Dagblaðið - 02.01.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 1980.
7
150 þúsund taka þátt í
stálidnaöarverkfallinu
fyrsta allsherjarverkfallid í þeirri grein í 54 ár gæti staðið lengi
Brezkur stáliðnaður stöðvast
algjörlega í dag í fyrsta skipti á 54
árum. Leiðtogum hinna 150 þúsund
stáliðjuverkamanna og forstjórum
British Steel Corporation, sem er i
eigu rikisins, bar saman um að verk-
fallið geti dregizt mjög á langinn.
Engar líkur eru taldar á skjótu sam-
komulagi.
Vitað er að stálbirgðir i Bretlandi
eru miklar og stórnotendur eins og
bifreiðaverksmiðjurnar hafa tilkynnt
að halda megi áfram óbreyltri fram-
leiðslu í allt aðeinum rnánuði.
Að sögn aðalforstjóra stál-
iðjuveranna brezku eru til tveggja lil
þriggja mánaða birgðir af stáli en
ýmsar sértegundir gætu þó gengið lil
þurrðar eftir fjórar vikur.
Forustumenn stáliðjuverkamanna
boðuðu til verkfallsins fyrir áramót
eflir að þeir höfðu hafnað tilboði um
6% launahækkun. Verðbólga i Bret-
landi er nú 17% og engar sjálfvirkar
verðbætur sem koma þar á laun.
Stáliðnaðurinn brezki á mjög i
vök að verjast vegna lílillar eftir-
spurnar. Á það raunar við um þann
iðnað hvar sem er i heiminum. Gefið
hefur verið upp að tap brezks stál-
iðnaðar nemi einni milljón sterlings-
punda á dag.
Vitað er að Britisch Steel hefur
uppi áform um að fækka starfs-
mönnum sínum um 52 þúsund manns
í ár. Talsmaður samtaka stál-
iðjuverkamanna sagði i gær að hann
væri þess fullviss, að áhrifa verk-
fallsins yrði farið að gæta mjög víða
innan tveggja vikna.
Járnbrautarstarfsmenn i Bretlandi
hafa þegar lofað verkfallsmönnunt
fullum stuðningi og búizt er við þvi
að hafnarverkamenn muni brátt
samþykkja að skipa ekki upp stáli frá
öðrum löndum.
Síðasta allsherjarverkfall i brezk-
um stáliðnaði var i verkfallinu mikla
árið 1926.
Pisa:
TURNINN HÆG-
IR Á SÉR
Skakki turninn i Pisa á Ílálíu er
heldur að hægja á sér samkvæmt
niðurstöðum sérfræðinga. Að sögn
Guiseppe Toniolo, sem sérhæft hefur
sig í þessum margfræga turni, varð
hallaaukningin á liðnu ári innan við
tveir millimetrar. Til samanburðar má
geta þess að hallinn árið 1973 jókst
hvorki meira né minna en um 4,6 mm.
Skakki turninn i Pisa hefur stöðugl
verið að hallast meira og meira allt frá
því að hafizt var handa við að reisa
hann árið 1173. Hann er 55 metrar á
hæð og undirstaða hans var aldrei
nægilega traust. Hallinn á hæsta
punkti hans er nú fimm melrar frá
lóðréttu.
Bermuda:
Barízt og rænt
í fótboltanum
Allt fór í bál og brand á knatt-
spyrnuvelli í Hamilton á Bermudaeyj-
um í gær. Þar áttust við lið heima-
manna og gestir þeirra frá Alabama í
Bandaríkjunum. Voru gestirnir einu
marki undir, þegar dæmd var víta-
spyrna á annan bakvörð þeirra. Gengu
þeir af leikvelli í mótmælaskyni.
Trylllust þá áhorfendur og grýtlu
flöskum og öðru lauslegu inn á leik-
völlinn. Áttu leikmenn fótum fjör að
launa.
Nokkrir áhorfenda voru ekki
ánægðir með að þurfa að greiða' fullan
inngangseyri fyrir aðeins stundar-
fjórðungsleik og réðust því að miða-
söluskúrunum og rændu þar peningum
að jafnvirði nærri einnar milljónar
islenzkra króna.
Fljótlega tókust sættir með leik-
mönnum og var leiknum haldið áfram
og lauk honum meðsigri gestanna frá
Alabama.
Iran:
Bardagar milli Kúrda
og byltingarvarða
Að minnsta kosti tveir féllu og tíu
særðust i átökunum sem urðu á milli
Kúrda og byltingarvarða trúrra
Khomeiní í borginni Sanandaj í gær. Er
sú borg í héruðum Kúrda. Samkvæml
þvi sem fréttamenn höfðu eftir starfs-
liði sjúkrahúss í borginni, stóð
skothríð þar yfir í átta klukkustundir.
Um hríð var hún svo hörðað sjúkrabif-
reiðir gátu ekki nálgazt hina særðu.
Flestir hinna særðu voru vegfar-
endur, sem ekki tóku beinan þátt í bar-
dögunum. Að sögn liðsforingja í liði
byltingarvarðanna réðst lið skæruliða
Kúrda á búðir hinna fyrrnefndu og
skaut á þær með eldflaugum og hríð-
skotabyssum. Einnig var hand-
sprengjum beitt að sögn liðs-
foringjans. Auk þess sagði hann að
skotið hefði verið á verði á flugvellin-
um við Sanandaj og einnig að byggingu
þeirri þar sem útvarpsstöðin er.
Júgóslavía:
Leitaö olíu á haf i úti
Um miðjan áratuginn, sem er ný-
hafinn má ætla að Júgóslavar verði
farnir að vinna oliu af hafsbotni. Þarna
er bæði um að ræða olíu og jarðgas.
Var tilkynnt um að auðug olíusvæði
hefðu fundizt undan strönd landsins í
lok desember síðastliðsins.
Kemur þessi fundur sér mjög vel
fyrir Júgóslava þar sem olíulindir
þeirra á landi hafa dregizt saman um
10% á ári að vinnslugelu. Hingað til
hafa þeir verið í hópi þeirra fáu
Evrópuríkja, sem hafa getað séð sér
fyrir olíu sjálftr. Ekki hefur innan-
landsvinnsla Júgóslava dugað þeim
nema sem nemur um það bil fjórðungi
af olíuþörfínni.
Nokkur hætta er talin á þvi, að
olíuvinnslan í Miðjarðarhafinu úl af
ströndum Júgóslavíu raski eitthvað ró
ferðamanna á sólarströndum þar.
Ferðamannaiðnaðurinn hefur um
margra ára skeið verið Júgóslövum góð
tekjulind en ljóst er að olíuvinnslan
mun hafa vinninginn ef annað hvort
verður að víkja.
Jólasveinamyndir stóðu vió hlið varðmannanna við bandariska sendiráðið i Teheran um jólin. Munu það hafa verið erlendir
blaðamenn, sem ætluðu að færa gislunum þennan jólaglaðning en ekki er vitað hvort myndimar komust nokkurn tima til
þeirra.
50 farast í jarðskjálfta
á Azoreyjum
— f jögur hundruð særðir og hundruð húsa hrunin
Tilkynnt hefur verið að rúmlega
fimmtíu manns hafi farizt í miklum
jarðskjálfta sem varð á Azoreyjum í
gær. Mældist skjálftinn 7 slig á
Richler kvarða. Auk þeirra sem lálizt
hafa er vitað um I það minnsta fjögur
hundruð sem hafa slasazt.
Mest manntjón mun hafa orðið á
eynni Ofterceira en hún er önnur
mannflesta eyjan í Azoreyja-
klasanum sem er á miðju Atlants-
hafinu. Mest manntjón hefur orðið í
borgunum Angra do Heroismo og
Biscoitos.
Fjarskiptasamband á eyjununt
raskaðist mjög við jarðskjálftana og
var því mjög erfitt um allar
upplýsingar fyrsl eftir náttúruham-
farirnar.
Vitað er að hundruð íbúðarhúsa
hafa hrunið og í fyrstu var skýrt frá
því í portúgalska útvarpinu að flug-
braut sem bandaríski flugherinn
hefur til afnota þar væri ónothæf.
Það var siðar dregið til baka.
Tilkynnt hefur verið að nokkrar
fornrar minjar haft orðið fyrir hnaski
í skjálftanum. Skeylasendingar sem
áhugamenn i Portúgal náðu í gær-
kvöldi skýrðu svo frá að margir æltu
um sárt að binda á Azoreyjum.
Tilkynnt var að mikill skorlur væri á
blóði til særðra, einnig vantaði tjöld
til að koma nauðstöddum i eitthverl
skjól.
Azoreyjar eru i eigu Portúgala og
samkvæmt fregnum í sjónvarpinu i
Lissabon var Eanes forseti landsins á
slöðugum fundum í gær til að
skipuleggja hjálparstarf.