Dagblaðið - 06.11.1978, Síða 37
Dýrasta plata Hljómplötuútgáfunnar til þessa
MAGNÚS ÞÓR SEMUR LÖG VIÐ
TEXTA KRISTJÁNS FRÁ DJÚPALÆK
Hinn stórkostlegi plötusnúdur
PETER GUNN
med páfagaukinn
er mættur á staðinn
óðæz fullkomnasta
'NmP vídco á landínu
Eraðalmaðurínn íWho að veröa heymarlaus?
HeyrnPete
Townshend
erfhættu
Gunnarsson og Björgvin Halldörsson. Auk þeirra syngur Magnús Sigmundsson
dálítið og kór Öldutúnsskólans fer með stórt hlutverk.
„Um þetta leyti í fyrra var ákaflega
tvísýnt um líf Hljömplötuútgáfunnar
hf„ en eins og kunnugt er, þá
skrimtum við af. Þá ákváðum við,
eigendur útgáfunnar að gera
vandaðari og þar með dýrari plötur i
framtíðinni. Platan, sem við kynnum
núna, er eiginlega sú fyrsta þeirrar
tegundar.”
Þannig fórust Jóni Ólafssyni fram-
kvæmdastjóra Hljómplötuútgáfunnar
hf. meðal annars orð er hljómplatan
Börn og dagar var kynnt fréttamönn-
um. Hljótt hefur veriö um gerð
þessarar plötu, þar til nú, en hún á sér
langan aðdraganda. Magnús Þór
Sigmundsson höfundur allra laganna á
plötunni kvaðst hafa verið með þau í
smíðum í nokkur ár — gripið í þau,
þegar hann var í réttu skapi til þess.
öll lögin eru samin við texta Kristjáns
frá Djúpalæk.
Tónlistin á Börnum og dögum var
hljóðrituð í London undir stjórn Del
nokkurs Newman. Newman þessi er
stórt nafn í sínu fagi. Hann hefur
meðal annars starfað með Elton John,
Diönu Ross, Simon og Garfunkel, Cat
Stevens og Rod Stewart. Hann kom
hingað til lands i september síðast-
Ein af ástæðum þess að hljóm-
sveitin Who hefur ekki leikið á hljóm-
leikum um langt skeið er sú, að heym
Pete Townshend gítarleikara hljóm-
sveitarinnar er alvarlega sködduð. Sé
hann í hávaða í langan tíma fær hann
óþolandi höfuðverk.
Townshend skýrði frá þessu i
bandarískum sjónvarpsþætti, Good
Morning America. Við það tækifæri
sagði hann:
„Hljómar rafmagnsgítars meiða
mig i eyrunum. Ástandið er slikt að ef
ég heyri hávaða í langan tíma finn ég
mikinn sársauka í eyrunum. Slik
einkenni benda til þess að frekari
heyrnarskemmdir séu í vændum. Þvi
reyni ég að sleppa sem mest við slikt.”
Hávaði í langan tíma er að sjálf-
sögðu konsert. Hljómsveitin Who á
heimsmetið í hávaða á hljómleikum. í
heimsmetabók Guinnes segir að er
Who léku á Charlton Athletic knatt-
spyrnuvellinum i London 31. maí
1976 hafi verið notað Tasco söngkerfi
með 76 þúsund watta heildarafli. Til
Pete Townshend.
að knýja kerfiö voru notaðir áttatiu
800 watta Crown DC 300 magnarar
og tuttugu sams konar 300 watta. í
fimmtíu metra fjarlægð fyrir framan
kerfið mældist hljóðstyrkurinn 120
desibil.
Úr ROLLING STONE og HEIMSMETA-
BÓKIN ÞlN
Tónskáldið, Magnús Sig-
mundsson ræðir hér við
Brian Pilkington mynd-
listarmann, sem tciknaði
myndir á umslag Barna og
daga. Myndin á framhlið
umslagsins er afar sérstæð,
svo ekki sé meira sagt.
DB-myndir: Hörður Vil-
hjálmsson.
liðnum og stjórnaði þá upptökum á
söng. Del Newman útsetti jafnframt
tónlist plötunnar í samráði við tón-
skáldið, Magnús Þór.
Söngurinn á plötu þessari er í
höndum þeirra Björgvins Halldórs-
sonar, Pálma Gunnarssonar,
Ragnhildar Gísladóttur, Magnúsar
Sigmundssonar og kórs Öldutúns-
skóla. Hann var allur hljóðritaður í
Hljóðrita. Geoffrey Calver og Jónas
R. Jónsson tóku upp. — Geoffrey er
Islendingum af góðu kunnur. Hann
tók meðal annars upp seinni Vísna-
bókarplötu Iðunnar, Út um græna
grundu.
Magnús Þór Sigmundsson er
búsettur í London. Þar starfar hann
við lagasmiðar. -ÁT.