Dagblaðið - 15.01.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1979.
5
Finnmörk
íTorfustaðahreppi:
Eldur
í fjós-
hlöðu
Annríki hjá
lögreglunni
íReykjavík:
Neyðarkall barst frá
tveim skemmtistöðum
Um hádegi á laugardag var slökkvilið-
ið á Hvammstanga kvatt að bænum
Finnmörk i Torfustaðahreppi þar sem
mikill hiti var í heyi i fjóshlöðu þar og
bóndinn á bænum. Jóhannes Kristófers-
son, var hræddur að það myndi kvikna i
þegar loft kæmist i hevið. En mikill
súgur hafði mynda/i um súgþurrkunar-
kerfið í hlöðunni. Sú varð og raunin á að
eldur hafði kviknað þegar slökkviliðið
kom á staðinn. Magnaðist eldurinn fljót-
lega vegna mikillar SV-áttar og var
slökkviliðið mjög lengi að ráða niður-
löguni eldsins. Miklar skemmdir urðu á
heyinu en litlar á húsum.
GAJ
Það voru harla fáir á ferli síðdcgis á
laugardag þegar Ijósmyndari DB fór i
ökuferð sína. Viða sátu illa búnir fólks-
bilar fastir og yfirgefnir. Tafði það tals-
vert umferð, m.a. varð ófært af þeim
sökum til Hafnarfjarðar þegar fjöldi bila
stöðvaðist á Arnarneshæð. Flestir öku-
menn héldu sig heima — og einstaka fór
út á snjósleðanum sinum. Samt sjáum
við ekki betur en taug sé á milli jeppans
og snjósleðans ...
DB-myndir: Ragnar Th.
Annríki hjá
lögregiunni
íReykjavík:
-
Mikið annríki var hjá lögreglunni í
Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins.
Færðin var orðin mjög slæm um bæinn
og viða nánast ófært. Mjög fáir leigu-
bílar voru við akstur en töluverður fjöldi
fólks á skemmtistöðum borgarinnar.
— vegna ófærðarinnar
■
Barst lögreglunni hálfgert neyðarkall frá
tveimur þeirra þ.e. Sigtúni og Hótel
Sögu. Voru um 600 manns í Sigtúni og
enn fleiri á Sögu og allt í óvissu um
hvernig þetta fólk kæmist heim. Lögregl-
an fékk aðstoð frá Strætisvögnum
Reykjavíkur og fóru tveir vagnar á Sögu
og einn í Sigtún. Þá var lögreglan einnig
með sina rútu við fólksflutninga og
mikið af aukabílum við að aðstoða næt-
urhrafna við að komast heim. 1 Hafnar
firði og Kópavogi voru hjálparsveitir
skáta lengi frameftir að aðstoða ófor-
sjála ökumenn við að komast leiðar sinn-
ar. Véladeild Reykjavíkurborgar hafði
tilkynnt að mokstri yrði hætt kl. 21 á
laugardagskvöld en vegna þrábeiðni var
aðstoð lögreglunnar haldið áfram fram
eftir nóttu og aftur byrjað eldsnemma á
sunnudagsmorgun. Þá hafði lögreglan
einnig í nógu að snúast við að flytja
starfsfólk sjúkrahúsanna til og frá vinnu
á sunnudagsmorgun. í gærmorgun var
ástandið orðið mun betra í bænum og
fært a.m.k. um allar aðalgöturnar.
-GAJ-
VÍDA RAF-
MAGNSLAUST
UM HELGINA
Bilanir á rafmagni urðu á nokkrum
stöðum á landinu um helgina. Alvar-
legust varð bilunin á linunni til Grinda-
vikur og segir frá því annars staðar á sið-
unni. Um miðjan dag á laugardag bilaði
rafmagsnlínan til Vestmannaeyja. Hafði
línan slitnað og þverslá brunnið á Land-
eyjarsandi. Að sögn Baldurs Helgasonar
tæknifræðings hjá Rafmagnsveitunum
reyndist ekki unnt að gera við línuna
fyrr en kl. 11 í gærmorgun. Ekki varð þó
neitt vandræðaástand i Eyjum því þeir
Eyjamenn hafa yfir að ráða dísilstöð
sem gripið er til i tilfellum sem þessum.
Þá varð einnig bilun á rafmagnslinum
í uppsveitum Árnessýslu á laugardag.
Tóks tað koma straumi á aftur síðdegis
en aftur varð bilun kl. 2 aðfaranótt
sunnudagsins. Aftur tókst að koma
straumi á í gærmorgun en fljótlega varð
enn ein bilunin. Unnið var að viðgerö í
gær og var meginhlutinn kominn aftur í
samband um kl. 2 í gær.
Einnig varð bilun á rafmagnslínum í
Borgarfirði og varð Borgarhreppur
straumlaus á laugardag og fram eftir
nóttu. Að sögn Baldurs Helgasonar er
þarna um gamlar linur að ræða sem
þyrfti að styrkja en fjármagn hefur
skort. -GAJ-
3JA DAGA ÚTSALA
FYRIR DÖMUR:
FYRIR HERRA:
FYRIR BÖRN:
Mokkasínur á kr. 4985.- og 5500.-.
Stígvél á kr. 5985.-, 8985.- og 13680.-
Skór á kr. 2500.- og kr. 5500.-
Töflur á kr. 1985.-, kr. 2200.- og kr. 3500.-
Sandalar á kr. 4485.-. Trétöfflur á kr. 2995.
Sandalar á kr. 3500.-. Skór á kr. 5500.-
Kuldaskór á kr. 5950.-
Kuldaskór á kr. 5500.-
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
allt
1.
JLOKKS
sMfatnabur
kJI*10 g6d
SkSS
&MEST
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Sími 14181