Dagblaðið - 18.02.1980, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
15
§
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Tíundi sigurleikur Víkings
í 1. deild var hinn erfiðasti
—Víkingur sigraði Fram 20-18 íLaugardalshöll eftir 10-10 í hálfleik
Það var gífurleg spenna loka-
mínúturnar í leik Fram og Víkings í 1.
deild karla i Laugardalshöll á laugar-
dag. Allt á suðupunkti og áhorfendur
slaðnir upp til að hvetja leikmenn liða
sinna sem mest þeir máttu. Fram hafði
smáunnið upp fimm marka forskot
Víkings, breytt stöðunni úr 19—14
fyrir Viking í 19—18. Hins vegar voru
ekki nema 29 sekúndur eftir, þegar
Hannes Leifsson skoraði 18. mark
Fram, svo möguleikarnir til að ná stigi
voru sáralitlir. Allt í einni hringiðu á
leikvellinum — leikiö maður á mann og
Vikingar einum faerri. Þeir héldu
knettinum örugglega og sjö sekúndum
fyrir leikslok var dæmt vitakast á
Fram. Úr þvi skoraði Sigurður
Gunnarsson og um leið gall flautan.
Leikslok — einum mest spennandi leik
íslandsmótsins lokið og vissulega fengu
Víkingar meiri keppni í þessum leik en
oflast áður á mótinu — eða í sínum
tiunda sigurleik i röð i 1. deild.
En það er ekki allt sagt með þessu
um þá spennu, sem ríkti í höllinni.
Meðan Fram var að minnka muninn
niður í eitt mark gerði Kristján
Sigmundsson, markvörður Víkings, sér
lítið fyrir og varði tvö vítaköst, með
miklum glæsibrag — og hafði reyndar
varið eitt áður um miðjan siðari hálf-
leikinn. Glæsileg markvarzla hans í
leiknum átti stóran þátt í sigri Vikings.
Hinu megin varði Sigurður Þórarins-
son vítakast Páls Björgvinssonar, sem
aftur náði knettinum. Kastaði á markið
en Sigurður varði glæsilega á ný og var
fagnað innilega. Markvarzlan hjá Fram
var einnig góð í leiknum.
Fram-liðið hefur vaxið mjög i leikj-
um sinum að undanförnu —
markvarzla stórlagast og keppnis-
skapið nú allt annað og betra.
Sennilega bezti leikur Fram í mótinu,
þrátt fyrir tapið og þrátt fyrir þá
staðreynd að helzti markaskorari
liðsins lék ekki með, Atli Hilmarsson.
Var á bekknum allan tímann, meiddur.
Víkingar voru heldur daufir í fyrri hálf-
leiknum — fengu þá hvað eftir annað
lækifæri til að ná afgerandi forustu. Þá
var það ekki gott að skora aðeins úr
einu af þremur vítaköstum i leiknum.
Jafnt í fyrri hálfleik
Þorbergur Aðalsteinsson skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Víking en
Hannes Leifsson jafnaði. Þá skoraði
Páll þrjú mörk í röð fyrir Víking —
Erlendur fyrir Fram og staðan eftir 7
mín. 4—2 fyrir Víking. Fram tókst að
jafna um miðjan hálfleik í 6—6 en
áður hafði Sigurður Gunnarsson skotið
hátl yfir Fram-markið úr vítakasti.
Lék ekki að öðru leyti i fyrri hálfleik —
kom inn á i æfingabuxum til að taka
vítið. Dómararnir fljótir að skipa
honum úr þeim. Ekki von á öðru en
illa færi eins og staðið var að víta-
kastinu. Víkingar sigu fljótt fram úr
aftur. Komust í 10—7 eftir 23. min. en
skoruðu ekki mark lokakafla hálf-
leiksins — einmitt á þeim tíma, sem
Árni Indriðason á auðum sjó á linunni eftir snjaila sendingu Sigurðar Gunnarssonar. Árni vippaði knettinum snyrtilega yfir Sigurð markvörð Þórarinsson. Birgir Jóhanns-
son og Erlendur Daviðsson, Fram, fylgjast með og Erlend Hermannsson, Viking, ber I markvörðinn. DB-mynd Halla Jónsdóttir.
þeir hafa verið sterkastir áður í leikjum
sínum á mótinu. Hins vegar skoraði
Erlendur Daviðsson, sem átli stórleik í
f.h. með Fram, þrjú síðustu mörkin og
staðan var þvi jöfn í leikhléinu 10—10.
í síðari hálfleiknum lék Sigurður
Gunnarsson í sóknarleiknum með
Víking, þrátt fyrir meiðsli í ökkla, og
það gjörbreytti sóknarleiknum framan
af. Á tveimur fyrstu mín. átti Sigurður
snjallar linusendingar á Þorberg og
Árna, sem gáfu mörk. 12—10. Fram
jafnaði á næstu tveimur mínútunum í
12—12 og komust svo i fyrsta skipti
yfir á sjöundu mínútu, þegar Andrés
Briddeskoraði.
En þá kom vel í Ijós að sá sterki
karakter, sem hefur ofl einkennt
Víkings-liðið I vetur. Það leikur bezt,
þegar mest á reynir — þegar liðið hefur
misst forustu eða er að vinna upp for-
skot mótherjanna. Varnarleikurinn var
frábær og það, sem fór í gegn varði
Kristján. Sóknarleiknum var breytt i
4—2 — tveir línumenn og í fjórtán
mín. skoraði Fram ekki mark. Víking-
ar hins vegar 6 og staðan breyttist i 18-
13. Sigur Víkings þá i höfn að flestra
áliti. Sigurður skoraði þrjú af mörkum
Víkings á þessum tíma og átti
línusendingar. Árni skoraði tvívegis af
linu — þá Erlendur.
Loks, þegar rúmar 20 min. voru af
hálfleiknum, skoraði Hannes 14 mark
Fram. Þorbergur svaraði strax, 19—14.
Þegar sjö mín. voru til leiksloka
skoraði Andrés úr viti fyrir Fram — og
Fram fékk strax á eftir annað víti.
Andrés tók það en Kristján Sigmunds-
son varði glæsilega. Víkingar fóru
mjög rólega i sakirnar — hugsuðu mest
um að halda fengnum hlut, og fengu
meira að segja dæmdar á sig tafir. For-
skotið var nokkuð öruggt en þegar 90
sekúndur voru til leiksloka skoraði
Sigurbergur sautjánda mark Fram.
Staðan 19—17 og rétt á eftir var Árna
vikið af velli. Víkingar nú einum færri.
Fram náði knettinum og fékk vítakast.
Nú reyndi Erlendur en Kristján var í
ham — varði — en Fram náði
knettinum og Hannes skoraði. 19—18.
Ekki nemá 29 sek. til leiksloka og það
var ekki nægur tími fyrir Fram. Maður
á mann — og síðari hluta hálfleiksins
léku varnarmenn Fram mjög framar-
lega. Tókst með þvi að trufla sóknar-
leik Víkings.
Mörk Fram skoruðu Erlendur 8/3,
Hannes 6, Sigurbergur 2, Andrés 2/1.
Mörk Víkings Páll 4, Þorbergur 4,
■Sigurður 4/1, Árni 3, Steinar 2,
Erlendur2og Ólafur I.
I -hsím.
Guðríður skoraði 15 mörk
— þegar íslandsmeistarar Fram sigruðu Grindavík
Fram sigraði stúlkurnar frá Grinda-
vik með yfirburðum i Laugardalshöll á
Fram-Víkingur 18-20(10-10)
tslandsmótið 1 1. deild karla í handknattleik, Fram-Víkingur 18—20 (10—
10) i Laugardalshöll 16. febrúar.
Beztu leikmenn. Kristján Sigmundsson, Vikingi, 8, Erlendur Daviðsson,
Fram, 8, Sigurður Gunnarsson, Víkingi, 8, Sigurbergur Sigsteinsson, Fram,
7, Árni Indriðason, Vikingi, 7.
Fram. Sigurður Þórarinsson, Snæbjörn Arngrimsson, Björn Eiriksson,
Birgir Jóhannsson, Sigurbergur Sigsteinsson, Hannes Leifsson, Andrés
Bridde, Átli Hilmarsson, Jón Ámi Rúnarsson, Jóhann Kristinsson, Egill
Jóhannesson, Erlendur Daviðsson.
Vikingur. Jens Einarsson, Kristján Sigmundsson, Páll Björgvinsson, Árni
Indriðason, Steinar Birgisson, Ólafur Jónsson, Erlendur Hermannsson, Þor-
bergur Aðalsteinsson, Magnús Guðmundsson, Sigurður Gunnarsson, Guð-
mundur Guðmundsson, Gunnar Gunnarsson.
Dómarar Árni Tómasson og Karl Jóhannsson, Fram fékk 7 vitaköst i
leiknum. Nýtti fjögur — Kristján varði tvívegis frá Erlendi og einu sinni frá
Andrési. Víkingur fékk 3 vltaköst. Nýtti eitt. Sig. Þórarinsson varði frá
Páli og Sig. Gunnarsson skaut yfir. Tveimur leikmönnum Fram vikið af velli,
Erlendi og Andrési. Þremur Vikingum, Steinari, Magnúsi og Árna. Áhorf-
endur 400.
laugardaginn, 31—9. Fram er því enn
ósgrað í 1. deild kvenna og er með 18
stig eftir níu leiki. Grindavík hefur enn
ekkert stig hlotið i deildinni í ár — enda
engin furða, liðið er ákafiega slakt.
Guðríður Guðjónsdóttir skoraði
hvorki meira né minna en. fimmtán
mörk í þessum leik, þar af sex úr vítum.
Er hún nú orðin önnur markahæst i 1.
deild kvenna, hefur gert 76 mörk.
Margrét Theódórsdóltir, Haukum er
hæst — hefur alls skorað 80 mörk.
Grindavíkurstúlkurnar byrjuðu vel
— komust í 4—1. Þá voru átta
mínútur búnar af fyrri hálfleik. Þá
fyrst fóru Fram-stelpur að taka við sér
og skoruðu hvert markið á fælur öðru.
Skoruðu tólf mörk á móti engu marki
Grindavíkur. Staðan í hálfleik var 13—
4 Fram í vil.
Fram skoraöi átján mörk í seinni
hálfleik á móti fimm mörkum Grinda-
víkurliðsins.
Þó svo að lið Grindavíkur hafi tapað
svona stórt í þessum leik hefur það
tekið miklum stakkaskiptum siðan það
fékk til sín Þór Ottesen, sem kom þeim
í 1. deild. Þær þurfa að bæta sig og
gefa ekki eftir þó svo að þær fái á sig
mörk. Þá er eins og þær gefist bara
upp. Kannski yrðu þær svolítið léttari á
sér ef þær mundu hætta að spila i
æfingagöllum! Dómarar leikja ættu að
laka strangar á að stelpurnar spili
æfingabúningum liða sinna, eins og oft
hefur borið á í vetur.
Mörk Frani skoruðu þær Guðríður
Guðjónsdóttir 15/6, Oddný Sigsteins-
dóttir og Jóhanna Halldórsdótlir 4
hvor, Guðrún Sverrisdóttir 2, Helga
Magnúsdóttir, Kristín Orradóttir og
Steinunn Helgadóttir 1 hver.
Mörk Grindavikur. Sjöfn Ágústs-
dóttir 5, Kristólína 2, Svanhildur Kára-
dóttir og Lóa Viðarsdóttir I hvor.
Dóntarar leiksins voru þeir Hjálmur
Sigurðsson glímukappi og Gunnar
Steingrímsson.
-IIJ
Fram— Grindavík 31-9 (13-4)
íslandsmótíð i handknattieik 1. deild kvenna, Fram-Grindavík 31— 9 (13—4) i Laugardalshöll,
laugardaginn 16. febríiar.
Beztu leikmenn (hœsta einkunn 10) Guðriður Guðjónsdóttír, Fram, 9, Oddný Sigsteinsdóttir,
Fram, 8, Jóhanna HalkJórsdóttir, Fram, 7, Jenný Grétudóttír, Fram, 6, Ama Steinsen, Fram, 6.
Fram, Kolbrún Jóhannsdóttír, Guðriður Halldórsdóttír, Heiga Magnúsdóttir, Jenný Grétu-
dóttir, Kristín Orradóttír, Ama Steinsen, Guðríður Guðjónsdóttír, Oddný Sigstoinsdóttir,
Steinunn Helgadóttír, Guðrún Sverrisdóttír og Jóhanna Halldórsdóttír.
Grindavik. Rut Óskarsdóttír, Runný Danielsdóttír, Berglind Demus, Krista Ólafsdóttir,
Hildur Gunnarsdóttír, Agústa Gisladóttir, Sjöfn Agústsdóttír, Ingun Jónsdóttír, Hulda
Guðjónsdóttír, Asrún Karisdóttír, Svanhildur Kéradóttír og Lóa Viöarsdóttir.