR og KR hafa nú
tapað tveimur stigum Valur og UMFN
fjúrum. Hörð barátta og nánast ómögu-
| legt að spá fyrir um meistara I ár.
Sigur Vals i gær var nánast drauma-
sigur — fyrir alla nema KR, að sjálf-
sögðu. Sigur KR í gær hefði þýtt að,
Valsmenn hefðu nánast verið úr leik, og
Njarðvíkingar og lR hefðu átt erfitt með
; að ná KR. Þetta setti greinilega mörk sin
á viðureign KR og Vals í gær, harkan
sat í fyrirrúmi, hvorugt lið gaf þumlung
! eftir. Á 7. mínútu síðari hálfleiks skildi
aðeins eitt stig, 61—60 meisturum KR í
vil. í kjölfarið fylgdi mjög góður kafli.
Vals, að sama skapi slæmur hjá KR og
Valur náðu 8 stiga forustu. Valsmenn
lögðu þá grunn að sigri sínum, Valur
komst í 69—61. Valsmenn ríktu i
fráköstum, bókstaflega áttu öll fráköst,
hvort heldur i vörn eða sókn. Og hittni
Vals var góð á meðan KR-ingum
mistókst flest. Það var nánast furðulegt
hvað KR-ingar voru linir undir
körfunni. Þannig átti Tim Dwyer,
Bandaríkjamaðurinn í liði Vals skot
utan af kanti, knötturinn fór i hringinn
og út i teiginn. Þar hirti Dwyer sjálfur
frákastið og skoraði — svo linir voru
KR-ingar í fráköstum, enginn KR-ingur
nálægur.
En það var ekki bara á fráköstum sem
Valsmenn voru sterkari. Þeir áttu bezta
mann vallarins, þar sem var Þórir
Magnússon — nú ungur í annað sinn,
kraft hans og dæmalausahittni réðu
KR-ingar ekki við. Þórir leikur nú senni-
lega sinn bezta körfuknattleik á löngum
ferli. Eftir heldur daufa byrjun í haust
hefur hann æft mjög vel — og
árangurinn lætur ekki á sér standa. Þá
var Kristján Ágústsson sterkur, ekki
aðeins í vörn, heldur hitti hann mjög vel
— þessir tveir leikmenn ásamt Tim
Dwyer lögðu grunn að sigri Vals.
KR-ingar náðu aldrei að nálgast
Valsmenn eftir hinn örlagarika kafla. Á
25. mínútu skildu 10 stig 75—65, og
þegar hálf önnur mínúta var eftir, 83—
73. Valsmenn reyndu eðlilega að halda
knettinum lokakaflann, KRingar náðu
þá að minnka muninn án þess þó að
ógna sigri Vals, 86—81.
Sunnudagurinn var einfaldlega ekki
dagur KR. Lykilmenn KR, þeir John
Hudson og Jón Sigurðsson náöu aldrei
að sýna sinn bezta leik, eins og svo oft.
Sást vart skemmtileg sending, frá Jóni
eins og áhorfendur hafa svo oft séð. En
vörn Vals var líka sterk, og við ramman ,
reip að draga.
Þórir Magnússon skoraði 32 stig fyrir
Einar Bollason með knöttinn — og undirbýr körfuskot.
Hreinn Halldórsson — I sjöunda sætíð.
Hreinn í
sjöunda sæti
áEM
— eftirað silfurverð-
launamaðurinn Mironov
var sviptur verðlaunum
Hreinn Halldórsson hefur verið
færður upp í sjöunda sæti kúluvarpsins í
Evrópumeistaramótinu, sem háð var i
Prag í september. Yevgeni Mironov frá
Sovétrikjunum, sem hlaut silfur-
verðlaunin i kúluvarpinu, hefur verið
sviptur verðlaunum sinum þar sem i Ijós
kom að hann hafði neytt anabolic
steroids — hormónalyfja. Hann varpaði
20.87 m á mótinu. Árangur hans
strikaður út. Landi hans Baryshnikov,
20.68, fær silfurverðlaunin og Wolfgang
Schmidt, kringlukastarinn frægi frá A-
Þýzkalandi bronsið. Siðan koma
Stahlberg, Finnlandi, i fjórða sæti.
Jaros, Sovét, fimmti, Vik,
Tékkóslóvakíu, sjötti og siðan Hreinn i
sjöunda sætí.
Forseti Evrópusambandsins, Bretinn
Arthur Gold, skýrði frá þessu á stjórnar-
fundi i Grikklandi i gær. Þrir aðrir
keppendur frá Sovétrikjunum og einn frá
Búlgariu voru einnig dæmdir vegna lyfja-
notkunar. Nedezhda Tkachenko, sem
sigraði i fimmtarþraut kvenna, Vasili
Yershov, sem var fimmti i spjótkasti,
Yekaterina Gordienko, sem var fimmta i
Fimmtarþraut kvenna og Elena
Stojanova, Búlgariu, sem varð Fimmta i
kúluvarpi kvenna.
í Fimmtarþraut kvenna fær Margit
Papp, Ungverjalandi, gullverðlaunin, og
Burglinde Pollak og Kristine Nitzxche,
báóar A-Þýzkalandi, silfur og brons.
Úrslitaíeikur
HM
„endurleikinn”
Knattspyrnusamband Hollands hefur
samþykkt að „endurleika” úrslitaleik
heimsmeistarakeppninnar við Argentinu.
Það verður i Sviss 22. mai 1979 i tilefni
75 ára afmæUs FIFA — alþjóðaknatt-
spyrnuknattspyrnusambandsins. Það var
stofnað f París 21. mai 1904.
Aður hafði talsmaður hollenzka knatt-
spyrnusambandsins sagt að ekki gæti
orðið af þessum leik, þar sem hollenzka
landsliðið ætti þá öðrum hnöppum að
hneppa. Hins vegar var hægt að breyta
þvf og leikurinn verður á þeim degi, sem
FIFA upphaflega fór fram á. t úrsUtum
HM i sumar vann Argentína Holland
3—1 eftir framlengdan leik.
Pétur ánægður
hjá Feyenoord
— aukin spenna á toppnum í Hollandi
„Ég er mjög ánægður með hvernig allt
hefur gengið hér siðan ég kom til
Feyenoord — og mér Uður hreint
prýðilega. Kominn i hóp aðalleikmanna
Feyenoord-liðsins þó ég hafl enn ekki
leikið nema tuttugu minútur með aðal-
liðinu. Ég var varamaður f leiknum i gær
neð Roda JC, sem er eitt af efstu
liðunum f 1. deildinni. Leikið var i
ýerkradc og jafntefli varð 1—1. Það var
gott stíg hjá Feyenoord á útívelli. Engar
breytingar voru gerðar á liðinu f
jeiknum, svo ég kom ekki inná,” sagði
Pétur Pétursson, miðherjinn ungi frá
Vkranesi, þegar DB ræddi við hann i
gær.
„Ég fékk ekki atvinnuleyfi hér i Hol-
|andi fyrr en laugardaginn 28. október
eða fyrra laugardag — og ég var
njög ánægður, þegar ég var strax valinn
|em varamaður í næsta leik Feyenoord.
Það var stórleikurinn við Ajax I Amster-
þam sunnudaginn 29. któber. Ég lék
ar siðustu tuttugu mínúturnar og það
var mjög erfitt í þessum hraða og harða
gleik. Ég fékk ekki miklu úr að vinna en
glenti þó í miklu kapphlaupi við
narkvörð Ajax. Fékk stungubolta inn
íyrir vörnina en markvörðurinn var
aðeins fljótari og ekkert varð af
narktækifæri. Leiknum lauk án þess
nark væri skorað — og það hefur verið
þott að fá þessi stig á útivöllum að und-
anförnu. Eftir leikinn í gær við Roda
agði þjálfarinn hjá Feyenoord, Jecek
heitir hann, að ég yrði látinn byrja í
næsta leik. Það verður við Volendam á
þeimavelli eða hinum stóra leikvelli
Feyenoord í Rotterdam. Ég vona að það
standi en á miðvikudag mun ég leika
neð varaliðinu,” sagði Pétur ennfremur.
Hann býr með ungum pilti í góðri
Ibúð í fjölbýlishúsi í Rotterdam. Sá
þiltur leikur með áhugamannaliði
Feyenoord. Æfingar eru miklar hjá
reyenoord. Ein æfing á mánudögum.
fvisvar á þriðjudögum. Síðan ein á
tiiðvikudögum og tvær æFtngar á
fimmtudögum. Fri er á föstudögum en
ein æfing á laugardögum. Á
sunnudögum er leikið.
Það var óvænt í 1. deildinni í gær, að
Ajax tapaði — fyrir Sparta í Rotterdam.
Annar tapleikur liðsins á leiktímabilinu.
Úrsliturðuþessi.
Maastricht-AZ ’67 1 —3
Utrecht-Haarlem 4—0
Pec Z wolle-Deventer 1—1
Nac Breda-PSV 0—2
Spart-Ajax 1—0
Nec Nijmegen-Haag 0—2
Twente-Vonlo 2—0
Volendam-Vitesse, Arnh. 2—2
Roda-Feyenoord 1 — I
Staða efstu liða
Ajax
PSV
Roda
Deventer
AZ’67
Feyenoord
Cosmos tapaði
í Argentínu
Piltalandslið Argentínu i knattspyrnu
sigraði I gær New York Cosmos 2—11
Tucuman i Argentínu. Þjálfari liðsins er
Luis Menottí, sem stjórnaði leik heims-
meistara Argentínu f sumar.
í fyrri hálfleik höfðu strákarnir frá
Argentínu yfirburði gegn hinum frægu
leikmönnum Cosmos. Maradona
skoraði á fimmtu mfnútu og á niundu
min. kom Barrerra liðinu f 2—0. ítalinn
Chinglia skoraði eina mark Cosmos á 55
min. Lið Sosmos var þannig skipað
Yasin, Formoso, Carlos, Alberto, Roth,
Eskandarin, Ahyre, Beckenbauer,
Davies, Sesinho, Chinaglia og
Etherington.
— UMFN sigraði Þór í úrvalsdeiidinni
I Stungur Bee
ofviðaÞór
Körfuknattleikur, ú rvalsdeild,
UMFN—Þ6r Ak. 108—99(50—41)
Njarðvikingar sigruðu Þórsara frá
Akureyri syðra f gærdag, með 108
stígum gegn 99, f friðsamlegum leik, en
þrátt fyrir sigur heimamanna var maður
leiksins úr röðum mótherjanna, Jón
Indriðason, sem var alveg óstöðvandi,
skoraði 34 stíg, flest úr langskotum, eða
rúmlega þriðjung. Hins vegar var
Bandarikjamaðurinn i liði UMFN, Ted
Bee, alhliða beztí maður vallarins. Auk
sinna 28 stíga, átti hann margar frábær-
ar sendingar, snjaU i vörn og knattleikni
hans er fremur list en leikur. Ted er
greinilega að samlagast UMFN-liðinu,
eða öllu heldur það honum, svo að reikna
má með að þáttur hans eigi eftir að vaxa
mikið áður en keppnin er á enda.
Annars virtist allt stefna í stórsigur
UMFN, þvi að framan af fyrri hálfleik
var helmings stigamunur, allt frá 8—4
upp I 29—15. Munaði þar mestu um að
Jón Indriðason var ekki alveg dús við
körfuna, mistókst í þremur tilraunum,
—meðan hann var að hitna og Mark
Christiansen fann sig ekki fyrr en í
seinni hálfleik. Aftur á móti gómuðu
þeir Geir Þorsteinsson, sem var mjög
öflugur bæði í vörn og sókn og Jónas
Jóhannesson, sem leikur með að nýju,
eftir nokkra fjarveru vegna meiðsla —
knöttinn í fráköstum. Hinn efnilegi
jUMFN piltur, Júlíus Valgeirsson og
iGunnar Þorvarðarson, komu síðan
jknettinum, í flestum tilvikum, framan af
leiknum í Þórskörfuna.
Eftir að hafa haft 9 stiga forustu i
hálfleik, hljóp allt i baklás hjá UMFN.
Þórsarar söxuðu á forskotið og fyrr en
varði, var Jón Indriðason búinn að
jafna, 58—58. Hvað var að ske? Og litlu
síðar skorar Jón úr víti, 58—59 fyrir Þór
og 15 mínútur eftir. En Geir skorar fljót-
lega fyrir heimamenn og síðan Ted Bee,
á sinn snilldarlega hátt. Því næst kemst
Brynjar Sigmundsson, sem átti mjög
góðan leik, inn í sendingu og skorar 1
tvígang. Síðan taka þeir Ted Bee, Geir
og Stefán Bjarkason við og áður en
Þórsarar fá áttað sig, er munurinn
orðinn 13 stig, 74—62. Eftir það gefa
Njarðvíkingar Þórsurum aldrei færi á að
brúa bilið meira heldur en í 9 stig, en
lokatölurnar urðu 108—99.
UMFN lék yfirvegaðan leik, inná-
skiptingarnar voru góðar og þeir gáfu
yngri mönnum tækifæri á að reyna sig.
Auk Júlíusar, kom Jón Viðar Matthís-
son inn á — efnispiltur og Guðjón Þor-
steinsson, stór og stæðilegur piltur, sem
kom vel frá sinum fyrsta leik í Úrvals-
deildinni.
Þórsarar báru að manni fannst of
mikla virðingu fyrir UMFN.
Baráttugleðina skorti á stundum, en
breiddin var ekki nógu mikil hjá þeim.
Beztir í liði þeirra voru Jón og Mark
Christiansen, svo og þeir Eirikur
Sigurðsson, Birgir Rafnsson, Karl Ólafs-
son og Hjörtur Einarsson. Dómarar
voru þeir Jón Otti, fastadómari hjá
UMFN, og Hilmar Viktorsson. Sluppu
þeir vel frá auðdæmdum leik.
•emm.