Dagblaðið - 22.10.1979, Qupperneq 1
Vika gegn vímugjöfum:
„Allt niður 112 ára drekka þau og sniffa"
5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 1979. — 232. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.-AÐALSÍMI 27022.
„Drykkjan cr að aukast og færast
æ neðar í aldri,” sögðu nokkrir 13—
15 ára krakkar sem héldu blaða-
mannafund á föstudag i tilefni af
viku gegn vimugjöfum.
„Þetta er orðið talsvert vandamál
því krakkar allt niður i 12 ára eru
farin að drekka og flestir krakkar
13—15 ára hafa þegar fundið á sér í
fyrsta sinn. Skólarnir liða yfirleitt
ekki drykkju á böllum en krakkarnir
drekka niðri á Hallærisplani og i
I -1 l'.l
Tónabæ. Reyndar mega þau ekki
hafa vin með sér inn þar en þau fá
inngöngu ef þau gcta staðið i iappirn-
ar.
Við vitum einnig af jafnöldrum
okkar sem reykt hafa hass og af þó
nokkrum scm þefa af þynni en þó
aðallega bensini.
Þessir krakkar fá vin og fikniefni
Krakkarnir sem að blaðamannafundinum stóðu. Frá vinstri: Inger Aikman, hjá eldri systkinum sínum, eða þáað
Birna Bentsen, Úlfur Helgi Herjólfsson, Elín Jóhannesdóttir, Guðfinna Björas- þeir stela þvi. Við vitum einnig um
dóttir og Arni Sigurbergsson. DB-mynd: Ragnar. krakka sem eima spira heima hjá sér
eða brugga með vitund foreldra
sinna.Onnur drckka spirann óþynnt-
an. Drykkjan þykir fin og sifellt er
verið að reyna að fá okkur hin til að
vera með. Þessu viljum við koma á
framfæri við fullorðna fólkið,”
sögðu krakkarnir.
- DS
— sjáeinnigáhls. 16
fijálsif
úháð
dagmað
Það var i mörgu að snúast hjú lögreglunni I morgun regna roksins I horginni. Still- Þó stóðu lögreglumenn i ströngu rið aó negla og binda saman rinnupall rið Kirkju-
ansjíll rið Óðinsgötu 32 yfir grindrerk og þrottasnúrur. Höfðu hörn ú leið i skóla teig 27, þarsem myndin rartekin. Hérog þar um bœinn roru plötur og unnai) lauslegt
rétt nýlegafarið þar um sem stillansinnfell saman. að fjúka og flestir bilar lögreglunnar rið aðstoð með mannafla. . A St.
Skoðanakönnun DB um fylgi flokkanna:
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
VINNUR 6 TIL 7 MNGSÆTI
— en fær ekki hreinan meirihluta, skv. könnuninni—fylgishrun Alþýðuflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn mundi vinna
6—7 þingsæti en ekki fá hreinan
meirihluta á Alþingi, ef þingkosn-
ingar færu fram nú. Þetta er niður-
staða skoðanakönnunar, sem Dag-
blaðið gerði nú um helgina.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi sam-
kvæmt könnuninni 43,3 prósent at-
kvæða. Hann fékk i siðustu kosning-
um 32,7 prósent atkvæða. Flokkur-
inn fengi nú 26—27 þingmenn í stað
20.
Fylgishrun yrði hjá Alþýðuflokkn-
um. Hann fær samkvæmt könnun-
inni 12,8 prósent atkvæða og 7—8
þignmenn. Hann mundi því tapa 9,2
prósentustigum i atkvæðamagni og
6—7 þingsætum.
Alþýðubandalagið fær samkvæmt
könnuninni 21,9 prósent atkvæðanna
og 13 þingmenn. Það tapaði því einu
prósentustigi af atkvæðum og einum
þingmanni.
Framsókn fær samkvæmt könnun-
inni 21,9 prósent atkvæðanna og 13
þingmenn. Flokkurinn mundi þá
bæta við sig 5 prósentustigum og ein-
um þingmanni.
Þingsætum er í þessum útreikningi
skipt milli flokka í hlutfalli við at-
kvæðamagn.
Alltaf getur verið skekkja upp á
fáein prósent hjá hverjum flokki í
slíkri könnun og ber að taka niður-
stöðurnar með varúð. Miklu skiptir
einnig að þeir sem eru ýmist
óákveðnir, vilja ekki svara eða
segjast engan flokkanna kjósa eru
alls tæp 38 prósent af öllum sem
spurðir voru. Þessi hópur mun því
ráða miklu um úrslitin þegar hann
gerir upp hug sinn.
Sjálfstaéðisflokkurinn fær sam-
kvæmt könnuninni hreinan meiri-
hluta atkvæða og þingmanna í
Reykjavík.
Niðurstöður þessarar könnunar.
eru mjög frábrugðnar niðurstöðum í
könnun sem Vísir gerði fyrir tveimur
vikum.
-HTH
- sjá nánar um úrslit könnunarinnar og viðbrögð
stjómmálamannaábls. 6-7 og forustugrein á bls. 12
Barði
kaup-
manninn
ogstal
kampa-
víninu
í síðustu viku bar þjóf að garði
verzlunarinnar Dalakofans í
Hafnarfirði. Braut þjófurinn sér
leið inn i verzlunina með þvi að
brjóta rúðu og skríða inn. Svo
óheppilega vildi til fyrir þjófinn
að þegar inn var komið reyndist
eigandinn vera i verzlun sinnuGaf
þjófurinn honum vel útilátin
högg svo að sár opnuðust á vör og
á kinnbeini. Síðan sleit hann síma
verzlunarinnar úr sambandi.
Að þessu loknu fór hann að
vinskáp sem verzlunareigandinn
hefur i verzlunarhúsnæði sínu og
stal þar einni flösku af kampa-
víni, en lét aðrar tegundir sem þar
voru eiga sig, Þjófurinn hefur
ekki fundizt enn þrátt fyrir all-
miklar tilraunir.
Má vart á milli sjá hvor er
menningarlegri — kaupmaður-
inn, sem hefur vínskáp í búðinni
til að hressa upp á kúnna og
kunningja — eða þjófurinn, sem
vildi ekkert nema kampavín. A.St.
ROKIÐ GERÐIVÍÐA USLA í MORGUN
DB-mvnd: Sr. Þorm.