Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979.
1
Iþróttir
Iþróttir
21
I
Iþróttir
Iþróttir
Geir Svansson á „World Cup”
Geir Svansson, GR tryggði sér í gær
réttinn til að keppa á World Cup í
Portúgal ásamt Hannesi Eyvindssyni
GR er hann sigraði í Icelandið Open
Sumarliði
fótbrotnaði
— þegar Selfoss vann
Þór4-3
Fjórir leikir voru háðir í 2. deiidinni
um helgina og einn reyndar að auki á
föstudag. Það var því heil umferð og
cftir hana má segja að Reynir, Sand-
gerði sé svo gott sem fallið i 3.deildina
ásamt Magna. Þó er ennþá smá vonar-
glæta en harla litil. Austri bjargar sér
næsta örugglega eftir góðan sigur á FH
um helgina, en Fylkir sendi Magna end-
anlega niður með sigrí á Grenivík.
Þetta var harður leikur fyrir austan
og ekkert gefið eftir. Á 15. minútu
skoraði Bjarni Kristjánsson eftir auka-
spyrnu en 15 mín. síðar fengu FH-ingar
tækifæri til að jafna er dæmd var
aukaspyrna á Austra. Benedikt mark-
vörður Austra gerði sér þá lítið fyrir og
varði spyrnu Viðars Halldórssonar.
Lítið var um marktækifæri i þessum
leik en harkan anzi mikil á köflum og
t.d. voru þeir Bjarni Kristjánsson og
Benedikt Guðbjartsson, FH, bókaðir
fyrir grófan leik. Með þessum sigri má
telja nær öruggt að Austri haldi sæti
sínu í deildinni.
Austri hefur þar með fengið 11 stig
úr síðustu 7 leikjum sínum og liðið
hefur á köflum leikið prýðisgóða
knattspyrnu.
Á Selfossi var hörkuleikur og þar
fótbrotnaði aðalmarkaskorari Selfyss-
inga, Sumarliði Guðbjartsson. Þórsar-
ar voru hinir fjörugustu framan af og
Hafþór Helgason náði forystunni fyrir
þá fíjótlega. Ekki liðu nema tvær mín-
útur þar til Stefán Larsen hafði jafnað
metin. Nói Björnsson kom Þór yfir á
nýjan leik en Þórólfur Ingólfsson jafn-
aði aftur fyrir Selfoss. Hafþór kom Þór
enn á ný yfir en Tryggvi Gunnarsson
jafnaði fyrir hlé.
Strax í upphafí síðari hálfleiks
tryggði Sigtryggur Guðlaugsson
Selfyssingum sigurinn er hann skoraði
eitt fallegasta sjálfsmark sem menn
muna eftir á Selfossi. Hann var á miðju
vallarins og hugðist senda knöttinn til
markvarðar, en tókst ekki betur til en
svo að hann þrumaði honum efst i'
markhornið — gersamlega óverjandi.
Á ísafirði léku heimamenn við Þrótt,
Neskaupstað, sem þeir unnu 6—0 fyrr i
vikunni á Norðfirði. Nú var hins
vegar annað uppi á teningnum og
aðeins tvö mörk skoruð. Andrés
Kristjánsson kom ísfirðingum yfir með
marki úr víti en Bjarni Jóhannsson
jafnaði fyrir Þrótt — einnig úr víti.
Hilmar Sighvatsson skoraði eina
mark leiksins á Grenivík og sendi
Magna þar með endanlega niður í 3.
deildina.
Staðan i 2. deildinni er nú þessi:
Breiðablik 16 11 3 2 36—11 25
FH 16 11 2 3 47—17 24
Fylkir 16 8 2 6 26—20 18
Selfoss 16 7 3 6 25—20 17
Þróttur 16 6 3 7 12—21 15
Þór 16 6 2 8 20—25 14
ísafjörður 16 4 6 6 26—34 14
Austri 16 5 4 7 15—24 14
Reynir 16 3 5 8 14—28 11
Magni 16 3 2 11 15—37 8
—VS/-SSv.
Evrópumet
Roberta Felotti, 16 ára stúlka frá
Ítalíu, setti i gær nýtt Evrópumet í 1500
m skríðsundi á móti i Feneyjum. Synti
vegalengdina á 16:33.56 min. og bætti
Evrópumetið um meira en 13 sekúnd-
ur. Það átti Annelise Maas, Hollandi,
16:47.11 mín. sett 1977. Á mótinu i
Feneyjum, sem stóð í fjóra daga, voru
sett 11 ný itölsk met.
r ^
íþróttir
L. Á
með sigri í lcelandic Open í Grafarholti í gærkvöld
golfkeppninni, sem fram fór i Grafar-
holtinu um helgina. Siðasti hluti
keppninnar var holukeppni. Fyrir þá
sem ekki eru alveg með á nótunum
þegar talað er um holukeppni, er fyrir-
komulagið þannig að sá sem hefur
færri högg á hverri holu telst sigurveg-
ari.
Verði menn jafnir dettur holan
„dauð” þ.e. hvorugur fær neitt fyrir
hana. Þetta er mjög skemmtilegt fyrir-
komulag á keppni og þarna gerir í raun
lítið til þótt illa gangi á einni holunni —
alltaf má bæta það upp með betri
árangrí á þeirri næstu. Sé hins vegar
um höggleik að ræða þar sem hvert ein-
stakt högg er talið má ekkert út af
bregða þegar tveir jafnir kylfingar leika
saman.
í úrslitaleiknum í gær sigraði Geir
Svansson Einar Long 1—0. Þeir voru
jafnir fyrir síðustu holuna, höfðu báðir
unnið jafnmargar holur og því er skráð
1—0, þ.e. Geir var með eina holu fleiri
unnið þegar engin var eftir. Komi hins
vegar staðan 6—5 fyrir þýðir það að
annar kylfmgurinn hefur unnið 6
holum fleira en hinn og aðeins 5 eftir.
Þá er i raun gagnslaust að halda áfram
fyrir mótaðilann — hann getur ekki
unnið. Holukeppni er alltaf hætt strax
og útséð er að mótaðilinn getur ekki
a.m.k. náðjöfnu.
Hér á eftir fylgja úrslitin í keppninni.
16 M ANNA ÓRSLIT
Ragnar Olafsson, GR,
vann Júlíus R. Júlíusson, GK 4—2
Einar Long, GR,
vann Óla Laxdal, GR á 21. holu
Sigurdur Hafsteinsson, GR,
vann Jónas Krístjánsson, GR 3—2
Hannes Eyvindsson, GR,
vann Sigurð Sigurðsson, GS 1—0
Geir Svansson, GR,
vann Jóhann Kjærbo, GS, á 19. holu.
Óskar Sæmundsson, Gr,
vann Óttar Yngvason, GR 6—5
Björgvin Þorsteinsson, GA,
vann Sigurjón Glslason, GK 6—4
Hilmar Björgvinsson, GS,
vann Þorbjörn Kjærbo, GS 2—1
8 MANNA ÚRSLIT
Einar Long, GR,
vann Ragnar Ólafsson, GR 3—1
Hannes Eyvindsson, GR,
vann Sigurð Hafsteinsson, GR 2—1
Geir Svansson, GR,
vann Óskar Sæmundsson, GR 3—2
Björgvin Þorsteinsson, GA,
vann Hilmar Björgvinsson, GS 3—2
UNDANÚRSLIT
Einar Long, GR.
vann Hannes Eyvindsson, GR 1—0
Geir Svansson, GR,
vann Björgvin Þorsteinsson, GA 5—4
ÚRSLIT
Geir Svansson, GR,
vann Einar Long, GR 1—0
KEPPNI UM 3. SÆTIÐ
Björgvin Þorsteinsson, GA,
vann Hannes Eyvindsson, GR, 2—1
-SSv.
Aðeins
árgerð Skoda Amigo
á gamla verðinu.
bílar til ráðstöfunar. Tilboð
sem aðeins stendur skamma stund og
verður ekki endurtekið. Grípið tœkifœrið og
trgggið gkkur nýjan Skoda Amigo strax
Verð frá kr. 2.195.000.
JÖFUR HF
AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI
- SÍMI 42600