Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1979. í FISKARÍKIFÆ ÉG LÆRT Þjóflleikhúsifl: KRUKKUBORG eftír Odd Bjömsson Leikmynd og búningar Una Collins Lýsing: KHstínn Danielsson Leikstjórí: Þórhallur Sigurðsson Það held ég að hafi verið heillaráð að efna til samvinnu við Leikbrúðu- land að þessari sýningu. Það hefur á undanförnum árum starfrækt að minnsta kosti visi að reglulegu brúðu- leikhúsi, að ég hygg við ansi kröpp kjör, og hafa þó ýmsar sýningar þeirra verið býsna skemmtilegar eftir at- vikum og kringumstæðum. Áður munu félagar úr leikbrúðulandi hafa unnið að Litla prinsinum í Þjóðleik- húsinu, og þar áður var i samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur fitjað upp á miklu veigameiri brúðuleik en Leik- brúðuland er umkomið upp á eigin spýtur, og átti að snúást um Sæmund fróða. En úr því verki varð ekki nema byrjunin, því miður, svo góðu sem hún lofaði. Sjálfsagt þarf frekari sam- vinna við leikhúsin að koma til ef þær stöllur í Leikbrúðulandi eiga að fá að neyta kraftanna. Nú veit ég svo sem ekki nákvæm- lega hverjum ber heiður af hverju í nýju barnasýningu Þjóðleikhússins. En svo mikið er víst að sýningin er umfram allt fyrir augað og skemmtun- in af henni sjónræn, stafar af útbúnaði sviðsins, leikmynd, leikbrúðum og ljósatækni. Leiksaga Odds Björnsson- ar af litlum strák sem dreymir sig niður á mararbotn og ævintýrum hans á þeim slóðum verður hér einkum efniviður til leikrænnar og sjónrænnar úrvinnslu, leiks með efnið. En leiktext- inn er að visu haganlega saminn til þessara nota, látlaus og oft spaugvis. Og þar er á víð og dreif vikið að ýmsum alvarlegum efnum í léttum dúr, einræði og lýðræði, kúgun og frelsi, einstakling og ríkinu. Og í tveimur bráðkostulegum senum er fjallað um efni sem oft og víða eru Frá æfingu á leikritinu Krukkuborg eftir Odd Bjiirnsson. DB-mynd Bjarnleifur. BIAÐIti er smáauglýsingatolaðið ÍSLENZK TUNGA TÓRIR ENN... „Ef dæma ætti eftir þvi sinnuleysi,1' sem Islendingar sýna mæltu máli, skyldi maður ætla að þetta tungumá! væri jafn- dautt og latína, og hvergi lengur talað af lifandi fólki á jörðinni”. Þessi upphafsorð í gagnmerku erindi Ævars Kvaran um íslenzkt mál urðu blaðamanni DB tilefni til vægast sagt óheppilegrar fyrirsagnar i kynningu á út- varpserindum Ævars. Það var sem sé haft eftir Ævari að íslenzka væri stein- dautt mál. Ekki þarf að orðlengja það að Ævar Kvaran hefur flestum mönnum fremur aukið móðurmálinu lif og fegurð. Áminnzt fyrirsögn studdist ekki við ummæli Ævars og leiðréttist hér með að öllu þvi leyti sem það er hægt að gera. M/ELT MAL - útvarp * kvöW KL 19.35 „Islenzka er ritmál — jafndautt og latína” ffvar R. Kvaran flytur ty rra erindi af tvein- KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 rædd með hátiðlegri hætti, hjúskapar- háttum annarsvegar, mengun sjávar hins vegar. Vel geta þessi lipru og kát- legu leikatriði orðið ungum leikhús- gesti umhugsunarefni, ímynda ég mér, og svo er um fleira í leiknum. En fyrst og fremst er það fiskaríki sjálft sem fangar augað og hugann heillar I sýningunni. Þar er beitt Ijósa- tækni og sviðsbúnaði sem áður hefur verið reynt í Leikbrúðulandi og gefst nú fjarska vel í Þjóðleikhúsinu : upp- máluð litskrúðug og fjarska ævintýra- leg mynd af mararbotni og þjóðlífi þar með mörgum furðufiskum. Um leið er þetta einfalt og lipurt í með- förum með öllu skrautinu, sýningin Ijós og skýr og greið í spori og alla tíð mjög glaðvær. Trúlegt er að ævintýra- efnið I Krukkuborg notist best litlum bömum. En þeir sem eldri eru og mannalegri geta vissulega líka haft gaman af sýningunni vegna hinna ný- stárlegu vinnubragða og efniviðar sem þar kemur fram. 1 ár eins og í fyrra er það glöggt að barnaleikjum Þjóðleikhússins er stefnt í nýtt og heillavænlegra horf en áður tiðkaðist. Bara það er gleðilegt. Og Krukkuborg vekur heilmikla ánægju vegna þess hve vel tekst að hagnýta þá „blönduðu tækni” sem sýningin bygg- ist á, — þeim er heiður og sómi að verkinu, Þórhalli Sigurðssyni leik- stjóra og Unu Cóllins leikmyndateikn- ara. Það er svo annað mál að til þess að leikstefna og sýningartækni sem hér kemur fram notist til fulls þarf vit- í hinu erfiða og langa haust rallý B.Í.K.R. sem fram fór 11. og 12. nóvember sannaðist hve BMW bílarnir eru sterkbyggðir og öruggir við hinar erfiðustu aðstæður. Þetta er í annað sinn sem BMW bifreið vinnur í rallýkeppni hér á landi og sýnir það ótvíræða yfirburði BMW. BMW bifreiðar hafa mjög góða aksturseiginleika, eru vandaðir og sterkbyggðir. varp nýr einþáttungur eftir Agnar Þórðarson. Eineggja tvíburar nefndist leikurinn sem Benedikt Árnason stjórnaði i útvarpinu. Mér heyrðist hann dálítið eins og tvíburi við annan leikþátt eftir Agnar, Konu, sem í vetur var sýndur á á litla sviði Þjóðleikhúss- ins, tilbrigði við sömu hugmynd. Eineggja tvíburar segir frá konu sem fær gest í heimsókn, það er tvi- burabróðir mannsins hennar sem verið hefur langdvölum I burtu og gott ef hann fór ekki I hundana. Þeir eru sinn. Og þegar hann kemur aftur — þá er hann I hans gervi. Endanlega var þetta víst einn og sami maður. Mér finnst nú hreint ekki Ijóst hvað laðar Agnar Þórðarson aftur og aftur að þessari hugmynd — nema þá það að honum hefur enn ekki tekizt að gera hana að uppistöðu lifvænlegra mannlýsinga. Kannski gangi betur næst. En Kristbjörg Kjeld og Róbert Arnfinnsson fóru auðvitað áheyrilega með hlutverkin í þessari umferð efnis- ins. . SIGURVEQARI, I HAUSTRALLY B.I.K.R. BMW320 anlega á að halda nýskapandi leik- texta. Krukkuborg Odds Björnssonar er hreint ekki síðra verk en margt bamaefnið annað. En við höfum enn ekki eignast frumlegt leikskáld sem skrifar fyrir börn. Og vel að merkja: tækninýjungar þessarar sýningar þarf auðvitað ekki að einskorða við barnaleiki. Eineggja leikrit Á fimmtudagskvöld var fluttur I út- alveg eins — og þó svo ólíkir, gestur- inn hefur allt það til að bera sem kon- an saknar hjá manninum sínum. Þau verða auðvitað elskendur. Og konan fer aftur að spila á fiðluna sína sem hún hafði löngu lagt upp á hillu. Meðan þessu fer fram fer maðurinn hennar að breytast, farið að gruna eitt- hvað, eitt kvöld ber hann að dyrum heima hjá sér þegar bróðir hans er þar fyrir I rúminu konunnar. Gesturinn fer út að gera upp sakir við bróður Leiklist

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.