Dagblaðið - 22.06.1979, Page 8

Dagblaðið - 22.06.1979, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979. Kína: TUnUGU MILU- ÓNIR ATVINNU- LAUSIR í KÍNA Kína siglir óðfluga inn í efnahags- lega kreppu, segir í hinu óháða dag- blaði Ming Pao i Hong Kong. Síð- ustu fjárlög ríkisins voru með veru- legum greiðsluhalla og úr þeim má að sögn blaðsins lesa, að atvinnulausir i Kína eru í það minnsta tuttugu millj- ónir. í því sambandi verður að taka fram að ibúar Kína eru taldir um það bil einn milljarður. Að sögn blaðsins i Hong Kong er ekki nóg með að svo mikið atvinnuleysi sé eins og raun ber vitni heldur er talið að um það bil hundrað milljónir Kínverja fái ekki nægilegt að borða. Að sögn sérfræðinga í Kínamálum hefur landbúnaðarframleiðsla lands- ins aukizt um 0,7% á ári að undan- förnu. Sú aukning hefur verið minni heldur en mannfjölgun. Þannig draga sérfræðingarnir þá ályktun að sífellt dragi úr fæðuframleiðslu Kín- verja miðað við hvern íbúa landsins. í þessu sambandi er vitnað í ræðu, sem varaforsætisráðherra Kína flutti á flokksþingi Kommúnistaflokks landsins í apríl síðastliðnum. Þar sagði ráðherrann, að efnahagsvanda- 'mál þau sem Kína ætti við að glíma um þessar mundir yrðu ekki leyst á skömmum tíma. Nauðsynlegt væri að skera niður opinber útgjöld um þriðjung, jafnframt því að nauðsyn- legt væri að auka fjárfestingu í land- búnaði. Talið er víst að Kínverjar muni enn um sinn verða að flytja inn korn í miklu magni frá Bandaríkjunum. Sérfræðingarnir segja að Kínverjar neyðist til þess enn um skeið að bíða með ýmsar nauðsynlegar fjárfesting- ar í þungaiðnaði. Ástæðan er ein- göngu sögð sú að nauðsynlegt fjár- magn er ekki fyrir hendi. í ræðu varaforsætisráðherrans sem áður var nefnd er sagt að fullyrt hafi verið að ef ekki yrði bætt úr efna- hagsvandanum þá gæti svo farið að þrjár milljónir manna hefðu bætzt viðatvinnuleysishópinn árið 1985. Hinum vopnaða Serbíumanni sem milli írlands og Bandaríkjanna um að flugræningjanum verði vísað úr rændi tveim bandarískum farþega- framssal brotamanna er talið líklegt landi vegna ófullnægjandi pappíra. þotum í gær mun nú verða vísað aftur til Bandarikjanna frá írlandi. Á hann yfir höfði sér ákæru um flugrán en hann gafst skilyrðislaust upp á Shannon flugvelli á írlandi i gærdag. Serbíumaðurinn, sem áður hafði verið fundinn sekur um að hafa ráð- gert að ráða júgóslavneska sendiherr- ann í Washington af dögum. krafðist þess, að félagi hans og landi,45 ára gamall prestur, yrði látinn laus úr fangelsi. Dóminn átti að kveða upp yfir flugræningjanum i Chicago í gær en hann varð fyrri til og krafðist þess að flugmaðurinn færi að sínum vilja enda væri hann vopnaður. Síðan lenti þotan, sem var af gerðinni Boeing 727 O’Hare flugvelli við Chicago en eftir nokkra bið þar sleppti flugræninginn öllum far- þegunum úr vélinni og öllum úr áhöfninni nema flugmönnum tveim og flugvélstjóra. Var síðan haldið til Kennedyflugvallar í New York. Þar fékk ræninginn aðra og langfleygari þotu til umráða, Boeing 707. Það var síðan haldið til Shannon flugvallar á Írlandi. Þar gefst flugræninginn upp skilyrðislaust. Þar sem engir samningar eru á FLUGRÆNINGINN gafstuppA SHANNONVELU Uganda: Prinsessan kom- in i leitimar Elísabet Bagaya prinsessa, fyrrum utanríkisráðherra Uganda, er komin í leitirnar. Eins og margir muna vakti prinsessan mikla athygli fyrir feg- urðar sakir á sínum tíma, þegar hún kom meðal annars fram fyrir hönd þjóðar sinnar á vettvangi Sameinuðu þjóð^nna. Síðar sinnaðist henni við Idi Amin fyrrum forseta Uganda og lauk því svo að hann rak hana úr embætti. Sakaði Amin hinn fagra utanríkisráðherra sinn um að hafa haft kynferðislegt samband við mann nokkurn á snyrtingu á Parísar- flugvelli. Skömmu síðar flúði prins- essan land. Eftir að ldi Amin var steypt frá völdum sneri hún heim og fyrir skömmu var hún leiðsögumaður dansks fréttamanns, sem fór vítt og breitt um Uganda.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.