Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
WBA EFST11. DEILDI
FYRSTA SKIPTI f 25 ÁR
Leikmenn West Bromwich Albion
færðu framkvæmdastjóra slnum, Ron
Atkinson, þá afmælisgjöf á laugardag
að komast i efsta sætið í 1. deildinni
ensku. Nákvæmlega ár var frá þvi á
laugardag að Atkinson tók við stjórn-
inni hjá WBA. Eftir fimm útisigra I
röð bjuggust þó flestir við þvi að for-
usta West Bromwich í deildinni yrði
tvö stig — en liðinu tókst ekki að vinna
sjötta útisigurinn i röð. Jafntefli varð i
lcik Norwich og WBA og þar sem
Liverpool og Everton léku ekki þýddi
stigið, sem WBA hlaut f Norwich, að
liðið komst i cfsta sætið. Það er f
fyrsta skipti í aldarfjórðung, sem
WBA er efst i 1. deildinni ensku. Leik-
urinn á laugardag var hinn 18. f röð án
taps hjá WBA og liðið leikur snjalla
knattspyrnu eins og vel kom fram i is-
lenzka sjónvarpinu á laugardag, þegar
leikur liðsins á Old Trafford við
Manch. Utd. var sýndur.
Svertingjarnir þrír í liði WBA,
Batson, Cunningham og Regis, eru
mjög snjallir og þaö eru ekki betri
sóknarmenn í ensku knattspyrnunni
nú en þeir Regis og Cunningham.
Ekki tókst þeim þó að sýna sitt bezta á
glerhörðum vellinum í Norwich á
laugardag — leikni þeirra naut sín
ekki á svellbunkunum, en það var þó
Regis sem skoraði mark WBA i leikn-
um. Vetrarríki er enn á Bretlands-
eyjum og 50 leikjum varð að fresta —
þar af öllum nema einum á Skotlandi,,
öllum þar í úrvalsdeildinni.
Urslit í þeim leikjum sem háðir
voru urðu þessi:
1. deild
Arsenal—Nottm. Forest 2—1
Bristol City—'Tottenham 0—0
Leeds—Manch.City 1 — 1
Norwich—WBA I —I
2. deild
Cambridge—Cardiff 5—0
—50 leikjum var f restað á Bretlandseyjum á laugardag
Svertingjarnir snjöllu i liði WBA — frá vinstri Batson, Regis og Cunningham.
3-1
3-2
2-1
0-1
3-2
3. deild
Exeter—Chesterfield
Gillingham—Tranmere
Peterborough—Chester
4. deild
Aldershot—Port Vale
Bournemouth—Crewe
Newport—Reading
Portsmouth—Rochdale I —I
West Bromwich byrjaði mjög vel i
Norwich og eftir aðeins 11 mín. komst
Cyrille Regis á auðan sjó við vítateig
Norwich, lék nær og skoraði sitt 13.,
deildamark á keppnistimabilinu. Á
næstu mín. átti vörn Norwich við alls
konar vandamál að striða. WBA tókst
þó ekki að auka forskot sitt og þá fór
Regis mjög illa með gott tækifæri.
Norwich-liðið hresstist aðeins loka-
kafla hálfleiksins. Þá átti 17 ára mið-
herji, John Fassinou, sem lék sinn
NÝKOMIN TOPPTÍZKU STÍGVÉL
MEÐ FÓÐRIÁ BÖRNIN, í RAUÐU
OG BLÁU.
SKI BOOTS.
Stærðir: 24-30 kr. 4500.-
31-39 kr. 4900.-
NYKOMIN
VATNSHELD
LOÐFÓÐRUÐ
KULDASTÍGVÉL
Stærðir 24-30 kr. 5800.-
31-39 kr. 6800.-
FINNSKIR LOÐFÓÐR AÐIR
LEÐURKULDASKÓR HERRA
Stærðir 40-451/2
kr. 14.900.
Póstsendum
Skóbúðin Suðurveri
Stigahlíð 45-47. - Simi 83225.
fyrsta leik i aðalliðinu og var valinn í
stað Martin Chivers, hörkuskot rétt
yfir mark WBA.
í byrjun síðari hálfleiks náði Nor-
wich sinum bezta leik og fyrstu 10
mínúturnar átti WBA mjög í vök að
verjast. Á 50. mín. náði Norwich góðu
upphlaupi — knötturinn gekk milli
fjögurra manna liðsinsog hafnaði að
lokum hjá Marlin Peters sem skallaði
í mark. Dæmigert mark fyrir Peters —
eins og þau sem hann skoraði með
West Ham hér á árum áður og enska
landsliðinu. Peters varð heimsmeistari
með Englandi 1966 og aðeins hann og
Allan Ball ensku heimsmeistaranna
leika enn í deildakeppninni. Litlu
munaði að Norwich næði forustu á
þessum leikkafla. Svo varð þó ekki og
WBA rétti úr kútnum á ný, var hættu-
legt lokakafla leiksins. Þá átti Regis
skot i þverslá og Kevin
Keelan, hinn 38 ára markvörður Nor-
wich, varði mjög vel frá Cunningham.
Völlurinn var erfiður og það tók dóm-
arann tvær klukkustundir að ákveða
hvort leikið yrði.
Len Cantello lék ekki með WBA að
þessu sinni vegna meiðsla og kom
John Trewick í hans stað. David Mills,
sem WBA keypti i siðustu viku frá
Middlesborough fyrir 500 þúsund
sterlingspund, var varamaður. Hann
kom ekki inn á en um miðjan síðari
hálfleikinn lét Atkinson hann hita upp
við hliðarlinu. Ekkert varð þó af því
að hann sendi Mills, t>ennan mikla
markaskorara, í leikinn.
Ahorfendur voru rúmlega 20 þús-
und og liðin voru þannig skipuö:
Norwich: Keelan, Kevin Bond (sonur
framkvæmdastjóra liðsins John Bond),
Robson, Hoadley, McGuire, Davies,
Reeves, Fassinou, Neighbour, Peters
og Symonds. WBA: Goden, Batson,
Statham, Wile, Robertson, Tony
Brown, Trewick, Cunningham, Regis,
Ali Brown og Robson.
Eins og vordagur
á Highbury
Glaðasólskin var í Lundúnum,
þegar Arsenal og meistarar Notting-
ham Forest léku á Hignbury og völlur-
inn eins og á vordegi — en hitalagnir
eru í grasteppinu á vellinum. Það var
metaðsókn hjá Arsenal á leiktimabil-
inu — 52.158 áhorfendur — enda eini
leikurinn í heimsborginni á laugardag.
Forest var betra liðið í fyrri hálf-
leiknum og tókst að ná forustu á 39.
mín. Gary Birtles lék þá John Robert-
son frian. Skozki landsliðsmaðurinn
lék inn i vitateiginn og lyfti síðan
knettinum snilldarlega yfir Pat Jenn-
ings, sem kom á móti honum, og i autt
markið. í síðari hálfleiknum náði
Arsenal hins vegar mjög snjöllum leik.
David Price tókst að jafna á 6l.mín.
eftir aukaspyrnu Liam Brady, þar sem
Frank Stapleton skallaði knöttinn til
Price. Átta mín. fyrir leikslok skoraði
Stapleton sigurmark Arsenal, sendi
knöttinn framhjá Peter Shilton í mark
Forest úr þröngri stöðu eftir sendingu
Brady. Óvenjulegt að Shilton fái slikt
mark á sig. Brian Talbot lék sinn
fyrsta leik með Arsenal eftir söluna
frá Ipswich og hann og Brady lögðu
undir sig miðju vallarins I síðari hálf-
leiknum. Fréttamenn voru á einu máli
að sjaldan heföi nýr leikmaður byrjað
eins vel hjá liði og Talbot að þessu
sinni. I viðtali við BBC sagðist Talbot
vera mjög ánægður með að vera kom-
inn til Arsenal. Það hefði verið
draumur hans lengi — og ekki hefði
spillt fyrir að vinna ensku meistarana i
fyrsta leiknum. Þetta var aðeins annað
tap Nottingham Forest á leiktimabil-
inu og við það féll liðið niður i sjötta
sæti.
Aðeins jafntefli
Leeds
hjá
Leikmenn Leeds, sem náði hafa frá-
bærum árangri undir stjórn Jimmy
Adamson, sóttu nær látlaust fyrstu 75
minúturnar gegn Man. City. Þeir
fengu fjölmörg góð tækifæri til að
skora en tókst það aðeins einu sinni.
Það var á 44. mín. að Tony Currie,
langbezti maður á vellinum, tók auka-
spyrnu, gaf á John Hawley sem skall-
aði i mark. Leeds liðið fór illa með færi
sín og siðasta stundarfjórðunginn
breyttist leikurinn Manchester-liðinu i
hag. Brian Kidd jafnaði með þrumu-
fleyg frá vitateig með hægri fæti rétt
fyrir leikslokin — eftir að venjulegum
leiktíma var lokið. Kidd kom inn á i
byrjun síðari hálfleiks þar sem Dave
Watson, miðvörður Man. City og
Englands, meiddist. Kidd var ekki
settur í framlínuna en tók hins vegar
stöðu Watson sem miðvörður. Eins og
áður hefur verið skýrt frá hér i blaðinu
er Malcolm Allison, sem náði svo
góðum árangri fyrir áratug með Man-
chester-liðið, aftur kominn til Man.
City. Hann lagði upp Ieikaðferð liðsins
og stjórnaði frá hliðarlinu en Tony
Book, framkvæmdastjóri nú og fyrir-
liði, þegar Allison var með liðið áður,
valdi liðið fyrir leikinn.
Bristol City og Tottenham gerðu
jafntefli í Bristol við hinar erfiðustu
aðstæður. Fréttamenn eru hissa á þvi
að leikurinn skyldi háður. Leikurinn
líktist meira íshokkey en knattspyrnu
og leikmenn áttu afar erfitt að fóta sig
á svellinu. Tottenham var skárra liðið
við þessar aðstæður og Colin Lee átti
skot i þverslá marks Bristol City. Það
var það næsta sem leikmenn komust
að skora.
I 2. deild vann Cambridge stórsigur
á Cardiff. Alan Biley skoraði þrjú af
mörkum Cambridge. í síðustu viku
bauð Norwich Cambridge 175 þúsund
sterlingspund fyrir Biley en forráða-
menn Cambridge vildu ekki selja
hann.
í 3. deild vann Peterborough sinn
fyrsta sigur siðan 16. september — og
lengi vel leit út fyrir að Tranmere frá
Birkenhead — gegnt Liverpool á bökk-
um Mersey-árinnar — næði sinum
fyrsta útisigri i Gillingham, komst i
2—0, en Gillingham, eitt efsta liðið i
deildinni, skoraði þrivegis i síðari hálf-
leik. Portsmouth missti af tækifæri að
ná efsta sæti i 4. deild þegar liðið gerði
aðeins jafntefli við næstneðsta liðið
Rochdale á heimavelli — Rochdale,
sem Mike Ferguson, fyrrum þjálfari
Skagamanna, var nýlega rekinn frá.
Þá komst Reading i 2—0 í Newport en
tapaði samt leiknum.
Staðan er nú þannig í efstu deildun-
um:
l.deild
WBA
Liverpool
Everton
Arsenal
Leeds
Nott.For.
Bristol City
Coventry
Tottenham
Man. Utd.
Aston Villa
Southampton
Man.City
Norwich
Ipswich
Derby
Bolton
Middlesbro
QPR
Wolves
Chelsea
Birmingham
C. Palace
Stoke
Brighton
West Ham
Fulham
Sunderland
. deild
23 10 !0
23 II íl
23 I3 3
22 II 5
22 I0 5
22 9 7
Martin Peters — jafnaði fýrir
Norwich.
John Robertsson skoraði stórfallega á
Highbury.
Burnley
Newcastle
NottsCo.
Charlton
Orient
Cambridge
Bristol Rov.
Wrexham
Preston
Leicester
Luton
Oldham
Sheff. Utd.
Cardiff
Blackbum
Millwall