Dagblaðið - 19.05.1980, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 19.05.1980, Blaðsíða 10
10 *Útg«fandi: Dagblaðiö hf. Framkvamdastjórí: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson. ^RhstjómarfuRtrúi: Haukur Halgason. Fréttastjórí: Ómar Valdimarsson. SkMktofustjórí rttstjómar Jóhannos Reykdal. Íþróttir. HaNur Simonarson. Manning: Aóalsteinn IngóHsson. Aöstoðarfréttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrtt Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaðamenn: Anna Bjamason, AHi Rúnar HalldórssonL AHi Stainarsson, Ásgair Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stafánsdóttk, Elin ÁÍbertsdóttir, Ema V. fngóWsdóttir, Gunnlaugúr A. Jónsson f Óiafur Geirsson, Siguröur Svarrísson. Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannsson, BjamleHur BjamleHsson, Höröur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs son, Sveinn Þormóösson. Safn: Jón Sævar Baldvlnsson. Skrtfstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þrálnn ÞorieHsson. Sölustjórí: IngtAar Svainsson. DreHing- arstjórt: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siöumúla 12. Afgrelðsla, áskrtftadaild, auglýsingar og skrHstofur Þverholti 11. Aöaisimi blaðsins ar 27022 (10 Knur). Þeirtrúðuekki Ein er veigamesta orsök þess, að ísland beið ósigur fyrir Noregi í Jan Mayen deilunni. Hún er sú, að stjórn- málamenn okkar trúðu ekki á málstað- inn. Þeir töldu sig vera að semja um norskar eftirgjafir við norska eyju. íslenzku samningamennirnir áttu auðvitað að vefengja eignarhald Noregs á Jan Mayen. Sú var hin eina samningsstaða, sem gat veitt íslending- um annað og meira en ruður af norsku borði. í skák dugir ekki að geyma drottninguna uppi í borði. Jafnvel þeir stjórnmálamenn, sem á endanum stóðu einir gegn uppgjöfínni, lögðu aldrei neina áherzlu á vefengingu norsks eignahalds. Þess vegna er holur hljómur í mótmælum Alþýðubandalagsins þessa dag- ana. Margt fylgir í kjölfarið, ef menn gefa sér sem horn- stein, að Noregur eigi Jan Mayen. Þá fara menn að líta á öll frávik frá þeim hornsteini sem sigur fyrir ísland. Þá sætta menn sig við ruðurnar, svo sem nú hefur gerzt. Þeir fagna 85*Vo loðnuaflans og valdi til ákvörðunar heildaraflans. Þeir fagna ,,sanngjörnum” hluta annars afla. Þeir fagna skipun sáttanefndar um landgrunnið, frestun norskrar efnahagslögsögu og óformlegu frá- hvarfi frá miðlínusjónarmiði. í þremur atrennum viðræðna vantaði jafnan hrygg- inn og broddinn í röksemdafærslu hinna íslenzku samningamanna. Enda brotnuðu þeir í öll skiptin, er Norðmenn létu til skarar skríða með skyndisóknum og hótunum. Niðurstaðan er líka hryggileg. Ruðurnar eru ómerki- legar. Norðmenn, sem nú veiða 14% loðnustofnsins, geta hækkað hlut sinn með samningum við Efnahags- bandalagið. Fyrir aðeins þremur árum höfðu íslend- ingar einir alla loðnuna. Norðmenn geta neitað íslenzkum ákvörðunum um hámarksafla úr loðnustofninum með því að lýsa þær „ósanngjarnar”. Þeir ákveða svo „sanngjarnan” hluta íslendinga úr öðrum stofnum í norskri fiskveiði- lögsögu við Jan Mayen. Norðmenn geta neitað tillögum sáttanefndar um skiptingu landgrunns, auk þess sem samningurinn talar um skiptingu þess milli íslands og Jan Mayen. Þar með er hrunin kenningin um, að Jan Mayen sé ey án efna- hags á landgrunni íslands. Norðmenn geta sett sér efnahagslögsögu við Jan Mayen að rúmu hálfu ári liðnu, 1. janúar 1981. Og þeir geta haldið áfram lögfræðilegu þrasi um, að þeir hafi ekki formlega viðurkennt íslenzkar 200 mílur í átt til Jan Mayen. Niðurstaðan er sú, að Norðmenn hafa eignazt fisk- veiðilögsögu við Jan Mayen, svo og hafsbotninn að verulegu leyti, að minnsta kosti við Jan Mayen og norður af eynni. í staðinn fáum við svo ýmislegt smælki, sem meta má til 10% málsins. Að þessari uppgjöf standa Framsóknarflokkurinn, auðvitað Alþýðuflokkurinn og því miður báðir hlutar Sjálfstæðisflokksins. Sárast var, að tiltölulega skelegg- ir sjálfstæðismenn kusu að beygja sig fyrir formanni sínum. Annað eins og þetta gerist því aðeins, að menn byggja vígstöðuna á því, sem túlka má sem kröfugerð i eign annarra, í stað þess að vefengja eignarhald hins. Þetta.hafa margir sagt oft, en ekki náð eyrum íslenzkra stjórnmálamanna. í vetur hefur oft verið rætt um endurtekna bilun íslenzkra stjórnmálamanna í Jan Mayen deilunni. Sú bilun stafar að töluverðu leyti af því, að þeir neituðu sér um skýran og kláran hornstein að standa á — mál- stað að trúa á. Þannig töpuðum við Jan Mayen málinu að lokum. Finnland: DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. MAÍ 1980. V Mestur hagvöxtur lökustu Iffskjörin — þeir aðlaga sig erf iðleikunum og hafa gerzt sérf ræðingar í viðskiptum við stóra bróður í austri Liðið ár — 1979 — var efnahags- lega hagstætt fyrir Finna. Eftir margra ára erfiðleika horfa þeir nú vongóðir fram á við. Fyrri olíukreppan lék Finnland grátt, mun verr en önnur ríki Evrópu. Að sjálf- sögðu munu þeir finna fyrir þeirri olíukreppu sem nú gengur yfir. Þeir munu einnig verða að láta sitt af hendi vegna alþjóðlegra efnahags- örðugleika, þeirra sem nú ganga yfir. Finnland er landið sem talið er standa nokkurn veginn á mörkum vesturs og austurs þegar Evrópu er skipt eftir stjórnarháttum og áhrifa- svæðum Sovétríkjanna og Vestur- veldanna. I dag eru Finnar mun betur undir það búnir að takast á við efna- hagslega erfiðleika en áður. Lífs- skilyrði þar i landi eru þó enn sem komið er mun lakari en í nágranna- löndunum Sviþjóð, Noregi og Dan- mörku. Danskir fréttamenn hafa látið hafa eftir sér að finnskir aðilar sem þeir hafi rætt við séu undrandi þessa dagana. — Undrandi yfir þeim spurningum, sem áðurnefndir fréttamenn leggi fyrir þá. Þeir segjast óvanir sliku. — Spurningarnar eru gjarnan þær, hvernig Finnar fari að því að lifa af kreppu eða efnahagslega erfiðleika. — Við erum vanir annars konar spurningum frá dönskum frétta- mönnum — segja þeir. Ríkisvaldið í Helsinki hefur beitt sér fyrir ýmsum hvetjandi aðgerðum /gSi 'Sa) á efnahagssviðinu. Má þar nefna lækkun skatta á atvinnufyrirtækjum og launþegum, sem hafa borið góðan árangur. Finnska Alþýðusambandið hefur i raun viðurkennt að hófsemi í launakröfum sé réttlætanleg. Sagt er að hún muni bæta almenna efnahags- afkomu er hljóti þá einnig að koma meðlimum Alþýðusambandsins til góðaeins og öðrum í Finnlandi. — Rétt er að undirstrika það að at- vinnuleysi í Finnlandi var að meðaltali 7,5% árið 1978. Verkalýðsforustan viðurkennir að raunvirði þess sem upp úr launa- umslögunum komi verði meira með hófsemi í launakröfum en með harðari kröfupólitík. í þessu sambandi er einnig rétt að undirstrika þessa kröfu Alþýðusam- bandsins finnska. — Hún er sú, að skilyrði fyrir því að hófsemi sé nú gætt i launakröfum sé að viðbótarhagnaður fyrirtækjanna sem vinnst við hana sé ekki notaður til aukinnar tæknilegrar nývirkjunar. Krafan er sú að aukinn hagnaður sé notaður til að skapa ný at- vinnutækifæri en ekki færri tækifæri vegna tækninýjunga. — Þessi krafa hlýtur að helgast af miklu atvinnuleysi í landinu, sem eins og áður sagði var 7,5% að meðaltali árið 1978. — Þess vegna er stefna finnskrar t. Sykurverksmiðja í Hveragerði Allt frá árinu 1961 hefur Hinrik Guðmundsson verkfræðingur, fram- kvæmdastjóri Verkfræðingafélags íslands, unnið að athugunum á því að koma upp sykurverksmiðju á Íslandi. Upphaflega beindust athuganir Hinriks að því að flytja inn hrásykur ósekkjaðan í lest og hreinsa hann við jarðgufu. Þrátt fyrir mikla vinnu Hinriks, itarlegar skýrslur og brautryðjenda- starf, gekk illa að vinna málinu fylgi og ná eyrum ráðamanna. Árið 1977 flutti Þórarinn Sigur- jónsson alþingismaður þingsálykt- unartillögu, þar sem rikisstjórninni var falið að kanna hagkvæmni sykur- verksmiðju hérlendis, eða nánar til- tekið í Hveragerði. Þórarinn hafði þá kynnt sér vel hugmyndir Hinriks. Tillaga Þórarins var samþykkt á Alþingi, og þá loks má segja, að nokkurt skrið hafi komist á málið. Sykurhreinsun Hugmyndir Hinriks snerust eins og fyrr segir um að hreinsa hrásykur við gufuorku úr iðrum jarðar. Miðað við að sykurneysla íslendinga er um 10.000 tonn á ári þarf um 33.000 tonn af gufu við 3 ata þrýsting til þessarar hreinsunar. Hinrik Guðmundsson stóð fyrir stofnun Áhugafélags um sykuriðnað hf. haustið 1978 til frekari athugana á þessum málum. Áhugafélagið hóf síðan samvinnu við Finska Socker AB í Helsingfors um það verkefni að kanna hagkvæmni þess nánar að reisa hér sykurhreinsunarverksmiðju. Finnarnir höfðu þá þróað upp nýja .aðferð til þess að vinna sykur úr mel- assa, sem sumir nefna „sætleðju”. Norræni iðnaðarsjóðurinn, Nord- isk Industrifond, veitti styrk til þess- ara rannsókna að upphæð 250.000 FM. L KjaHarinn GuðmundurG. Þórarinsson Melassi er úrgangsefni frá sykur- verksmiðjum, bæði þeim sem fram- leiða sykur úr sykurrófum og sykur- reyr. Úr melassa hefur ekki verið unnt að vinna sykur með venjulegum aðferðum. Gæði melassans frá hinum ýmsu hlutum heimsins eru mjög mismunandi eftir vaxtarskil- yrðum rófna og reyrs, veðurfari og verkunaraðferðum verksmiðjanna. Heildarframleiðflan í heiminum af melassa hefur verið: '• 'f ’•'’••'*»«••. 1974/75 27.3 milljón tonn / ári 1975/76 28.2 — — 1976/77 31.1 — — 1977/78 33.8 — — 1978/79 34.1 — — Verulegur hluti þessa melassa er þó nánast ekkert notaður, og talið er að heimsverslunin á melassa nemi um 8 milljón tonnum áári. Islendingar myndu þurfa um 25.000 tonn/ári af melassa til þess að framleiða þau 10.000 tonn/ári, sem þeir nota af sykri. Melassinn er samsettur þannig, að um 50% hans er sykur, 20% vatn og 30% önnur efni, mismunandi eftir hráefninu. Helstu útflutningslönd melassa hafa verið: Rófu melassi tonn / ári Tyrkland . 88.000 Marokko . 150.000 Frakkland .330.000 Grikklánd . 100.000 Belgia + Luxemburg . . 185.000 Holland . 282.000 Reyr melassi Brasilia . 635.000 Mexíkó . 600.000 Thailand . 575.000 Kúba . 400.000 Filippseyjar . 340.000 Kosturinn fyrir íslendinga af því að nota melassa til sykurgerðar er fyrst og fremst sá, að heimsmarkaðs- verð hans er óháð verðinu á hrásykri og sveiflurnar i verði litlar þó um árs- tiðasveiflur sé að ræða. Sveifiur í sykurverði á heimsmarkaði geta hins vegar verið gífurlegar eins og Íslend- ingar þekkja. Auk þess ætti framboð af melassa að vera nægilegt. Gífurlega orku þarf til þess að framleiða sykur úr melassa, og er áætlað, að um 130.000 tonn af gufu við 3 ata þrýsting þurfi til þess að framleiða 10.000 tonn ,af hvitasykri úr 25.000 tonnum af melassa. Við hagkvæmnireikninga hefur verið gert ráð fyrir, að melassaverðið sé um 120 Bandaríkjadollarar á tonn cif Þorlákshöfn af rófumelassa, en 100 Bandaríkjadollarar á tonn af reyrmelassa. Úr 25.000 tonnum af melassa er gert ráð fyrir að fá 10.000 tonn af hvítasykri og um 10.000 tonn af- gangsefni, sem kalla má fóðurmel- assa og nýta má sem skepnufóður. Um 5.000 tonn af vatni gufa upp við vinnsluna.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.