Dagblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979—233. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVFRHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022. ÓLAFUR JÓH. TAUNN HÆFASTILEIDTOGINN —síðan Geir, Albert og Lúðvík. Ólafur Jóhannesson bar höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálamenn í svörum almennings við þeirri spurn- ingu i skoðanakönnun DB, hvern menn teldu bezt til forystu fallinn. Þessi könnun fór fram samhliða' könnun DB um fylgi flokkanna, sem var birt í gær. Tvö hundruð og einn af þrjú hundruð spurðum nefndu ákveðinn mann, og nefndu 79 Ólaf. Það voru tæp 40 prósent af öllum þeim, sem tóku afstöðu. Menn úr öllum flokkum nefndu Ólaf, enda var fylgi Framsóknar í könnuninni 21,9prósent, langt undir fylgi Ólafs. í öðru sæti kom Geir Hallgrimsson með 34 atkvæði. Albert Guðmunds- son hlaut 20. 4. varð Lúðvík Jóseps- son með 13. „Kannski ýta þessi úrslit mér í framboð,” sagði Ólafur Jóhannesson um úrslitin. -HH —Sjá nánar um niðurstöður og viðtöl við „toppana” á bls. 8 vaxtalaus lán úr vösum borgaranna? — sjábls.5 Benedikt Gröndal: Meiriáhyggjuraf Braga en nokkru öðru ,,Ég hef meiri áhyggjur af þessu en nokkru öðru sem er að gerast í dag. í fúlustu alvöru get ég tapað þessu sæti og dottið út af þingi. Þá verð ég að fara að leita mér að annarri at- vinnuj” sagði Benedikt Gröndal for- sætisráðherra i Morgunpóstinum i morgun. Áhyggjuefni ráðherrans er fram- boð dr. Braga Jósepssonar til 1. sætis lista Alþýðuflokks í Reykjavík í próf- kjöri flokksins. Bragi snaraðist heim til Islands frá Ameriku, þar sem hann gegnir prófessorsstarfi í eitt ár, þegar fréttist um að þingkosningar stæðu fyrir dyrum. Bragi segir i viðtali við DB í dag, að hann sé staðráðinn í að velta Alþýðuflokksformanninum úr sæti sínu og þar með af þingi. - ARH Vélin bilaði og bátinn rak til hafs Um ellefuleytið i gærkvöldi hófst eftirgrennslan og leit að litlum opnum 5 tonna báti, sem fór frá Siglufirði kl. 3 í gærdag áleiðis til Húsavíkur. Þegar báturinn var ekki kominn á áfangastað kl. 11 fékk björgunarsveitin Garðar á Húsavík báta til að fara út á flóann og hugaaðbátnum. SVFÍ fékk Stafnesið EA, sem var á Grímseyjarsundi, til að sigla austur með ströndinni. Litlu síðar sáu menn á Stafnesinu Ijós norður af Flatey og reyndist það ljós á bátnum sem saknað var. Vélarbilun hafði orðið og rak bát- inn frá landi undan sunnan strekkingi. Nokkuð þykir óvarlegt að lagt skyldi í þetta ferðalag undir myrkur á svo litl- um farkosti. - A.St. ÞRIDJUDAGSGLENNA „Þaðer þriðjudagsglenna í honum, ’’ hefði einh ver veðurspámaður af gamla skólanum líklega kallað veðurlagio vii dag. í gamla daga þótti ekki mjög hagstœtt að fá uppstyttu á þriðjudegi eftir óveður. Það boðaði verra veður slðar. Myndin af heióursmanninum er reyndar ekki tekin I morgun. En hún er birt I þeirri von, að hann — og aðrir sem ga blautan þvott Ifórum sinum — fái glcnnu á morgun líka. Og heht glennur alla daga. - ARH / DB-mynd: Magnús Hjörieifsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.