Dagblaðið - 19.05.1980, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 19.05.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. MAI 1980. 5 Ameriski billinn var illa farinn eftir áreksturinn á mótum Breidholtsbrautar og Stekkjarbakka. Slökkviliðið var kallað út vegna eldhættu. DB-mynd: Sveinn Þormóðsson. Vorkomunni i Reykjavik l'ylgir alltaf stöðugt nieiri og meiri mannsafnaður á Hallærisplaninu svonefnda. Siðustu tvær helgar hefur |iar verið ærið mikið um að vera. Að sögn lögreglunnar var ekki mikið unt skemmdarverk og ólæti þar um siðustu helgi, cf ntiðað er við há fyrri er rúður voru hrotnar viða um miðbæinn og lleiri spellvirki unnin. En eins og myndin sýnir voru þó óþrifin svipuð og venjulega, þvagpollar í hornum, brotnar flöskur á götum og gang- stéltum og slettur á rúðum og veggjum. í þessum óþrifum var Amor garnli þó á ferðinni og ekki bar á öðru en ástin blómstraði prýðilega á Halló aðfara- nótt laugardagsins. -ÁT/I)B-mynd: RagnarTh. Sigurðsson. Eskif jördur: Rútan bregzt í tengslum við Egilsstaðaflug — þannig að síðdegisblöðin berast degi of seint Þegar sumaráætlunin hjá I lugleiðum hefst I. maí fer margt úr- skeiðis hjá okkur. Þá er flogið tvisvar til þrisvar á dag til Egilsstaða en rútan fer frá Eskifirði kl. 9.30 og kemur aftur kl. 1 3. Á veturna fer rútan aftur á móti siðdegis til Egilsstaða. Við þessa breytingu gerist það að síðdegisblöðin koma ekki til áskrifenda niðri á fjörðum fyrr en daginn eftir út- komudag. Föstudags- og laugardags- blöð komast aftur á móti ekki til við- lakenda fyrr en á mánudegi. Fólk er mjög óánægt með þessa þjónustu rútunnar i tengslum við flugið og leiðir þetta oft til þess að fólk segir upp síðdegisblöðununt yfir sumar- mánuðina og byrjar ekki að kaupa þau i áskrift lyrr en á haustin altur. Þelta hefur gerzt á hverju sumri undanfarin ár. Væri ekki hægt að laga þetta með einu pennastriki og koma þvi þannig á að rútan lari til Egilsstaða síðdegis eins og gerist að vetrarlagi? Þannig fá menn sin blöð samdægurs.Annað er það i þessu sambandi, að þeir sem koma með seinni vélunum og ætla niður á firði standa uppi vegalausir. Það er dýrl að þurfa að taka sér leigubíl frá Egils- stöðum niður á firði. í framhaldi af þessu er rétt að geta um góða þjónustu umboðsmanns DB á Eskifirði, Oddnýjar Gisladóttur. Blaðið er komið i hvert hús á Eskifirði einum og háll'um klukkutima eftir að rútan kenntr. Sl. sunnudag fóru þau hjónin Oddný og Sigurður Magnússon upp á Egilsstaði og sóttu blaðið en þetta er um 100 km leið fram og til baka. Þetta kalla ég góða þjónustu. -Regina. r Isafjörður: Stuðningsmenn Péturs hafa opnað skrifstof u Stofnuð hefur verið kosninganefnd nianna, viðs vegar að af Vestfjörðum, er vilja stuðla að kjöri Péturs J. Thorsteinssonar. Formaður ncfnd- arinnar er Kjartan Sigurjónsson skóla- stjóri, varaformaður Guðmiindur Þórðarson byggingamaður. Aðrir í nefndinni eru: Hálfdán Kristjánsson, Súðavik, Ólafur Guðbjartsson, Patreksfirði, Erla Hauksdóttir, Flateyri, Ragnar H. Ragnar, Ísafirði, Messina Marsellius- dóttir, Isafirði, Einar K. Guðfinnsson, Bolungarvík, Gunnar Proppé, Þing- eyri, Haraldur Valsteinsson, ísafirði. Einar Steindórsson, Hnifsdal, Sigurður Guðmundsson, Bildudal, Högni Þórðarson, ísafirði, Sigurður Jónsson, prentari, ísafirði, Arnór Stigsson, ísafirði, Geirþrúður Charlesdóttir, ísafirði, Einar Árnason, ísafirði, Kristján Sævar Pálsson, Boltingarvik. Málfriður Halldórsdóttir er l'or- stöðumaður skrifstofunnar á ísafirði. Verður skrifstofan opin fyrst um sinn daglega frá kl. 14 til 18, en lengur er nær dregur kosningum. Síminn er 94— 4232 og 94—4132. -GAJ. HARÐUR ÁREKSTUR Á BREIÐHOLTSBRAUT Þrir voru lluttir í slysadeild eftir allharðan árekstur tveggja bifreiða á mótunt Breiðholtsbrautar og Stekkjar- bakka á föstudagskvöldið. Ökumenn beggja bilanna meiddust litils háttar, en farþegi annars bilsins fékk að fara heim strax að skoðun lokinni. Tildrög árekstrarins voru þau að sendi ferðabíll kom akandi eftir Stekkjarbakka og sinnti ekki biðskyldu á gatnamótunum. Hann ók því inn i hlið ameriskrar fólksbifreiðar sem átti þar leið um. Báðir eru bílarnir talsvert mikið skemmdir eftir áreksturinn. Bensin lak af geymi fólksbif- reiðarinnar svo að kalla varð slökkvilið út til öryggis. -ÁT- ÚT í LOFTIÐ ORKUSPARNAÐUR ÞINN HAGUR ÞJÓÐARHAGUR Starfshópur um eldsneytisspamað í bílum: Orkusparndðarnofnd iðnaðarraðunoytisins Bílgroinasanlbandið Félag íslenskra bifroiðaeigenda Olíufélögin Strætisvagnar Reykjavíkur Umferðarráð Sumir keyra í rykkjum, spyrna af staö, spóla, spæna og snögghemla. Eru í einskonar kvartmíluleik viö um- ferðarljósin. Slíkt hefur óþarfa bensíneyðslu í för meö sér. Viljir þú draga úr bensíneyöslunni og spara þér stórar fjárhæöir, veröur þú aö gera þér ljóst aö aksturslagið skiptir miklu máli. Aktu rólega af staö. Vertu spar á innsogið. Haltu jöfnum hraöa og hæfilegri fjarlægö frá næsta bíl. Geföu þér góöan tíma. Þaö eykur bensíneyöslu um 20-25% að aka á 90 km. hraöa í staö 70, auk þess sem þaö er ólöglegt. Haföu ekki toppgrind né aöra aukahluti á bifreiðinni aö ástæðulausu. Réttur þrýstingur í dekkjum skiptir líka máli. c Haföu bílinn ávallt í toppstandi. Og reyndu jafnan aö velja hentugar akstursleiöir. SPARAÐU AKSTURINN - ÞÁ SPARARÐU BENSÍN.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.