Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1979. „LANGVINN GEÐVEIKIGET- UR ÞRÓAZT UPPIÍR NOTKUN A AMFETAMINI” — sagði Gísli Þorsteinsson læknir í þættinum hjá Gísla og Andreu Andrea Þórðardóttir hringdi. Vildi hún gera nokkrar athuga- semdir við bréf Þórarins Björnssonar, sem birtist i DB siðastliðinn fimmtudag. Þórarinn ræddi um út- varpsþátt, sem þau Andrea og Gísli Helgason sáu um og fjallaði hann um eitur og eiturlyf. Þórarinn sagðist ekki hafa fengið nægar upplýsingar um am- fetamín i útvarpsþættinum. Sagði Andrea að ef svo væri hefði Þórarinn liklega ekki hlustað nógu gaumgæfilega á útvarpið. Þar hefði Gísli Þorsteinsson læknir á Klepps- spitala flutt erindi um eiturefni og áhrif þeirra. Hefði hann þar á meðal rætt umamfetamín. Eftirfarandi sagði læknirinn um amfetamín: „Af örvandi lyfjum er amfetamín viðfrægast og það sem mest hefur verið notað. Mörg önnur lyf eru til með svipaðri verkun og álíka mikilli ávanahættu, s.s. dexedrin, ritalín, prelúdin, geródýl, hytton dobesin o. fl. Þessi lyf verka almennt örvandi, stimúlerandi, mótverka þreytu og syfju,hækka blóðþrýsling og draga úr matarlyst. Jafnframt valda þau eins og önnur ftknilyf óeðlilegri gervivellíðan og ávanahætta af þessum efnum er mjög mikil. Þol likamans fyrir þeim eykst tiltölulega fljótt og þarf þá að auka skammtana til þess að ná sömu áhrifum. Þeir sem nota amfetamin og lík efni í óhófi mánuðum eða árum saman fá ákveðin sjúkdómseinkenni, verða kviðnir, spenntir, æstir, tor- tryggnir, tillitslausir, uppstökkir og síðan getur brotizt út alvarleg geðveiki. Ofsóknarbrjálæði sem lýsir sér í sjúklegri tortryggni og hræðslu sjúklings um að aðrir vilji vinna honum mein, jafnvel ráða honum bana. Þessi sjúklega tortryggni beinist iðulega að nánustu vandamönnum, eiginkonu, foreldrum, bömum eða systkinum, oft er nauðsynlegt að leggja amfetamínista 'inn til meðferðar. Áður var talið að geðveikieinkennin hyrfu jafnan þegar neyslu lyfsins væri hætt en því miður er þessu ekki ævinlega þannig farið og getur langvinn geðveiki þróazt Upp úr þessu í sumum tilvikum, sem leiðir til algjörrar örorku. örvandi lyf hafa nú orðið sáralitla þýðingu sem læknislyf og sem megrunarlyf eru þau talin harla gagnslítil.” Þar lýkur orðum Gísla Þorsteinssonar læknis á Klepps- spítala." Andrea lauk máli sinu með þvi að segja að sömu sögu hefði það fólk að segja sem hún hefði kynnzt og hefði neytt amfetamíns i miklum mæli. „Sömuleiðis er ég algjörlega á móti hassinu, sem á engan hátt er betra en amfetamín,” sagði hún. Amfetamín er I flokki örvandi lyfja sem virka gegn þreytu og minnka mat- arlyst. Kennarinn lærði af bættinum Grunnskólanemandi skrifar: Það getur stundum komið sé vel þegar sjónvarpið sýnir fræðsluþætti. Um daginn var sýndur þáttur um nám og var þar m.a. sýnt hvernig kennarar eiga ekki að vcra! Var þar komin lifandi eftirmynd af þeim kennara, sem er „aðalkennarinn minn” minn. Brá svo við daginn eftir aðþátturinnvarsýndur aðkennarinn skipti algjörlega um ham og breytti kennsluaðferðum sínum í samræmi við það sem bent var á í sjónvarps- myndinni. Vonandi var það ekki aðeins „kennarinn minn” sem lét sér þetta að kenningu verða heldur margir fleiri. Raddir lesenda Heimilis- íæknir Raddir lesenda taka við skilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heim- ilislæknir svarar" f-síma 27022, kl. 13-15 alla virka daga. Nýja saumavélin, sem gerir alla saumavirmu auðveldari en áður: NECCHI S1L7JIQ NECCHI SlLLfla saumavélar eru búnar öllum kostum eldri véla auk ýmissa nýjunga. Með NECCHI S1L7JIQ saumavél er unnt að sauma nánast hvaða efni sem er - allt frá þunnum teygjuefnum til þykkra gallabuxnaefna. NECCHI SILDIGI saumavélar eru búnar mynsturveljara með liteinkenni. Þetta einfalda fyrir- komulag genr allar stillingar við val á saumgerð fljótlegri og öruggari en áður hefur tíðkast. NECCHI SIIZJICI saWnavélar eru með sérstökum búnaði, þannig að nálin hreyfist með því sem nast fullum krafti á hvaða hraða sem er.Þannig er unnt að sauma jafrtvel mjög þykk efni á litlum hraða. NECCHI SlLOia saumavél vegur aðeins um 12 kg með tösku og öllum fylgihlutum. Hún er því sérlega létt í meðferð og flutningi. Nákvcemt eftirltt við framletðslu og sölu ásamt traustri þjónustu tryggja hámarksnotagildi NECCHI saumavéla. NECCHI SILUia saumavélum fylgir nákvcemur leiðarvísir á íslensku um notkun og viðhald. LJtsölustaðir víða um land. Einkaumboð á íslandi: FALKIN N Suðurlandsbraut 8 - sími 84670 Sendum bæklinga, ef óskað er Spurning dagsins Hefurðu lent í ein- hverjum erfiðleikum um helgina vegna færðarinnar? Eggert K. Jónsson verzlunarskólanemi: Ég hef ekki lent i neinum erftðleikum sjálfur þar sem ég hef ekki bilpróf. En ég hef þó haft nóg að gera við að aðstoða hina ýmsu fjölskyldumeðlimi við mokst- uro.þ.h. Þórhallur K. Jónsson, atvinnulaus sem stendur ygfjna veikinda: Ég sat fastur i bíl i tvo tima seinni partinn i vikunni. Siðan hef ég gætt þess að halda mig aðeins við þær götur sem eru vel mokaðar og hef eftir það ekki lent í erfiðleikum. Björn Ástvaldsson bifvélavirki: Þar sem ég er ekki á bil sjálfur hefur ekki komið til þess að ég hafi fest mig. Á laugardags- kvöld fór ég hins vegar gangandi i eitt af danshúsum borgarinnar og lenti ekki I neinum erfiðleikum. Friðrik Sófusson bifreiAarstjóri: Ég hef verið að keyra alla helgina og hefur það bara gengið vel enda var ég með keðjur á bilnum. Björgvin Friðríksson rafvélavirki: Ég hef ekki hreyft bilinn neitt um helgina og þar af leiðandi hefur ekki komið til þess að ég festi hann. Jón Ólafsson bifreiðarstjóri: Já. Ég festi mig anzi illa á laugardaginn á horni Siðumúla og Ármúla. Þá var ég ekki á keðjum en setti eftir það keðjur á bilinn og siðan hefur allt gengið vel.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.