Dagblaðið - 27.08.1979, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST1979.
19
3NS
iinn
9. mínútu
Eðvaldsson gullið tækifæri til að gera
út um leikinn.
Eftir mikinn misskilning í vörn Fram
komst Atli einn inn fyrir og hafði
nægan tíma — varnarmenn Fram
störðu aðeins á hann og trúðu ekki
eigin augum. Atli lagði knöttinn vel
fyrir sig og skaut þrumuskoti, en Guð-
mundur Baldursson í markinu kastaði
sér eins og pardus á eftir knettinum og
gómaði hann glæsilega niður við jörð.
Snilldarmarkvarzla. Guðmundur hafði
ekki sagt sitt síðasta orð í þessum leik
því minútu áður en Fram skoraði varði
hann með miklum tilþrifum skalla frá
Atla eftir hornspyrnu. Guðmundur
kastaði sér langt aftur á bak og náði að
slá knöttinn rétt yfir þverslá. Stórglæsi-
leg tilþrif þessa unga markvarðar.
Síðan gerðu Framarar út um leikinn og
það var því engin furða þótt leikmenn
Fram flykktust að Guðmundi eftir leik-
inn og þökkuðu honum hans hlut í sigr-
inum.
Þetta var í rauninni 0-0 leikur allt frá
upphafi. Framarar höfðu hins vegar
heppnina með sér að þessu sinni —
ekki oft sem það gerist gegn Val — og
fóru með sigur af hólmi. Guðmundur
var öryggið uppmálað í markinu, Mar-
teinn pottþéttur í stöðu , .sweepers” og
Ásgeir Eliasson var heilinn í liðinu.
Liðið var i heildina mjög jafnt og það
hafði mikið að segja gegn Valsmönn-
um.
Hjá Val var satt að segja enginn sem
stóð upp úr meðalmennskunni nema ef
vera skyldi Atli, sem hafði mikla yfir-
ferð. Lykilmenn í liðinu náðu sér hins
vegar ekki almennilega á strik, en sigur-
inn hefði allt eins getað lent Valsmegin.
Þetta var einfaldlega dagur Fram í gær.
- SSv.
mynd af þeim.
Valsmenn brutu
oftaraf sér
—en þeir fengu fleiri homspymur
Við gerðum það að gamni okkar að
taka saman tölulegar upplýsingar um
leik Fram og Vais og hér á eftir fylgir
niðurstaðan:
Fram Valur
Aukaspymur 21 17
Hornspymur 4 6
Innköst
Rangstaða
Markspymur
Rangstaða var aðeins fjórum sinnum
dæmd allan leikinn. Þrívegis á Vals-
menn en aðeins einu sinni á Fram. Segir
það nokkuð um hversu lítið sótt var.
Markspymur voru 13 frá marki Fram
en 12 frá marki Vals en að öðru ieyti
skýrir taflan sig sjálf. Rétt er þó að geta
þess að fyrsta aukaspyrnan, sem Fram
fékk á sig var ekki fyrr en á 20. mín. en
fram að þeim tima höfðu Valsmcnn 6
sinnum gerzt brotlegir.
- SSv.
A meðal gesta 1 heiðurssttikunni má sjá r
þá feðga Björgvin og Ellert Schram og f
litli bróðir, Ölafur, er ekki langt undan. f'
Skeggjaður með gleraugu, beint fyrir'
ofan Ellert.
Ennskorar
PÉTUR
— Jafntefli PSVog
Feyenoord2-2
„Þetta var mjög góður leikur —
mikil spenna allan leikinn og áhorfend-
ur heldur betur með á nótunum,” sagði
Pétur Pétursson í morgun um leik lið-
anna kunnu i hollenzku knattspyrn-
unni. PSV Eindhoven og Feyenoord í
úrvalsdeildinni i gær. Uppselt var á
leikinn, 30 þúsund áhorfendur og jafn-
tefli 2—2.
Pétur skoraði fyrsta mark leiksins.
Fyrirgjöf utan af kanti — holienzki
landsliðsmaðurinn Brandts hjá PSV
ætlaði að hreinsa en Pétur komst á
milli. Skoraði auðveldlega. Staðan í
hálfleik 0— 1.
t siðari hálfleiknum jafnaði Van der
Kuvlen fyrir PSV úr vitaspymu og
siðan skoraði Poortvliet frá PSV ,,en
hann var greinilega rangstæður. Það
sást vel, þegar leikurinn var sýndur i
sjónvarpinu í gær,” sagði Pétur. Á 75.
min. tókst Ivan Nielsen að jafna fyrir
Feyenoord. Hann kom frá Frem í
Kaupmannahofn til Feyenoord i
sumar. Pétur sagði að leikmenn
Feyenoord hefðu verið ánægðir að
hljóta stig f Eindhoven og hann sagðist
einnig vera ánægður með frammistöðu
sína i leiknum. fþremur fyrstu leikjum
Feyenoord hefur Pétur skorað fjögur
af sex mörkum liðsins.
Úrslit i Hollandi i gær urðu þessi:
NAC Breda—Tilburg 0—1
Ajax—Deventer 2—1
Excelsior—Arnheim 2—0
Sparta—Haarlem 3—0
Haag—AZ '61 Alkmaar 1—0
Maastricht—Utrecht 0—0
PSV—Feyenoord 2—2
NEC Nijmegen—RODA 2—0
PEC Zwolle—Twente_ 0—1
- Staða efstu liða er nú:
Ajax 3 3 0 0 7—3 6
Feyenoord 3 2 1 0 6—2 5
Excelsior 3 2 1 0 5—2 5
AZ’67 3 2 0 1 4—3 4
Haag 3 2 0 1 3—2 4
Þess má geta, að Ámi Sveinsson lék
með Excelsior frá Rotterdam f 2. deild
á síðasta leiktimabili og liðið vann sig
þá upp i úrvalsdeildina.
Bikarsigur
Hamborgar
Kevin Keegan lék með Hamburger
SV á ný í gær en tókst ekld að skora,
þegar Þýzkalandsmeistaramir sigruðu
Villingen 6—0 i bikarkeppninni. Það
var i fyrstu umferð keppninnar og
leikið f Hamborg.
íttir
iþróttir
Bþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„K0MINN TIMITIL AÐ VID
VÆRUM HEPPNIR GEGN VAL”
—sagði Ásgeir Elíasson, fyrirliði Fram, eftir leikinn
Það var að vonum mikill glaumur og
gleði í herbúðum Fram að leiknum
loknum, enda fyrsti bikar Fram í 6 ár í
höfn. Liðið varð bikarmeistari 1973 og
sfðan hefur enginn meiri háttar sigur
unnizt. Ásgeir Eliasson, fyrirliði Fram,
vann sinn þriðja bikarsigur í gær, en
hann var með Fram er liðið vann Kefla-
vík 1973, 2-1 á Laugardalsvellinum, og
einnig er Eyjamenn urðu að lúta í lægra
haldi gegn Fram á Melavellinum 1970,
1-2. Við svifum því fyrst á hann í bún-
ingsklefanum.
„Við vorum bjartsýnir á sigur fyrir
leikinn og tókst að sigra í leik sem gat
farið á báða vegu. Það var kominn tími
til að við værum heppnir gegn Vals-
mönnum i leik. Við vorum búnir að
vera mjög óheppnir í báðum leikjunum
í 1. deildinni í sumar og því var þetta
kærkominn sigur. Ég veit ekki hvort
þetta var skemmtilegri sigur en gegn
ÍBK 1973 — það var geysilega gaman
þá. Ég vil endilega koma því á fram-
færi að stuðningsmenn okkar eiga
miklar þakkir skildar fyrir sinn þátt í
sigrinum, þeir voru frábærir,” sagði
þessi geðugi leikmaður og brosti.
En það brostu fleiri en Ásgeir.
Gunnar Bjarnason var einn þeirra og
engin furða. Hann var með FH á sl.
sumri og liðið féll í 2. deild. Reyndar
hafði Gunnar forðað sér til sólarlanda
áður en liðið féll endanlega, en það
breytir ekki þeirri staðreynd að hann
lék með fallliði í fyrra. Þetta var fyrsti
sigur Gunnars í meiri háttar keppni og
hann sagði: ,,Ég er ekki bara ánægður
— ég er himinlifandi. Markið gat ekki
komiðá betraaugnabliki.”
Hólmbert Friðjónsson, þjálfari
Framara, var hinn rólegasti og tók öll-
um látunum með jafnaðargeði. „Við
vorum með marga leikmenn Vals í
strangri gæzlu allan leikinn. Reyndum
að taka sem flesta pósta hjá þeim, enda
er Valsliðið geysisterk liðsheild. Ef
Valsmenn komast í gang má alltaf bú-
ast við marki. Við reyndum að halda
þeim niðri eins og frekast var hægt og
það held ég megi segja að hafi tekizt.
Valsmenn eru þó með heilsteyptara lið
en við en við erum að byggja upp sterk-
an hóp. Guðmundur var frábær í
markinu þegar á hann reyndi og Ásgeir
átti sinn bezta leik í sumar.”