Dagblaðið - 27.08.1979, Page 23
DAGBLÁÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979.;
23
Áfram
,,Við höldum áfram að spila á
fullu fram til áramóta.” — Frá
vinstri eru Krístinn Svavarsson
saxófónleikari Pónik, Arnar
Sigurbjörnsson, Guðmundur
Benediktsson hljómborðsleikari
og Björgvin Halldórsson.
DB-mynd Árni Páll.
„Þessi nýja verður ólík öllum
þremur fyrri Brimklóarplötunum.
Auðvitað reynum við að halda sérein-
kennum okkar, en stefnan er dálítið
önnur en áður,” sagði Arnar Sigur-
björnsson gítarleikari Brimklóar, er
DB leit inn í Hljóðrita á fimmtudag-
jnn var. Þá voru nokkrir liðsmanna
Ihljómsveitarinnar í óða önn að vinna
við nýju plötuna, sem er nú sem
óðast að fá á sig mynd.
„Það er ómögulegt að segja til um
hvenær platan kemur út,” sagði
Arnar. „Við vonumst til að ljúka
upptökum og hljóðblöndun um miðj-
an september og síðan setjum við
plötuna bara á markað um leið og
hún er tilbúin.”
Næstaplata Spilverksþjóöanna:
Syngja um Valda skafara,
ínu og Einbjöm son þeirra
„Ég treysti mér illa til að „defi-
nera” tónlistina á þessari nýju plötu
okkar, hún er komin svo hressilega á
heilann á mér. Við erum þó að fást
þarna við mun léttari tónlist en á
íslandi, meirarokk.”
•
Þannig fórust Valgeiri Guðjóns-
syni orð er Dagbiaðið'ræddi við hann
um nýjustu Spilverksplötuna, sem
verið hefur í vinnslu síðustu vikur. Á
henni verða tólf lög, öll eftir Valgeir
og Sigurð Bjólu. Auk þeirra tveggja
er Sigrún Hjálmtýsdóttir með á plöt-
unni og einnig kemur við sögu dá-
góður hópur tónlistarmanna, sem
ekki teljast til Spilverks.
„í textunum fjöllum við um
þriggja manna fjölskyldu, Valda
skafara, ínu konu hans og soninn
Einbjörn,” sagði Valgeir. „Við lýs-
um kynslóðabilinu og sambandsleys-
inu þeirra í milli. Ætli gamli frasinn
um að þetta sé allt í rökréttu fram-
haldi af því sem við gerðum áður eigi
ekki við um þessa plötu.”
Valgeir sagði að enn væri ekki
komið opinbert nafn á nýju plötuna.
„Ætli við látum ekki skel hæfa kjafti
og grípum eitthvað úr efni textanna
sem nafn á plötuna,” sagði hann og
hló við.
Tveir þriðju hlutar Spilverks þjóð-
anna eru við nám erlendis á vetrum,
það er þau Valgeir og Diddú. Þau eru
bæði á förum utan innan skamms og
verður því ekkert úr því að Spilverkið
komi fram opinberlega og leyfi fólki'
að fá forsmekkinn af lögum nýju
plötunnar. Valgeir kvaðst ekkihafa
hugmynd um það, hvenær plaian
kæmi út. Það væri útgefandans að
ákveða það.
Þeir hljóðfæraleikarar, sem koma
við sögu á Spilverksplötunni, eru
Haraldur Þorsteinsson, bassaleikari
Brimklóar; Þorsteinn Magnússon
gítarleikari, sem eitt sinn starfaði
með hljómsveitinni Eik („Steini á
margar góðar rispur á plötunni,”
sagði Valgeir um spilamennsku Þor-
steins); David Logeman, trommu-,
'leikari i hljómsveit Jakobs Magnús-
sonar, leikur með i tíu lögum plöt-'
unnar; Magnús Kjartansson og Karl
Sighvatsson sjá um hljómborðaleik;
Halldór Pálsson leikur á saxófón og
einnig kemur Þorkell Jóelsson horn-
leikari, eiginmaður Diddúar, lítillega
^við sögu.
- ÁT
Meirihluti lag-
anna er f rumsaminn
Á þessari fjórðu breiðskífu Brim-
klóar verða væntanlega ellefu lög.
Þrjú þeirra eru erlend, hin eftir Arnar
iSigurbjörnsson og Björgvin Hall-
dórsson. Einnig á Jóhann G.
]Jóhannsson eitt lag á plötunni.
„Það má kannski telja til enn eins
nýmælisins,” sagði Arnar, „að
Jónas Friðrik og Þorsteinn Eggerts-
son hafa ekki samið neinn texta fyrir
okkur að þessu sinni, — án þess að ég
sé á nokkurn hátt að lasta þá. Við
látum blaðamönnunum það eftir. —
Við erum með tvo texta eftir Vilhjálm
frá Skáholti að þessu sinni. Einnig
yrkir Jón Sigurðsson talsvert og
Kjartan Heiðberg.”
„Því má bæta við,” skaut Björg-
vin Halldórsson inn í, „að við i Brim-
kló sjáum um alla tónlist og söng á
plötunni að því undanskildu að
Pónikmaðurinn Kristinn Svavarsson
spilar á alt- og sópransaxófóna og
Halldór Pálsson á tenörsaxófón og
flautu.”
Countrylögin
á sínum stað
„Þó að við segjum að nýja platan
verði ólík þeim fyrri,” hélt Björgvin
áfram, „þá verður gamli Brimklóar-
—Rætt viö Arnar og Björgvin um nýju Brímklóarplötuna
eftir skreppitúr
Þessa dagana er Brimkló á skreppi-
túr. Um síðustu helgi lék hljómsveitin
ásamt Halla og Ladda í samkomu-
húsum á Austurlandi. Næstu tvær
helgar heimsækir hún Vestur- og
Suðurland. Að því loknu verður 1
Jokið við að syngja inn á síðustu lög
plötunnar og hún hljóðblönduð. .
iBrimklóarmenn voru inntir eftir því
hvort þeir hygðust halda áfram spila-
mennsku undir Brimklóarnafninu
eftir að plötunni væri lokið.
„Já, já, við höldum áfram,” sagði
Arnar. „Það er ekki alls kostar rétt
hjá þér að kalla Brimkló hobbíið
okkar, því að við erum allir atvinnu-
menn í tónlistinni núna nema Ragnar
Sigurjónsson.”
„Það verður spilatími hjá okkur
alveg fram til áramóta,” bætti Björg-
;vin við. „Við fylgjum útkomu plöt-
unnar eftir og ætlum einnig að ráða
okkur á einstök böll. Það er kannski
rétt að koma því að að þeir sem hafa
áhuga á að ráða Brimkló geta farið
að hringja í okkur úr þessu. Ekki er
ráð nema í tíma sé tekið.”
Næsta plata
Að lokum létu Arnar og Björgvin
þess getið að hljómsveitin væri nú
■þegar farin að bræða með sér næstu
plötu.
„Á henni verður eingöngu frum-
samin tónlist,” sagði Björgvin Hall-
dórsson. „Við ætlum að taka plöt-
una uppá næsta ári á mjög nýstárleg-
an hátt, sem ég skýri ekkert nánar á
þessu stigi. Það kemur allt í Ijós
síðar.”
keimurinn enn til staðar. Erlendu
lögin þrjú eru til dæmis í countrystíl.
Þarna verður einnig að finna nokkra
rokkara og smá diskó sums staðar.
Eitt lagið á plötunni verður eingöngu
leikið. Hvort það er diskólag, ja
»»
„Við getum kallað það njúveif-
diskódjass,” skaut Arnar inn i.
Sumar- og haust-
markaðurinn
Enn eitt atriði við útgáfu næstu
Brimklóarplötunnar er frábrugðið
hinum þremur. Útgáfutíminn. Hún
kemur á markaðinn að hausti til, en
hinar hafa allar verið sumarplötur.
Undanfarnar vikur og mánuði hefur
sala erlendra jafnt sem innlendra
platna verið með fádæmum dræm.
Björgvin og Arnar voru inntir eftir
því, hvort eitthvert samhengi væri
þarna á milli.
„Alls ekki,” svaraði Björgvin.
„Við höfðum hreinlega ekki tíma til
að taka hana upp fyrr en núna.
HLH-flokkurinn tók allan okkar
tíma i sumar og ýmislegt fleira hefur
spilað inn í. Við erum alls ekki búnir
að missa trúna á sumarmarkaðinn. ”