Dagblaðið - 19.05.1980, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. MAl 1980.
G
19
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
FH-ingar skoruðu fyrst en
sofnuðu síðan á verðinum
— Kef Ivíkingar skoruðu tvívegis á 6 mfnútum og tryggðu sér sigur í Kaplakrika
Þórir .Sigfússon skoraói sigurmark ÍBK
gegn KH.
Tvö mörk Keflvíkinga á 6 minútna
kafla um miöjan síðari hálfleikinn gegn
FH gerðu út um leikinn. FH leiddi 1—0
þegar hinir ungu og frísku strákar úr
Kcflavikinni tóku til sinna ráfla. Á 60.
minútu fengu Keflvíkingar aukaspyrnu
á hægri vængnum, skammt utan víta-
teigs. Fimm FH-ingar fóru í varnarvegg
og einn Keflvíkingur tróö sér á milli
þeirra. Athyglin var svo gersamlega
bundin við þann mann að hinir leik-
menn Keflvíkinga inni í vítateignum
hreinlega gleymdust. Óiafur Júlíusson
framkvæmdi aukaspyrnuna mjög lag-
lega og sendi knöttinn vel inn i teiginn.
Þar kastaöi Sigurjón Sigurðsson,
ungur nýliði, sér glæsilega fram og
skallaði knöttinn i bláhornið — óverj-
andi fyrir Halldór Pálsson i markinu.
Þetta mark virkaði eins og vítamin-
sprauta á Keflavikurliðið, sem sótti án
afláts næstu mínútur. Á 66. mínútu gaf
Ólafur vel fyrir markið af vinstri kant-
inum. Knötturinn sveif yfir alla varnar-
menn FH og beint til Þóris Sigfús-
sonar, sem hafði lítið fyrir því að
skora, 2—1. Eftir markið gerðu Kefl-
víkingarnir þá reginskyssu að draga sig
aftur og ætla að halda fengnum hlut.
Það tókst þeim að vísu en það var ekki
þeim að þakka að FH skoraði ekki.
Þrivegis síðustu 20 mínúturnar fengu
FH-ingar færi á að jafna metin. Fyrst
skallaði Pálmi Jónsson beint i fang
Jóns Örvars, sem var í meira lagi mis-
tækur í markinu. Mínútu siðar skap-
aðist stórhætta við mark ÍBK eftir
glannalegt úthlaup Jóns og á 81.
Englendingar
fengu skell
hjá Walesbúum
—töpuðu 1-4 ef tir 7 sigurleiki í röð
F.nglendingar fengu héldur belur
óvæntan skell í brezku meistarakeppn-
inni, sem hófst á laugardag, er þeir
steinlágu fyrir Wales I—4 í Wrexham.
F.kki þarf að taka það fram að þetta er
stærsta tap F.nglands i 16 ár eða síðan
Krasilíumenn unnu þá 5—1 í Ríó. Um
leið var þelta stærsti sigur Wales á F'ng-
landi i sögu knattspyrnunnar þarlendis.
Englendingar voru án 6 leikmanna er
voru i sigurliðinu gegn Argentínu-
mönnum á þriðjudag og þar á meðal
voru Kevin Keegan, Tony Woodcock,
David Watson, David Johnson og Ray
Wilkins, sem reyndar kom inn á sem
varamaður. Þrátt fyrir allt náðu Eng-
lendingar forystu á 16. mínútu með
marki Paul Mariner en siðan hrundi
allt saman. Vörnin hjá Englandi var
mjög óörugg og þá einkum og sér í lagi
þeir Larry Lloyd sem lék sinn fyrsta
landsleik i 8 ár, og Phil Thompson,
fyrrum félagi hans hjá Liverpool.
Micky Thomas jafnaði metin strax á
el'tir og lan Walsh kom Wales yfir fyrir
hlé, 2—I. England sótti án afláts í síð-
ari hálfleik en það var Wales sem
skoraði. lan Leighton James bætti
þriðja markinu við á 60. minútu og á
66. minútu varð Phil Thompson fyrir
þvi óláni að senda knöttinn í eigið net.
Undir lokin færðist nokkur harka í
leikinn og var þá Lloyd bókaður fyrir
brot á David Giles en síðan varð hann
að haltra út af á 80. mínútu. Þetta tap
Englendinga kemur eins og köld vatns-
gusa framan í þá eftir 7 sigurleiki í röð
og víst er að undirbúningurinn fyrir
Evrópukeppnina í Róm i næsta mánuði
þarl' gagngera endurskoðun. íslend-
ingar geta ekki gert sér neinar vonir um
auðveldan leik 2. júní því þetta sama
velska lið leikur hér á Laugardalsvellin-
um við ísland í forkeppni HM á Spáni.
Velska liðið er ekki skipað neinum
stjörnuleikmönnum og megnið af liðs-
mönnunum kemur úr lægri deildunum
á Englandi. í hinum leiknum í keppn-
inni sigraði N-lrland Skotland I—0
með marki Billy Hamilton. Leikið
verður fram á miðvikudag og síðan á
laugardag.
Maradona heill-
aði alla íra
—fór á kostum í 1-0 sigri Argentínu
l)iego Maradona heillaði írska
knattspyrnuunnendur upp úr skónum á
laugardag, er hann leiddi
Argentinumenn til sigurs gegn írska
landsliðinu í Dublin, 1—0. Stór-
kostlegur einleikur hans leiddi til eina
mark leiksins. Á 27. mínútu tók
Maradona ,,a bewildering solo" eins
og Reuter-fréttastofan kemst að orði
og var brugðið rétt utan vítateigs.
Hann tók aukaspyrnuna sjálfur og
sendi beint á kollinn á Jode Vaiencia
scm skallaði i netið af 10 metra færi.
Maradona skapaði fjöldann allan af
færum fyrir félaga sína en þau nýttust
ekki. I siðari hálfleiknum slökuðu
Argentínumennirnir nokkuð á og
virtust sætta sig við þetta eina mark
sitt. Það reyndist þeim næstum dýr-
keypt því fyrst brenndi Don Givens af
og siðan Gerry Daly rétt á eftir á loka-
minútunum.
Maradona var klappað lof i lófa
lengi vel eftir leikinn en 35.000 manns
voru á vellinum þar á meðal fjölmargir
íslendingar sem nú dveljast í Dyflini.
mínútu lyfti Pálmi knettinum rétt yfir
þverslá eftir enn ein hrapalleg mistök.
Jóns.
FH hóf leikinn á laugardag betur og
naut aðstoðar vindsins. Leikmenn
reyndu mjög að leika yfirvegað í rokinu
og tókst það á stundum en endahnútinn
vantaði jafnan á uppbyggingu sókn-
anna. Tíðindalítið var framan af leikn-
um en síðan fóru FH-ingarnir að finna
glufur í annars þéttri vörn Keflvíkinga.
Á 18. mínútu komst Pálmi einn í gegn
eftir mistök Gísla Eyjólfssonar en fast
skot hans fór yfir. Sex mín. síðar komst
hann aftur í gegn en skaut beint i fang
markvarðarins. Enn komst Pálmi í gott
færi á 33. mínútu en þá var naumlega
bjargað i horn. FH skapaði sér færin
en ekki var skorað úr þeim. Pálmi er
stórhættulegur miðherji en vantar
nauðsynlega að koma tuðrunni í netið
einu sinni til að komast á bragðið.
Eina mark FH kom á 56. mínútu.
Það þurfti dyggilega aðstoð varnar-
manns Keflvíkinga við það því sending
hans til markvarðar var allt of laus.
Heimir Bergsson, sivakandi, stakk sér
inn á milli og náði knettinum. Lék á
Jón Örvar i markinu og var að búa sig
undir að spyrna í markið er mark-
vörðurinn brá honum. Vítaspyrna og
ekkert annað. Úr henni skoraði Helgi
Ragnarsson örugglega.
Leikurinn var í heildina fremur
slakur og gat farið á hvorn veginn sem
var. FH-inga vantar nauðsynlega meiri
kraft á miðjunni og varnarleikurinn er
enn óöruggur. Sóknin er frísk en mörk-
in vantar. Beztu menn liðsins voru
Guðjón Guðmundsson, sterkur leik-
maður sem ekki fer mikið fyrir, Ásgeir
Arnbjörnsson, Pálmi Jónsson og
Heimir Bergsson, sem hvarf þó allt of
mikið inn á milli. í liði ÍBK var Óskar
Færseth mjög sterkur i bakvarðarstöð-
unni. Ragnar Margeirsson var siógn-
andi og þá var nýliðinn Sigur-
Jón Sigurðsson mjög frískur. Ólafur
Júliusson var maðurinn á bak við
flestar sóknir Keflavikurliðsins og átti
góðanleik. -SSv.
Olíufylltir
TERMEL
rafmagnsofnar.
Hagkvæmustu og
þægilegustu hitagjafarnir
KJÖLUR SF
Thom
VESTURGÖTU 10 SflVII
KEFLAVfK SÍMI 92 2121
SUPER-SUGAN
A HLÆGILEGU VERÐI
SOGAR
VATN,
MÖL, SAND,
STOFUTEPPIN
OG
NÁNAST
HVAÐ
\
ER
mrnÍÍ8ÉÍÍmm
Model 840 EG
PÓSTSENDUM
ASTRA
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 32030
Vestur-
ÞS'zk
gœðavara
Fyrir fyrirtœki,
bygginga*
verktaka,
stofnanir,
verkstœði og
heimili
VERÐ:
34 LÍTRA KR. 139.900
43 LÍTRA KR. 159.800
51 LÍTRA KR. 199.300
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ