Dagblaðið - 25.05.1979, Page 13
DAGBLAÐíÐ. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1979.
13
VELTAN ER12 MILUARDAR
- GEFUR ÚT EIGIN VEGABRÉF
„Okkur hér í Tollvörugeymslunni er
sýnt mikið traust og við viljum reynast
þess verðugir,” sagði Helgi K. Hjálms-
son framkvæmdastjóri í viðtali við DB.
Fréttamaður spurði Helga hvernig væri
háttað vegabréfanotkun sem nú hefur
verið tekin upp á vörugeymslusvæði
Tollvörugeymslunnar hf., bæði utan
dyra og innan.
Innflytjendur hafa hver sína geymslu,
mismunandi stórar eftir þvf hver þörfin
er hjá hverjum og einum.
DB-mynd Bjarnleifur.
„Hér eru nú 254 innflytjendur og
veltan var um 12 milljarðar síðastliðið
ár. Það er til öryggis fyrir alla aðila að
þeir sem hingað eiga erindi beri einhver
skilríki um það,” sagði Helgi. „Starfs-
menn Tollvörugeymslunnar bera auð-
kenni sem viðskiptavinir þekkja. Þeir
geta þvi snúið sér til starfsmanna með
erindi sin formálalítið,” sagði Helgi K.
Hjálmsson.
Óttarr Möller forstjóri var fundar-
jókst þjónusta við viðskiptavini Toll-
vörugeymslunnar. Þrátt fyrir þetta
væri enn brýn nauðsyn á frekari bygg-
ingarframkvæmdum. Kvað hann þegar
hafinn undirbúning að þeim.
„Hugmyndir hafa verið uppi um
stofnun bankaútibús eða umboðsskrif-
stofu frá gjaldeyrisbönkunum tengda
fyrirtækinu. Þá væru uppi hugmyndir
um að viðskiptavinir gætu fengið toll-
afgreiðslu á sama stað. Þessari þjón-
Gangarnir innan húss I Tollvörugeymslunni eru mörg hundruð metrar og geymslur á
tveim hæðum.
DB-mynd Bjarnleifur.
stjóri á aðalfundi Töllvörugeymsl-
unnar, sem haldinn var í síðasta
mánuði. Stjórnarformaður, Albert
Guðmundsson alþingismaður, flutti
skýrslu stjórnarinnar. Skýrði hann
meðal annars frá því aðá siðasta starfs-
ári hefði fyrirtækið tekið í notkun 2
þúsund fermetra vöruskemmu til við-
bótar fyrra húsrými. Að sama skapi
ustu væri ætlaður staður í nýrri skrif-
stofubyggingu sem á að rísa við
Héðinsgötuna. Hún er í Laugarnesinu
sjálfu, eins og Tollvörugeymslan.
Samþykkt var að greiða 10% arð af
hlutafé sem nú er 120 milljónir króna
og hluthafar 429. Þá var samþykkt að
gefa út jöfnunarhlutabréf, 150% á nú-
verandi hlutafé. Heildarhlutafé verður
Loftmynd af athafnasvæði Tollvörugeymslunnar hf. gefur nokkra hugmynd um
stöðugt vaxandi starfsemi og möguleika til frekara landnáms undir þarfir fyrirtækis-
ins.
DB-mynd Sv. Þorm.
þá 360 milljónir króna og verða bréf að
upphæð 60 milljónir króna seld.
Stjórn félagsins og varastjórn voru
endurkjörnar. Albert Guðmundsson
alþingismaður er formaður. Hilmar
Fenger forstjóri er varaformaður. Fé-
hirðir er Jón Þór Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri. Meðstjórnendur eru
þeir forstjórarnir Einar Farestveit og
Bjarni Björnsson og til vara Þorsteinn
Bernharðsson og Óttarr Möller.
Framkvæmdastjóri er, sem fyrr
segir, Helgi K. Hjálmsson og yfirverk-
stjóri Gústaf B. Einarsson.
- BS
Helgi K. Hjálmsson, framktæmdastjóri
Tollvörugeymslunnar hf. frá byrjun.
„Okkur vantar stöðugt meira land undir
starfsemina, bæði luishyggingar og
geymslusvæði utan húss,” segir Helgi.
DB-mvnd Bjarnleifur.
Tollvöru-
geymslan
hf.:
V J
KVARTMILUKEPPNI
Fyrsta kvartmflukeppni íslandssögunnar verður haldin laugardaginn
26. maí kl. 2 síðdegis á kvartmflubrautinni nýju f Kapelluhrauni
Bygging kvartmílubrautarinnar tók
Kvartmíluklúbbinn 3 ár, en nú er hún
loksins tilbúin. Hinu langþráða tak-
marki, „ad halda bifreiðaíþrótta-
keppni á lokuðu löglegu svæði”, er nú
loksins náð.
Komið á jyrstu
kvartmílukeppnina
og sjáið alla trylltustu
jámfáka landsins spyrna
í k artmílukeppninni á laugardaginn
veiour keppt í eftirtöldum flokkum:
Standard, Modified Standard, Pro
Stock, Street Alterd og mótorhjóla-
flokki.
Stjórnin.