Dagblaðið - 27.08.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 27.08.1979, Blaðsíða 1
iriálst, úháð daahlað 5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST1979 — 194. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. Lögreglubílar í felum við radarhraðamælingar Meira kapp lagt á kærafjölda en fækka afbrot- -Us.7 Ætli þærséuað tala um karlana...? — bls.22 Karlarnir i bænum heitir myndasyrpa eftir Arna Pál Jóhannsson Ijösmyndara DB á bls. 22 i dag. Það eru andlit eldri kynslóðarinnar á göðviðrisdegi i Reykja- vik. Arni tök einnig myndina af frúnum tveim — sem allt eins gætu verið að tala um karlana. Skyndibrúðkaup fSkotiandi: bmðurin komígegn- sæjum nátt- kjá til vígslu ^ —sjábls.6 Skuggi eignast tvíbura! —sjáMs.32 HANN hafði ástæðu til að brosa, hann Ásgeir Eliasson, fyrirliði Fram, eftir að lið hans hafði sigrað Val 1—0 f úrslitum Bikarkeppni KSt á Laugardalsvelli i gær að viðstöddum tæplega 7000 áhorfendum. Var bezti maður á vellinum og dreif félaga sfna til sigurs. Hér er hann með bikarinn mikla ásamt syni sinum Þorvaldi og eiginkonu SofBu Guðmundsdóttur — og litli snáðinn heitir i höfuð- ið á honum langafa sínum, Þorvaldi heitnum Helgasyni, skösmfðameistara og KR-ingi af Vesturgötunni. I opnu blaðsins er skrifað um úrslitaleikinn — og á bls. 16 er sagt frá bikarsigri tR-inga i frjálsum iþróttum. -hsim./DB-mynd Bj.Bj. FIDE-þingið í Puerto Rico: Sameiginleg tillaga Sovétmanna og Bandaríkjamanna f „boycotf’-málinu „Það er allt gott og gilt sem í þessari tillögu er. Það er verið að reyna að setja saman tillögu sem allir geta fellt sig við og útkoman verður þessi. Mér finnst þetta þó ekki nógu ákveðin afstaða og mér frnnst eins og verið sé að drepa málinu á dreif og með þessu séu menn að ýta frá sér vandanum,” sagði Einar S. Einars- son, forseti Skáksambands íslands i samtali við DB t gærkvöldi frá Puerto Rico þar sem hann situr nú aðalþing FIDE. Aðalhluti þingsins hófst í gær og var þá lögð fram sameiginleg tillaga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í svokölluðu „ boycott-máli”, þ.e. útilokun ein- stakra skákmanna frá þátttöku í skákmótum. Mikla athygli vakti að þessir risar í skákheiminum gætu komið sér saman um tillögu i þessu viðkvæma deUumáU. Einar sagði að sér fyndist ekki nógu fast kveðið að orði i þessari tillögu en hann reiknaði þó með að hún yrði samþykkt. í tiUögunni er lögð áherzla á, að það sé skák- mannsins sjálfs að ákveða um þátt- töku, ekki skáksambandanna. Móts- höldurum sé heimilt að bjóða hverjum þeim skákmanni sem þeim sýnist. Sérhverjum skákmanni sé að sama skapi heimilt að þekkjast boðið eða hafna þvi. Á þessi atriði kemur til með að reyna á Reykjavíkurskákmótinu, sem hefst í febrúar á næsta ári. Kortsnoj verður þar meðal keppenda en Sovét- menn hafa sem kunnugt er snið- gengið þau skákmót sem Kortsnoj hefur tekið þátt í síðan hann flúði' SovétrUcin. Sovétmenn hafa tekiðþátt í Reykjavikurskákmótunum frá upp- hafi og tækju þeir ekki þátt í mótinu nú væri ekki hægt að lita á það öðru visi en sem mótmæU við Kortsnoj. Það kemur þvi til með að reyna á heilindi þeirra í þessu máli þá. Einar sagðist eiga eftir að ræða þetta mál við fulltrúa Sovétríkjanna á- þinginu en hann sagðist gera sér góð- ar vonir um þátttöku þeirra. -GAJ- w ■ * SKILMALARISLENDINGA ALGERLEGA ÓVIÐUNANDI —verð að endurskoða samningagrundvölEiin ef ekki er hreið pólíiisk samstaða um málið, segirirtanríkisráðherrann —baksíða

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.