Dagblaðið - 26.01.1979, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JANUAR 1979.
Erlendar
fréttir
ÓLAFUR
GEIRSSON
íran:
BOÐAÐ
TIL MÓT-
MÆLA-
FUNDA
ÍTEHERAN
Búizt er við miklum mótmælagöng- inn til að fórna lífi sínu fyrir þjóð sína
um i Teheran vegna tilkynningar ef þörf væri og mundi ekki láta blóðs-
íranshers um að öllum flugvöllum úthellingar stöðva ferð sína.
landsins verði lokað þar til á laugar- Hann hefur neitað að ræða við full-
dag. VerðaþarfylgismennKhomeinys trúa stjórnar Baktiars forsætisráð-
trúarleiðtoga á ferðinni til að mót- herra írans og neitað að fallast á til-
mæla því að hann fái ekki að snúa mæli hans um að fresta heimför sinni
aftur til lrans eftir fimmtán ára útlegð um þrjár vikur svo færi gefist á að
i írak og Paris. Stúdentar hafa boðað koma málum þar I rólegt og eðlilegt
til mótmælafundaráTeheranflugvelli horf. Khomeiny telur stjórn Baktiars
i dag en ef sá fundur verður haldinn er ólöglega og hyggst sjálfur koma á fót
það í trássi við bann gegn óskipu- múhameðstrúarlýðveldi i íran.
lögðum fundum. Mikið lið hermanna
með skriðdreka og fleiri vopn mun Ekkert hefur heyrzt nánar frá Írans-
vera á Teheran flugvelli. keisara, sem nú dvelst í Marokkó, en
Talsmenn Khomeinys hafa tilkynnt horfur munu vera á þvi að hann
að hann muni snúa til Íran með illu dveljist þar eitthvað áfram. Hafa þrjú
eða góðu og þá ekki siðar en á sunnu- börn hans verið kölluð þangað frá
dag. Sagðist trúarleiðtoginn vera tilbú- Bandaríkjunum.
MIKLATORGI - SÍMI22822
Það vorar í gróðurhúsinu. Glœsilegt potta-
plöntuúrval. Blómstrandi alparósir,
burknar
OPIÐ KL. 9-21
22822 I
gt potta-
, fallegir
________)
Svin er kannski ekki fegursta skepna en ein gylta með grisum sinum er talin geta farið langt með að framleiða orku fyrir eitt
bændabýli. Auk annarra nota sem af skepnunum eru.
Danmörk:
Svínin sjá fyrir
hita og rafmagni
Hópur bænda í þorpinu Kærbölling
vinnur nú að því að koma sér upp
orkuveitu til rafmagnsnotkunar og hit-
unar, sem byggir á gasi frá svínastíum
býlanna. Siðan árið 1977 hefur verið
rekin tilraunastöð við eitt býlið en sér-
fræðingar telja að ekki sé nokkur vafi
á þvi að hagkvæmara sé að byggja
orkuveitu sem er stærri og byggir á
gasi frá fleiri svinastíum. Er talið að þá
verði hver bóndi sjálfum sér nógur
með orku og geti sparað sér í það
minnsta jafnvirði tvö til þrjú hundruð
þúsund króna á hverju ári.
Talið er að um það bil 90% af því
gasi sem myndast i stiunum hjá gylt-
unum með grísi sína muni nýtast til
orkuframleiðslu. Þar af er áætlað að
23% fari til rafmagnsframleiðslu en
afgangurinn til upphitunar þeirra húsa
sem á býlunum eru.
. Margir danskur bændur sem reka
svínabú eru tilbúnir að fara út íþessar
framkvæmdir, sem munu vera tiltölu-
lega einfaldar og jafnvel hægt að
breyta venjulegum oliumiðstöðvum til
þessara nota.
Nú þegar munu um það bil fimm-
tán slíkar gasorkustöðvar vera komnar
upp i Danmörku eða vera að verða til-
búnar. Fleiri munu hugsa sér til hreif-
ings. Ekki kemur fram hvort þau orku-
ver sem hingað til hafa selt bændun-
um orku muni sætta sig við að tapa
viðskiptunum svona skyndilega.
**<m*ér
Hélt við John
F. Kennedy
Leikkonan Gene Tiemey í Banda-
rikjunum hefur það meðal annars
fram að færa í ævisögu þeirri sem hún
er að gefa út, aðeins 53 ára að aldri, að
hún hafi verið ástkona John F.
Kennedy á meðan hann var öldunga-
deildarþingmaður og ókvæntur. Segir
hún þau hafa hitzt í Hollywood árið
1945 þar sem hún var við upptöku á
kvikmynd. Kennedy hafi þá verið enn-
þá í sjóhernum.
Leikkonan segir samband sitt
við Kennedy hafa staðið í nokkur ár
eða þar til hann sagði henni að þau
mundu aldrei geta átzt. Telur hún
ástæðuna hafa verið að hann var
kaþólikki sem ætlaði sér að ná langt í
stjórnmálum.
GULUR RAIMGE ROVER,
árg.74, í algjörum sérflokki, auðsjáanlega dekur
bíll. Til sýnis á staðnum. Bíll sem vekur athygli.
BILAKAUP
SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030
REUTER
1978 mikið
jarðskjálftaár
Talið er að rúmlega fimmtán þúsund
(15195) manns hafi látizt af völdum
jarðskjálfta á síðasta ári. Eru það fimm
sinnum fleiri en árið á undan. Tölur
þessar eru frá bandarisku jarðfræði-
stofnuninni og voru birtar opinberlega í
gær.
Stórum jarðskjálftum eða þeim sem
mælast meira en 6,5 á Richterskala fjölg-
aði frá árinu áður úr 36 í 72. Enginn
risaskjálfti varð þó á liðnu ári. Svo eru
þeir jarðskjálftar kallaðir, sem mælast
meiraen 8 stig.
Mest varð manntjónið i jarðskjálfta í
íran hinn 16. september síðastliðinn,
þegar um það bil 15.000 fórust.
Skákmótið:
Anderson
kominn að hlið
Polugajevski
ífyrstasæti
Ulf Anderson frá Svíþjóð náði jöfnu
við Lev Polugajevski frá Sovétríkjunum
á alþjóðlega skákmótinu í Hollandi.
Var þettá í sjöttu umferð sem fram fór í
gær. Huebner frá Vestur-Þýzkalandi
náði góðum sigri yfir Hort frá Tékkó-
slóvakíu.
Anderson og Polugajevski eru þá
komnir í efsta sæti með fjóra vinninga. t
öðru sæti eru Huebner, Sosonko og
Timman með hálfum vinningi minna.
Miles er í sjötta sæti með 2,5 og einni
skák ólokið. 1 sjöunda sæti eru þau
Garcia, Hort, Gaprindashvili, Ree og
ísraelsmaðurinn með langa nafnið. Öll
með 2,5 vinninga. t tólfta sæti er
Nikolac með 1,5 vinninga og einni skák
ólokið.