Dagblaðið - 18.02.1980, Side 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
MILUONIN OG ASA SOLVEIG
33
■\
Fimmludaginn 3ja janúar var á
20. siðu Morgunblaðsins 3ja dálka
mynd af Jónasi Krisljánssyni for-
manni rithöfundasjóðs ríkisút-
varpsins ásamt Ásu Sólveigu og Þor-
geiri Þorgeirssyni, sem eru að taka á
móti rithöfundastyrknum á gamlárs-
dag.
Í undirfyrirsögn fréttarinnar segir:
„Jónas, Kristjánsson formaður sjóð-
stjórnar afhenti þeim höfunda-
styrkinn að viðstöddum forseta
íslands, menntamálaráðherra og
fleiri gestum.”
Var þeim gefin sin milljónin
hvoru.
Ég verð að játa að ég hef ekki gert
mikið af þvi að lesa bækur „nútima”
höfunda, en gegnum ritdóma fengið
á þeim heldur litið álit. En þar sem
þarna var um að ræða álitlega fjár-
upphæð (enda þótt verðgildi
íslenzku krónunnar sé varla sjáanlegt
í smásjá) hefði ég nokkra forvitni á
að sjá með eigin augum fyrir hvað
þessi verðlaun höfðu verið veitt.
Móðurmálið
Að sjálfsögðu taldi ég ekki
hugsanlegt annað en þarna væru á
ferð einhver framúrskarandi verk,
sem fengu svona háa einkun. Þau
hlutu að sýna fágaða móðurmáls-
meðferð eða flytja einhvern athyglis-
verðan bókmenntaboðskap.
Ég fékk að láni hjá kunningja-
fólki bókina „Tregí taumi” eftir Ásu
Sólveigu.
Já, blessað móðurmálið. Ekki
vantar það verjendur.
Ég var ekki búinn að lesa margar
blaðsiður í bókinni er ég hnáut um
hverja dönskuslettuna á fætur
annarri.
Hér eru nokkur sýnishorn:
Blaðsíðu 7, 4ðu línu að ofan: —„Ég
tek sjcns á öðrum sopa og er
passlega búin að setja glasið aftur
inní ofn.”
Bls. 15 7. l.a.o.: ,, — öskubakkarnir
tæmast og taka nýþvegnir aftur sitt
pláss.”
Bls. 16, 4. I.a.o.: „— og Ijós
ryðliturinn passar við dökkt hárið
Bls. 16, 8. I.a.n.: ,, — svo minna
bæriáauða plássinu þarsem—”
Bls. 18, 3. l.a.o.: ,,— og henni fannst
allt svo flott sem hann segir.”
(leturbreytingar mínar).
Þetta er lauslega gripið upp af
fyrstu 18 síðunum í þessari 148 siðna
bók. Þá var fengin sönnun fyrir því
að ekki gat það verið móðurmáls-
meðferðin, sem höfundurinn fékk
hin háu verðlaun fyrir.
Boðskapurinn
í ræðu sinni við afhendingu
rithöfundastyrksins fjaliaði Jónas
Kristjánsson um boðskapinn, sem
bókmenntirnar flytja, og sagði meðal
annars: „Allar bókmenntir hafa
einhvern boðskap að flytja, eða að
minnsta kosti eitthvert ætlunar-
verk.” Svo segir í Morgunblaðs-
greininni.
Ég fór að leita að boðskapnum eða
ætlunarverkinu i bók Ásu. Ég tek hér
orðrétt eftirfarandi kafla úr bókinni.
Á blaðsíðu 112 segir: „Heldur þú að
ég hafi hvorki augu né eyru, heldurðu
að ég lifi svo rækilega einangruð i
bölv. eldhúsinu að ég viti ekki hvað
það merkir að vera kona. Ég veit það
nákvæmlega, það merkir pussan þín
og pikan þín. Það fylgir okkur alla
líð, hver einasta kvenvera hefur pjásu
og hver strákhvolpur sannar karl-
mennskulegt hugrekki sitt með þvi
að æpa það á cftir okkur opinberlega
á götunni. — Það er staðreynd, segi
ég rólegri, það er staðreynd, að Ijót-
ustu orð hverrar tungu er nöfnin á
kynfærum kvenna. Það eru verstu
skammaryrðin, það eru ógeðslegustu
orðin, svo ógeðsleg að þau eru ekki
læk'í orðabækur. í þessari staðreynd
er fólginn allur sannleikurinn um
virðingu karlmanna fyrir konum.”
(leðurbr. mín).
Þetta var milljón króna boðskap-
urinn hennar Ásu Sólveigar.
Jónas Guðmundsson rithöfundur
segir í dagbl. Tíminn frá 6. jan.
„Fastur viðburður er úthlutun
Alþýðubandalagsins úr rithöfunda-
sjóði rikisútvarpsins, en undanfarin
ár hafa aðeins kommúnistar fengið
verðlaun þaðan, þótt að nafninu til
séu þetta peningar sem rithöfundar
eiga, allir höfundar, án tillits til
stjórnmálaskoðana.”
Þarna fékk ég staðfestingu á
boðskapnum i bók Ásu, enda þólt
hann leyndi sér ekki við lestur
bókarinnar.
„Mehntaviðburður"
Bækur kommúnistiskra rit-
höfunda bera flestar þennan sama
boðskap; það er að vega að hjóna-
bandinu og heimilunum, sem eru
hornsteinar hvers siðaðs þjóðfélags
HVERGIMEIP'•
EFNAÚRVA!
GÓÐIR
KLÆD-
SKERAR
Dœmi um verð:
Ull og terylene
Alullar kambgarn, margir litir
Tweed-efni (ensk), margir litir
„Hard twist”, margir litir
Sérpöntuö efni (í ein föt)
HERRAFÖT
DORMEUII
Tilbúin- Eftir máli.
kr. 78.000.- 88.000.-
kr. 86.000,- 96.000.-
kr. 84.000.- 94.000.-
kr. 88.000.- 98.000.-
110- -160.000.-
Zlltíma -
KJÖRGARDI - LAUGA VEGI59
Kjallarinn
ÞórðurHalldórsson
Eftir að heimilinu og hjónabandinu
er sundrað er eftirleik nrinn
auðveldur, að koma á kommúnu-
þjóðfélagi, senr lýtur lögmálum
götunnar i einu og öllu. Einn liðurinn
í þcssum áformum rauðsokka og
kommúnista er að hræða konuna og
,gera lítið úr störfum hennar við
sköpun fagurs heimilislífs og góðra
uppeldisáhrifa, ná henni frá
heimilunum út i hinar ýmsu starfs-
greinar þjóðfélagsins, i þeim tilgangi
að upp alist lyklabörn, sem konia
heim úr skótanum að lokuðum
dyrum heimilanna. Eftir að hala
slafrað i sig eitthvað matarkyns úr is-
skápnum liggur leiðin út á götuna,
sem er besti skólinn til að skapa
stjórnlausan skcmmdarverka- og
glæpalýð.
Kommúnismi nærist hvergi þar
.sem ekki er hægl að skapa þessa
jupplausnaraðstöðu.
Ég hef oft haldið því Iram að
höfuðkrafa kommúnista við
myndun svokallaðrar vinstri stjórna
sé að fá i sinn hlul menntamálin,
enda alltaf fengið þau. Þeir eru ekki i
neinum vafa um hvað það gildir.
Bókmenntir á borð við ,,Treg i
taumi” er afraksturinn.
Það er svo aftur annað nál og cfni
til ihugunar að kommúnistar skuli
komast upp með þá ósvifni að bjóða
æðstu mönnum þjóðarinnar, forscta
landsins og menntamálaráðherra i
þessu tilfelli, til að vera viðstaddir
hina „virðulegu athöfn.” Doktors-
vörn og móttaka crlendra heiðurs-
gesta á að hverfa i skuggann fyrir
svona sögulegum mennlavirthurði.
Tða er það kannski hugsun
framámanna að heiðra svona
athafnir með þvi hugarfari að
„heiðra skaltu skákinn svo hann
skaði þigekki”?
I daglegri umræðu við
kommúnista og háin<omma er
viðkvæðið hjá þcint að á íslandi sé
ekki til kommúnismi. Þetta eru bara
sósialistar og vinstri menn sem öllum
vilji gotl gcra. Þctla hljómar vcl i
eyrum. En hvað segja framámcnn
kommúnista i dag unt innrás
föðurlands komntúnismans inn i
Afganistan? Hver unt annan þveran
þegja þeir þunnu hljóði og þykjast
ekkert hafa unt þá atburði að segja.
Haldið þið svo að þessir ntenn séu
skoðanalausir tindátar? Ekki er kyn'
þótt kcraldiðleki.
Þórrtur Halldórsson,
l.uvemburg.
^ „Fastur viðburður er úthlutun Alþýðu-
bandalagsins úr rithöfundasjóði ríkisút-
varpsins... ”
VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
1980
fímmtudagur, 21. febrúar, kl. 11.00
Kristalssalur Hótel Loftleiða
Dagskrá:
11.00-11.15 Mæting og móttaka fundargagna.
11.15- 11.45 Setningarræða formanns Verzlunarráðs ís-
lands, Hjalta Geirs Kristjánssonar.
11.45- 12.15 Skýrsla um störf stjórnar V.í. og fjárreiður
ráðsins.
12.15- 13.30 Hádegisverður í Víkingasal.
Ávarp viðskiptaráðherra, Tómasar
Árnasonar.
Fyrirspurnir.
13.30- 15.00 Framfarír og framtíðin
— Atvinnulífið á nýjum áratug —
1. Tækninýjungar á komandi áratug
og áhrif þeirra á atvinnulífið:
Guðmundur Einarsson, verk-
fræðingur.
2. Efnahagsleg skilyrði framfara:
Jónas H. Haralz bankastj.
3. Almennar umræður og ályktanir.
15.00-15.30 Störf, stefna og skipuiag
Verziunarráðs ísiands 1980—1990
1. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun 1980.
2. Viðfangsefni 1980—1990,
Ragnar S. Halldórsson.
Jóhann J. Ólafsson.
3. Laga- og skipulagsbreytingar.
15.30- 15.44 Kaffí.
15.45- 16.00 Kosningar:
1. Kosning formanns V.í.
2. Úrslit stjórnarkjörs.
3. Kosin 7 manna kjörnefnd.
4. Kosnir 2 endurskoðendur.
16.00-16.30 Önnur mál.
16.30 Fundarslit.
Fundarstjóri: Haraldur Sveinsson framkvæmdastjóri.
Kosningu til stjórnar ráðsins lýkur kl. 17.00 miðvikudaginn 20. febrúar. Atkvæðum skal skila til kjörstjórnar á
skrifstofu ráðsins fyrir þann tima.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku I sima 11555 vegna fjölda þátttakenda.