Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979.
DB á ne ytendamarkaði
„Önnur” útgjöld yffir milljón
Anna, Akranesi, skrifar:
„Heiðraða neytendasiða.
Ég get ekki látið þennan seðil frá
mér, nema minnast aðeins á það sem
flokkast undir „annað”. Þar er m.a.
hluti af klæðningu utan á hálft húsið,
vinnulaun, afborganir af lánum og
slíkt.
Ég vil enda bréfið með því að
þakka ykkur fyrir neytendasíðuna,
sem er orðin ómissandi þáttur í
blaðinu.”
Dálkurinn „annað” á seðli önnu
er anzi hár, hljóðar upp á 1.008.437
kr. Hinn liðurinn, matur og hrein-
lætisvörur, er einnig með hæsta móti
eða upp á 35.430 kr. á mann. Anna
hefur verið mjög dugleg að senda
okkur upplýsingaseðla undanfarið
ár. Meðaltal af matarútgjöldunum á
mann, þá mánuði sem hún hefur sent
okkur upplýsingaseðla.er 26.393. —
Júlímánuður i ár er tæplega 10 þús.
kr. hærri en júlí í fyrra. A.Bj.
MATUR ER
MANNSINS MEGIN
Sparsemdarfjölskylda íReykjavík
S.A. húsmóðir í Reykjavik skrifar:
„Ég sendi nokkrar línur með seðl-
inum. Ég hef yfirleitt alltaf fylgzt
með heimiliskostnaði. Mér finnst
mjög sniðugt að hafa svona seðla. Þá
getur maður fylgzt ennþá betur með.
Við erum sjö i heimili. Einn er i
sveit eins og er, þannig að ég tel hann
ekki með.
í dálkinum „annað” er bæði raf-
magn og sími auk þess fatnaður, sem
ég hef keypt.
Ég þakka ykkur fyrir gott blað og
skemmtilegt”.
Meðaltalskostnaður fyrir mat og
hreinlætisvörur hjá þessari fjölskyldu
er 23. 492 kr. í júlí. Er það frekar i
lægri kantinum á meðaltalinu, eftir
því sem virðist í fljótu bragði. Þetta
virðist því vera sparsemdarfjöl-
skylda. Liðurinn „annað” er heldur
ekki mjög hár, miðað við að þar er
meðtalinn kostnaður við rafmagn,
síma og fatnaðarkaup. Hann hljóðar
upp á 100.897 kr. Ef deilt er i þá tölu
með 6 koma tæplega 17 þúsund á
mann. Þótt ekki hefði verið keypt
annað af fatnaði en einar stæl galla-
buxur á hvern í fjölskyldunni lætur
nærri að þar sé komin öll upphæðin!
A.Bj.
I Reykjavik eru nokkrir stórmarkaðir þar sein hægt er að gera hagkvæm innkaup. Slikt sparar heimilunum stórfé þegar
til lengdar lætur. En það er lika miklu meira vöruúrval I Reykjavík en úti á landsbyggðinni þannig að margt glepur og
fleira er freistandi að eyða fé sinu i.
Skolið þær síðan með rotvarnarefni
og látið sultuna í. Ofan á hverja.
krukku er gott að láta smjörpappír
sem vættur hefur verið í rotvarnar-
vökvanum. Krukkunum er lokað
strax, annaðhvort með loki eða
smjörpappír og teygjubandi.
A.Bj.
Sultutíðin i algleymingi
Þessa dagana eru margir að hugsa
um sultu. Rifsið er ekki orðið rautt
enn og verður að bíða í nokkra daga í
viðbót og samkvæmt blaðafréttum
verður vist lítil berjaspretta í ár. —
Við verðum því að halda okkur að
rabarbaranum enda er hann á góðu
verði fyrir neytendur þessa dagana,
um 270 kr. kg. Þvi er tilvalið að grípa
tækifærið og sulta til vetrarins. Rab-
arbari er líka sérlega vel fallinn til
frystingar. Leggirnir eru skornir í
bita og frystur hæfilegur skammtur í
eina suðu. Grautur úr frystum rabar-
bara er nákvæmlega jafngóður og
væri hann búinn til úr nýuppteknum
rabarbara.
i sultu er algengast að nota 750—
800 gr af sykri á móti hverju kg af
rabarbara. Mjög gott er að nota
púðursykur til helminga. Einnig er
mjög gott að bragðbæta sultuna með
vanillu, annaðhvort úr kornum úr
stöng eða bara venjulegum vanillu-
dropum. Þá borgar sig einnig áreið-
anlega að bæta rotvarnarefni út í
sultuna. Farið eftir leiðarvísinum á
þvi!
Margir eiga rabarbara i garðinum
sínum og þurfa því ekki að reikna sér
meira verð fyrir sultuna en það sem
sykur, vanilludropar og natrium
benzoatið kostar.
Hreinsið og burstið rabarbarann úr
köldu vatni og skerið hann í bita, ca 2
cm. Látið bitana í pott og mælið
sykur yfir. Gott er að láta pottinn
bíða til næsta dags. Rabarbarinn er
síðan soðinn við nokkuð mikinn hita
til að byrja með i opnum potti. Þegar
góð suða er komin i pottinn má
lækka hitann. Hræra verður öðru
hverju í sultunni til þess að hún
brenni ekki við.
Suðutíminn getur verið allt að 3—4
klukkutímar. — Hafið hugfast að
sultan þykknar þegar hún kólnar,
þannig að ekkert gerir til þótt hún sé
dálítið þunn á meðan hún er enn heit.
Þvoið glerkrukkur vandlega úr
sápuvatni og skolið úr hreinu vatni.
InterRent
ÆTLIÐ ÞÉR í FERÐALAG ERLENDIS?
VÉR PÖNTUM BÍLINN FYRIR YÐUR,
HVAR SEM ER í HEIMINUM!
BÍLALEIGA AKUREYRÁR
Reykjavík: Skeifan 9, Tel. 91—86915.
Akureyri: Tryggvabraut 14, Tel. 21715.
TIL SÖLU
BORÐ OG STÖLAR
Gömul borð og stólar fyrir um 200 manns eru til
sölu í Verzlunarskóla íslands.
Henta til nota á vinnustöðum, sumarbústöð-
um og í barnaherbergjum. Skólastjóri veitir allar
frekari upplýsingar.
Verzlunarskóli íslands.
(jrVALS
^ Folaldabuff..........2970 kr. kg.
Folaldabuff..........2830 kr. kg.
Folaldafillet........3200 kr. kg.
Kálfasnitchel........2950 kr. kg.
Nautasnitchel........4825 kr. kg.
Nautagullasch........3870 kr. kg.
Jj/j0mS%k Nauta roast beef....3950 kr. kg.
jíf álV NautaT-bonesteak....2470kr.kg.
m
Laugalæk 2. REYKJAVIK, simi 3 5o2o
DYRT AÐ BYRJA AÐ BUA
Húsmóðir á Furugrund Kóp. skrif-
ar:
„Kæra Dagblað!
Mér finnst ég verða að útskýra
þessa svimandi háu tölu, 391.976 kr.
Við hjónin eigum eitt barn og vorum
að byrja að búa 1. júlí 1979.
Þess vegna var eytt og eytt en
aðeins í það nauðsynlegasta sem þarf
til byrjunar búskapar. Við erum
fjögur í heimili í sumar, þar sem
barnapían býr hjá okkur.
Nú, við eigum enga frystikistu, því
.miður, svo ekki getum við keypt mat
og fryst. En það væri mikill kostur.
En það er sama, ég er ánægð yfir
að matarinnkaupin skuli ekki vera
hærri en 24.542 kr. á mann.”
Það er svo sannarlega dýrt að byrja
búskap og í mörg horn að líta þegar
það er gert. f dálkinum „annað” er
upphæðin upp á 293.806 kr„ eða
nærri 300 þúsund kr. Við getum
huggað húsmóðurina á Furugrund
með þvi að meðaltalið hennar i mat-
og hreinlætisvörum er ekki sem verst
miðað við þá seðla sem okkur hafa
borizt fyrir júlímánuð. ^ gj
■
Fermingarmánuðurinn dýrastur
Elínbjörg í Garðabæ skrifar:
„Hér með sendi ég minn fyrsta
seðil. Ég er ekki áskrifandi að Dag-
blaðinu en kaupi þaðdaglega af blað-
burðarbörnunum í mínu hverfi.
Við erum 12 í heimili. í sumar
höfum við verið 8 í júní, 10 í júli og
verðum 11 núna í ágúst. Þar af eru 6
fullorðnir, en hitt börn frá 5—14 ára.
Læt hérna fylgja með til gamans þá
mánuði sem liðnir eru:
Janúar 117.620 = 14.885 ámann
Febrúar 139.420 = 11.618ámann
Marz 228.950 = 19.079 ámann
Apríl 302.250 = 25.188 á mann
Maí 164.200 = 13.683 ámann
‘Júní (8) 138.610 = 17.326 á mann
Júlí(10) 165.035 = 16.503 ámann
f marz undirbjuggum við fermingu
sem var í apríl. í maí voru tvö börn
búin út í sveit. Við verziun mest í
stórmarkaðsverzlunum og mikið er
saumað heima."
Vel haldið á málum
Ekki verður annað sagt en að vel sé
á málum haldið hjá þessari mann-
mörgu fjölskyldu. Ef við reiknum út
meðaltal yfir þessa sjö mánuði ársins
kemur út 16.897 kr. á mann. Það
hefur sýnt sig í útreikningum okkar
að fjölmennu fjölskyldurnar fara
betur út úr heimilishaldinu en þær
sem fámennari eru. —
A.Bj.