Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979.
Dönsk ferja í sjávarháska
skammt frá Gautaborg
Ottum farþegunum, 587að tötu, varbjargað
AUir farþegar dönsku ferjunnar
Winston Churchill, 587 að tölu,
björguðust snemma í morgun eftir að
leki hafði komið að henni skammt
frá Gautaborg í Svíþjóð. Þyrlur frá
sænska hernum og strandgæzlunni
fluttu fólkið fráskipinu og í Iand, allt
að 21 mann í hverri ferð.
Winston Churchill var á leið frá
Gautaborg til Newcastle í Englandi er
skipið fór að leka. Það mun hafa
strandað við smáeyjuna Vinga. Stór-
sjór var á þeim slóðum og vindhæð
mikil. Alls eru nú um 35 manns af
áhöfn skipsins um borð. Þeir ætla að
reyna að halda því á floti þar til
frekari hjálp hefur borizt.
Mestur hlutir farþega Winston
Churchill voru enskir ferðamenn,
sem voru á heimleið eftir sumarleyfi í
Skandinaviu. Skipið var í leigu-
siglingu fyrir sænskt flutningafélag.
Um borð i því eru á annað hundrað
bílar og hjólhýsi ferðafólksins. Að
sögn sænskra björgunarmanna
komst fólkið heilu og höldnu í land,
að því undanskildu að einn maður
fótbrotnaði.
Að sögn þeirra, sem fyrstir voru
fluttir í land í morgun, átti enginn sér
ills von, er skipið strandaði. Sumir
sátu við barinn, aðrir að snæðingi er
heljarmikill kippur kom. Þegar var
tilkynnt í hátalarakerfi skipsins að
allir ættu að koma á þiljur, þar eð
skipið væri að sökkva. Næstu tvær
klukkustundirnar fóru siðan i að bíða
eftir björgun. Engin teljandi hræðsla
greip um sig meðal farþeganna.
Hér veifar vietnamskur drengur i átt að nýjum heimkynnum. Hann og foreldrar hans voru i hópi þeirra sem komu til
Feneyja á Italiu i siðustu viku með skipi frá italska sjóhernum. Það, ásamt fleiri itölskum skipum, hefur verið á Suður-Kina-
hafi að undanförnu við að bjarga hluta af bátafólkinu svoncfnda. Að sögn italskra stjórnvalda hefur milli niu hundruð og
þúsund manns verið bjargað fram að þessu.
Víetnamamir koma
PORTUGALSKIR
LÆKNARKOMA
TIL VINNU AD NÝJU
Portúgalskir læknar ákváðu í gær-
kvöld að binda enda á mánaðarlangt
verkfall sitt, sem lamað hefur alla
heilsugæzlu á opinberum sjúkrahúsum
og læknastofum. Læknasamtökin, sem
í eru allir 16.400 læknar landsins,
sögðu í yfirlýsingu sinni að þau féllust á
nýjustu tillögur stjórnarinnar um laun
og vinnuskilyrði. Þá var því fagnað að
stjórnin hefði lýst yfir vilja sínum um
að ræða frekari kröfur læknanna.
Á meðan á verkfallinu stóð sinntu
portúgalskir læknar engum skyldum
sínum nema að um algjör neyðar-
tilfelli væri að ræða. Þá undirrituðu
þeir jafnframt dánarvottorð. Þeir sem
tóku verkfall sitt hvað alvarlegast,
neituðu jafnvel að útskrifa sjúklinga af
sjúkrahúsum. Þeir höfðu hótað því að
jafnvel neyðartilfellum yrði ekki sinnt,
gerði stjórnin ekki eitthvað í því að
ganga til móts við kröfur læknasam-
takanna. Þær aðgerðir áttu að ganga í
gildi í dag.
Erlendar
fréttir
Meintur IRA-skæruliði handtekinn meö
birgðir af marijuana í fórum súmm
Maður, sem talinn er tilheyra írsku
skæruliðasamtökunum IRA, var hand-
tekinn í Dublin í gær. Lögreglan hand-
tók þrjá íra vegna gruns um að þeir
Um það bil átta hundruö hermenn
Marokkóhers voru drepnir í óvæntri
árás skæruliða Polisario í suðurhluta
landsins á föstudaginn var. Opinberir
talsmenn. Polisariohreyfingarinnar
skýrðu frá þessum atburði i nótt. Þar
sagði jafnframt að 110 hermenn hefðu
verið teknir til fanga.
Polisariohreyfingin berst fyrir frelsi
Vestur-Sahara. Bardaginn á föstudag-
Nýkomin er á markaðinn i Vestur-
Þýzkalandi hljómplata með Jóhannesi
Páli páfa II. Á henni syngur hann sex
trúarleg lög við ljóð eftir sjálfan sig,
með djúpri bassarödd að sögn þeirra,
sem heyrt hafa.
Upptakan á plötu þessari var gerð í
Póllandi, er páfinn var í opinberri
heimsókn þar í júní síðastliðnum. Meö
honum syngur stúdentakór í nokkrum
laganna.
hefðu eiturlyf undir höndum. Einn
þeirra reyndist vera James McCann,
talinn vera sá sami og slapp úr gæzlu í
Belfast fyrir átta árum.
inn varð nákvæmlega staðsett um 35
kílómetra frá alsírsku landamærunum i
eyðimörkinni Garrison.
í tilkynningunni, sem Polisario sendi
út í nótt sagði að auk þess hafa feilt um
átta hundruð hermenn og tekið
fanga hefðu 210 farartæki Marokkó-
hermannanna verið eyðilögð.
Sömuleiðis tókst skæruliðum að leggja
hald á mikið af vopnum.
Meðal annars er að fmna á plötu
þessari Andartak hins eilífa lífs, sem
páfinn orti ljóðið við. Það er flutt af
sinfóníuhljómsveit Krakowborgar og
kór. Upptaka plötunnar fór einmitt
fram í nokkrum kirkjum Krakow, á
svonefndu Sacrosong Festival, sem
Jóhannes Páll II var aðalhvatamaður
að fyrir tólf árum, er hann var erki-
biskupí borginni.
McCann á yfir höfði sér ákæru um
ólöglegan vopnaburð og að hafa haft
eiturlyf i fórum sínum. Hinir tveir, sem
með honum voru, hafa þegar verið á-
kærðir um sömu sakir. Alls höfðu
þremenningarnir undir höndum um
það bil hálft tonn af marijuana, að
verðmæli ein milljón sterlingspunda
(rúmlega 830 milljónir islenzkra
króna).
James McCann, sem er 37 ára að
aldri, slapp úr varðhaldi árið 1971. Þá
beið hann réttarhalda vegna gruns um
að hann hefði átt þátt í nokkrum
sprengjutilræðum IRA á Norður-
írlandi. Vestur-þýzka lögreglan telur
sig einnig eiga ýmislegt vantalað við
McCann vegna sprenginga í búðum
brezkra hermanna árið 1976. Hann
neitar hins vegar statt og stöðugt að
hafa nokkurn tima átt nokkuð saman
viö irska skæruliða að sælda.
Sömuleiðis segist hann ekki hafa haft
hugmynd um marijuanabirgðirnar,
sem náðust í gær, og aldrei átt neinn
þátt i eiturlyfjasmygli af neinu tagi.
Geysisterkur
jaröskjálfti
skammtfrá
FiEppseyjum
Jarðskjálftamælar í Hong Kong
sýndu aðfaranótt sunnudagsins
geysisterkan jarðskjálfta fyrir norðan
Filippseyjar. Upptökin eru talin hafa
verið um það bil fimm hundruð mílur
syðaustur af Hong Kong, norðan við
eyjuna Luzon, sem heyrir til Filipps-
eyjum.
Mælar í Golden í Colorado í
Bandaríkjunum staðsettu upptök
skjálftans mikla um áttatíu mílur
norðan við Luzon. Talið er að ekkert
• ;; hafi orðið af völdum hans, þar eð
<; tíSVir oru svo langt frá landi.
Nixonviltfriðtitað
„lesa, hiigsa ogskrifa”
Richard Nixon fyrrum forseti
Bandaríkjanna segist ekki óttast^ð
hann fái ekki frið í nýju heimkynnun-
um sinum í New York. Hann og kona
hans Pat hyggjast flytjast inn í íbúð
sína við fimmtu breiðgötu á Man-
hattan um næstu áramót. Þau hjónin
litu í síðustu viku á nýju íbúðina og
leizt vel á hana að sögn viðstaddra
fréttamanna.
Nixon kvaðst búast við því að geta
verið í næði á Manhattan, enda
þarfnaðist hann þess „til að geta les-
ið, hugsað og skrifað”, eins og hann
komst að orði. Forsetahjónin fyrr-
verandi röbbuðu við fréttamennina
um daginn og veginn, heilsuðu upp á
nokkra af þeim sem áttu leið framhjá
og kynntu sig fyrir nýju nágrönnun-
um sínum.
, ,Ég hef alltaf haft það á tilfinning-
unni,” sagði Richard Nixon, að New
Yorkbúar virtu friðhelgi heimilisins
öðrum fremur. Þess vegna kýs ég að
búa hér.”
Nixonhjónin hugðust fyrst festa
kaup á annarri íbúð. íbúar þess húss
brugðu skjótt við er þeir fréttu hver
væri að flytja inn og neituðu með
öllu að búa í nábýli við Nixon. Hann
varð því að falla frá þeim íbúðar-
kaupum og halda áfram að leita, þar
til hann fann n'-’ia húsið á fimmtu
br.e’ðp' tu.
Polisarío felldi 800
Marokkóhermenn
PÁFISYNGURINN
Á HUÓMPLÖTU