Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1979.
21
Málefni barna
fái ákveðinn
forgang hjá
opinberum að-
lllltM — scgirReynirKarlsson,
UIII æskulýðsf ulltrúi ríkisins
Guðrún Heigadóttir.
ÞARF LENGRI
TIMA ~ segir Guðrún Helga-
I I iWI n dóttir borgarfulltrúi
„Ég held að ár barnsins endist okkur börnum okkar og e.t.v. færu menn þá að
tæpast til aðgerða sem skipta verulegu hugsa málin í samhengi sem er undir-
máli,” sagði Guðrún Helgadóttir borgar- staða allrar skynsamlegrar niðurstöðu.
fulltrúi. Þegar börnin verða tekin inn í samfélag
„Til þess þarf lengri tíma en það gæti mannanna með fullum rétti er hægt að
orðið til þess að við færum að hugsa í hefja raunhæfar aðgerðir.”
alvöru um þann heim sem við búum -GAJ-
Reynir Karlsson.
uppeldisleg, félagsleg og réttarfarsleg
málefni barna fái ákveðinn forgang hjá
opinberum aðilum, félögum og sam-
tökum í landinu,” sagði Reynir Karls-
son, æskulýðsfulltrúi ríkisins.
„Umræður um málefni barna hafa að
sjálfsögðu lítinn tilgang ef þær ekki leiða
til framkvæmda og úrbóta, en orð eru til
alls fyrst, og ég tel að málefni barna hafi
alltof oft gleymzt þegar mikilvægar
ákvarðanir eru teknar í málum sem
snerta þau meira eða minna.
Það sem ég vildi helzt sjá gerast I mál-
efnum barna á árinu er; auk þess sem
hagur þeirra og öll aðstaða verði bætt
eftir föngum, að hreyfing verði í þá átt
að aðstandendur þeirra gefi sér mun
meiri tíma til að vera með þeim og tala
við þau. Þá hef ég einnig sérstakan
áhuga á því að fræðsla um félagsstarf og
félagsleg þjálfun barna verði tekin upp í
meira mæli í skólunum. Er það gleðiefni
að einmitt á barnaárinu hafa verið sett
ákvæði í reglugerð þess efnis að félags-
málafræðsla skuli vera ákveðinn þáttur I
námi barna á grunnskólaaldri og áherzla
lögð á félagsstarf, tjáningu o.þ.h.”
„Barnaársins yrði að mínum dómi
bezt minnzt með því að umræður um
BREYTING ÞARF AÐ
STAÐ
Gestur Ólafsson arkítekt.
„Hérlendis þarf að eiga sér stað alger
hugarfarsbreyting viðvíkjandi aðstöðu
og umhverfi fyrir börn,” sagði Gestur
Ólafsson arkitekt og skipulagsfræðingur.
„Og það þarf líka að gera börnunum
kleift að vera miklu meira með foreldr-
um sinum og fullorðnu fólki. Við ættum
líka að sjá sóma okkar I að leggja allt af
mörkum sem við getum til að hjálpa
milljónum sveltandi barna erlendis.”
-GAJ-
. Sigurðardóttir kennari.
Bætt
aðstaða
þroska-
heftra
— segir Margrét
Sigurðardóttir
kennari
„Ég mundi vilja sjá bætta aðstöðu
andlega og líkamlega þroskaheftra
barna, bæði í sambandi við þjálfun yngri
barna og foreldraráðgjöf, svo og I
kennslumálum,” sagði Margrét F. Sig-
urðardóttir kennari.
„Þá vildi ég sjá aukinn skilning al-
mennings á vandamálum þroskaheftra
og að bæði börn og fullorðnir verði til-
búin til að bjóða þessa einstaklinga vel-
komna til samstarfs í daglega lífinu á
eðlilegan hátt, hjálpa þeim þar sem við á
og láta vorkunnsemina víkja. Barnaárið
er tilvalinn tími til að landsmenn taki
höndum saman og láti þessar sígildu og
margendurteknu óskir verða að veru-
leika.” -GAJ-
íssköfur
lásaolíur
og léttar
snióskóflur
Eigum nú fyrirliggjandi
fjölda vörutegunda
sem nauðsynlegar eru
í vetrarakstri.
Kynnið ykkur vöruvalið.
Olíufélagið
Skeljungur hf
Shell
Heildsölubirgðir:
Smávörudeild,
Laugavegi 180,
sími 81722.