Dagblaðið - 27.08.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 27.08.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979. 7 ( Lögréglurikið ínánd? ) LÖGREGLUBÍL- ARÍFELUMVK) RADARHRAÐA- MÆUNGAR —meirakapplagtákænifjöldaenad stemma stigu við „ótögmætri hegðun”? Á dögunum var opnaður til um- geta” Elliðavogs sem samgönguæðar ferðar síðari hluti Elliðávogs, frá enda því nú eru tvær akreinar i hvora Kleppsvegar að Reykjanesbraut við akstursátt. Elliðaárbrýrnar. Með þessari viðbót Segja má að þessi nýja gata hafi við gatnakerfið tvöfaldaðist „afkasta- verið opnuð með pompi og pragt, þvi A nýrri akrein Elliðavogsins er „felustaður” radarbilsins bak við háan langan stein- vegg austan Skeiðarvogar. Gott ökulag þarf til að komast á felustaðinn með óbrot- inn bii, en tilgangurinn helgar meðalið. (Myndin er tekin með aðdráttarlinsu). DB-mynd Bjarnleifur. -______ Ef þessi mynd er skoðuð vel, má sjá á þak radarmælingabflsins inn á milli birkirunnanna við Reykjaveginn. Þessir lög- reglumenn eru ekki að stemma stigu við ólögmætri hegðan. DB-mynd R.Th. Sig. radarbíl lögreglunnar var með ærnu erfiði komið fyrir í leyni bak við háan og langan steinvegg sem gengur nær alveg að götubrún, á þeim kafla göt- unnar sem er milli Skeiðarvogs og Elliðaárbrúa. Á þeim hluta götunnar er hún hvergi skorin af hliðargötum og steinsteyptir kantar beggja vegna við hana hindra bæði inná- og útafakstur tilhliða afgötunni. Þarna varð lögVeglunni vel ágengt. Tveir menn við Elliðaárbrýrnar höfðu engan veginn undan að skrifa upp þá er fram yfir hámarkshraða sigu undan brekkunni á þessari rennisléttu nýmal- bikuðu breiðgötu. Hefði þar mátt hafa fimm til að skrifa upp í stað tveggja og allir hefðu haft nóg að gera. Þann tíma sem DB-menn horfðu á mælinguna varð hreint handahóf á því hvaða öku- menn voru stöðvaðir og hverjir ékki og sluppu ýmsir er hraðar fóru en margir þeirra sem skráðir voru og fá sjálfsagt kæru. Aðferð sú sem lögreglan í Reykjavík beitir við hraðamælingar orkar mjög tvímælis ef litið er til laga um meðferð opinberra mála (nr. 82 21. ágúst 1961, sbr. lög nr. 29 28. apríl 1966). Er því von að mörgum blöskri aðferðirnar, þó menn séu nær undantekningarlaust á einu máli um að koma þttrfi í veg fyrir hraðakstur í hinni hringavitlausu um- ferð höfuðborgarinnar. Samkvæmt áðurnefndum lögum (34. grein) er það hlutverk lögreglumanna ,,að halda uppi lögum og reglu, greiða götu manna þar sem það á við, stemma stigu við ólögmætri hegðun . . .” o.s.frv. (leturbr. DB). Við radarmælingar á umferðarhraða eru lögreglubílarnir nær undantekn- ingarlaust í felum, á Elliðavogi eru þeir i felum bak við háan steinvegg, á Reykjavegi eru þeir i felum inn á milli og bak við trjárunna, á Vesturlands- vegi eru þeir í skjóli við klett einn mikinn gegnt Grafarholti, á Hring- braut eru þeir bak við njólabreiðu og þannig mætti lengi telja. Andi 34. greinar laga um meðferð opinberra mála virðist með öllu gleymdur. Takmarkið virðist það eitt að ná sem mestum fjölda kæra en hirða ekki um að koma í veg fyrir lagabrot. Sæjust lögreglumenn á þessum um- ferðargötum væri umferðarhraðinn vafalítið innan löglegra marka að lang- mestu leyti. Yfirlögregluþjónn umferðarmála hefur marglýst því yfir opinberlega að takmark hraðamælinga sé það eitt að lækka umferðarhraðann. Ekki skipti máli þó talstöðvarbílar gefi upp hraða- mælingastað öðrum til viðvörunar, því tilgangurinn sé sá einn að lækka hrað- ann. Sami yfirlögregluþjónn hefur einnig margharmað að lögreglulið sé nú of fámennt til að annast götueftirlit, vera þar til að „greiða götu manna og stemma stigu við ólögmætri hegðun” eins og segir í lögunum. Samt eru lög- reglumenn, sem til taks eru, í leyni til að standa sem flesta að lögbroti og þykir ýmsum það helzt gert á þeim götum sem greiðfærastar eru og minnst truflaðar af þverumferð og sá tími helzt valinn er sól skín í heiði og þurrt og gott er úti, sem sagt þegar akstursskil- yrðieruhvaðbezt. -ASt. glæsilegar húsgagnasýningar í Síðumúla 24/8 - 9/9 Opið alla daga til kl. 2200 Freistið gæfunnar í skemmtilegri getraun. Getraunaseðlum dreift 1 hverri verslun á meðan sýningarnar standa yfir og einnig á Alþjóðlegu vörusýningunni í Laugardal. Húsgagnaland Húsmunir Z-húsgögn Dúna TM-húsgögn Síðumúla 2 Siöumúla 4 Siðumúla 6 Siðumúla 23 Síöumúla 30

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.