Dagblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979. r-— Leiklist skiptunum við Herinn og Auðbjörgu kynjakind á við söguna, og af „milli- landafrumvarpinu” er ekki eftir nema nafnið tómt, einhver kann líka að sakna frásagnar af því þegar Þór- bergurgekk í stúkuna. íslenskur hungurmeistari Verður ekki leikatriði um „sítrón- flöskuna” eins og hálf utangarnar- legt fyrir vikið? Annað kemur mun betur fram, koma Þórbergs i kennaraskóla, kvenmannsleysi þeirra kumpána og hið rómaða kirkjugarðs- ævintýri, fundur Þórbergs og Elsk- unnar hans. Sjálfrátt eða ósjálfrátt úrval efnisins mætti ræða nánar. Á meðal margs annars er Þórbergur í Ofvitanum einskonar islenskur „hungurmeistari”, eins og Halldór Laxness kallar Hamsun í Sulti, reykjavíkurbóhem frá árdögum aldarinnar. Þá manngerð hefði kannski mátt leysa úr læðingi i hinu ósamda músíkali sem eiginlega er komið upp á tening í leikgerðinni. Eða er þetta bara vanþakklæti, svo góða skemmtun sem leikgerðin veitir eins og hún nú er? Hvað sem þessum álitaefnum líður, og þótt sýningin sé óneitanlega harla löng, er hún samt sem áður merkilega samfelld, liðleg og greið- geng á sviðinu. Röð hnitmiðaðra mannlýsinga Umgerð hennar er enn eitt meistarabragð Steinþórs Sigurðs- sonar: ásamt búningum leikenda eru örfáir leikmunir og gamlar reykja- víkurmyndir á baktjaldi allt og sumt sem á þarf að halda. Fjöldi fólks kemur við leikinn. Ég nefni í skyndi Steindór Hjörleifsson og Karl Guðmundsson sem lýsa ansi hnytti- lega ýmsum reykvískum höfðingjum í upphafi aldar, Harald G. Haralds- son og Hjalti Rögnvaldsson sýna snöfurlega þá kumpána Þórbergs, Rögnvald og Þorleif, og Sigurður Karlsson bregður upp í leiknum heilli röð einkennilega Imitmiðaðra mann- lýsinga, Margrét i lelga Jóhannsdótt- ir er hin tilkomumesta herkona. Glöggar mannlýsingar af öðrum toga eru Elskan: Lilja Þórisdóttir og þau mæðgin t'Unuhúsi, Erlendur og Una: Jón Júlíusson og Margrét Ólafs- dóttir. Og þá er ekki eftir nema árna lesendum Þórbergs Þórðarsonar og öðrum leikhúsgestum góðrar skemmtunar í Iðnó á næstunni. Lflikfótao Rsykjavltur OFVITINN eftir Þórberg Þórðarson (leikgerð Kjartans Ragnarssonar TónHst Atli Helmir Sveinsson Lefcmynd og búningar: Steinþór Sigurflsson Lýsing: Daniel Williamsson Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson Það verður ekki við því séð: Ofvit- inn er ekki né verður neitt sem má kalla ,4ramatískt verk”. Sama hvernig sögunni er hringsnúið fyrir sér, hún breytist ekkert við það. Hvað á þá að þýða að fara að gera úr Ofvitanum leikrit á sviði? Það er ekki hægt. Það má nú liggja milli hluta í þetta sinn hvaða rök og knýjandi ástæður reka menn til að búa til leikrit og leik- sýningar upp úr skáldsögum. Ætli þær geti ekki verið ýmislegar, bæði löngun til að fást við mikilsháttar viðfangsefni í nýju formi, með nýjum hætti, og traust á vinsældir mikils- virtrar skáldsögu sem vel geti komið sér í leikhúsinu. Og fleira i slíkum dúr. En hvað sem Kjartani Ragnarssyni og Leikfélagi Reykjavíkur hefur gengið til með leikgerð Ofvitans, þá er best að segja strax eins og er: það tókst á iaugardaginn í Iðnó sem maður að óreyndu hefði kannski ætl- að að ekki væri hægt að gera. Úr því a"ð endilega þurfd að búa til leikrit eftir Ofvitanum hygg ég að það verk hafi tekist alveg merkilega vel, sum- part kannski betur en ýms sambæri- leg verk frá fyrri árum. Leikræn frásögn efnis Undur má það heita ef Ofvitinn í Iðnó á ekki sambærilegar vinsældir vísar á næstunni og þau verk af þessu tagi sem áður hafa best tekist og mestrar hylli notið. Og það má vel muna að þessi leikritagrein: leikgerð eftir skáldsögum, er orðin býsna fyrirferðarmikill þáttur í jslenskri leikritagerð. Hversu vel Ofvitinn tekst til hygg ég að einkum stafi af því að leik- gerðin semur sig hispurslaust að efni og eðli viðfangsefnisins, hér er um leikræna frásögn efnisins úr bókinni í Unuhúsi: Jón Júliusson, Emil Guðmundsson, Margrét Ólafsdóttir og Jón Hjartarson. að ræða, en ekki tilraun til drama- tískrar endurgerðar sögunnar, né heldur tóma myndasýningu upp úr frá- sagnarefninu. Af þessu leiðir á meðal annars að aðalpersónan úr sögunni, Þórbergur sjálfur, klofnar í tvennt í leiknum, og ekki verður nein þörf lengur fyrir raunsæislega leikmynd. Aðalpersónur leiksins eru Þórbergur eldri, eða Meistarinn, sá sem söguna segir, og Þórbergur yngri, sem sjálfur lifir atburði hennar. Sögumaður og söguhetja, sem ekki verða sundur- greindir í sögunni sjálfri, frekar en kannski veruleiki og tílbúningur í efnivið hennar, verða á sviðinu tvær aðgreindar persónur sem halda efni leiksins saman og bera hann uppi. Margt fínt og natið Sigur leiksins ræðst af því að þetta reynist auðið að gera á sviðinu, og að því marki sem auðnast aö gera með þessu móti ljósa og áþreifanlega írón- íska fjarvídd frásagnarinnar í Ofvit- anum. Og af því hversu vel tekst að skipa og móta hlutverkin tvö í leikn- um: leikendur og leikstjóri sanna í verki á sviðinu að hugmynd leik- skáldsins var rétt og raunhæf. Ég hef ekki áður séð Jón Hjartarson gera neitt í þá likingu sem honum tekst í gervi hins eldri Þórbergs, leikarinn samsamaður sögumannshlutverkinu sem honum tókst um leið með fáum töktum, viðbrögðum að gera furðu skýrlega mannlýsingu. Og merkilega var mikill svipur með þeim Þórbergi yngra: Emil Guðmundssyni, og margt fínt og natið í samleik þeirra I sýningunni, hins ráðsetta sögumanns og dyntóttu söguhetju á ungum aldri. Þetta tvígilda hlutverk tekst sem sé, eins og vera ber, að gera þungamiðju leiks og sýningar. Það er ekki þar með sagt að með þessu móti sé ofvitinn frá Hala í Suðursveit leystur úr læðingi sög- unnar og hleypt ljóslifandi og sjálf- viljugum fram á leiksvið. Efni leiks- ins er frásögn, endursögn frásagnar- efnisins í Ofvitanum, Ofvitinn í Iðnó er leikgerð eftir sögunni en ekki sjálf- ráð nýsköpun úr efnivið hennar. Því miður? Sjálfstæð umsköpun Það er ekki þvi að neita að best finnst mér leikurinn takast þar sem höfundur leikgerðar og leikstjórinn, Kjartan Ragnarsson, leyfir sér mest sjálfstæði gagnvart frásögn Ofvitans, einkum í seinni hluta leiksins. Nú er efni leiksins ekki allt sótt í bókina heldur aukið söngvum og kviðlingum úr Eddu Þórbergs sem Atli Heimir Sveinsson hefur tónsett með nokkr- um stuðningi af annarri músík frá tíma sögunnar, og fer það margt vel. Og sum bestu leikatriðin eins og „heima hjá doktor” eða hungurs- neyð Þórbergs í umgerð úr „fútúrísk- um kveldstemmningum” úr Eddu, í seinni hluta leiksins, eru reyndar við það að leysa landfestar sínar í Ofvit- anum, verða frjáls og sjálfstæð um- sköpun og nýsköpun efnisins. Lík- lega er eftirsjá að því að þeir Kjartan og Atli Heimir skyldu ekki stiga feti framar og semja alskapað músikal upp úr efni Ofvitans og Eddu. Eins og endranær í leikgerðum skilar efnið úr Ofvitanum sér auð- vitað misvel í Iðnó, og mætti sjálf- sagt þrátta lengi um það hvað væri betur valið og hverju sleppt. Eigin- lega verður t .d. undarlega lítið úr við- Að ávaxta sitt pund Þeir sem átt hafa viðskipti við Rafn Hafnfjörð og prentverk hans á undanfömum árum hafa skjótt kom- ist að því að þar á bæ ráða ríkjum systurnar vandvirkni og smekkvísi ásamt listrænum metnaði. Þegar svo Rafn heldur ljósmyndasýningu skal engan undra þótt sömu eiginleika sé þar að finna. Þó held ég að mörgum hafi komið á óvart hve ríkulega Rafn hefur ávaxtað sitt pund sem ljós- myndari hin síðari ár. Þekktastur var hann sennilega fyrir svarthvítar myndir og hefur lítíð haft sig frammi í lit, nema ef nefna skyldi almanök og stöku mynd í Iceland Review, — en á sýningu hans að Kjarvalsstöðum kom í ljós að liturinn er honum eins tamur, ef ekki tamari. Nýjar hliöar Án þess að fara út í hin prófclemat- ísku tengsl ljósmyndar og annarra myndverka, þá held ég að Rafn mætti flokka meðal góðra landslags- túlkenda, — þeirra sem sífellt eru að uppgötva nýjar hliðar á landinu og setja þær fram í því formi sem þeim er eiginlegast. Þar beitir hann öllum sjónhornum, smásjánni, breiðlinsu og loftmynd og tekur ýmsa áhættu, en tekst þó oftast það sem hann ætlar sér. En að öllum öðrum ljósmyndum ólöstuðum, þá er myndröð hans frá vinnustofu Kjarvals bæði ómetanleg heimild og ljóðræn eftirmæli um meistarann. En öll var þessi sýning Rafni tíl mikils sóma, sjálfar mynd- irnar, uppsctning og sýningarskrá. Vatnslitir af landslagi Finnskur listamaður, Osmo Isaks- son, átti til skamms tíma verk uppi- hangandi í galleríi sem komið hefur verið fyrir í versluninni Kirkjumunir við Austurvöll. Isaksson þessi virðist mikill ferðalangur og i ferðum sínum dregur hann upp vatnslitamyndir af mannlífi og landslagi. Þetta eru þægilegar myndir og ögn rómantísk- ar, en þó eru hvorki mótífin né með- ferð þeirra ýkja nýstárleg og ekki er galleríið enn nægilega aðlaðandi. Birtu þyrfti sérstaklega að bæta. Danskur grafíker, Niels Reumert, var fyrir skömmu á ferð í Galleríinu við Suðurgötu og voru verk hans frá- brugðin öðru sem þar hefur verið til sýnis. Málaralegt Reumert sýndi 16 lithógrafíur, mjög litrikar og ærslafuUar, en þó ávallt heillegar. Myndefnið var hans eigin „eventyrverden” þar sem allt gat gerst, — trylltur dans stiginn, áköf innlifun, draumórar og ljóðræn íhygU. Ekki kæmi það mér á óvart þótt Reumert væri einnig Uðtækur málari, svo málaraleg eru vinnubrögð hans í grafíkinni. Ungur maður, Magnús H. Krist- insson, sýnir nokkrar vatnsUta- myndir og teikningar á Loftinu við Skólavörðustíg. Hann vil ég einfald- lega hvetja tU að söðla um og undir- gangast rækilega kennslu. Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON 'Rafn Hafnfjörð ásamt nokkrum „Kjarvalsmyndum" sinum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.