Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15.JANUAR 1979. I 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D Hart barizt f leik Ármanns og Þróttar. DB-mynd Bjarnleifur. ÞROTTUR VANN UPP ATTA MARKA FORUSTU ÁRMANNS —og liðin skildu jöf n, 23-23 — KR sigraði Leikni „Menn hættu að taka á og þetta sannar strákunum, að enginn leikur er unninn fyrr en flauta gellur. Synd að sigra ekki Þróttara þvi Ármannsliðið náði virkilega að spila vel i fyrri hálfleik en leikmenn slökuöu síðan á þegar þeir álitu leikinn unninn og standa siðan uppi með jafntefli,” sagði Geir Hallsteinsson þjálfari Ármanns eftir jafntefli Ármanns og Þróttar i 2. deild íslandsmótsins í Höllinni í gærkvöld, 23—23. Þróttar jöfnuðu á siðustu mínútu leiksins en Ármenningar virtust stefna í öruggan sigur lengst af. Þannig var Þór vann Stjörnuna Þór heldur sínu striki i 2. deild Ís- landsmótsins i handknattleik. Á laugar- dag sigraði Þór Stjörnuna 22-20 á Akur- eyri en Þórsarar urðu fyrír sigri sinum að hafa. Stjarnan hafði lengst af yflr, og það var ekki fyrr en i lokin að Þór seig framúr og tókst að tryggja sér sigur. Það var jafnt fyrstu mínúturnar, 2-2, 3-3 en Stjarnan komst síðan í 6-4, 9-6 en staðan i leikhléi var 9-7. Það var ekki fyrr en á 19. mínútu að Þór tókst að jafna, 16-16, og síga síðan framúr. Þór var engan veginn sannfærandi í viður- eigninni við Stjörnuna og greinilegt að leikmenn hafa ekki notað nýafstaðnar hátíðir til að æfa. Liðið var engan veginn eins sterkt og fyrir jól — þjálfar- inn fór suður um hátíðirnar og leikmenn höfðu litið æft. Sigtryggur Guðlaugsson skoraði flest mörk Þórs, 7 — 6 víti. Arnar Guðlaugsson 5, Rinst Einar Björnsson og Sigurður Sigurðsson 4 hvor. Eyjólfur Bragason skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna. Magnús Teitsson 5. Þeir Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson dæmdu — Akureyringar fengu þá að sjá dómgæzlu eins og hún gerist bezt en þvi miður gerist það allt of sjaldan. - St.A. Youri til Víkings eða Breiðabliks? - KSÍ ákvað á laugardag að heimila Youri llitschev að taka að sér þjálf un félagsliðs Stjórn KSÍ gaf á laugardag heimild fyrir þvi, að Youri Ilitschev, þjálfari íslenzka landsliðsins tæki að sér félag til að þjálfa i sumar. Tvö félög hafa sýnt Yourí Uitschev mikinn áhuga, það er Vikingur i 1. deild og Breiðablik er siðastliðið haust féll i 2. deild. Það liggur ekki fyrir hvort félag Youri Ilitschev velur en sem kunnugt er tók hann við Víkingum siðastliðið haust og stýrði liðinu í þremur síðustu leikjum þess i 1. deild. Víkingar fengu 4 stig úr þessum þremur leikjum og þótti félagið sýna allt annan og betri leik en áður. Breiðablik stendur nú á krossgötum. Blikarnir féllu í 2. deild, eftir að hafa virst ná að festa sig í sessi í 1. deild undir stjórn Þorsteins Friðþjófssonar. En Þorsteinn yfirgaf Blikana og félagið féll i 2. deild. Nú hefur einn af máttar- stólpum Breiðabliks, Einar Þórhallsson farið frá félaginu, gengið í raðir KA á Akureyri. Þá hafa tveir ungir og efnilegir leikmenn Blikanna, úr 2. flokki gengið i raðir Skagamanna. Auk þess hefur verið orðrómur um að fleiri leik- menn séu á förum frá Breiðablik. Nú hafa öll félög i I. deild ráðið þjálfara fyrir næsta sumar, utan Eyja- menn og Vikingar. lslandsmeistarar Vals hafa endurráðið Guyala Nemes. Bikarmestarar ÍA hafa ráðið hollenzkan þjálfara, Jo Jansen. Þorsteinn Friðþjófs- son þjálfar Þrótt, Jóhannes Atlason verður áfram með KA. Keflvikingar hafa ráðið enskan þjálfara, Tom Tranter og Fram er um tima sýndi Youri Ilitschev mikinn áhuga hefur ráðið Hólmbert Friðjónsson. Nýliðarnir i 1. deild, Haukar og KR hafa og ráðið þjálf- ara, Magnús Jónatansson verður áfram með KR og Eggert Jóhannesson mun þjálfa Hauka. Þá hafa tvö félög nýverið gengið frá ráðningu þjálfara. Völsungur er féll í 3. deild hefur áðið Einar Friöþjófsson, bak- vörðinn úr Eyjum og Selfoss er vann sæti sitt aftur i 2. deild hefur ráðið Anton Bjarnason. staðan 14—7 í leikhléi, Ármanni í vil. Þeir yfirspiluðu Þróttara og í upphafi siðari hálfleiks varð munurinn 8 möri. En Ármenningum urðu á stór mistök — þeir slökuðu á og Þróttar söxuðu óðum á forskot Ármenninga. Þegar aðeins tvær minútur voru til leiksloka skildi eitt mark, 22—21, en Þrótturum tókst að jafna metin á elleftu stundu. Þá fór annar leikur fram í 2. deild í Höllinni, KR vann stórsigur á Leikni — liði er nú virðist dæmt til að falla i 3. deild. „Víkingsdómurinn” Hörð mótmæli HSÍ —og einnig að HSÍ skuli ekkert hafa verið tilkynnt um málið Stjórn HSÍ sendi IHF — Alþjóða- handknattleikssambandinu — bréf, þar sem HSt lýsti furðu sinni og vitti dóm aganefndar IHF yfir Viking en aga- nefndin dæmdi Viking úr keppni vegna rúðubrota i Ystad eftir sigur Víkirtga á Ystad, 24-23. Vikingur komst þannig eitt liða af Norðurlöndum i 8-liða úrslit Evrópukeppni. HSÍ harmaði í bréfi sínu í upphafi að 2—3 Víkingar skuli hafa brotið rúð- urnar tvær í Ystad. En HSt mótmælti jafnframt þeirri málsmeðferð er málið hlaut, og að HSt skuli ekki hafa verið í neinu látið vita af kæru Kurt Wadmark. formanns aganefndar IHF. Það var fyrst eftir að Víkingar tilkynntu HSÍ um dóminn og síðar í fjölmiðlum, að stjórn HSÍ fékk að vita um dóm aganefndar. „Við áteljum harðlega og mótmælum dómum þeim er gengu i máli Víkings. Þessir hörðu dómar draga mjög úr áliti IHF á íslandi, eru gjörsamlega óviðeig- andi og langt frá að samrýmast réttar- farsreglum i lýðfrjálsum löndum. Kurt Wadmark kærði málið til aganefndar, og hafði siðan samband við tvo aðra nefndarmenn í aganefnd en lét HSt í engu vita. Slíkt er með öllu óviðeigandi. Þá mótmælum við harðlega ummælum Kurt Wadmark í víðlesnasta dagblaði tslands þar sem hann sagði að tslendingar hefðu áður verið valdir að óspektum, hann þekkti til þeirra. Þetta viðtal hlustuðum við á af segulbandi og teljum alveg óviðeigandi, og ósæmandi formanni aganefndar. Mest erum við undrandi á dómnum, að Víkingur skuli dæmdur úr keppni. Slikur dómur á sér enga hliðstæðu í nokkurri íþróttagrein. Handknattleikur hefur um áratuga skeið verið mjög vinsæll á tslandi. og má með sanni segja að sé þjóðaríþrótt íslendinga. Því hefur brottvikning Vík- ings verið mjög í fréttum fjölmiðla og þjóðin fylgzt með náið. Þessi furðulegú vinnubrögð aganefndar IHF geta því stórskaðað handknattleik hér á landi og verulega hnekkt því góða áliti er IHF hefur hér á landi,” sagði meðal annars i bréfi HSÍ til Alþjóðahandknattleikssam- bandsins og vonast HSÍ til að IHF endurskoði afstöðu sina í þessu máli. Vikingar hafa að undanförnu verið að semja greinagerð með áfrýjun sinni til IHF en frestur til að áfrýja er til 18. janúar. Stuttgart í ef sta sætið Aðcins þrír leikir voru háðir í 1. deildinni i Vestur-Þýzkalandi á laugar- dag. Sex var frestað vegna veðurs eða slæmra vallarskilyrða. Úrslit í leikjunum þremur urðu þessi: Stuttgart-Kaiserslautern 3—0 Frankfurt-Schalke 3—1 Hertha-Darmstadt 1—0 Stuttgart komst i efsta sætið eftir sig- urinn á Kaiserslautern, sem hefur haft forustu í deildinni frá þvi í haust. Staða efstu liða er nú þannig: Stuttgart 18 II 4 3 34—18 26 Kaisersl. 18 10 6 2 36—23 26 Hamborg 17 II 3 3 36—13 25' Frankfurt 18 10 2 6 30—25 22 Dusseldorf 17 7 4 6 36—27 18 BayernM. 17 7 4 6 33—25 18 Keppnin um vestur-þýzka meistara titilinn kemur nú varla til meðaðstanda nema milli þriggja efstu liðanna. Hamburger Sport Verein, undir stjórn Gunther Netzer, stendur bezt að vígi. Hefur tapað fæstum stigum og er með talsvert meiri markamun en VfB Stutt- gart ogl.FC Kaiserslautem. SKÐAV0RUR I MIKLU URVALI NÝK0MNAR Dikorinn /f. SPORTVÖRUVERZLUN HAFNARSTRÆT116 SÍMI 24520

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.